domingo, 28 de mayo de 2006
Í gær tók ég þátt í minni fyrstu gæsun (hehe getur maður sagt það :P) Það var hún Lóa skvíz sem að var send út um allan bæ og þetta var svo gaman :P Við fórum fyrst á Sólon og borðuðum smá, því næst var gengið upp Laugarveginn að Helenu fögru þar sem skvísan fékk dekur. Svo skelltum við okkur í stúdío og tókum upp lag :P Því næst var farið í Laugar þar sem við fengum línudans og diskódanskennslu. Um kvöldið var svo grillað og örugglega mikið sprellað en ég þurfti að fara heim um miðnætti því ég þurfti að mæta í vinnuna kl. 7:30 :S Ég kemst því miður ekki í brúðkaupið þar sem ég verð einhvers staðar á þvælingi í lest ... en TIL HAMINGJU LÓA OG JÓI
viernes, 26 de mayo de 2006
gggeeeeiiiisssspppp
hmmm ég svaf til 8:30 í morgun og ég leit á það sem svo að ég hefði sofið út :P Já svona er það þegar maður vaknar alltaf fyrir 7 til að mæta í vinnuna.... Ég er líka algjörlega búin á því á miðnætti og þyrfti helst bara alltaf að vera farin í rúmið kl. 22 :P
Jæja núna eru allir súperskemmtilegu þættirnir mínir að klárast, var að fá síðustu þættina af Lost og House og svo verður bara ekkert meira horft á eitt né neitt fyrr en í haust ... :Þ
Hmmm já ég hef greinilega ekkert merkilegt að segja, ég er búin að eyða öllum síðustu dögunum í vinnunni, fékk 1000 kall um daginn í tips frá súperhappy ameríkönum sem ég bjargaði frá því að keyra til Húsavíkur í snjóbyl :P
Farin, bless
martes, 23 de mayo de 2006
úff svolítið langt
Ég fór í pallatíma í gær sem væri svo sem ekki frásögufærandi nema af því ég hef sjaldan verið jafn út úr kú og í gær. Mér tókst ekki að læra sporin og sneri iðulega í vitlaus átt eða var bara að gera eitthvað allt annað en restin af hópnum var að gera, ég var einfaldlega bara ekkert að hugsa um það sem ég átti að vera að gera ...
Fyrir utan þetta þá var ég eins og fimmtug kelling sem hefur reykt í 30 ár og ekki æft neitt í 40 ár, ég bókstaflega var að deyja ég var svo andstutt :S Ætla rétt að vona að þetta sé ekki byrjunin á e-i flensu þar sem ég er heldur ekkert alltof hress í dag :S
Það virðist vera eitthvað ómeðvitað stress í mér þessa dagana, ég segi ómeðvitað af því ég er öll hin rólegasta þegar ég er með meðvitund en hmmm næturnar bera þess greinilega merki að ég er ekki alveg eins róleg og ég held :P Í fyrrinótt þá dreymdi mig nefnilega draum sem eiginlega toppar alla undarlega drauma sem mig hefur dreymt (og þeir eru margir og þeir eru undarlegir). Ég veit ekki hvort ég á að segja ykkur hvað þetta var, ég verð álitin crazy :P ahhh vita hvort sem er ekki allir að ég er hálfrugluð ;)
En jæja draumurinn snerist semsagt um RISAvaxna, eldspúandi, stökkbreytta STREPTÓKOKKA BAKTERÍU ! Hún var semsagt brún, hringlótt með lappir og hendur og ég var að flýja frá henni með einhverju fólki og þessi risavaxna baktería var að brenna skóginn sem við vorum að hlaupa í :O :P Hmmm já hvað segiði er þetta ekki með undarlegara móti ?? : /
Það er samt alveg klassískt fyrir mig þegar ég er að fara að gera eitthvað spes eins og t.d. fara á interrail að ég verði svolítið kúkú :Þ
En jæja ég stökk á fætur kl. 8 í morgun og skutlaði Orra í vinnuna því ég er í fríi í dag. Svo fórum við María á Stúdentaferðir og hún keypti sitt Interrailkort, ég þarf að bíða þar til í næstu viku þegar vegabréfið kemur til að kaupa mitt. Svo fór ég í Kringluna, verslaði í matinn mmmm það er meira en mánuður frá því það var keypt almennilega í matinn á þessu heimili !!! Fór svo með æðislega hringinn sem Orri gaf mér í AFMÆLISgjöf (já 2oghálfum mánuði of seint ;)) í minnkun.
