domingo, 31 de julio de 2005

myndir í albúm

Ég er búin að setja eitthvað af myndunum í albúm www.ofoto.com notendanafnið er irisomars@hotmail.com og lykilorðið er hringur. Ég bæti fleiri myndum við næst þegar ég hef tíma ...

myndasýnishorn :Þ

Ég er núna, as we speak, að setja myndirnar úr ferðinni á netið. Þetta er fyrsti dagurinn sem ég hef haft tíma til að gera þetta því ég á ekki að mæta í vinnuna fyrr en kl. 13:30. Hérna kemur smá sýnishorn :D

Ég á kortinu :D

Ég og Orri uppi á Eyjunni í Ásbyrgi

Ég og útsýnið af Hellisheiðinni yfir Héraðsflóa

Ég við Hljóðakletta í Jökulsárgljúfursþjóðgarðinum

Orri elskan mín í glæsitjaldinu :D

Jökulsárlónið !

Orri og ég við Seljalandsfoss

Á leiðinni heim frá Kárahnjúkum

sábado, 30 de julio de 2005

enn í vinnunni en ekki soooo trett

Síðan ég kom heim úr hringferðinni hef ég barasta ekki komið neinu í verk, ekki bara útaf leti, meira bara af því ég hef varla komið heim til mín nema bara rétt til að sofa .... Þessu er nú samt að fara ljúka, 6 tíma vakt á morgun og svo 12 tímar á mánudaginn og svo fer ég í tveggja daga frí. Og óboj ég er sko búin að plana þessa 2 daga, annan daginn ætlum við Orri að bruna í Borgarfjörðinn og klára það sem við gerðum ekki í hringferðinni sem var að fara upp á Baulu. Hinn daginn verðum við að TAKA TIL og ganga frá öllu draslinu sem við vorum með í ferðinni. Við höfum ekki einu sinni farið út í búð frá því við komum heim svo það er nánast ekkert matarkyns til á heimilinu :S :Þ Æ ég er svo heppin af fá að borða hérna í vinnunni og ég fæ sko ekkert ruslfæði svo er mamma hennar Lovísu líka svo frábær og er alltaf að koma með eitthvað gott handa mér :D Ég er svo heppin að finnast alveg ótrúlega gaman í vinnunni minni :D annars myndi ég aldrei lifa þetta af. Það er bara svo frábært fólk sem að vinnur hérna og þau sem eiga gistiheimilið eru algjörir gullmolar ! hmmm ég er bara að drepa tíma hérna með þessu blaðri....

viernes, 29 de julio de 2005

sooooo trettt

Ég er á þriðju 12 tíma vaktinni frá því ég kom heim á mánudaginn, líka 12 tíma vakt á morgun og svo aftur á mánudaginn svo það er augljóst hvar ég verð þessa verslunarmannahelgi :Þ Öll þessi vinna gerir það að verkum að ég á mér voða lítið líf og ekki skánar það þegar Orri fer í vinnuna kl.18 og er ekki búin fyrr en 2 um nóttina. Þá fæ ég bara ekkert að sjá hann því ég er sofnuð áður en hann kemur heim og farin í vinnuna áður en hann vaknar :S En þetta eru bara nokkrar vikur fram að skólabyrjun svo maður bara lifir þetta af :D Annars verð ég að afsaka mig fyrir að vera ekki enn búin að setja neinar myndir inn frá ferðinni, mér tókst að koma myndunum inn á tölvuna hans Orra en svo gat ég ekki sett þær hérna inn. Svo hef ég bara ekki haft tíma til að búa til albúm og henda þeim öllum inn þar. Helsta ástæðan fyrir þessu framkvæmdaleysi fyrir utan það að ég er alltaf í vinnunni er sú að TÖLVAN MÍN ER ENN Í VIÐGERÐ !!!! Þeir eru að bíða eftir nýju lyklaborði að utan og vita EKKERT hvenær það kemur :'( Ég er sko alveg með fráhvarfseinkenni. Ég gladdist mikið í fyrradag þegar ég kíkti á álagningarseðlana okkar Orra frá skattinum, við vorum að fá hvorki meira né minna en 155 þúskall :Þ Þetta bjargar okkur alveg því við eyddum ansi miklu í ferðalagið og í ágúst þá þurfum við að borga aðgerðina hans Orra og það verður á bilinu 70þús-100þús : / plús það að bíllinn þarf að fara í viðgerð :S hmmm ég er víst í vinnunni, þetta er bara svona rólegur morgunn. Ég sit bara og GEISPA en ætli maður fari ekki og reyni að gera eitthvað gagn ......

miércoles, 27 de julio de 2005

meira bullið

haha vá hvað ferðasagan varð löng :D Samt reyndi ég bara að segja frá því allra helsta og sleppti helling úr :D Jæja vonandi að einhver nenni að fara í gegnum hana alla :Þ Maður er bara mættur aftur í vinnuna, mig langar að vera ennþá í fríi, jafnvel þó að mér finnist vinnan mín frábær :D

martes, 26 de julio de 2005

2081 kílómeter að baki !!

