Eftir viku fæ ég niðurstöðurnar úr STRONG prófinu og ég hlakka mikið til að sjá hvað kemur út úr því ... Ég hef það nefnilega ansi sterkt á tilfinningunni að ég sé á vitlausri hillu í lífinu eða þá að ég sé bara búin að hugsa svo mikið um þetta að ég er á réttri hillu en viti bara ekki af því :Þ Ég er bara ekki að sjá tilganginn með svo mörgu sem ég er að gera í sálfræðinni. Til hvers að gera stupid einfaldar tilraunir á einhverju sem að skiptir engu máli ... fæst okkar í þessu námi munum fara í rannsóknarvinnu í framtíðinni en samt er það 90% af náminu að kunna að gera tilraun, kunna að vinna úr niðurstöðum tilraunarinnar, kunna tölfræðina og kunna að skrifa skýrslu : / Ég er algjörlega komin með nóg af þessu bulli !
Ég gerði þau mistök áðan að kaupa mér Kristal SPORT með lime og jarðaberjabragði : / þvílíkur viðbjóður ! Þetta bragðast eins og eitthvað lélegt bland og lyktin af því minnir mig á fyllerí : /
Jæja best að fylgjast með, er víst í tíma og kennarinn minn er búinn að teikna mynd af neti viðhorfa á töfluna
lunes, 30 de octubre de 2006
domingo, 29 de octubre de 2006
sábado, 28 de octubre de 2006
æ bara blogg til að blogga
Veit einhver af hverju við erum farin að veiða hvali í atvinnuskyni? Mér skilst að við getum ekki selt þetta eitt né neitt - Erum við Íslendingar sjálfir að borða svona mikið af þessu??
Helgin með hinu rólegasta móti. Ég er að vinna bæði lau og sun frá 10-20 svo ég nýti tímann bara í að læra : )
Ég var svaka ánægð með það að ég er búin að missa tæp 3 kíló frá 1. sept :Þ Því miður gekk Bootcamp ekki eftir í bili en þó að ég sé ekkert að æfa þá lækkar talan á vigtinni hægt og rólega. Mér sýnist þó að ég sé ekki að gera þetta the right way - Mín aðferð virðist vera að borða hollan og góðan morgunmat og jafnvel smá hádegismat en svo er það oft þannig að seinni partinn fæ ég mér eitthvað sætt og eftir það hef ég ekki matarlyst.
Ótrúlegt hvað maður getur verið stupid !
Ég bara skil ekki af hverju mér finnst svona leiðinlegt að fá mér að borða ... Mér finnst ekkert leiðinlegt að borða ef að ég þarf ekki að taka til matinn minn sjálf en svo virðist vera að ég taki mig ekki til og fái mér almennilega máltíð nema ég bókstaflega neyðist til þess eða að ég sé í svona svakalega góðu skapi :Þ Það er bara ekkert gaman að elda fyrir sig einan, það er svo miklu skemmtilegara þegar að maður hefur einhvern til að njóta matarins með : /
Svo er það líka bara svo oft þannig að ísskápurinn er tómur og maður stekkur út í 11-11 til að ná sér í eitthvað og þá kaupi ég mér frekar bara tilbúna samloku en að kaupa brauð og allt á það .... Ég er algjör dekurprinsessa : /
8 vikur og 1 dagur til Jóla : ) það þýðir að það eru 6 vikur og 3 dagar í fyrsta prófið og 4 vikur og 5 dagar í síðasta kennsludag :Þ
Vá hvað tíminn líður hratt :)
jueves, 26 de octubre de 2006
ekki algjör total error
Sjibbí, það greinilega borgar sig að panika ekki of mikið þegar maður klúðrar málunum svona eins og ég gerði um daginn.
Ég fór að skoða námskeiðslýsinguna enn betur í gær og sá þá að kennarinn segir tvo mismunandi hluti varðandi þessa tíma. Fyrst segir hann að maður verði að mæta í alla tímana til að mega taka lokapróf en svo kemur fram seinna í póstinum að ef að maður missir af tíma í þessum verklegu tímum þá fái maður þá ekki metna upp í lokaeinkunn og maður missir því 5%.