Ég fór síðan í smá búðarrölt því mig langar svo að kaupa mér DÖKKT, LÉTT pils sem þolir að vera krumpað ofan í tösku í lengri tíma, það má ekki vera úr viðkvæmu efni þar sem ég sé fram á að þurfa að þvo það í höndunum :P og má hvorki vera of stutt né of sítt ... já þið sjáið að þetta er ekki alltof auðvelt :P Ef einhver veit um svoleiðis pils þá má hann vinsamlegast láta mig vita :D
lunes, 22 de mayo de 2006
Silvia Night, shining in the light !!!
Haha þið bara verðið að kíkja á þessa algjöru snilld, hún Silvía okkar Night að gera sína hluti :Þ Video
Lesið svo kommentin, það er alveg ótrúlegt hversu fáir fatta að þetta er djók og ljótu hlutirnir sem sumir segja ... aumingja Silvía okkar vildi bara vinna Eurovision ;)
tres semanas
Ég bara verð að kvarta yfir veðrinu ... HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ KULDANN !!! Jeminn ég er að frjósa alla daga :S Á spánni fyrir næstu vikuna fer hitinn í -1°C og hæst í 8°C brrrr ! Ég las í gær viðtal við skólastjóra Vinnuskólans og þar sagði hún að það væri vitað að það yrði gott veður á Íslandi í sumar, huh?? Mér þætti gaman að vita í hvurslags sambandi hún er við veðurguðina :Þ En jæja ég ætla bara að vera fegin að ég verð ekki á KLAKANUM í sumar !
En jæja einkunn 2 komin inn ... Ágætlega sátt við hana, allt yfir 7,25 kætir hjartað mitt því það dregur meðaleinkunnina mína upp. Núna er bara að bíða eftir þessum tveimur síðustu. Það eru komnar 2 vikur frá öðru prófinu og vika frá hinu svo þetta gæti verið tveggja vikna bið :S
Við Orri fórum í gær og borðuðum á Austur-Indía fjelaginu. Maturinn þarna er geggjaður, mmmm. Ekkert smá kósý staður líka og þjónustan mjög góð. Ég elska að fara á nýja veitingastaði, bæði af því það er svo gaman að prufa nýtt og fá góðan, öðruvísi mat, en svo líka af því að þá get ég sagt gestunum á Sunnu hvað mér finnst um staðinn þegar þeir spyrja. Ég þoli ekki þegar ég er spurð að svona álitsspurningum í vinnunni og ég hef aldrei farið á staðina sem verið er að spyrja um ...
Well, ætli maður drífi sig ekki að klæða sig og rölti svo í 11-11 til að finna sér eitthvað í morgunmat. Ég er ekki enn búin að fara og kaupa góða, lífræna haframjölið og er því alltaf í veseni með að fá mér morgunmat. Er nú samt búin að gera eina tilraun en það var bara ekki til :(
Svo er það bara pallatími í dag (er ekki búin að fara í ræktina í svona 2 vikur :S) og svo er það auðvitað bara vinnan :Þ Bara 6 tíma vakt í dag :)
Chao bellos
domingo, 21 de mayo de 2006
útskrift ...
Allur gærdagurinn fór í útskriftarstúss, útskrift og svo auðvitað útskriftarveislu :D
Það var þessi bjútíkvín sem varð að útskrifast ...
Til hamingju ástin mín, ég er svo stolt af þér :D :*
Svo var það náttúrulega Eurovision. Persónulega þá fannst mér lagið frá Bosníu-Hersegóvína langflottast en Finnarnir voru náttúrulega geðveikir á að horfa ... En jæja við Orri horfðum á keppnina hjá mömmu og pabba, ég var alveg útkeyrð eftir daginn svo ég fór nú bara heim að sofa um miðnætti :Þ Maður er ekkert sérstaklega kröftugur á kvöldin þegar maður vaknar alltaf milli 6-7 :S
En jæja, er í fríi í dag og veit ekki alveg hvað ég mun nýta það í ... langar í ræktina en ég bara nenni ekki að hjóla þangað. Mest langar mig bara að stara út í loftið og gera ekki baun :P
bæbæ

viernes, 19 de mayo de 2006
say whut?
Það er greinilegt að það er alltof langt síðan kennararnir mínir voru sjálfir í skóla því þeir muna greinilega ekki hvað það er hryllilega erfitt að bíða svona eftir einkunnunum. Þetta er sérstaklega erfitt því maður veit ekkert hvenær þær koma þannig að maður er ALLTAF á Uglunni ... !!!