Dagur 1 Reykjavík - Skaftafell Það tók tíma að koma öllu dótinu út í bíl og í lokinn var hann alveg troðfullur bæði skottið og baksætin ! Keyrðum Suðurleiðina úr Reykjavík og stoppuðum á alveg helling af stöðum. Hveragerði til að fara í Bónus, Selfoss í Ríkið, Seljalandsfoss, Skógarfoss, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur. Loks um klukkan 19 vorum við komin í Skaftafell. Ég og Orri vorum ekki neinir experienced tjaldbúar og þetta var svolítið bras þarna :Þ Okkur tókst alveg að setja tjaldið saman af því afi hans Orra var svo mikill snillingur að merkja súlurnar svo þetta var bara smá pússluspil. Svo vorum við með rafmagnspumpu fyrir vindsængurnar og hún var svo HÁVÆR :S við lokuðum bara vindsængurnar inn í bíl meðan það var verið að pumpa í þær. Svo veit ég ekki hvort við völdum svona lélegan stað eða hvað en við gátum varla stungið niður hælunum á tjaldinu af því það var svo stutt í sandinn :Þ Umhverfið þarna í Skaftafelli er alveg ótrúlegt, jökullinn þarna beint fyrir ofan og svo skógurinn. Við röltum seint um kvöldið upp að Svartafossi, hann er ekkert smá fallegur, alveg þess virði að leggja á sig þetta rölt. Dagur 2 Skaftafell - Djúpivogur Við höfðum hugsað okkur að labba í Bæjarstaðarskóg í Skaftafelli sem hefði verið svona 3-4 tíma ganga en mínz bara vaknaði með ofnæmi um morguninn og þá er ekkert sniðugt að ætla að labba í birki :S Svo við ákváðum bara að pakka hafurtaskinu og halda áfram ..... Aksturinn þarna undir jöklinum var alveg ótrúlegur, það var endalaust eitthvað að sjá sem gerði mann alveg orðlausann. Við stoppuðum svo í Jökulsárlóni, það stóð fyrir sínu. Svo var bara keyrt og keyrt. Eftir að við vorum búin að fara í gegnum Almannaskarðsgöngin þá fundum við alveg ótrúlega flotta strönd. Ég veit ekki hvað það var við hana, þetta var bara svo góður staður. Við ætluðum að gista í Stafafelli en þegar við komum þangað þá fannst okkur það ekkert spes svo við keyrðum áfram á Djúpavog. Þar komumst við í sund, voða lítið og sæt alveg ný innilaug. Tjaldstæðið þar var líka fínt, ekki margir þar en samt alveg furðu margir miðað við staðinn :S Djúpivogur fannst mér vera rosalega spes staður, það virtist bara liggja í loftinu að fólkinu sem bjó þarna langaði til að búa annars staðar. Það er lygi að þjóðvegur 1 sé allur malbikaður ! :S ! Dagur 3 Djúpivogur - Hallormsstaðaskógur (Atlavík) Um nóttina kom hellidempa :S og þetta var eina nóttin sem ég vaknaði og mér var ískalt :S En þegar við fórum á fætur um morguninn var hætt að rigna en allt var rennandi blautt. Við höfðum ekkert spes að gera þarna svo við hentum öllu inn í bíl og héldum áfram. Við fórum út af þjóðvegi 1 og fórum yfir Öxi. Þetta er einhver svona hálfgerður fjallavegur. Við sáum nákvæmlega ekki neitt þar af því það var bara hnausþykk þoka en þetta stytti okkur leiðina til Egilsstaða :D Á Egilsstöðum gerðum við dauðaleit að bakaríi, fundum svo eitt bara í Fellabæ. Kíktum svo á tjaldsvæðið, það var hreint út sagt ógeðslegt. Þetta var bara eitt moldarflag og í þokkabót var þetta dýrasta tjaldstæðið sem við kíktum á á leiðinni, 750 kr á manninn fyrir nóttina. Við ætluðum sko ekki að standa í svona svo við brunuðum í Hallormsstaðaskóg og sáum svoooo ekki eftír því ! Það er alveg rosalega fallegt þarna og tjaldstæðið í Atlavík æðislegt!! Við tjölduðum á stað þar sem við höfum útsýni beint á steinaströndina og svo yfir Lagarfljótið :D Við gengum aðeins um skóginn, lærðum smá tölfræði á ströndinni og skelltum okkur svo í bíltúr. Sáum svo þennan voða flotta foss lengst upp í fjalli og rétt á eftir því bílastæði full af túristarútum. Við ákváðum að sjá what all the fuzz was about :D Þarna var sem sagt gönguleiðin að fossinum, Hengifossi. Þetta er víst einn hæst foss Íslands og ég hafði bara aldrei heyrt um hann. Það var 2,5 kílómetra ganga upp á við að honum en alveg þess virði !! Um kvöldið keyrðum við svo aftur á Egilsstaði og splæstum á okkur í voða fínan mat á Café Nilsen. Mæli með þeim stað :D Eftir matinn tókum við rölt um Egilstaði og keyrðum svo aftur í Atlavík og áttum æðislegt kvöld í sólinni :D Dagur 4 Hallormsstaðaskógur (Atlavík) Okkur fannst svo frábært þarna að við ákváðum að vera 2 nætur. Um morguninn keyrðum við upp í sjoppu þarna til að fá morgunmat :Þ Matarræðið í þessari ferð var sko ekki til fyrirmyndar :S Svo brunuðum við upp á Kárahnjúka. Þetta var örugglega klst akstur í hvora átt og svo var bara eiginlega ekkert að sjá þarna. Samt gaman að hafa komið og séð framkvæmdirnar og svona :) Við keyrðum svo til Egilstaða og fórum í sund. Mjög fín sundlaugin þar, 25 m laug svo mín tók smá sundsprett. Um kvöldið "grilluðum" við svo :Þ Við keyptum kjúklinga sem búið var að elda, átti bara eftir að hita :Þ En fínasta máltíð samt :Þ Um kvöldið gengum við svo um allan skóginn, kíktum á trjásafnið, Guttormslund og Ljósárfoss. Dagur 5 Hallormsstaðaskógur - Ásbyrgi Þetta var alveg heljarinnar keyrslu dagur. Við pökkuðum upp dótinu okkar frekar snemma og fórum á Egilstaði. Kíktum á kaffihús þar og lærðum meiri tölfræði. Svo var bara brunað af stað. Við keyrðum smá eftir þjóvegi 1 en beygðum svo út af honum og fórum yfir Hellisheiði (eystri væntanlega:Þ) Það var ekkert smá útsýni þegar við vorum að keyra þar upp ! Komum svo niður og fórum í gegnum Vopnafjörð og keyrðum alla leið að Þórshöfn á Langanesi og þar fengum við ógeðslega góða og ódýra máltíð :D Keyrðum svo alveg þvert yfir Melrakkasléttuna á ömurlegum malarvegi og komum niður rétt hjá Ásbyrgi. Þar tjölduðum við og skelltum okkur svo í göngutúr þarna um botninn. Löbbuðum alveg lengst innst og kíktum á Botntjörnina og svo á útsýnisstað. Alveg rosalega fallegt þarna. Þegar við mættum þá tókum við eftir tjaldi sem var nákvæmlega eins og okkar. Það væri ekki merkilegt nema af því það er alveg 30 ára gamalt svona hústjald í óskaplega ósmekklegum litum. Seinna um kvöldið komumst við að því að þarna var stelpa, María, sem var með okkur í FG og kærasti hennar. Þau voru líka að fara hringinn, bara hinn áttina :Þ Við eyddum kvöldinu með þeim :D Þau voru mun betri tjaldbúar en við, tjölduðu í fyrsta lagi almennilega :Þ og voru svo með ljós og hitara :D Dagur 6 Ásbyrgi - Mývatn Við vöknuðum ekki fyrr en um hádegið en þá dirfum við okkur strax af stað og löbbuðum upp á Eyjuna í Ásbyrgi. Eftir það pökkuðum við dótinu saman og héldum af stað.Við fórum vestari leiðina við Dettifoss og stoppuðum í Hljóðaklettum og Hólmatungu og vá hvað það er fallegt þarna í Jökulsárgljúfursþjóðgarðinum !!! Við stoppuðum svo líka og skoðuðum Dettifoss og maður varð ekki fyrir vonbrigðum þar :D Það tók okkur 4-5 tíma að keyra þennan 70 kílómetra kafla í gegnum þjóðgarðinn á þeim versta vegi sem ég hef nokkurn tímann reynt að keyra. Þessi margra klukkustunda hristingur var samt alveg þess virði :D Seint um kvöldið komum við svo að Mývatni og tjölduðum þar í Reykjahlíð. Tjaldstæðið var alveg pakkað en við fundum okkur fínt pláss alveg við bakkann og með þessu þvílíka útsýni yfir vatnið :Þ Dagur 7 Mývatn - Hólar Ég vaknaði um 8 leytið alveg í steik, það var svooooo heitt í tjaldinu. Ég skellti mér í bikinítopp og buxur og fór út að læra tölfræði (eðlilegt :S :D) Svo þegar Orri loks vaknaði skelltum við okkur á kaffihús og svo í sund .... mmmm alveg steikjandi sól og útlandahiti :D Við fjárfestum svo í sólarvörn áður en við héldum af stað upp á Kröflu en það var nú reyndar aðeins of seint fyrir næpuna mig : Þ Útsýnið af Kröflu var rosalega fallegt og alveg þess virði að þramma þarna upp kófsveittur. Við fórum svo til baka á tjaldstæðið og hentum öllu inn í bíl og keyrðum næst að Hverfjalli þar sem við tókum aðra maraþonfjallgönguna. Hverfjall er risa sprengigígur, við löbbuðum upp og gengum svo hringinn með gígbarminum. Þegar við komum niður skelltum við okkur á kaffihús sem var í fjósi, maður sá bara beljur hinum megin við glervegg. Planið var að kíkja svo í Dimmuborgir en við vorum bara alveg búin á því svo við bara brunuðum norður á Akureyri. Við vorum að halda í vonina að það væru kannski e-r miðar eftir á Emilíönu Torrini tónleikana en það var algjörlega uppselt. Við ákváðum þá bara að halda áfram og á endanum keyrðum við alla leið á Hóla í Hjaltadal. Veðrið var ekkert spes, bara þoka og þoka :S en Hólar standa samt alltaf fyrir sínu :D Dagur 8 Hólar - Reykjavík Þegar við vöknuðum þá áttuðum við okkur á því að við áttum ekkert að borða, matarúrvalið á Hólum var ansi lélegt svo við pökkuðum bara saman og keyrðum á Sauðárkrók. Þar hittum við á frábært bakarí. Þegar við ætluðum svo að keyra af stað þá var bíllinn rafmagnslaus :S Orri kraftakall fór út og ýtti bílnum í gang :D Við brunuðum í Varmahlíð og fórum í sund þar og keyrðum svo aðeins til baka og kíktum á Hrefnu systur hans Orra sem er að vinna á sveitabæ þarna rétt hjá. Planið var næst að keyra í Borgarfjörðinn og gista þar einhvers staðar í nágrenni Baulu en við vorum bara orðin þreytt á tjaldlífinu og brunuðum því heim í Reykjavík til að eiga einn frídag heima :D Þetta var bókstaflega frábær ferð í einu og öllu. Ótrúlegt hvað það er mikið fallegt að sjá á Íslandi sem maður hafði ekki hugmynd um að væri til !!! Ég ætlaði mér nú að setja myndir inn með en tölvan mín er enn í viðgerð svo ég næ ekki myndunum af kortinu : / Ég bæti þeim bara inn seinna :D

