lunes, 31 de octubre de 2005

jújú núna er smá titill

jæja ok ég er búin að jafna mig á brjálæðispirrings kastinu sem ég tók áðan :Þ biðst afsökunar þið sem að lásuð hina færsluna og hélduð að ég hefði misst vitið ;) Ég verð víst bara að sætta mig við það að skila inn 5árabarnaritgerð :/

enginnhelv.titill

Ég er svo pirruð að mig bókstaflega langar að henda tölvunni minni út um gluggann !!! Ég er að skrifa einhverja leiðinlegustu ritgerð í heimi og hún er svo léleg að það liggur við að ég sofni þegar ég les hana yfir !!! Hvernig er hægt að skrifa ritgerð um málefni eins og trú og það að trúa á máli sem maður hefur vald á á við 5 ára barn !!! ojj ef ég skrifa einu sinni enn religión, creer, secreto, San Manuel eða Díos þá æli ég !! anda inn anda út .... nei það bara virkar ekki neitt, helvítis ritgerðin er ennþá hérna ! og svo gildir þessi bjáni 30% ! já wish me luck því ég er fallinn í spænsku *égvildiéggætigertreiðakallaþvíþáværualvegskrilljónafþeimhérna*

domingo, 30 de octubre de 2005

Honey I'm home

Ohh gott að vera kominn aftur heim :D mengun, skítugur snjór og INTERNETIÐ !! :Þ Þetta var æði og ég mæli svo sannarlega með þessum bústöðum þarna hjá www.gljufur.is Annars er ég svo þreytt, sjúskuð og og ótrúlegt en satt þá er ég þunn :Þ í augnablikinu að ég ætla bara að kúra mig undir sæng, María ætlar að koma og við ætlum að horfa á ANTM :Þ Skrifa meira seinna þegar ég nenni því :)

lunes, 24 de octubre de 2005

klippi klipp :D

Ég er að fara í klippingu á morgun :D og ég ætla að klippa þetta blessaða hár af ...... ah nei ekki alveg af, ætla að taka smá tímaferðalag til ársins 2003 og fá mér topp, og stytta og þynna þennan flóka sem ég er með :Þ Verð fegin að losna við leiðinda flækjur, hárlos og það að það taki hárið á mér margar klukkustundir að þorna af því það er svo þykkt :Þ
Ég fann eiginlega enga mynd frá því þarna árið 2003, var ekki komin með digital myndavél :Þ en þessi er frá jólunum, það sést samt eiginlega ekkert hvernig hárið á mér er :Þ Jæja ég þarf víst að reyna að læra smá fyrir þetta Ritþjálfunarpróf á morgun :S Hasta luego : *

sábado, 22 de octubre de 2005

dyoga

Loksins - Ég kláraði loksins að lesa þessa sögu ! þannig að nú get ég farið að pæla í ritgerðinni ... ég sé samt ekki fram á það að ég muni ná að klára hana fyrir sumarbústaðarferðina :S
Ég er algjörlega búin á því, ég skellti mér í þennan svakalega jógatíma í gær. Það er mjög langt síðan ég hef farið í svona erfiðan tíma, ég var eiginlega bara búin að gleyma því að jóga getur verið alveg svakalega erfitt ! Í alvörunni ég kom bara titrandi út úr tímanum eftir að hafa þurft að halda í armbeygjustöðu í lengri lengri tíma og svo halda á hlið bara með einni hönd ...... svona var þetta allan tímann ! oooogg þetta var svo gaman, ætla alveg pottþétt að halda áfram að mæta í þessa tíma, þarna fer þetta saman jóga og hörkuworkout.
Á fimmtudagskvöldið fórum við Rebekka á kaffihús :D Við höfðum sko ekki hist í eitt og hálft ár ! og svona þegar ég fór að hugsa um það þá man ég ekki eftir því að við höfum nokkurn tímann gert e-ð svona saman. Ég held að ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að hún sé með allra elstu vinkona mín, hófst allt þegar við vorum svona 8 ára og við vorum pennavinkonur :Þ
Annars er ég enn einu sinni komin í framtíðarkrísu ! Í augnablikinu er ég alla veganna búin að ákveða að taka 1 kúrs í sálfræði á næstu önn ofan á þá sem ég þarf að taka í spænsku og svo er ég eiginlega búin að ákveða að skipta aftur yfir í sálfræðina næsta haust, taka þetta bara á hörkunni með það að leiðarljósi (:Þ) að geta bara farið í e-ð ógurlega skemmtilegt framhaldsnám ! Svo verður spænskan bara svona eilífðar BA námið mitt :Þ æ maður má allaveganna pæla :Þ