Annars er náttúrulega stórmál allra stórmál Silvía okkar Night. Hehe mér fannst myndirnar af henni eftir keppnina alveg adorable, hahaha búin að gráta úr sér augun yfir þessum heimsku Evrópubúum sem að skildu hana ekki og mín ætlaði bara til USA þar sem að fólk er með viti :Þ
En jæja ég er as always í vinnunni, það er ekki mikið að gera í augnablikinu en það er mikið stúss samt í gangi hérna svona til að undirbúa fyrir sumartörnina sem byrjar nú eiginlega bara næstu helgi. Ég algjörlega elska að hafa húsið fullt af fólki eftir að hafa verið hérna meira og minna ein í allan vetur (jahh fyrir utan alla langtímagestina).
Ég eyddi gærdeginum í miklum útréttingum og veseni. Kíkti svo í vinnuna til Orra í hádeginu og við fórum saman að borða á Gallerí Fisk ...mmmmmmm.... maturinn þar er alltaf jafn geggjaður. Seinnipartinn sat ég svo heima með hendurnar á kaffi í súkkulaði, sírópi, smjörlíki og rice krispies ... jebb ég var að búa til Rice Krispies kransaköku fyrir stúdentsveisluna á morgun. Ég virðist gera þessa köku fast einu sinni á ári og í hvert einasta skipti þá bölva ég og ragna þegar ég er byrjuð af því þetta er ekkert smá klístur og nánast meira en eins manns verk .... eeeennn eníhú ég er svo klár að ég reddaði þessu öllu og svo er bara að vona að hún líti vel út þegar búið er að setja hana saman :Þ
Jæja ég ætla að hætta hér og fara að skrifa blogg fyrir interrailbloggið ....
chao

miércoles, 17 de mayo de 2006
tits
Þar sem það er miðvikudagur í dag þá gat ég ekki annað en farið að skoppa upp á fjöll sem ég svo gerði :Þ Núpa"fjall" var málið í dag, 7 km og bara 100 m hækkun sem þýðir bókstaflega að þetta var bara hóll en þó samt nokkuð margir hólar :P
Ég tók helling af myndum en því miður þá lít ég út fyrir að vera með afskaplega sigin brjóst á þeim öllum :Þ Mamma, af hverju lagaðiru ekki festingu á bakpokanum, láta mig labba svona eins og algjöran asna :Þ En jæja hér er smá sýnishorn af mér eftir að ég kom heim og var að fá mér vatn að drekka eftir gönguna
nei bara grín, eldhúsið mitt er ekki svona flott ...
Annars eyddi ég öllum deginum bara í vinnunni, brjálað að gera (ekki þó af því það komu svo margir gestir á meðan ég var þarna) það bara var brjálað að gera ...
Á morgun er það svo augnbrúnavax, rice crispies kransakökugerð, gjafainnkaup og auðvitað Eurovision ... hver ætlar að bjóða mér í partý??? ég verð reyndar samt að fara snemma að sofa því það er víst mæting í vinnuna kl. 7:30 á föstudaginn :S
Eníhú, þið 7 hræðurnar sem (viðurkennið að) lesið bloggið mitt góða nótt

martes, 16 de mayo de 2006
juicy fruit
Ég er bókstaflega búin að vera OF dugleg í dag ! *geisp* Frá 9 - 15 var ég á þeytingi um allan bæ að redda hinu og þessu bæði fyrir interrailið og svo bara hlutir sem hafa verið á bið yfir prófin :S Náði þó ekki að kaupa í matinn þannig að enn um sinn verður take-out og borðað í bílnum málið :Þ
Annars var það týpískt að daginn sem ég þarf að fara í passamyndatöku fyrir vegabréfið mitt þá vakna ég með annað augað bólgið !
En jæja, í gær var farið í Bláa Lónið með spænskunni og um kvöldið var borðað á Tapasbarnum ... mmmmm geggjaður matur og kvöldið var mjög skemmtilegt. Ég stakk svo af heim svona 23:30, komin með nóg af reykingum og orðin dauðþreytt :Þ Hehe já ég er alltaf eins :Þ
Fyrsta einkunnin skreið líka inn í dag, 7,5 í Bókmenntum, er svo sem sátt við það, vildi fá 8 en mér gekk ekki eins vel á prófinu og ég hefði viljað ...
Já en eftir heilan dag í Kringlunni þá hefur lífsviljinn verið kreistur úr mér og núna sit ég á sófanum, varla bloggandi og er eiginlega bara búin að stara út í loftið síðan ég kom heim 15:30. Spurning um að rífa sig upp aftur og reyna að gera meira gagn áður en við förum í mat til ömmu hans Orra í kvöld ...