lunes, 25 de julio de 2005

komin heim

Vá ég er komin heim !!! Þetta var svooo skemmtilegasta ferðalag sem ég hef farið í !!! Hripa kannski niður ferðasöguna hérna á morgun eða hinn :D

domingo, 17 de julio de 2005

1 dagur í fríið mitt :Þ

Vá ég sit sko sveitt hérna yfir tölvunni að reyna að læra eitthvað á þetta blogspot dót og eins og glöggir lesendur sjá þá hefur mér tekist að setja inn einhverja linka og mér tókst líka að bæta við dálkum og breyta nöfnunum :Þ hinsvegar grunar mig að skaðinn sem ég olli í leiðinni eigi eftir að koma mér um koll :Þ Ég tók gleði mína á ný í gær þegar Philipp næturvörður hérna á Sunnu mætti bara upp úr þurru klst fyrr og spurði hvort ég vildi ekki bara fá að fara fyrr :D Ohhh mín var sko til :) Orri kom og sótti mig og við brunuðum í Fjörðinn og fórum á Súfistann til að taka smá tölfræðisessjón. Alveg ótrílegt hvað honum tekst að láta mig skilja hluti sem ég var sko búin að eyða öllum vetrinum í að reyna að skilja ! En alla veganna eftir stödítímann þá skutlaði ég Orra til Palla því þar var e-ð smá get2gether og ég fór bara heim af því ég var að fara að mæta í vinnuna kl.7:30 í dag. Þegar ég kom heim ætlaði ég nú bara að vera súperlöt og hanga í sófanum og horfa á imbann .... en það var bara ekkert í sjónvarpinu :S svoooo ég gerði bara alveg þveröfugt og byrjaði bara að pakka fyrir ferðalagið. Í lok kvöldsins var ég svo búin að pakka að mestu leyti, þvo og brjóta saman allan þvott sem við þurfum á ferðinni og svo var ég svo súperdugleg að ég tók bílinn í gegn !!!! Þeir sem vita e-ð um bílinn okkar vita það að hann er aldrei HREINN ! En vá ég réðst bara á innréttinguna með vatn að vopni og þurrkaði af öllu og þreif og fann svo e-ð svona innréttingabón eða glans eða hvað sem það var og bar á allt og ryksugaði svo bílinn og núna er hann svoooo FÍNN :D Jæja það er bara ferðalag á morgun og ég get ekki beðið :Þ svo erfitt að vera að vinna þegar maður veit að maður er bara alveg að fara í FRÍ :D Hérna ætlum við að gista fyrstu nóttina, í Skaftafelli

