viernes, 29 de septiembre de 2006

Ég virðist hafa ósköp litla þörf fyrir því að tjá mig hérna þessa dagana ... kannski bara ósköp litla þörf fyrir því að tjá mig almennt. Ég er með strengi alls staðar !veit ekki hvað ég geri á æfingu í kvöld, leggst örugglega niður og fer að grenja Jamm læra læra um helgina Bæbæ

jueves, 28 de septiembre de 2006

Er maður nokkurn tímann jafn einmana og þegar maður er umkringdur fólki?

Bootcamp í dag ... loksins, harðsperrurnar strax mættar á svæðið. Mér hefur aldrei verið jafn illt í lungunum og á æfingu í dag, þau virtust bókstaflega vera við það að brenna þegar ég var að hlaupa fimmtu ferðina upp tröppurnar og mér fannst ég hlaupa í slowmo ... Æfing aftur á föstudaginn og vonandi verður maður ferskur þá ! Annars er voða lítið í gangi nema skóli skóli skóli, ótrúlegt en satt þá er mér að takast að ná takmarki mínu og ég held ég verði búin að vinna eiginlega allt efnið upp á föstudaginn, ég reyndar á eftir að lesa haug af greinum í Félagslegu en ég er að saxa á það svona hægt og rólega... Ég var komin upp í rúm en var svo bara ekkert á leiðinni að sofna svo ég er farin á fætur aftur. Planið var að mæta í tíma kl. 8:20 á morgun : / sé það ekki vera að fara að gerast úr þessu ... gn

lunes, 25 de septiembre de 2006

bicycle, bycycle, I want to ride my bicycle ...

Ég lærði í alla veganna 11 tíma í dag ! og btw þá var ég að vinna 12 tíma vakt á Sunnu líka ... ! Vinnan mín er svo sweeeeet, það bara hríslaðist um mig sælan þegar ég settist niður inn í eldhúsinu á Sunnu í morgun og borðaði hafragrautinn minn. Þvílík ró : ) það er greinilega kominn vetur ... En alla veganna þessi ró og kyrrð setti mig bara í þennan svakalega lærdómsgír að ég lærði alveg þrefalt meira en ég bjóst við að komast yfir : O svo þegar ég kom heim kl. rúmlega 22 þá gat ég bara ekki hætt svo ég lærði aðeins meira ... ! og þá ákvað ég að hætta áður en ég læsi yfir mig :Þ Bootcamp á morgun og svo líka á miðvikudaginn og föstudaginn. Á þri og fim ætla ég svo í jóga sem ég held að verði ágætis mótvægi við Boocampið, þar fær maður almennilegar teygjur fyrir þreytta vöðva : ) En já ég verð varla mikið til tals næstu vikuna ef ég ætla að ná að vinna upp skuldirnar mínar í skólanum. Mig má þó alltaf finna á MSN :Þ Ég mun vakna, læra, mæta í tíma, læra, læra, mætaá æfingu, læra og sofa .... vonandi finn ég tíma til að borða þarna inn á milli :Þ -ÍÓÓÍ-

domingo, 24 de septiembre de 2006

mér dettur aldrei neitt í hug til að setja hérna

Það er svo kósý að vera í vinnunni minni núna, sumartörnin alveg búin og því lítið að gera. Húsið er fullt af stúdentum sem láta ekki mikið hafa fyrir sér : ) Sem betur fer segi ég nú bara því ég er að nýta þennan tíma til að vinna upp lesturinn :O Jiminn ég er ekki enn búin að fara yfir allt námsefni fyrstu vikunnar : / en ég er að saxa á þetta hægt og rólega. Ef ég tek næstu 2 vikur og verð alveg 100% dugleg þá ætti ég að ná að komast á núllpunkt þannig að ég þarf bara að lesa það sem er fyrir komandi viku ... Annars er ég bara orðin hress og hlakka mikið til að mæta í FYRSTA BOOTCAMP TÍMANN Á MORGUN ... loksins loksins. Ég er reyndar enn svolítið kvefuð en ég ætla ekki að láta það stoppa mig :Þ Jamm best að halda áfram með lesturinn ...