Ég skil þetta sem svo að ég sé ekki búin að missa próftökuréttinn eeeennn ég verð dregin niður um 0.5 á lokaeinkunn fyrir gleymskuna mína : /
Það er auðvitað svolítið fúlt þar sem maður er alltaf að berjast við þessa helvítis meðaleinkunn en hey ég losna þó við að þurfa að borga 100 þús kall til baka um áramótin eða verra fá engin námslán um áramótin og ég þarf ekki að fara aftur í skólann næsta haust bara til að taka þennan leiðindakúrs :Þ
Ég og Rebekka skelltum okkur í enn einn göngutúrinn um Gróttu í gær : ) Alltaf jafngott að fara aðeins út í veðrið ... en í gær var kalt ÍSkalt ! og ég held að hvorug okkar hafi verið nógu vel klædd :Þ
Þegar ég kom svo aftur upp á Hlöðu og ætlaði að fara að læra þá gat ég ekki glósað af því puttarnir á mér voru alveg frosnir :Þ Svo þegar ég var búin að sitja í tæpa 2 tíma og var ekki enn orðið heitt og komin heim höfuðverk þá hringdi ég bara í heimilishunkinn og hann kom og sótti mig :Þ
Úúú og fleiri góðar fréttir
Ég fór í próf í gær í Hugfræði. Dagana fyrir prófið var ég búin að vera á óvenjumiklum bömmer og bara einfaldlega meikaði ekki að læra. Ég var þó búin að fara yfir allt námsefnið á vikunum á undan. Ég var að spá í að sleppa bara að mæta í þetta próf því að 2 af 3 bestu gilda en ákvað svo um morguninn að drulla mér bara á fætur og mæta ..... sem betur fer því mér gekk bara alveg ágætlega, 6,5 og ég var meira segja yfir meðaleinkunninni :Þ Sko maður hefur þetta enn í sér :)
Það er greinilega kominn vetur af því mér er ALLTAF kalt, ískaldar tær og ískaldir puttar !
Svo sit ég undir flísteppi með rafmagnshitablásara sem blæs á tærnar á mér og læri :Þ Þá vantar bara kakóið og kertaljósin ;)
-Íris sem ætlar að finna rafgeymi í bílinn sinn í dag-
Þegar ég kom svo aftur upp á Hlöðu og ætlaði að fara að læra þá gat ég ekki glósað af því puttarnir á mér voru alveg frosnir :Þ Svo þegar ég var búin að sitja í tæpa 2 tíma og var ekki enn orðið heitt og komin heim höfuðverk þá hringdi ég bara í heimilishunkinn og hann kom og sótti mig :Þ
Úúú og fleiri góðar fréttir
Ég fór í próf í gær í Hugfræði. Dagana fyrir prófið var ég búin að vera á óvenjumiklum bömmer og bara einfaldlega meikaði ekki að læra. Ég var þó búin að fara yfir allt námsefnið á vikunum á undan. Ég var að spá í að sleppa bara að mæta í þetta próf því að 2 af 3 bestu gilda en ákvað svo um morguninn að drulla mér bara á fætur og mæta ..... sem betur fer því mér gekk bara alveg ágætlega, 6,5 og ég var meira segja yfir meðaleinkunninni :Þ Sko maður hefur þetta enn í sér :)
Það er greinilega kominn vetur af því mér er ALLTAF kalt, ískaldar tær og ískaldir puttar !
Svo sit ég undir flísteppi með rafmagnshitablásara sem blæs á tærnar á mér og læri :Þ Þá vantar bara kakóið og kertaljósin ;)
-Íris sem ætlar að finna rafgeymi í bílinn sinn í dag-
miércoles, 25 de octubre de 2006
total error
Einhvern tímann hlýtur maður að gera mistök, í gær gerði ég mistök : /
Ég gleymdi að mæta í verklegan tíma í Próffræði og það er 100% mætingaskylda. Kennarinn gefur enga sénsa og þetta þýðir að ég er búin að missa próftökuréttinn í námskeiðinu : ( sem þýðir að útskriftinni minni mun seinka fram að næstu jólum : ( : ( : (
Þvílíka klúðrið ! Ég var bara svo spennt yfir þessu STRONG prófi og svo þurfti ég að læra fyrir prófið sem ég var í í dag og þessir verklegu tímar eru bara aðra hverja viku ...Og einhvern veginn þá bara algjörlega steingleymdi ég tímanum og áttaði mig ekki á þessu fyrr en ég lagðist upp í rúm um kvöldið og fór að hugsa um hvaða vikudagur væri : /
Ég ætla að reyna að tala við kennarann og athuga hvort að það sé ekk eitthvað sem ég get gert. Mér finnst refsingin vera ansi hörð - ég þarf að vera einni önn lengur í BA námi og þarf taka 300 þús meira í námslán bara af því ég var gleymin í einn dag : (
En þetta hefur alla veganna ýtt alla harkalega við mér. Núna er kominn tími til að berjast á móti þessu þunglyndis-vonleysisskýi sem hefur verið yfir mér frá því skólinn byrjaði. Ég virðist bara hafa misst trúna á sjálfa mig í skólabyrjun þegar ég áttaði mig á því að ég væri mun verr stödd en ég bjóst við og það er bara bókstaflega búið að klúðra fyrir mér þessari önn. Maður reynir þó að bæta úr þessu eins og hægt er og halda svo bara áfram af krafti.