Ætlum svo að ganga, annað hvort bara á morgun eða eftir að við vöknum á þriðjudaginn og kíkja á Svartafoss og fleira þarna í kring :D

Ohh ég er farin að hlakka svo til, jæja ég ætla að fara að ljúka þessari færslu, ég er örugglega búin að vera meira en hálftíma að skrifa þetta milli þess sem ég tékka fólk inn, baka brauð og svara í símann :Þ Sjáumst seinna :D

sábado, 16 de julio de 2005

No more FÝLA

Jæja ég er búin að jafna mig á FÝLUNNI :Þ Er búin að taka gleði mína á ný því að núna á ég bara eftir að vinna 14,5 tíma þessa helgina eða bara 2,5 tíma í dag :D Svo þarf ég reyndar að fara beint í tölfræðikennslu hjá Orra en það verður bara fínt :Þ Ég og María vorum svo DUGLEGAR í gær ! María kom til mín kl. 13 og við vorum á fullu allan daginn :Þ Fórum 3 svar upp í Task yfir daginn (ekki einu sinni reyna að spyrja af hverju), fórum svo í Kringluna og ég keypti mér bikiní. Það var sko mikið afrek því allar síðustu tilraunir mínar til bikiníkaupa hafa einfaldlega fallið um sjálfar sig því ég hef ekki verið í stuði annað hvort af sökum ljótunnar eða feitunnar en í gær fannst mér ég greinilega hvorki vera ljót né feit og skellti mér á fjólublátt og ndótt bikiní. Það er reyndar alveg súper sniðugt (svona eins og bikiní geta orðið sniðug :Þ) En alla veganna þá er það nefnilega svona 2in1, svo ossalega sniðugt. Ég semsagt fann ekki mynd af því en ég fékk það alla veganna í Knickerbox. Svo fórum við María í Laugardalslaugina og syntum 1200 m, fórum líka á fimmtudaginn og syntum þá 800 m. Ég alveg elska að synda, maður er svo einn í heiminum og nær að slaka svo vel á. En til að gera þennan dag fullkominn þá brunuðum við María svo í föstudagskaffi til ömmu og afa í Keflavík :) Það er svo langt síðan ég hef séð þau og það var svo gaman :) Hmm jæja núna eru bara 2 tímar þangað til ég er búin að vinna :Þ

grátt og myglað

Ohhh ég nenni svo ekki að vera að vinna í augnablikinu. Það er svona þegar maður er alveg að fara í frí, það er svo stutt í það en maður þarf bara að klára síðustu dagana. Já mínir síðustu dagar fyrir frí eru tvær 12 tíma vaktir :S Æ ég ætti ekkert að vera að kvarta, mér finnst vinnan mín alltaf jafn æðisleg, ég bara get ekki beðið eftir því að komast í frí. Tölvan mín er ekkert á leiðinni heim af verkstæðinu. Þetta lyklaborð er víst ekki til neins staðar á landinu og þeir eru að bíða eftir því einhvers staðar að utan. Svo ég mun ekkert fá hana fyrr en eftir fríið mitt. Ég hef ekki verið svona lengi án tölvunnar minnar síðan ég fékk hana og ooohhhh þetta er svoooo pirrandi. Ég þurfti að fara í gær upp í Task til að láta þá tæma SD kortið af myndavélinni á tölvuna svo ég gæti tæmt það áður en ég færi í ferðalagið. Svo er líka allt bókhaldið mitt (hehe já ég er skipulagsbrjáluð) :Þ Æ ég lifi þetta örugglega af :Þ myndi hvort sem er vera tölvulaus á meðan ég væri í burtu svoooo Annars held ég að mér hafi tekist að gleyma húslyklunum mínum í skránni á útidyrahurðinni út á götu í gær, alla veganna hef ég ekki séð þá frá því ég kom heim í gær og ég man að ég hélt á svo miklu drasli og var eitthvað að vesenast með að koma því inn og svo opnaði Orri fyrir mér uppi :S Er ekki týpískt að einhver hlemmróninn sé með þá og ákveði svo að gista í íbúðinni okkar á meðan við erum í burtu :S :Þ Öhhhhh er að reyna að halda í góða skapið hérna en það gengur ekkert allt of vel .... skrifa meira seinna þegar minnz er ekki alveg svona leiðinleg :Þ

viernes, 15 de julio de 2005

Eru einhverjir fleiri hérna sem fá sér köku í morgunmat ??