CHAO
lunes, 15 de mayo de 2006
28 dagar (later)
Mmmmm frelsið er alveg jafn yndislegt og mig minnti :)
Jæja nú er maður að byrja dag nr. 2 af sumarfríinu og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki gert margt sumarfríslegt. Í gær var ég í vinnunni A L L A N daginn eða frá 7:20 - 19:30 ... monní hónní. En jæja þar sem þetta er dagur 1 þar sem ég þarf ekki að vinna þá er planið náttúrulega að hefja beauty makeoverið eftir prófasessionið. Jebb í dag verður hárið klippt og skorið :D
Seinna í dag þá er ég líka að fara í hið ofurnotalega Bláa Lón :D með spænskunni og í kvöld verður borðað á Tapas :P Me likey ...
Ég ætla samt rétt að vona að einhvers staðar þarna á milli fái ég tíma til að taka aðeins til heima hjá mér :S ojj ojj ojj nokkurra vikna prófatíð gerir ekki góða hluti fyrir hreinlætið hérna :S Það er einhver funky lykt sem ég ætla að komast að hvaðan kemur .... :Þ
Jæja ég ætla að koma my myglin ass in í herbergi og klæða mig :)
Hey og svo er fólk latara en ever að kommenta, ætli ég bloggi ekki bara fyrir mig eina :P
domingo, 14 de mayo de 2006
bloggedíblogg
Jæja skólinn búinn, engar einkunnir komnar og núna á sumarið hug minn allan :) Ég er búin að sitja og grúska yifr interrailsíðum í allan dag (fyrir utan það að vera í vinnunni í 12 tíma líka :Þ)
En allaveganna, ég ætla að hafa þetta stutt í þetta skiptið, ég ákvað að búa til nýtt blogg fyrir interrailið og svona undirbúninginn fyrir það og hér kemur það: Interrail aldarinnar það er alveg hrátt núna en það bætist inn á það smám saman fram að ferðinni, planið er svo að blogga þar á meðan á ferðalaginu stendur (þegar við komumst í tölvu) ...
en alla veganna snúsímúsurnar mínar, Íris out
sábado, 13 de mayo de 2006
Hello and Goodbye
Ég get varla setið kjurr vegna spennings ..... Bara nokkrar klst í viðbót og þá er skólinn B Ú I N N :D Það er varla að ég sé að hugsa um það að ég sé að fara í próf, það eina sem kemur upp í huga mér er að eftir kl 15:30 í dag get ég gert hvað sem ég vil án þess að vera með samviskubit af því ég á að vera að læra :Þ
En á hinn bóginn þá er ég líka oggu smá leið, ég er að hætta í spænsku :( Þetta er búið að vera svo skemmtilegt og ég hef lært svo mikið og bætt mig. Ég hafði nánast ekkert lesið á spænsku áður en ég byrjaði í haust og það var þvílíkt átak fyrir mig að byrja að lesa skólabækurnar en núna þegar ég les þá veit ég varla á hvaða tungumáli textinn er sem ég er að lesa :Þ
Svo er ég líka búin að kynnast svo frábæru fólki en ég verð þó að segja að þrjár æðislegar stelpur standa upp úr....
Kolla (á Kvenna/Karla kvöldinu)
Sylvía (á Mama's Tacos)
Sigrún (á Rossopomodoro)
Takk stelpur fyrir alveg frábært ár, hjálp með glósur, verkefni og allan fjandann :D Hvernig væri svo að vera duglegar að vera í bandi ;)
Jæja kannski að maður kíki yfir glósur fyrst maður hefur tímann ....
-Íris í sumarskapi-

viernes, 12 de mayo de 2006
1 dagur í viðbót
Hvað er ég búin að vera að gera í vetur ??? Alla veganna ekki læra í málfræði :S Það sökkar að vera enn í prófum. Ég er á Hlöðunni núna og hún er nánast tóm :S Gott fyrir allt fólkið sem er búið í prófum : / En jæja það er bara 1 dagur eftir og svo er ég F R J Á L S !
Það sem er að bögga mig mest er að ég held að ef að ég hefði lagt mig eitthvað fram í þessari málfræði í vetur þá myndi ég alveg kunna og skilja þetta ! Eftir að vera búin að liggja aðeins yfir þessu síðustu dagana þá hef ég lært alveg helling og þetta er bara ekkert svo flókið :S Málfræðireglur eru bara málfræðireglur og ekkert mál með það ! eeennn jæja núna er ég bara að vonast til að ná :S
Ég gerði alveg helling í gær (nema að læra). Ég fór á lagersölu 66°N í Skeifunni og keypti mér 3 peysur á 6þús kall ! Ég er meira segja að spá í að fara og kaupa mér eina í viðbót og hafa hana með á Interrailið. Um kvöldið hitti ég svo Rebekku, við fórum saman að borða á Grænum Kosti og skelltum okkur svo á Café Paris. Frábært að komast út úr húsi og hitta eitthvað fólk :D
En jæja í dag er akkúrat mánuður í að við förum út og eftir prófin tekur við undirbúningurinn fyrir ferðina. Ég er búin að reyna að ýta því frá mér hvað ég þarf að gera mikið áður en ég get farið því ég bara get ekki verið að hugsa um þetta fyrr en eftir prófin en ég held að það hafi ekki alveg tekist :P Maður er endalaust að pakka í huganum og hugsa um hitt og þetta sem þarf að gera :P
Reyndar tekur líka við undirbúningur fyrir útskriftina hennar Maríu, maður þarf víst að baka smá og svona :Þ Svo er náttúrulega fagnaðarpartý, próflokadjamm, Eurovision, vinna, einkunnir, göngur .... jebb þetta á allt eftir að gerast á einum mánuði.