Og fyrst ég ætla að vera svona dugleg í skólanum þá ákvað ég að nú væri líka kominn tími til að fara að borða mat :Þ og því hefur allt nammi verið strokað út af matseðlinum ...
Pepp væri vel þegið
-Íris sem fann heilann sinn á víðivangi og er loksins aftur komin í samband við sjálfa sig-
martes, 24 de octubre de 2006
er ég STRONG?
Jæja þá er ég búin að fara í STRONG og nú er bara að bíða í 2 vikur og þá kemur í ljós hvort að ég finni svarið :Þ
Ég veit bara ekki hvað er búið að vera í gangi hjá mér frá því að skólinn byrjaði. Ég er bara alls ekki að finna mig þarna og líður ekkert vel en finnst þó að ég verði að klára því ef að ég þrauka í gegnum þetta þá verð ég komin með BA próf í vor ... Úff en mig langar mest bara að hætta þessu öllu saman ~ hella mér út í jóga alveg af fullum krafti, læra svo jógakennarann og eignast mitt eigið stúdíó :Þ En mig langar líka í heilsusálfræðina og þá verð ég að klára þennan blessaða BA + að ég á örugglega alltaf eftir að sjá eftir því ef að ég klára ekki því 75 einingar í HÍ er ekkert en 90 einingar er próf svo ætli ég verði ekki bara að finna kraftinn aftur og reyna að standa mig betur.
Jæja best að fara að gera eitthvað af viti
-ÍÓ út-
domingo, 22 de octubre de 2006
Blogg 2
Anda inn - anda út
úff ég er að lesa svo leiðinlegan texta að hausinn á mér er að breytast í graut ... þetta er ekki alveg mitt áhugasvið :Þ
smá sýnishorn:
... Allt annað verður upp á teningunum þegar skoðuð er skynjun hljóðlengdar í nákvæmlega sömu orðum. Hér flytjast skynmörkin verulega til, ef reiknað er út frá lengd sérhljóðs við skynmörk stuttra og langra hljóða. Ef skynmörkin eru reiknuð á grundvelli hlutfallsins V/(V+C) verður hins vegar engrar slíkrar tilfærslu vart og rennir það frekari stoðum undir þá kenningu að skynjun hljóðlengdar ræðst öðru fremur af hlutfalli sérhljóða- og samhljóðalengdar..
Má ég vorkenna mér smá??