Ojjj ég er svo mikill gotterísgrís, ég fékk mér köku í morgunmat og núna er mér svo óglatt : O Af hverju gerir maður sjálfum sér þetta ... Ég bjó mér til þetta frábæra ávaxtasalat en setti það svo inn í ísskáp og fékk mér köku í staðinn *gubbgubb* Já svona er maður vitlaus :S Ég er aðeins búin að vera að tapa mér á útsölunum :Þ Ég kaupi mér nánast aldrei föt en þegar ég geri það þá kaupi ég alveg helling af þeim í einu :D Fór með mömmu í Fjörð í fyrradag og fann mér það buxur, peysu og bol :D Svo á leiðinni heim úr vinnunni í gær þá var ég að labba Laugarveginn og þegar ég er að fara fram hjá Knickerbox gjóa ég augunum svona inn í búðina og hvað sé ég ....... Þarna var sá langsamlega flottasti brjósthaldari sem ég hef augum litið : ) !!! Ég sá nefnilega eina í svona í Laugardalslauginni í vetur og mér fannst hann svo spes og svo til að bæta þetta allt saman þá var hann á útsölu og bara 1 eftir í minni stærð svo það var mikil gleði hér á bæ :Þ Humm þetta er sko mynd af honum en það bara sést því miður ekki af hverju hann er svona flottur, það er nefnilega bakið sem er málið en jæja þetta verður að nægja. Seinna um daginn fórum við María svo á Laugarveginn aftur því hún var líka búin að finna verslunargleðina sína og ég fann svo flottan jakka :S nema hann var ekki til í minni stærð, var bara of stór :S en hann smellpassaði á Maríu svo hún er núna stoltur eigandi þessa flotta jakka :D En jæja nú eru 3 dagar í útilegu og ó shit hvað ég er ekkert búin að spá í því hvað ég þarf að taka með :S Þetta hlýtur bara að reddast ! Tölvan mín er líka enn í viðgerð, það er verið að bíða eftir nýju lyklaborði í hana. Það er ekki til svona lyklaborð eins og þarf á öllu landinu svo það þarf að fá það að utan :S Enn og aftur þá vona ég að ég verði ekki rukkuð fyrir þetta :S

martes, 12 de julio de 2005

mér leiðist

Vei það eru bara 6 dagar í sumarfrí :) Ég bara get ekki beðið eftir að komast úr bænum og gera svona eitthvað annað en að vera að vinna :Þ ekki það að mér finnist ekki gaman í vinnunni minni :D Ég var alveg ógeðslega dugleg í morgun og fór á fætur kl. 7:30 þegar Orri þurfti að vakna til að fara í vinnuna sína. Svo var ég í allan morgun að erindast :Þ Fór á bókasafnið og tók helling af ferðahandbókum svona fyrir túrinn okkar. Ég verð samt að viðurkenna að ég veit ekkert hvað við erum að fara útí, ég kann ekki einu sinni að tjalda, hvað þá kveikja á prímus :S en þetta reddast :Þ Ég gerði tilraun áðan til að baka brauð í brauðvélinni heima : / Það fór ekki alveg eins og það átti að vera, kannski sérstaklega af því að ég þurfti að fara í vinnuna og vildi ekki skilja þetta allt eftir í gangi á meðan. En jæja ég geri bara aðra tilraun seinna. Tölvan mín er enn á gjörgæslunni hjá Task *sniff* ég sakna hennar svoooo :Þ Ég er bara alveg vonlaus án tölvunnar minnar. Það er allt þarna inn á, allar myndir, bókhaldið mitt og svo get ég ekki losað kortið á myndavélinni og sett myndir hér inn á fyrr en ég fæ hana aftur :S Vona bara að það verði sem fyrst svo að ég geti að minnsta kosti verið búin að losa kortið áður en ég fer hringinn. Jæja ég þarf víst að fara, á víst að vera að vinna og brauðvélarnar eru að kalla á mig

lunes, 11 de julio de 2005

ohhh ég fer í fríið, ég fer í fríið ég fer í fríið .....

Hérna er smá sýnishorn af þeim stöðum sem við ætlum að kíkja á í næstu viku :Þ Svona fyrir þá sem þurfa að sitja heima :D Maður er byrjaður að plana útileguna í næstu viku :Þ Það er reyndar bara fjandi dýrt að gista í tjaldi, alveg upp í 1000 kall nóttina sýnist mér. Það er reyndar alveg ótrúlega lítið af upplýsingum um verð á tjaldstæðunum ! Alveg fáránlegt : ( En þetta verður bara ævintýri, við erum með þónokkra staði sem við viljum alveg endilega fara á en svo verður þetta meira bara fljótandi, fylgjum góða veðrinu ef það verður eitthvað : D Annars er það eina sem er planað enn sem komið er, við ætlum að keyra annað hvort á Klaustur eða Skaftafell fyrsta daginn og vera þar fyrstu nóttina. Maður þekkir Suðurlandið fram að því alveg þokkalega vel svo við ætlum ekkert að vera að sóa tíma þar heldur skella okkur bara austur sem fyrst og fara hringinn þaðan. Á morgun ætla ég á bókasafnið að finna ferðahandbækur og göngubækur og svo verður bara lagst í skipulagningu alla vikuna Jæja Adios ég þarf víst að drífa mig í vinnuna : )

