jueves, 12 de octubre de 2006

ekki lengur að fara yfir um :Þ

Jæja hvað haldiði, ég missti ekki vitið og svo gekk mér bara mun betur á prófinu en ég bjóst við - Það kom í ljós að maður mátti hafa öll gögn með sér og það algjörlega BJARGAÐI.mér. Svo í staðinn fyrir að fá 2-3 þá er ég að vonast eftir 6-7 :Þ Hún Sigrún Sæta var svo góð að benda mér á það að ef ég hefði haldið mig við spænskuna þá hefði ég verið komin í jólafrí 15. sept ... djö maður hefði kannski bara átt að halda sig þar :Þ Hmmm en reyndar á hinn bóginn þá held ég að jólafríið í sálfræðinni sé lengra í hinn endann, allaveganna þá byrjuðum við síðast 17. jan í sálfræðinni en í fyrra byrjuðum við 5. jan í spænskunni ;) Jóga á eftir, og bíó í kvöld, er að fara að sjá WTC. Svo á loks að mæta í bootcamp á morgun, er búin að vera í pásu vegna beinhimnubólgu/leti síðan hún Rebekka fékk flensuna en hún er orðin hress og spræk núna vona ég :) Um helgina verður svo klárað að flísaleggja eldhúsið, vinna á sunnudaginn en umfram allt MIKILL lestur þar sem í næstu viku þarf ég að vera með 40 mín langann umræðutíma um grein sem ég á eftir að lesa og ég þarf að skila inn 700 orða úrtekt á því sem ég hef að segja um greinina : / Jebb nóg að gera - Eftir þetta þarf maður svo að fara að huga að tilrauninni í félagslegu : O Jæja best að snúa sér aftur að Interpersonal relationships í eignunarkenningum ...

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Sko þú ert svo mikill snilli, þú hefur massað þetta próf big time, er alveg sure með það :o)En heyrru, ég held að ég sé alveg orðin nógu hress í smá púl í Faxafeninu á morgun :o)(Kannksi vinkona mín verði á svæðinu ;o) híhíhíhí...)Verð annars að taka á því núna fyrir árshátíðina og prinsessukjólinn...segi þér allt um það á morgun :o) En ég heyri í þér á morgun sæta !

Anónimo dijo...

hehe, það verður bara útsölufrí hjá þér í staðinn, þú getur farið í búðir snemma á morgnana þegar engum öðrum dettur í hug að kíkja í búðir.