Vúha annars er ég búin að taka að mér slatta af aukavinnu þessa vikuna. Verð að vinna allan næsta laugardag og er að öllum líkinum að fara að sofa hérna í vinnunni minni einhverjar nætur svo að eigendurnir komist í burtu í nokkra daga. Fínt að fá borgað fyrir það :Þ
Ákvað að spæna bara svolítið á vaktirnar það sem eftir er mánaðarins því ég sá að mér veitir ekki af meiri pening næstu mánaðarmót þar sem á heimilinu er bilaður bíll, spangir sem þarf að fjarlægja, fégráðugur tannréttingalæknir sem þarf að gera upp við, skrifborðstóll sem þarf að kaupa (því annar brotnaði) og það er komin desperate need á að fara í klippingu og vax því bráðum verð ég unibrow ef ekkert er að gert ! Svo má ekki gleyma því að jólin eru að koma (alla veganna í mínum huga ;)) og maður þarf að kaupa gjafir og svona í nóvember :Þ
Ég var heldur ekki búin að tilkynna þær gleðifréttir hér að ÉG ER AÐ FARA UPP Í BÚSTAÐ UM JÓLIN í held ég 7. sinn :O :D Ohhh það er eiginlega bara þess vegna að ég hlakka svona til jólanna .... mmm jólachill í pottinum, baka sörur, búa til músarstiga, Golden Circle á Þorlák, rúnta á Laugarvatn á Aðfangadag að kaupa rjóma, göngutúrar með fram ánni og bara liggja með tærnar upp í lofti með frábæru fjölskyldunni minni :D
Ein mynd frá Þorlák í fyrra :)
Jæja farin að drepa fleiri heilafrumur (ef maður getur lesið þær til dauða)
Jæja farin að drepa fleiri heilafrumur (ef maður getur lesið þær til dauða)
sunnudagsblogg
Jæja þá er maður mættur í vinnuna - alltaf jafnkósý að vera hér :)
Planið er að læra vel í hugfræðinni í dag þar sem það er víst próf á miðvikudaginn og ég væri alveg til í að standa mig betur núna heldur en síðast þegar ég fékk bara 6 : /
Mikið er maður heppin að hafa gott fólk í kringum sig : ) Þessa dagana er það hún Maggý amma hans Orra sem fær risaknús og koss fyrir að vera okkur svo góð :) Haldiði að hún hafi ekki bara lánað okkur bílinn sinn og þá get ég farið í það á morgun að redda okkar bíl svo vonandi verður hann kominn í lag í vikunni :Þ
Gærdagurinn var bara kósý frá því ég vaknaði þangað til ég fór að sofa. Ég kúrði um morguninn og horfði á nýjustu þættina af One Tree Hill og ANTM. Er einhver hérna að horfa á nýjustu seríuna af OTH?? ó mæ þvílíka sápuóperudramað !
Svo fórum við Orri í brunch hjá Maggý og fengum svaka gott að borða eins og ALLTAF :Þ Svo var bara farið í göngutúr í góða veðrinu, ís í Perlunni og dáðst að sólarlaginu *ógó rómó ekki satt ;)* Loks var farið heim og eldaður dýrindis fiskur og horft á myndina Match Point. Ég veit samt ekki hvað ég var að spá að halda mér vakandi svona lengi, fór að sofa 1:30 í nótt og ég var svo þreytt þegar ég þurfti að vakna í vinnuna í morgun : /
Maður lærir aldrei af reynslunni !
Jæja ætla að fá mér hádegismat - chao
viernes, 20 de octubre de 2006
ofursúperdúperblogg - eða þannig !
Aloha !
Jæja það var mikið - er loksins komin með netið aftur ! Við vorum að skipta frá Hive yfir í OgVoðafokk því við fengum svo fínan díl hjá þeim í gegnum vinnuna hans Orra. Þeir voru búnir að lofa okkur að við myndum ekki missa netið niður en hvað gerist ! Þeir tengja okkur án þess að láta okkur fá router *reiðurkall* Semsagt ég er búin að vera netlaus og bíllaus frá því á þriðjudaginn !
En jibbí jei nú er ég komin með heimasíma : ) Ég var búin að láta einhverja fá númerið fyrir langalangalöngu þegar við fluttum hingað en þeir sem vita það ekki og vilja fá það bara let me know, ætla ekki að fara að setja það hérna á síðuna.
Í dag var ég með umræðutíma í Félagssálfræði - það gekk alveg allt í lagi en ég talaði alltof hratt og í belg og biðu, vonandi dregur það mig ekki mikið niður : /
Ég var svo ánægð með að vera búin með þennan umræðutíma að ég tók kast á íbúðinni minni þegar ég kom heim og hún er núna glansandi hrein :D Þvílíkur munur því það var allt á haus hérna enda enginn búinn að hafa tíma til að taka til alla vikuna :Þ
lunes, 16 de octubre de 2006
Suma daga ...
... virðist bara ekkert ganga upp :/
Í morgun þegar ég var búin að skrifa hafragrautsfærsluna mína sat ég í rólegheitunum og japlaði á grautnum og leit þá á klukkuna ... Úps bara 5 mínútur í tíma : / Ég henti öllu sem ég þurfti fyrir skólann í tösku og stökk út í bíl. Aumingja bíllinn minn er gamalt og gigtveikur og finnst ekki gaman að keyra í kulda svo hann ákvað bara að fara ekkert í gang : / Jæja ég bý þó við Hlemm svo ég hljóp upp í næsta strætó sem ég vissi að færi upp í HÍ og þar sem ég sá að var bílsstjóri því þá hélt ég að hann færi fljótt af stað .... Vitlaust hjá minni, ég horfði á 4 strætóa sem ég veit að fara upp í HÍ leggja af stað áður en minn góði lagði í hann : / (og var þ.a.l. hálftíma of sein í tíma)
Restin af deginum virtist svo ætla að rétta sig af þegar ég átta mig á því að:
A. ég var ekki með kortið mitt svo ég varð að gjöra svo vel að vera í tíma frá 11:30-16 án þess að borða neitt.
B. ég fékk bara 4,5 úr prófinu sem ég var í í síðustu viku og ég fór á algjöran bömmer út af því og svo
C. hápunktur ruglsins þá er ég orðin VEIK !!
Ég er búin að vera í bootcamp í mánuð og er búin að mæta í 2 tíma ~ hlutirnir eru bara ekki að ganga upp þessa dagana :( Er með hrikalegt samviskubit að hafa dregið Bekku með mér í BC og geta svo ekkert mætt sjálf : ( finnst það alveg ömurlegt : (
Hef heldur engann tíma til að vera veik núna, ég þarf á allri minni orku að halda til að gera þennan fyrirlestur fyrir föstudaginn ... Þannig að hvað getur maður gert... Ég kom heim og vældi í Orra útaf ömurlegu einkuninni sem að mun draga mig niður á lokaprófi í fagi sem ég er ekki sterk í fyrir. Fékk mér svo súpu til að athuga hvort að hún myndi ekki bara skola flensunni burt (gekk ekki en mátti þó reyna) og svo hringdi ég bara í doksa og á tíma núna á miðvikudaginn og þá ætla ég sko að fá á hreint hvað er eiginilega í gangi með mig. Er komin með algjört ógeð á að svífa á gráu skýi kinnholubólgunnar, vera með beinhimnubólgu, ofnæmi, excem og guð veit hvað .... Mig langar í sjálfa mig aftur !!!
viernes, 13 de octubre de 2006
jueves, 12 de octubre de 2006
ekki lengur að fara yfir um :Þ
Jæja hvað haldiði, ég missti ekki vitið og svo gekk mér bara mun betur á prófinu en ég bjóst við - Það kom í ljós að maður mátti hafa öll gögn með sér og það algjörlega BJARGAÐI.mér. Svo í staðinn fyrir að fá 2-3 þá er ég að vonast eftir 6-7 :Þ
Hún Sigrún Sæta var svo góð að benda mér á það að ef ég hefði haldið mig við spænskuna þá hefði ég verið komin í jólafrí 15. sept ... djö maður hefði kannski bara átt að halda sig þar :Þ Hmmm en reyndar á hinn bóginn þá held ég að jólafríið í sálfræðinni sé lengra í hinn endann, allaveganna þá byrjuðum við síðast 17. jan í sálfræðinni en í fyrra byrjuðum við 5. jan í spænskunni ;)
Jóga á eftir, og bíó í kvöld, er að fara að sjá WTC. Svo á loks að mæta í bootcamp á morgun, er búin að vera í pásu vegna beinhimnubólgu/leti síðan hún Rebekka fékk flensuna en hún er orðin hress og spræk núna vona ég :) Um helgina verður svo klárað að flísaleggja eldhúsið, vinna á sunnudaginn en umfram allt MIKILL lestur þar sem í næstu viku þarf ég að vera með 40 mín langann umræðutíma um grein sem ég á eftir að lesa og ég þarf að skila inn 700 orða úrtekt á því sem ég hef að segja um greinina : / Jebb nóg að gera - Eftir þetta þarf maður svo að fara að huga að tilrauninni í félagslegu : O
Jæja best að snúa sér aftur að Interpersonal relationships í eignunarkenningum ...
miércoles, 11 de octubre de 2006
smá ÚTrás
Svona verð ég eftir svona 2 tíma
Ég fer bráðum að tæta af mér hárið ! Ég er að reyna að læra fyrir próf sem að gengur alveg ágætlega nema ég er alltaf stopp út af því að SPSS forritið gerir ekki það sem það á að gera, svo þarf ég að eyða hálftíma í að finna stillinguna sem er ekki rétt, kemst tvö skref áfram og svo er það eitthvað nýtt : /
Ég er svona |-----| langt frá því að gefa bara skít í þetta allt saman og fara að gera eitthvað skemmtilegt ! Var búin að plana bíóferð í kvöld með Andra bjútí en í staðinn er ég föst á Hlöðunni fram til lokunnar *grrrr*
Ég veit ekki hvað er að fólki sem leggur á sig sálfræðinám við HÍ, það virðast allir vera sammála um það að þetta sé EKKI skemmtilegt ! Hvers vegna er þetta ekki skemmtilegt, efnið er áhugavert og af nógu að taka en svo er maður endalaust fastur í einhverjum tölfræðiútreikningum og túlkunum ... : / Ég ætla að klára þetta blessaða BA mitt næsta vor og svo aldrei aftur líta í tölfræðibókina mína !