Ég er búin að ákveða að fara ekki í Eyjafjallajökulsgönguna :( Það bara kemst enginn með mér og mig langar ekki að fara ein því þetta verður svo mikil upplifun og það er algjör synd að geta ekki deilt henni með einhverjum. Þannig að jöklagöngur og já líka Heklugangan verður bara að bíða til sumarsins 2007 :) Fjöllin fara ekki neitt :)
Jæja ég ætla að halda áfram að lesa um hinar ýmsu beygingar spænskra sagna, hugsið vel til mín á morgun milli 13:30 og 15:30 :)
-Íris hin überhamingjusama-

jueves, 11 de mayo de 2006
4 vikur og 4 dagar :D
Bíllinn minn er búinn að vera rafmagnslaus frá því á mánudaginn, mig vantar start ....
En jæja að venju þá var miðvikudagsganga í gær. Gengið var á Grímannsfell í Mosfellssveit. Þetta byrjaði sem ósköp venjuleg ganga, ágætlega heitt og bara fínt veður. Svo þegar við fórum að ganga upp á fjallið þá byrjaði að koma þoka sem var svo þéttari og þéttari en þar sem í för voru þónokkur gps-tæki og enn fleira fólk sem að er vant að nota þau, þá var ekki mikið spáð í því. Á leiðinni upp þá sá maður fjallið varla :Þ Hérna erum við að labba að fjallinu
Jæja upp var gengið og það kom vindur og meiri þoka ... Í kaffipásunni var ástandið svona og þá vorum við ekki einu sinni komin upp á topp (þrátt fyrir að ég hafi haldið alla veganna tvisvar áður að núna hlyti þetta að vera toppurinn). Þarna var ég til í að fara bara heim, komin með nóg og klukkan kannski svona 21. En óbojj þetta var sko ekki búið ...
Eftir svona hálftíma labb í viðbót vorum við svo komnar á toppinn LOKSINS ! Þarna var rok og kalt .... ég komin með hælsæri á báðum og allir orðnir þreyttir og ánægðir með að nú gátum við farið að halda aftur í bílana ..... eeennnn nei núna var þetta bara rétt að byrja ...
Jebb eftir toppinn var haldið af stað, það var labbað í þveröfuga átt miðað við það sem að ég hélt að væri leiðin til baka , enda var stoppað eftir smástund gps tækin dregin upp og hópnum snúið við. Svo var gengið mun lengra í hina áttina þangað til allt í einu var stoppað gps tækin dregin upp eina ferðina enn oooooogggg snúið við !! Þessi mynd er úr því stoppi :Þ
Jæja hérna voru allir orðnir þreyttir og engum fannst neitt sérstak stuð að vera búin að rölta villt um uppi á fjalli í hörkuþoku í klst. Ég veit ekki hvað málið var, hvort þeir fundu ekki punktinn á gps eða hvort áttavitinn vildi ekki sýna norður eeennnn mmmeeeennn ég var alveg til í að koma mér niður af þessu fjalli !
Jæja svo var gengið aftur til baka, UPP brekku og gengið yfir fjallið þvert þangað til við fórum loksins að labba niður á við og þokuna fór að létta. Við komum niður LANGT frá bílunum en þó nálægt staðnum þar sem planið hafði verið að koma niður á. Þessi síðasti spölur var langerfiðastur, úff 2 blöðrur, ökklamein og bara þreyta gera ekki gott þegar maður á eftir að labba heillangt til að komast í bílinn :Þ En loksins að ganga 23:30 vorum við komnar í bílinn, svona 1,5 tíma á eftir áætlun :Þ En þetta hófst og seinna meir þá verður þetta bara smá ævintýri :D
Haha já mér fannst ég hafa löglega afsökun til að sofa út í dag og sleppa því að fara í ræktina :Þ En ætli ég verði ekki að fara að drífa mig að læra fyrir málfræðina ef ég ætla ekki bara að falla með stæl !