ohh svo mikil snilld

Ohhh tölvan mín er alveg búin að missa vitið núna ! Þegar ég kveiki á henni pípir hún stanslaust :S ekki gott mál. Ætli ég þurfi ekki að fara aftur með hana til Task og láta þá kíkja á hana. Síðast þegar ég fór þá sögðu þeir mér að það eina sem væri að henni væri að hún væri rafmagnslaus og þess vegna pípti hún : / Svolítið undarlegt að hún taki bara allt í einu upp á því :S en jæja ég fer með hana á morgun og sé til hvað þeir segja :Þ Annars var mamma að gefa mér FRÁBÆRA hugmynd fyrir sumarfrí á næsta ári. Við Orri vorum sko að plana að fara eitthvert í svona mánuð en málið er náttúrulega alltaf að gisting er svo dýr. Við getum náttúrulega farið í svona íbúðaskipti :Þ Þá fáum við íbúð frá fólki sem kemur og verður hérna í íbúðinni okkar :D ohhh svo sniðugt... svo nú er bara að ákveða hvert viljum við fara, Spánn, Danmörk, USA eða hvað .... og svo getur maður líka skipst á bílum og svona ..... Ohhh vá þetta er bara svo mikil snilld, ókeypis gisting !!!! Þetta er til dæmis útsýnið úr einni 2 herbergja íbúð sem er á síðunni www.homeexchange.com ohhh svo kósý Jæja ætla að skella mér í rúmið og vakna hress og kát snemma á morgun en ekki kl.13 í morgun eins og ég gerði í dag :S

sábado, 9 de julio de 2005

Frühstuck .... jaja breakfast

Eftir 40 mínútur lýkur þessum 12 tíma vinnudegi hjá mér :S Maður á svo ekki að mæta illa sofinn í vinnuna þegar maður veit að framundan er svona langur dagur en mér gengur víst eitthvað illa að læra það :Þ Ég er samt búin að átta mig á því í dag út á hvað vinnan mín snýst, ég er bókstaflega alfræðibók fyrir ferðamenn ! Ég er spurð að öllum fjandanum, hvar hægt sé að finna dáleiðanda og hvort apótek láti mann ekki bara fá öll lyf án lyfseðils bara af því maður er ferðamaður ! Svo þarf ég líka að skilja allar heimsins hreima þegar kemur að fólki sem reynir að tala ensku. Svo er það fólkið sem bara reynir ekkert að tala ensku heldur bablar bara á móðurmálinu sínu og ég Á að skilja það :Þ Æ þetta er nú reyndar bara fyndið og það er alveg ótrúlegt hvað maður nær langt með því að tala aðeins með höndunum og setja upp smá leikrit :D Mmmm svo fékk ég myndavélina mína í gær og hún er enn yndislegri en ég hélt :Þ nú þarf ég bara að læra á gripinn, það sem ég kann núna er að ég get ýtt á ákveðinn takka og svo hrist vélina aðeins og þá breytist liturinn á bakgrunninum, hmmm já þetta er nytsamlegt :D Jæja núna eru 8 dagar í sumarfríið mitt og ég tel niður, get ekki beðið eftir því að komast í FRÍ, alvöru frí þar sem ég þarf hvorki að vera að lesa (eins og um páskana) né vinna (eins og ég geri núna). Nei þetta verður sko frí þar sem ég þarf ekki að gera baun í bala nema ég vilji það :D

viernes, 8 de julio de 2005

guð ég er að fara í próf 17. ágúst

Ég var að fá vægt sjokk, prófið í tölfræði II er 17. ágúst sem þýðir að það eru 5 vikur og 5 dagar í prófið ! Og við Orri erum ekki einu sinni ennþá komin á efnið sem var kennt í þessum kúrs, hann er nefnilega búinn að vera að fara með mér í efnið sem var í tölfræði I því ég gat ekki lært hitt fyrr en ég kynni það :S Ohh svona lagað bítur mann alltaf í rassinn, en ég get bara kennt sjálfri mér um að hafa ýtt þessu á undan mér alla síðustu önn : / Ég er í vinnunni núna og er í fyrsta skipti alveg alein. Ég hef alltaf getað hringt í einhvern ef að það kæmi eitthvað upp á en núna eru þær báðar í ferðalögum svo það er eins gott að ég klúðri ekki neinu. Það eina sem er enn að rugla mig er þetta með að rukka fólk og hvernig það fer inn í kerfið á tölvunni, það fer stundum í e-ð rugl hjá mér og ég veit ekki alveg af hverju :S Ég er líka farin að hlakka svo til að byrja aftur í skólanum í haust, vá ég bara get ekki beðið :D fá að læra spænsku :D Svo ætlum við Orri kannski að kaupa okkur kort í Laugum og fara að æfa þar saman. Það er reyndar svolítið dýrt en það er svo nálægt okkur og þá getur maður líka farið í sund sem er svo frábært ! Jæja ég á eftir að sitja hérna í 4 tíma í viðbót og svo fer ég í mat til mömmu og pabba og fæ þá elsku nýju myndavélina mína sem þið getið séð hérna fyrir neðan