Bless í bili
martes, 10 de octubre de 2006
Eru fleiri en ég pirraðir yfir því að próftaflan hjá HÍ er ekki komin inn þó að hún eigi að koma í dag?? Nahhh bjóst ekki við því heldur.
Ég er með alla mína putta krossaða því þetta árið eru prófin bara 3 og ég vona vona VONA að ég sé ekki í prófi síðustu dagana þarna rétt fyrir jólin .... Það væri geggjað að vera búin svona 15. eða 16. des en það er varla að fara að gerast :/
Kross kross
domingo, 8 de octubre de 2006
Dashboard
Jæja enn ein helgin að klárast og enn ein vikan að byrja ! Tíminn flýgur frá manni, ekki satt??
Helgin er búin að vera frekar sweet og róleg. Aldrei þessu vant hef ég bara sofið til hádegis og í nótt held ég að ég hafi sofið í 11 tíma :O þvílíka letin. En annars er ég og pabbi (samt aðallega pabbi) búin að vera að flísaleggja í eldhúsinu. Skelltum þessum fínu, hvítu flísum á milli skápanna og borðplötunnar og þetta gerir alveg heilan helling fyrir litla, kramda eldhúsið mitt :Þ
Ég á ekki skilið hrós fyrir dugnað síðustu vikuna en ég var þó ansi dugleg í dag og fór í smá búðarrölt, fór í Bónus, fann jólagjöf handa Maríu (samt ekki í Bónus :Þ) og nú er ég búin að kaupa 2 jólagjafir :D Fór svo í IKEA til að reyna að redda smá fyrir jólagjafirnar handa eldra pakkinu en ég verð víst bara að mæta í Nýju Ikea þegar hún opnar því það var ekkert til sem að ég þurfti.
Jæja geisp geisp, eitthvað er þetta gráa veður að gera mig syfjaða. Ætla að kveikja á nokkrum kertum og hafa svolítið kósý :D
Chao
jueves, 5 de octubre de 2006
blogg er
Hvaða hvaða 3 dagar án þess að ég blogga ... hvað er í gangi :Þ
Málið er að það er bara mest lítið í gangi, alltaf þetta sama. Á að vera í skólanum en ég er sísofandi, sólarhringurinn hjá mér er eitthvað undarlegur þessa dagana, veit ekki hvort að þetta er bootcampið en ég á alltaf erfitt með að sofna eftir að hafa mætt á æfingu þó að ég sé alveg dauðdauðþreytt.
Það eru framkvæmdir í gangi hérna rétt hjá mér og ég vakna á hverjum morgni við lætin í þeim ! Ég sver það að þeir byrja kl. 7 og þeir vinna líka á LAUGARDÖGUM ! Þetta er bara cruel fyrir allt fólkið hérna í kring ... og þeir eru nonstop með einhvern svona loftbor eða eitthvað í gangi þannig að allt sem maður heyrir allan liðlangann daginn er dunk dunk dunk dunk dunk dunk dunk ... Ég var búin að gleyma því hvað það er þreytandi að hafa svona framkvæmdir rétt hjá en þar síðasta vor þegar þeir voru að gera allt þarna í kringum Hlemm, þá var ég að verða brjáluð. Það voru stanslaus læti, vatnið var nokkrum sinnum tekið af og við ekki látin vita, húsið víbraði allt og svo var alltaf verið að sprengja og mér dauðbrá í hvert einasta skipti !
