Sjibbí, það greinilega borgar sig að panika ekki of mikið þegar maður klúðrar málunum svona eins og ég gerði um daginn.
Ég fór að skoða námskeiðslýsinguna enn betur í gær og sá þá að kennarinn segir tvo mismunandi hluti varðandi þessa tíma. Fyrst segir hann að maður verði að mæta í alla tímana til að mega taka lokapróf en svo kemur fram seinna í póstinum að ef að maður missir af tíma í þessum verklegu tímum þá fái maður þá ekki metna upp í lokaeinkunn og maður missir því 5%.
Ég skil þetta sem svo að ég sé ekki búin að missa próftökuréttinn eeeennn ég verð dregin niður um 0.5 á lokaeinkunn fyrir gleymskuna mína : /
Það er auðvitað svolítið fúlt þar sem maður er alltaf að berjast við þessa helvítis meðaleinkunn en hey ég losna þó við að þurfa að borga 100 þús kall til baka um áramótin eða verra fá engin námslán um áramótin og ég þarf ekki að fara aftur í skólann næsta haust bara til að taka þennan leiðindakúrs :Þ
Ég og Rebekka skelltum okkur í enn einn göngutúrinn um Gróttu í gær : ) Alltaf jafngott að fara aðeins út í veðrið ... en í gær var kalt ÍSkalt ! og ég held að hvorug okkar hafi verið nógu vel klædd :Þ
Þegar ég kom svo aftur upp á Hlöðu og ætlaði að fara að læra þá gat ég ekki glósað af því puttarnir á mér voru alveg frosnir :Þ Svo þegar ég var búin að sitja í tæpa 2 tíma og var ekki enn orðið heitt og komin heim höfuðverk þá hringdi ég bara í heimilishunkinn og hann kom og sótti mig :Þ
Úúú og fleiri góðar fréttir
Ég fór í próf í gær í Hugfræði. Dagana fyrir prófið var ég búin að vera á óvenjumiklum bömmer og bara einfaldlega meikaði ekki að læra. Ég var þó búin að fara yfir allt námsefnið á vikunum á undan. Ég var að spá í að sleppa bara að mæta í þetta próf því að 2 af 3 bestu gilda en ákvað svo um morguninn að drulla mér bara á fætur og mæta ..... sem betur fer því mér gekk bara alveg ágætlega, 6,5 og ég var meira segja yfir meðaleinkunninni :Þ Sko maður hefur þetta enn í sér :)
Það er greinilega kominn vetur af því mér er ALLTAF kalt, ískaldar tær og ískaldir puttar !
Svo sit ég undir flísteppi með rafmagnshitablásara sem blæs á tærnar á mér og læri :Þ Þá vantar bara kakóið og kertaljósin ;)
-Íris sem ætlar að finna rafgeymi í bílinn sinn í dag-

2 comentarios:
ég vissi að þetta myndi allt saman reddast hjá þér :)
Frábært að þetta gekk allt vel eftir allt saman :o) Takk annars fyrir frábærann kaldann göngutúr á miðvikudaginn sæta ;o)
Publicar un comentario