jueves, 21 de septiembre de 2006

21/9

Ennþá heima veik hlusta á OC reyna að læra langar að fara að æfa skipuleggja jólagjafainnkaup búin að kaupa 1 jólagjöf ! hanga á msn horfa á muuvis bíða eftir ANTM 701 Takk fyrir mig

miércoles, 20 de septiembre de 2006

flensus

Jamm gat það nú verið ... ég var ekki bara sjúskuð eftir flugið í gærmorgun heldur hafði einn lítill flensus læðst aftan að mér og eyddi ég gærdeginum undir sæng með eldrauðann nebba eftir allt snýteríið : / Missti af jóga í gær og ég get ekki mætt í Bootcamp í dag : ( En það verður bara að hafa það, vonandi verð ég bara orðin hress á föstudaginn : ) Það vakti mikla gleði hjá mér að heyra að nú hafa einhverjir fengið nóg af hor-mjónum tískubransans og tók borgarstjórn Madridar til þess ráðs um daginn að banna fyrirsætum með BMI undir 18 að taka þátt í Tískuvikunni þar í borg. Upphaf þessa var að spænsk fyrirsæta, 22 ára að aldri, hneig niður eftir tískusýningu í S-Ameríku og dó eftir að hafa nánast ekkert borðað í 3 mánuði !! Í kjölfarið tóku yfirvöld í Milan undir þetta bann og núna síðast heyrði ég að London væri að gera slíkt hið sama. Þess ber þó að geta að samkvæmt stöðlum er einstaklingur með BMI 18 vannærður ... Einhverjar mótmælaraddir hafa þó heyrst og fyndnast fannst mér þegar einhver sagði að þetta væri illa gert gagnvart fyrirsætum sem væru náttúrulega grannar, ég hef litla trú á því að einhver sé náttúrulega með BMI undir 15 ! Til að vera með BMI undir 15 þarf kvenmaður sem er 175 cm á hæð að vera 45 kíló eða léttari ! Jamm og já - farin að fá mér að borða

martes, 19 de septiembre de 2006

Berlín Berlín Berlín

hellú hellú, mætt aftur á klakann eftir æðislega ferð til Berlínar :) Ferðin heppnaðist rosalega vel, sól og 25°C hiti og Berlín er alveg ótrúleg borg. Við ætlum pottþétt að fara þangað aftur seinna. Hehe og það besta er að við borguðum bara 25 þús kall fyrir þetta :Þ vinnan hans Orra er best ;) Ég kem kannski með ítarlegri ferðasögu seinna, ég bara var að vakna því við lentum seint í gærkvöldi og ég er enn hálfsjúskí ... Framundan, LESA LESA LESA því nú er maður komin óþægilega langt á eftir ... svo verður það líka bara heilsan nr. 1. 2. og 3. því Bootcamp byrjaði í gær og ég fer í fyrsta tímann minn á morgun :O verð að viðurkenna að ég er ekki alveg stresshnútslaus : / Íli

jueves, 14 de septiembre de 2006

rrip

Úff ég hef voðalítið annað að segja en PIRRR og afhverju er ég pirruð, jú af því ég geri ekkert annað þessa dagana en að gefa sjálfri mér loforð um hitt og þetta, skólann, ræktina, mataræðið, svefninn og ég stend við fæst af þessu :S Stend kannski við það í 2 daga en svo bara no more ... Ég veit samt alveg hvað það er sem ég þarf að gera, bíð bara eftir að ég verði algjörlega komin með nóg og þá þarf maður að fara að dusta rykið af aganum og dru***** á fætur fyrir kl. 8 á morgnanna svo að maður nái að mæta í tíma og nái svo að læra eitthvað líka .. ! Ætli maður verði ekki að setja no-no á allt djamm næstu vikurnar/mánuðina :S helgarnar setja alltaf allt á hvolf hjá mér ... Bootcamp byrjar næsta mánudag en ég missi af fyrsta tímanum : ( Þannig ég að ég missi af öllum mælingunum og þeim skemmtileg heitum : ( Ohh ég hlakka svo til að fara að sprikla :Þ Kv. Izan

miércoles, 13 de septiembre de 2006

Ohh blehhh mér dettur bara ekkert sniðugt í hug til að blogga um ... það er ekki einu sinni neitt slúður í gangi : / Algjör letidagur í dag, þarf að fara fyrr að sofa á kvöldin ...