Ég er búin að skrá mig í STRONG próf 24. okt og ætla nú að reyna að fá einhvern botn í það hvað í fjandanum ég vil gera. Eftir að ég byrjaði aftur í sálfræðinni þá hefur það svona verið að rifjast upp með mér af hverju ég hætti ... og ég er bara ekki að fíla mig þarna : / Ætli ég klári samt ekki þessa önn og þá líka næstu og útskrifist bara þá og hey þá er ég að minnsta kosti komin með BA próf :Þ Kannski maður ætti bara að hella sér í jóga og verða jógakennari en ég veit ekki alveg hvort maður getur lifað á því *hmmm*
Annars er mikil gleði hér þessa dagana (jahh hjá mér af því ég er svolítið bil) Það á loksins að fara að gera eitthvað við þessa skítasameign í blokkinni. Á þriðjudaginn pöntuðum við Arna (formaður) sendiferðabíl og tæmdum sameignina í kjallaranum. Það var allskyns drasl þar sem að fyrri eigendur höfðu skilið eftir þ.á.m. ísskápur, 2 þvottavélar, sjónvarp, hjól, hægindastóll og borð ! og svo alveg heill haugur bara af drasli ... en nú er það allt farið og mín andar léttar :Þ Svo ákváðum við að kaupa þjónustu til að þrífa sameignina því það gengur ekkert að virkja fólkið hérna til að gera nokkuð. Þeir komu í gær og þó að þetta sé bara dropi í hafi þá munaði um það. Þetta verður ekki orðið fínt fyrr en það verður málað og teppin hreinsuð en það er bara á dagskrá um leið og við fáum málara :D Svo á loksins að gera við lásinn á bakdyrahurðinni svo núna hættir útigangsfólkið kannski að stela fötunum okkar .... eða hver sem er að því.
Jæja komin með hafragrautinn svo ég segi bæ
lunes, 2 de octubre de 2006
bootcamp love
Úff ég er bókstaflega HIGH hérna .... nei ekki þannig high --- heldur Bootcamp high .... Ótrúlegt hvað manni líður vel eftir svona hrikaleg átök. Ef að einhver var að keyra Miklubrautina milli 18:15-19:15 þá voru þetta við að sjálfspína okkur í vegkantinum :Þ Ég spái harðsperrum í kálfum, lærum, maga, bringu, öxlum, handleggjum - þarf ég að halda áfram :Þ
Kom svo heim og skellti tveim pylsum á grillið svo að mín borðaði meira segja kvöldmat. Kannski ekki alveg hollasta og besta kvöldmatinn en þetta er þó mikil bót frá mínum venjulega kvöldmat sem er annað hvort ekkert eða bara nammi : /
Rebekka er svo mikil snilldarmanneskja, við erum algjörlega í sama pakkanum. Hvetjum hvor aðra áfram þegar hin er þreytt og það er algjörlega nauðsynlegt á svona æfingum :)
Jæja ég ætla að drífa mig í sturtu, svo þarf ég víst að bruna upp í skóla með skilaverkefni fyrir heimilislúðann sem er veikur - af hverju er ekki bara hægt að emaila svona dóti !
Jógus á morgun og svo bootcamp aftur á miðvikudaginn - veit ekki hvernig ástandið á manni verður þá : /
oAhC ÓÍ
Hey og koma svo fólk KOMMENTA - spænskuskvísur, sálfræðiskvísur, Selma, mamma .... ég veit að þið eruð hérna ! Rebekka og Kristín fá hrós fyrir mikinn commentadugnað .... þið hin fáið ekki neitt !
domingo, 1 de octubre de 2006
www.pandora.com
Hvaða hvaða ég bloggaði áðan en það kom ekki inn og færslan er bara horfin .... hef aldrei áður lent í því með blogspot ... en jæja
Mér tókst hið ómögulega, ég náði að vinna upp alveg heljarinnar ósköp af lesefni þessa vikuna og það eina sem ég skulda núna eru 6 greinar í Félagslegu sálfræðinni ! Þetta jaðrar við að vera kraftaverk því ég bjóst varla við því að ná að lesa þetta allt saman - en viti menn þetta hafðist :Þ
Bootcamp á morgun, hlakka mikið til ! Ég var með svo miklar strengi á föstudaginn að ég skrópaði í tíma, ég var bókstaflega að drepast í öllum skrokknum. Ég er líka nokkuð viss um að hörku yogatíminn sem ég tók á fimmtudeginum hafi ekki verið til bóta því eftir hann gat ég varla hreyft á mér efri hlutann því við eyddum svo miklum tíma í ýmis konar armbeygjustellingum : Þ
Jæja ætli það sé ekki best að fara að skella sér í bælið ... maður er svona að reyna að venja sig á að vakna amk ekki seinna en kl. 9 :Þ
Suscribirse a:
Entradas (Atom)