jueves, 20 de octubre de 2005

beilari

Ég beilaði á morgun á þessu brasilíska, ég vaknaði bara ekki í stuði til að láta pynta mig :P svo þetta verður bara að bíða aðeins lengur : ) Gærkvöldið fór bara allt öðruvísi en ég ætlaði, eftir að ég var búin að væla hérna þá talaði ég við Heiðu sem tókst að sannfæra mig um að koma inn í Hafnarfjörð og hitta hana. Orri og strákarnir voru á Hansen að kveðja Einar sem er að fara út (skilst mér :Þ) og af því ég ætlaði hvort sem er að sækja Orra kl. 1 þá kíkti ég bara í fjörðinn ... alltaf svo gott að koma þangað, er bara heima hjá mér í Hafnarfirði :Þ eeeennn í kjölfarið þá bara fór ég allt of seint og alltof sjúskuð að sofa :P Núna sit ég með hrúgu af dóti sem ég þarf að lesa og gera, klára ritþjálfunarverkefnið :S gera ritgerð í Bókmenntafræði og ég er búin að vera að lesa söguna sem ritgerðin á að vera um og díses ég verð marga daga með þessar 20 síður :S ég er búin með 4 ! svo eru 2 próf í næstu viku ! Það er eins gott að ég er á leiðinni úr bænum að fá smá afslöppun :Þ hmm jæja ég ætla að drífa mig í gymmið ...c ya

miércoles, 19 de octubre de 2005

pirr pirr en það gengur yfir

Ritþjálfun I er að gera útaf við mig í augnablikinu þar sem ég er að reyna að klára eitt stykki stórskemmtilegt verkefni sem er svo loðið að það er að gera mig crazy :S Þoli ekki verkefni með lélegum leiðbeiningum sem ég get svo ekki klárað þegar ég ætla að klára það af því ég skil ekki baun :( pirrpirrpirrpirrpirr Heng ein heima því Orri er í Hfj á Hansen og ég ætlaði að læra svo mikið en það er greinilega ekki hægt : / ég held ég gefi bara skít í þetta allt og fari að horfa á Veronica Mars nýja uppáhaldsþáttinn minn :Þ OC virðist vera í fríi fram í nóvember hver svo sem ástæðan er fyrir því, One Tree Hill er bókstaflega leiðinlegt og ég er búin að horfa á nýjustu þættina í Lost og Desperate housewives + það að vera búin með ANTM seríuna .... OMG hvaðan fæ ég þennan tíma til að horfa á allt þetta drasl :Þ hmmmm ætti kannski frekar að vera að læra eða hreyfa minn feita rass :Þ Við Orri vorum alveg ógeðslega dugleg áðan og hjóluðum í jóga ! Það hefur bara ekki gerst áður :Þ það var bara ótrúlega fínt og tók bara ekkert svo miklu meiri tíma heldur en ef við hefðum keyrt af því jógatíminn er á þessum umferðatíma :D en þetta var 3ji jógatíminn minn á 3 dögum ... mmm þetta er bara svo gott og svo fær maður svo skemmtilegar harðsperrur á undarlegustu stöðum eftir tímana :Þ Hmm jæja þá er það annað hvort sagan San Manuel Bueno í bókmenntafræðinni sem ég þarf að skrifa ritgerð um á næstu vikunni :S eða bara elsku Veronica Mars, ætla aðeins að hugsa málið :Þ