miércoles, 10 de mayo de 2006
varúð, algjört bull
haha ég hringdi alveg brjáluð í símaverið fyrir heimilissímann okkar og spurði þá hvað í fjandanum þeir væru að rukka mig aukalega þennan mánuðinn og næsta ... við erum sko ekki með heimasíma og borgum því alltaf bara fast eitt gjald .... en alla veganna þá voru þeir ekkert að ræna mig *roðn* ég fattaði ekki að þetta var sami reikningurinn tvisvar og svo var þessi aukakostnaður skráningargjald fyrir símaskrána. En samt common 600 kall !
En jæja, ég er alltaf svolítið trekkt þegar kemur að símafyrirtækjunum eftir að OgVodafone rændi mig hérna um árið. Ég var með Frítt í Fjóra hjá Íslandssíma og svo þegar það breytist í OgVodafone þá fékk ég þær upplýsingar að það myndi bara haldast eins. Svo mörgum mánuðum seinna þá einhverra hluta vegna læt ég senda mér yfirlit yfir notkunina á símanum fyrir þann mánuðinn og sá þá að þeir höfðu rukkað mig fyrir sms sem ég sendi á þá sem ég hafði skráð sem fría. Fékk svo yfirlit alveg fram að því að fyrirtækinu var breytt og helvítin höfðu alltaf rukkað mig um þetta ! Við tóku endalaus símatöl, send á hinn og þennan innan fyrirtækisins og ég hef ekki enn fengið peninginn minn ! Ég gafst upp :S
Eníhú, 3 dagar í næsta próf, mín rétt svo byrjuð að glugga í bækurnar og komst að því að ég kann bara ekki baun í spænskri málfræði :Þ jeminn
Ganga á eftir, guði sé lof því ég sat á rassgatinu og gerði ekki neitt í gær, nennti ekki einu sinni að fá mér að borða svo ég lét senda heim mat frá Nings um kvöldið því ég var að deyja úr hungri, borðaði svooooo yfir mig að ég hélt ég myndi æla....
Þetta er eitt mesta ruglþvaðurblaður blogg sem ég hef skrifað, ég er nokkuð viss um að ég á eftir að verða ég sjálf aftur þegar þessi próf eru búin .... jahhh eða alla veganna í ágúst, því eftir prófin tekur við vinnan og svo á ég eftir að gera svooooo margt áður en ég get farið til ÚTLANDA
Aumingja þið sem að lásuð þetta, ég vona að þið hafið ekki fengið höfuðverk, hérna er ein paratabs
martes, 9 de mayo de 2006
ohhh ég nenni ekki í fleiri próf !!!!!!!!!!
Oooooohhhh mig langar svo í Nings !!! eeennn bíllinn minn er rafmagnslaus hér fyrir utan :S
Hmmm ein spurning hvernig hverfur stór vatnskanna og heil mappa með öllu bókhaldi ársins 2005 !!!
Ég týndi líka lyklunum af hjólinu mínu í gær, þeir eru sko á varahúslyklunum mínum. En jæja hvað haldiði, ég fann bíllykilinn minn á meðan ég var að leita að hinum lyklunum :D þeir eru sko búnir að vera týndir í rúma 2 mánuði :Þ Þetta eru semsagt þriðju lyklarnir sem ég týni á síðustu 2 mánuðum :Þ Þeir finnast samt alltaf aftur á endanum, jahhh stundum eftir 2 mánuði :Þ
En alla veganna, ég hef eiginlega ekki farið út úr húsi í allan dag :S þrátt fyrir góða veðrið .... og ég hef lært baun :S
Íris hin lata !
lunes, 8 de mayo de 2006
cinco semanas, yeah baby bara 5 vikur í brottför !!
Núna er komið algjört sumar í mig :P Ég er í afneitun, ég vil vera búin með prófin en það er víst eitt eftir í viðbót :S
Ég hef reyndar lítið náð að njóta góða veðursins þar sem ég hef verið að vinna :S Ég skaust þó heim til mömmu og pabba í gær fyrir vinnu og náði aðeins að sleikja sólina þar í steikipottnum :) Ég fæ nefnilega alltaf heimþrá í svona góðu veðri, það er svoooo magnað kósý að vera "heima" þá. Bæði fyrir framan og aftan verður alveg svakalega heitt svo maður getur setið fyrir framan fyrir hádegi og borðað morgunmatinn sinn og svo um hádegi þá getur maður fært sig bakvið og niður og flatmagað þar og skellt sér í pottinn mmmmm :Þ
En hérna hjá mér á Hlemmi er bara ekkert kósý að vera úti og ég hef ekki einu sinni svalir til að flatmaga á þannig heim fer ég :P
Ég fékk svo líka afmælisgjöf í gær, María snilli vissi nákvæmlega hvað mig vantaði og gaf mér tösku utan um myndavélina (algjört möst fyrir interrailið).