martes, 12 de septiembre de 2006

11. september 2001

Það er svo ótrúlegt hvað maður man vel hvað maður var að gera á dögum eins og 11. september 2001.
Í mínu tilviki var ég nýkomin til Venezuela. 4 dögum áður hafði ég flogið yfir Atlantshafið frá Amsterdam og var varla búin að koma mér fyrir og taka upp úr töskunum. Þegar ég fór fram úr um kl. 9 var kveikt á sjónvarpinu á inni í eldhúsi og spænska CNN í gangi. Þegar ég kem fram þá sé ég annan turn WTC standa í ljósum logum. Ég reyni að spyrja bróður minn (aðallega á puttamáli því ekki talaði ég spænsku og hann ekki ensku) og hann skildi mig nógu vel til að leika flugvél og ég hugsaði guð hvað þetta er hræðilegt slys. Rétt eftir þetta sá ég svo seinni flugvélina lenda á Suður Turninum og þá vissi ég að þetta gat varla verið slys ... Í gær horfði ég á heimildamynd á RÚV um "The Jumpers" eða fólkið sem að stökk úr turninum þegar það vissi að það myndi aldrei komast út lifandi. Ég réð ekki við tárin, spáið í örlögum, að þurfa að taka þá ákvörðun að stökkva út úr glugga á 100. hæð einfaldlega af því annars brennur þú inni. Ég átti reyndar erfitt með að skilja þann hluta myndarinnar þar sem verið var að reyna að finna út hver einn af þeim sem stukku hafði verið... Fannst það tilgangslaust og mjög óhugulsamt svona rétt eftir þessa atburði. Svo enduðu þeir á að særa heila fjölskyldu alveg til einskis ! Ótrúlegt að 5 árum eftir hryðjuverkin erum við í enn verri heimi þar sem kraumar reiði og hatur. Núna höfum við þrjú hryðjuverk sem gerst hafa á þeim 11.
11. september
11. júlí 11. mars
Vonandi bætast ekki fleiri við

sábado, 9 de septiembre de 2006

byrjuð að læra LOKSINS

Ohh loksins loksins komst ég aftur í stuðið :D Ég er alveg dottin ofan í skólabækurnar og nú er bara að vinna upp :Þ Mér líst mjög vel á fögin sem ég er að taka , meira segja próffræðina líka :Þ Ég og Rebekka skelltum okkur í jóga á fimmtudaginn, svaka léttan og þægilegan tíma hjá henni Maggý. Ég var svo með strengi daginn eftir ! Hvernig verð ég þegar Bootcampið byrjar ! ég á ekki eftir að geta hreyft mig :Þ Annars missi ég af fyrsta tímanum því ég verð ekki á landinu : ( en það ætti nú ekki að breyta miklu. Vona bara að Rebekka mæti og segi mér svo hvað var að gerast :Þ Mér er búið að ganga mjög vel að halda mig á bootcampmatarplaninu, borða á 2-3 tíma fresti sem er erfiðara en það hljómar :Þ Eitt og hálft kíló lét sig hverfa á þessari fyrstu viku svo þetta lofar góðu :Þ Jæja best að snúa sér aftur að próffræðinni ...

viernes, 8 de septiembre de 2006

buzzz

Jahá það er svo lítið að frétta af mér og það eina sem er í hausnum á mér í augnablikinu eru connectionist networks svo í dag eru það bara fréttir af fræga fólkinu so enjoy .... Maður myndi nú halda að þetta fólk hefði efni á leigubíl - Paris Hilton barbí alheimsins handtekin fyrir ölvunarakstur .... mér sýnist hún nú bara vera að slást við lögguna þarna enda var hún sett í handjárn Og svo aumingja Lindsay Lohan sem fór að gráta eftir að hún uppgötvaði að það var búið að stela frá henni tösku með (að því er sagt er) skartgripum upp á 1 milljón $ eða litlar 72 milljónir íslenskra króna ! Svo datt einhverjum fávitanum í hug að kalla Mischu Barton ógeðslega af því hún væri með svo mikla appelsínuhúð ... dæmi hver fyrir sig ! Og obbosí en sumir ættu að ganga í nærum ...
Sirí

jueves, 7 de septiembre de 2006

orka óskast ! get sótt

Ég var búin að hlakka svo til að byrja í skólanum, komast aftur í sálfræðina og halda áfram með námið en svo þegar hann loks byrjaði þá fór allt á hvolf hjá mér. Þetta ömurlega stress sem fylgir þessu námi og pressan, ég er bara ekkert viss um að mig langi að líða illa í 2 ár í viðbót bara fyrir BA. Ég og Rebekka beiluðum svo á Bootcamp í gær, vorum ekki alveg í baráttustuði og fórum því bara í klst langan göngutúr um Seltjarnarnesið. Ég hef svooo lítið að segja þessa dagana, vona bara að ég fari að rífa mig upp úr þessari lægð, er mest bara pirruð og syfjuð og þetta er að gera mig vitlausa. cHAo

miércoles, 6 de septiembre de 2006

hvað

Jahá missti smá vitið í gær og var alveg súperlöt ! borðaði líka haug af nammi og horfði á svo mikið af That '70s show að hausinn á mér soðnaði ! Gerði þó eitt af viti, ég fór til Örnu formanns og við ákváðum allt sem þarf að tala um á húsfundinum sem verður núna fljótlega .... jahá svona er lífið sem aðstoðarformaður hússjóðs ; ) Vonandi Vonandi Vonandi verður núna loksins eitthvað gert við ganginn, hann er algjörlega ojjojj. Afrekaði það í dag að ELDA mér levepostej eða hvernig sem það er skrifað :Þ mmmm brauð með heitri lifrakæfu og rauðbeðum, alveg undarlega gott ! vonandi bootcamp á eftir, er þrammandi um allt á íþróttaskónum mínum svona til að sjá hvort að hælsærið meiði mig. Verð að viðurkenna að það er oggupoggusmá kvíðahnútur í maganum, úff ég vil ekki vera SÍÐUST !! :'( jæja farin að þykjast læra, er heima þannig að það sem ég geri í raun og veru er ekkert ...