jueves, 7 de julio de 2005

Ohh minnz er enn veikur

Ohhh búhú ég er svo slöpp :( Það verður víst hvorki fjallganga í dag né sund :S Ég ætla bara rétt að vona að ég verði orðin hress á sunnudaginn því ég ÆTLA upp á Skarðsheiði ! Ég er sko alveg á því að þessi ferð mín í bankann hafi alveg gert mig helmingi veikari. Mér tókst nú samt að skrá okkur í greiðsluþjónustuna svo hér eftir þarf ég lítið sem ekkert að spá í því að greiða reikninga og allir stórir háir leiðinlegir reikningar eins og tryggingarnar og skólagjöldin eru bara inni í þessari mánaðarlegu greiðslu og þá þarf maður ekki að vera að stressa sig eins og núna í sumar þegar maður varð að gjöra svo vel að eiga 90þús kall aukalega í júlíbyrjun til að geta borgað HÍ. María og Eydís eru að fara að koma til mín, við ætluðum á kaffihús en ég held ég bara verði að halda mig heima. Ætli við tökum ekki bara smá kaffihúsafíling hérna heima hjá mér :Þ

Við erum heimsforeldrar ... Hvað með þig?

Í dag urðum við Orri heimsforeldrar :) Við styrkjum Unicef um 1000 kr á mánuði og það fer í einhver verkefni sem að tengjast börnum. Ég vildi það frekar heldur en að "eiga" barn einhvers staðar og fá bréf og svona. Þetta gagnast fleiri börnum í einu. Við ætlum reyndar að sjá til hvort við getum ekki gefið meira á mánuði, maður ræður alveg sjálfur hvað upphæðin er há og svo getur maður alltaf hætt við eða lækkað hana aftur ef það kemur eitthvað upp á. Ég er nefnilega búin að vera að bíða eftir því að fá VISA frá því í maí til að geta skráð okkur í þetta, það tók bara svolítið langan tíma hjá KB-banka. Svo ég vil endilega hvetja alla til að gera þetta, 1000 kall á mánuði er ekki nema bara hálf pizza og eins og leikarinn þarna segir sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu, þá kostar bara 200 kr að bólusetja barn. Það eina sem þarf er smá aukapeningur, visakort og síma til að hringja í 562 62 62 Jæja ætli það sé ekki best að ég reyni að gera eitthvað úr þessum degi, ætla að fara í KB-banka og fara í greiðsluþjónustuna hjá þeim. Það er betra þá er alltaf bara sama upphæðin sem maður greiðir á mánuði og maður er laus við svona reikningasveiflur.

miércoles, 6 de julio de 2005

Mitt fyrsta alvöru blogg á blogspot :Þ

Ef ég hefði verið skynsöm þá hefði ég haldið mig heima í dag og tekið því rólega en ég bara gat það ekki .... :Þ Ég held ég hafi sjaldan komið jafn miklu í verk og í dag. Ég fór með myndir í stækkun, sótti loksins kreditkortið mitt og nú get ég orðið heimsforeldri, fór með filmur í framköllun sem eru búnar að vera að bíða frá því árið 2002 !!! Keypti ljósaperur, skrúfur, lás á hjólið hans Orra, fór í OgVodafone og skipti út SIM kortinu mínu því það hætti að virka. Ég fór svo í augnbrúnavax og er núna alveg einstaklega vel brýnd :Þ Eftir alla þessa rumsu var ég orðin svoooo þreytt og fór heim til mömmu og pabba. Það endaði samt ekki betur en svo að ég fór í Smáralindina með Maríu. Við vorum reyndar svo andlausar að það eina sem við keyptum okkur voru sokkar : / Ohhh þá hefði ég nú bara átt að fara heim en ég fór aftur heim til mömmu og pabba og hékk þar til 18:30 en þá drulluðum við María okkur í bíó á War of the Worlds. Mér fannst hún ekki góð :S Er svo mikill lúði þegar kemur að myndum þar sem fólk deyr á hrottalegan hátt. Well ætli ég vilji ekki óska London til hamingju með ÓL 2012, ég sver að ég fékk smá tár í augað þegar kallinn reif upp umslagið og tilkynnti hver vann, don't ask me why :S

á maður að flytja?

Ég er orðin svo þreytt á því að geta ekki sett inn myndir og svona á blog.central að ég er að hugsa um að færa mig aðeins um set. Sjá til hvernig þetta gengur hér :)