Svo var ég búin að ákveða hvað ég vildi fá frá Orra og það var svefnpoki, málið er að við María áttum 2 en bara annar finnst. Mamma á þennan geðveika svefnpoka sem er bara rétt 900 gr og alveg ínímíní í pokanum og mig langar ekkert smá í þannig eeeennn ég var að tékka á verðinu og vinurinn kostar 16þús kall :O ! Reyndar var annar fyrir aðeins minni kulda en hann var tæp 800 gr og kostar víst 15 þús kall :Þ Jebb göngusportið er ANSI DÝRT ! Ég meina, skórnir sem ég á kosta 25þús kall, fékk þá reyndar á 20 þús á tilboði, og allur hlífðarfatnaður hleypur á nokkrum þúsunum, jafnvel alveg þónokkrum þúsunum.
Jæja ætli maður fari ekki og geri eitthvað gáfulegt eins og að þvo þvott :P og skelli sér svo í ræktina því hún hefur svo sannarlega fengið að sitja á hakanum síðustu vikuna á meðan þessi prófatörn var, núna er þetta aðeins rólegara þar sem næsta próf er ekki fyrr en á laugardaginn næsta
-ÍÓ yfir og út-
sábado, 6 de mayo de 2006
5 vikur og 2 dagar :P
Próf 3 búið ! og það hefði mátt ganga betur en ég nenni ekki að spá meira í því ! Vika í næsta og núna er ég bara í vinnunni ....
En alla veganna, ég var að lesa Selmublogg og las þessa frábæru færslu um gamla vini og gamla tíma og fór þess vegna að hugsa um gamlagamla tíma ...
Þegar ég var 5-6 ára kynntist ég alveg frábærri stelpu, Kristín Laufey ég veit þú kíkir stundum ;) Ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvernig við kynntumst en ætli við höfum ekki báðar verið nýfluttar í Suðurhvamminn sem þá var eiginlega bara í byggingu. Ég held að ég hafi aldrei eignast vinkonu sem hefur orðið jafnmikil systir mín :Þ Ég á myndir frá öllum jólum frá 6-9 ára af okkur og svo voru auðvitað María og systur hennar Sólveig og Guðrún líka allar í jólafötunum voða sætar og fínar:Þ Hún átti systur 4! sem voru allar á svipuðum aldri og við 3 systurnar svo þetta var hópur af 8 stelpum !
Ég held að það hafi verið amma hennar (hehe það gæti reyndar líka hafa verið einhver allt annar eða bara draumur :Þ) sem að sagði mér að blokkin mín væri byggð á kirkjugarði, eftir það þangað til ég flutti þaðan 15 ára var ég dauðhrædd við þennan helvítis kjallara :Þ
Ég man eftir fransbrauði með hnetusmjöri og sultu, playstation, sleðaferðir niður löngu brekkuna, ótal ævintýri hinum megin við veginn, fjallgöngum á Ásfjallið, siglingar um Ástjörnina, þegar Kristín hoppaði niður af veggnum við undirgöngin og meiddi sig og þá hætti ég við að hoppa líka :Þ ég man líka eftir fimleikamótum þar sem hún lenti alltaf einu sæti ofar en ég :Þ, Michael Jackson, göngu í gegnum kríuvarp þar sem við sungum alla leiðina til að þær myndu ekki ráðast á okkur, danshoppuleik, þegar við héldum að Elísabet hefði dottið úr rúminu sínu en í raun þá hafði orðið slys á Reykjanesbrautinni rétt hjá, áformum um að byggja göng frá húsinu mínu inn til hennar eða símalínu á milli herbergjanna og ótal ótal fleiri ...
Er nema von að ég hafi verið miður mín þegar hún svo flutti ! :D Mikið er maður heppin að eiga svona góðar minningar
viernes, 5 de mayo de 2006
Á Rómanska Ameríka enga von?
Sarmiento, Zapatistas, Bolívar, Moctezuma, Colón, Martín, Sor Juana, Cortéz, 1492, 1513, 1519, 1521, 1808, 1812, 1814 ................... Úff hausinn á mér er fullur ! Næsta próf á morgun og þá verða 3 af 4 prófum búin ... Ég er ansi ósátt við sjálfa mig að hafa lítið lagt á mig í allan vetur og núna fyrstu tvö prófin en ég er búin að vera ansi dugleg fyrir þetta próf enda efnið stórskemmtilegt :Þ
Sem betur fer þá er bara rúm vika eftir af prófum því ég hef virkilega áhyggjur af heilsu minni þegar ég fer heim, íbúðin þarfnast deep cleansing eftir þetta lærdómstímabil :S Bíllinn er líka eiginlega fullur af matarafgöngum því að þar sem maður vill sem minnst vera heima þá er ansi mikið borðað í bílnum :Þ Já þetta er erfitt ástand :Þ Ég þakka bara fyrir að eiga ekki barn því það væri örugglega týnt undir óhreina tauinu núna ... !
