miércoles, 25 de octubre de 2006

total error

Einhvern tímann hlýtur maður að gera mistök, í gær gerði ég mistök : / Ég gleymdi að mæta í verklegan tíma í Próffræði og það er 100% mætingaskylda. Kennarinn gefur enga sénsa og þetta þýðir að ég er búin að missa próftökuréttinn í námskeiðinu : ( sem þýðir að útskriftinni minni mun seinka fram að næstu jólum : ( : ( : ( Þvílíka klúðrið ! Ég var bara svo spennt yfir þessu STRONG prófi og svo þurfti ég að læra fyrir prófið sem ég var í í dag og þessir verklegu tímar eru bara aðra hverja viku ...Og einhvern veginn þá bara algjörlega steingleymdi ég tímanum og áttaði mig ekki á þessu fyrr en ég lagðist upp í rúm um kvöldið og fór að hugsa um hvaða vikudagur væri : / Ég ætla að reyna að tala við kennarann og athuga hvort að það sé ekk eitthvað sem ég get gert. Mér finnst refsingin vera ansi hörð - ég þarf að vera einni önn lengur í BA námi og þarf taka 300 þús meira í námslán bara af því ég var gleymin í einn dag : ( En þetta hefur alla veganna ýtt alla harkalega við mér. Núna er kominn tími til að berjast á móti þessu þunglyndis-vonleysisskýi sem hefur verið yfir mér frá því skólinn byrjaði. Ég virðist bara hafa misst trúna á sjálfa mig í skólabyrjun þegar ég áttaði mig á því að ég væri mun verr stödd en ég bjóst við og það er bara bókstaflega búið að klúðra fyrir mér þessari önn. Maður reynir þó að bæta úr þessu eins og hægt er og halda svo bara áfram af krafti. Og fyrst ég ætla að vera svona dugleg í skólanum þá ákvað ég að nú væri líka kominn tími til að fara að borða mat :Þ og því hefur allt nammi verið strokað út af matseðlinum ... Pepp væri vel þegið -Íris sem fann heilann sinn á víðivangi og er loksins aftur komin í samband við sjálfa sig-

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Fullt, fullt af peppi frá mér.
mamma :-)

Anónimo dijo...

jú gó görl!!!! stundum þarf maður að klúðra málunum all svakalega til þess að vakna ;)

Anónimo dijo...

váááá ég fékk alveg hnút í magann að lesa þetta, rólegur að vera strangur kennarri..
ohh hvað ég vona að hann gefi þér séns
en jamm pepp pepp pepp