martes, 5 de septiembre de 2006

shitfokkogsvoframvegis

Ohhh #$%&$&%!"#$&&%%$# FUCK hvernig datt mér í hug að fara úr kósíheitunum í spænskunni aftur í helvítis stressruglið í sálfræðinni ... Ég er búin að vera í skólanum í 2 DAGA og ég er strax viss um að heimurinn sé að farast HELVÍTIS Jæja fyrst ég er búin að fá útrás þá verð ég víst að segja að ég er samt nokkuð viss um að þetta reddist allt ... þetta reddast alla veganna allt eftir daginn í dag þar sem ég ætla ekki að gera BAUN Í BALA, ég fer í verkfall, ætla að kaupa mér haug af nammi, kúra mig undir teppi, lúlla smá og horfa á That '70s show á meðan þvottavélin mín þvær lakið mitt ! Góða nótt

lunes, 4 de septiembre de 2006

ætlaði að blogga en mér dettur sáralítið í hug til að segja -1 dagurinn í skólanum í dag, það var ágætt - ekkert nammi í 4 daga - komin á bootcamphollustuna - tími í bootcamp á miðvikudaginn - mér tókst að fá hælsæri í dag : / Jamm

domingo, 3 de septiembre de 2006

varla eitt né neitt

Úff þetta hlýtur að vera grín - ég er með strengi eftir að hafa verið að mála í gær ! Ég var að hjálpa mömmu og pabba að mála húsið og var meirihlutann af tímanum uppi í tröppum en málningardollan var á jörðinni, svo ég þurfti alltaf að stíga með annan fótinn niður á jörðina, með hinn enn í tröppunni, beygja mig niður og ná í meiri málningu og spyrna svo upp aftur ... jebb og ég er með strengi ! Hvernig verð ég þá eiginlega eftir bootcamp ! Skólinn byrjar á morgun og ég er búin að eyða helginni í að undirbúa það, kaupa í matinn og svona svo að ég þurfi ekki að vera að stússast í vikunni. Geggjað að eiga fríhelgi :D :Þ Hef ekki mikið að segja í dag svo bara ADIOS

viernes, 1 de septiembre de 2006

kannski einum of jákvætt :Þ

Einn kennari virðist hafa lesið hugsanir mínar (eða kannski bloggið ; )) því að í gærkvöldi setti hann inn námskeiðslýsingu : ) ekki kennsluáætlun þó ! Í dag er ég að taka síðustu sumarvaktina mína : O Já sumarið er officially búið ! Ég verð bara að segja að þetta var æðislegt sumar, ég og María eigum yndislegar minningar, ég eyddi miklum tíma með fjölskyldunni minni, er síðan búin að passa að knúsa Orrann minn mikið frá því ég kom heim því ekki sá hann mikið af mér í sumar. Vinnan mín er náttúrulega alltaf jafn æðisleg og ekki skemmdi það fyrir þegar ég fékk 30 þús kr meira útborgað í dag en ég bjóst við. Jahá þá voru taxtarnir víst hækkaðir í sumar : D Þannig í hnotskurn; æðisleg vinna, æðisleg fjölskylda, besti kærasti í heimi, yndislegir vinir, skemmtilegt nám =frábært líf. Ég bara get ekki kvartað í dag : )
Planið var að fara í Bootcamp prufutíma í dag en hvaða hvaða tíminn féll niður ! Næsta tilraun verður því miðvikudaginn sem kemur, þá hljótum við að komast : D Annars ákvað ég ekkert að vera að bíða eftir að námskeiðið byrjaði til að fara að borða (já yfirhöfuð bara borða mat því ég er ansi löt við það). Núna er líka allt nammi og gotterí alveg úr myndinni :' ( en ætli ég lifi það ekki af : Þ Er það samt ekki klassískt að daginn sem ég hætti að borða nammi skilur einhver eftir stóran poka af súkkulaðikossum hérna í mótttökunni og allir eru að gæða sér á því ! míns má ekkert fá. Svo kom einn gestur og gaf mér 3 pakka af mentosi ... hver vill eiga? Jebb lífið er ljúft, er búin að vinna kl. 13:30 og þar sem ég er bíllaus þá er ég að spá í að fara heim og taka kraft tiltekt í íbúðinni, gera svona allt sem maður hefur venjulega ekki tíma fyrir : Þ La sonrisa