Svona er maður sætur, alla veganna á Djúpavogi
Sor Íris de la Cruz
Svona er maður sætur, alla veganna á Djúpavogi
Sor Íris de la Cruz
jueves, 4 de mayo de 2006
5 vikur og 4 dagar !!!
.... ó mæ lord, eftir nokkra daga verður kominn 12. maí sem þýðir að það er bara mánuður í að við förum út !!! Og ég á eftir að gera svoooo MARGT ! María á eftir að útskrifast, ég á eftir að vinna eins og mófó og ná prófunum ... þetta er crazy :O Ég á ekki einu sinni vegabréf ! :Þ Jæja smá taugaáfall í gangi en ég held að það sé búið núna ...
Annars ákvað ég að rífa mig upp úr prófaþunglyndinu og mín var mætt á hlöðuna kl. rúmlega 9 í morgun :D
Ég nenni ekki að blogga því enginn nennir að kommenta
miércoles, 3 de mayo de 2006
Talnaröðin 01:02:03, 04/05/06 mun myndast í nótt
Jahá þessi merkilega fyrirsögn var á mbl.is í dag :P
Próf númer 2 er búið, ég vona að það hafi gengið vel ! :S
Ég er á þvílíkum prófbömmer þessa dagana : / Úff ég er ekki sátt við sjálfa mig :S
En jæja bara 10 dagar eftir og svo er ég laus úr skólanum í nokkra mánuði :)
Bæ-ó
lunes, 1 de mayo de 2006
Song 2 - Blog 2
Hvað segiði um þetta?
1. How does the world see you? AntII-VirII - Rufus (Say whuuutt? ég verð að athuga hvaða lag þetta er :Þ)
2. Will I have a happy life? Fat Bottomed Girls - Queen (haha flott fyrir mig svona bootylicious)
3. What do my friends think of me? Hella Good - No Doubt
4. Do people secretly lust after me? Eye of the Tiger - Survivor
5. How can I make myself happy? Double Trouble - Roots (Feat. Mos Def)
6. What should I do with my life? Dust in the Wind - Moody Blues
7. Will I ever have children? How come you don't call me - Alicia Keys
8. What is some good advice for me? My Dads Gone Crazy - Eminem (efast um að það sé satt :Þ)
9. How will I be remembered? Sir Duke - Stevie Wonder
10. What's my signature dancing song? Badhead - Blur
11. What's my current theme song? Stronger - Sugababes
12. What do others think is my current theme song? Have you ever? - Brandy
13. What shall they play at my funeral? Kirsuber - Nýdönsk
14. What type of wo/men do I like? Space Oddity - David Bowie (úff já geimfarar eru hhoooottt! ;) )
15. How's my love life? Is This Love - Bob Marley
Ég er svo mygluð að ég á erfitt með að trúa því, ég er búin að hakka í mig heilann Minstrels poka og gæti bókstaflega ælt *smágubb*, ég þarf virkilega á sturtu að halda og ég er svo ekki að nenna að læra að það er scary :S Ég er OgguPínuPonsu algjörlega fucked ...
6 vikur til stefnu !!
Jæja nú eru bara 6 vikur þangað til við systurnar skellum okkur út ! Jafnlangur tími og við verðum í burtu :P Ég þarf varla að segja það að ég GET EKKI BEÐIÐ !!! sérstaklega núna í þessum %#$%#$ prófum :S
Fyrsta prófið er búið og gekk sem betur fer ágætlega eennn það var nú líka auðveldasta prófið ! Næsta próf er á miðvikudaginn og ég er ekki enn byrjuð að læra fyrir það :S Ég eyddi gærdeginum í einhverju súrasta skapi sem ég hef nokkurn tímann verið í, svaf hálfan daginn og það var svo sannarlega ekki ánægjulegt að vera í kringum mig :Þ En jæja öll hressari í dag :Þ og planið er að ná að læra eitthvað auk þess að skella sér í gymmið :)
Stutt færsla í dag þar sem það er ekki mikið að ske ... Njótið dagsins !
OOOOOGGGG KOMA SVO KOMMENTALATAFÓLK
Suscribirse a:
Entradas (Atom)