domingo, 16 de octubre de 2005

bara smá upplýsingar um mig

Nafn: Íris Systkin: Guðrún María 19 ára og Eydís 14 ára Augu: mógræn, Orri vill samt halda því fram að þau séu stundum gul :S Hæð: Ég slefa víst rétt svo upp í 160 Fæðingardagur og ár: 10. mars 1984 Greindarvísitala: ég er alveg örugglega einstök í hvora áttina sem er Stjörnumerki: Fiskur :Þ Uppáhalds ? Litur: Blár og fjólublár Matur: góðir grænmetisréttir eru alltaf æði, annars kjúklingabringur og fiskur Drykkur: Vatn Vatn Vatn og svo stundum smá Kristall + Þáttur: OC, Desperate housewifes, Lost og svo ANTM :Þ Bók: Hús andanna og Kryddlegin hjörtu, hef lesið þær báðar margsinnis Bíómynd: úff þessi er erfið Mér finnst bara öðruvísi myndir oft skemmtilegar, svona kvikmyndahátíðamyndir :Þ Vikudagur : Mér finnst alltaf voða gott þegar helgin er að koma, ætli ég segi ekki fimmtudagur (af því þessa önnina er ég ekki í tímum á föstudögum :Þ) Mánuður : Enginn sérstakur, mér finnst e-ð gott og spes við þá alla Hefurðu einhvern tíma..... Strokið að heiman? nei ég bara held ekki Valdið einhverjum ástarsorg? úff ég hef ekki hugmynd, ekki svo ég viti til alla veganna Verið ástfangin? óJá er það núna Grátið þegar einhver deyr? já Langað í einhvern sem þú veist að þú getur ekki fengið? já geri stundum svoleiðis vitleysur Brotið bein? nei ég hef bara ekki brotið eitt einasta bein 7-9-13 Logið? já held að allir hafi einhvern tímann logið Trúirðu á...... Ást við fyrstu sýn? nei ekki beint, kannski skot við fyrstu sýn Guð? nei ekki enn Skrímsli? nei Stjörnuspár? guð nei meira bullið Geimverur? gætu alveg verið til Drauga? Orri kom einu sinni með góðan punkt sem að læknaði mig nánast af myrkfælninni: ég ætti bara að vera ánægð ef ég sæi draug því þá væri ég búin að fá sönnun fyrir því að það væri eitthvað eftir dauðann .... en ennþá hef ég ekkert séð :Þ Hvort er betra? Coke eða Pepsi? ojjjj bæði viðbjóður :S Sprite eða 7-Up? þarf ég að segja það :S Strákar eða stelpur? strákar, alltaf strákar Blóm eða nammi? nammi...... Hávaði eða næði? Little bit of both, svona eftir skapinu Sundlaugar eða heitir pottar? Best að geta gert bæði, fyrst í pottinn svo í laugina og svo aftur í pottinn Buxur eða stuttbuxur? buxur Hitt kynið......... Hverju tekurðu fyrst eftir? Augum Sítt eða stutt hár? æi alveg sama ef að það er bara snyrtilegt Göt einhversstaðar? nei helst ekki Hver..... Fær þig til að hlæja mest? hehe það hlýtur að vera Orri Fær þig til að brosa? þarf nú ekki mikið til Er skotinn í þér? ætla rétt svo að vona að það sé Orri :Þ Hefurðu einhvern tíma............... Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina? E-n tímann gerði ég svo heimskulegan hlut já, biðin reyndist svo sannarlega ekki vera þess virði Óskað þess að þú værir önnur en þú ert? Já það hef ég líka gert Óskað þess að vera karlmaður? jájá, var svo fast bara einu sinni í mánuði þegar ég lá grenjandi uppí rúmi vegna verkja :Þ Óskað þess að líta öðru vísi út?? jebb Grátið vegna einhvers sem hefur verið vondur við þig? ójá Myndirðu giftast vegna peninga? nei það held ég nú ekki Plokkaru augnbrúnirnar? nei ég er svo mikil dekurrófa að ég fer bara og læt vaxa :Þ svo þægilegt Hver er uppáhaldsávöxturinn þinn? mmm ber ber ber, kiwi, perur, æ og svo margir fleiri Hver er uppáhalds staðurinn þinn? Það eru svo margir en eftir hringferðina í sumar þá á ég nokkra alveg spes hér og þar um landið Dreymir þig í lit eða svarthvítt? held í lit, mig dreymir alla veganna nógu crazy drauma Manstu fæðingu þína? nei guði sé lof það er ekki eitthvað sem ég myndi vilja muna Hvort líkar þér betur við sólsetur eða sólarupprás? sólarupprás mér finnst svo æðislegt að byrja daginn Hvort finnst þér betra að hafa slökkt eða kveikt á ljósunum þegar þú horfir á sjónvarpið? ha horfa á sjónvarpið hvað er það Færðu martraðir? Margoft, búin að fá tvær í þessari viku, voru báðar eitthvað um mafíu og morð ! :S Finnst þér nefið á þér fallegt? nei ekki svona þegar ég pæli í því Hlustaru á tónlist daglega? já alveg örugglega Hvað áttu mörg skópör? alveg heilan helling en nota samt fá og hef ekki keypt mér ný í svolítið langann tíma Notarðu sömu skóna á hverjum degi? nei ég er eiginlega með tvenn pör sem ég svona skiptist á að vera í, það er bara þægilegt að ganga mikið í öðru parinu svo ég fer í þá þegar ég sé fram á að þurfa að labba mikið :Þ Hvernig finnst þér best að sofa? Á hliðinni með sængina með andlitið að veggnum og með opinn glugga og frekar kalt í herberginu Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingahús eða svona matsölustaði? þoli ekki að láta stjana við mig á veitingastöðum þannig bara svona hálffína staði með góðan mat en ekki of mikla þjónustu Ertu hamingjusöm manneskja? já í augnablikinu Hversu sítt er hárið á þér? eitthvað neðar en axlir Hvernig viltu að augun í þér séu á litin? bara eins og þau eru Tekurðu einhver lyf? ofnæmislyf þegar ég man eftir því :Þ Talaru mikið? ég veit það ekki en mömmu finnst ég tala HÁTT Já ég er í vinnunni og það er lítið að gera :Þ

sábado, 15 de octubre de 2005

alveg búin á því :Þ

Úff mér leiðist :S Ég er í vinnunni og það er mjög lítið að gera og ég er bara of eirðarlaus til að læra :Þ ég held að eftir þetta brjálaða orkukast sem ég er búin að vera í síðustu vikuna þá er ég bara búin á því :Þ
Ég kom heim klukkan svona 21 í gærkvöldi algjörlega búin á því ... Þá var ég búin að vera á fullu frá því ég skutlaði Orra upp í skóla kl. 10. Fór og lét setja vetrardekkin undir, fór með flöskur fyirr 3000 kall í Sorpu, fór í IKEA, tók til í geymslunni. þvoði þvott, fór í heimsókn til Selmu, ömmu, afa og ömmu og svo líka mömmu og pabba, tókst að verða rafmagnslaus svo pabbi þurfti að keyra inn í Reykjavík og gefa mér start og taka til íbúðinni !!!! vá ég verð bara þreytt af því að skrifa þetta :Þ Ég ætlaði meira segja í ræktina í gær en þegar ég kom heim um kvöldið þá bara meikaði ég ekki að hreyfa mig meira og ég sver það ég held ég sé með smá harðsperrur í dag eftir þetta .... Það er nefnilega ekki auðvelt að hlaupa upp og niður 4 hæðir með þvott og kassa !
En jæja núna stefnir allt í ágætisverkefnaviku, þarf bara að koma mér aðeins niður á jörðina svo ég eyði ekki allri vikunni í að taka til :Þ ég er með langann lista sem ég þarf að vinna og lesa :S svo það er eins gott að maður læri :D
well ætli ég reyni ekki að gera eitthvað gagnlegt þennan 1 og hálfa tíma sem ég á eftir að vera í vinnunni og rölti svo bara heim og horfi á Friends í kvöld því ég þarf víst að mæta í vinnuna kl.8 í fyrramálið svo ég fer lítið út í kvöld :S

jueves, 13 de octubre de 2005

minn endalaust kósý dagur :Þ

Ég er búin að eiga alveg frábæran dag :Þ svo gaman þegar maður á daga sem eru góðir út í gegn :D Ég vaknaði eldhress kl.8 og lærði aðeins fyrir prófið sem ég var að fara í kl.10 .... mætti í prófið og vona bara að mér hafi gengið sem best :S það gilti víst 20% og þetta voru bara 7 spurningar :S svolítið mikið að láta 2 heila af lokaeinkunn velta á 7 spurningum í hlustunarprófi ! en allaveganna þá vona ég bara að það hafi gengið fínt :Þ Svo fór ég bara heim af því ég nennti ekki í málfræði .... kennarinn les bara beint upp af glærunum sínum og mér finnst ég ekkert græða á þessum tímum. Þegar heim var komið tókst mér að sannfæra Orra um það að við ættum skilið að eiga smá dag fyrir okkur og dró hann með mér í Kringluna þar sem við keyptum föt á kappann ;) veitti ekki af, hann átti ekkert nema íþróttabuxur :Þ við vorum alveg búin á því eftir að fara í 4 búðir :Þ svo við fórum aðeins heim en planið var bara að borða og halda svo áfram með langa listann af hlutum sem við þurftum að gera ..... þegar við vorum komin heim spurði ég Orra hvort hann ætti ekki að fara í neina tíma í dag .... úps þá gleymdi hann víst voða mikilvægum tíma (ég að spilla honum :Þ) en þurfti að mæta í næsta svo það varð ekki meira úr dekurdeginum okkar :Þ en ég hélt áfram og omg ég veit ekki hvaðan ég fékk orkuna til að gera það sem ég gerði næst :S ég byrjaði á því að shæna baðherbergið svo fór ég leitaði að öllum flöskum sem við áttum og taldi þær allar í poka .... ég er sko búin að vera að safna kjarki í þetta í marga mánuði en hey þetta tók hálftíma :Þ svo tók ég og setti í vélina og eyddi svo restinni af deginum í að rífa úr skápum og henda og henda og henda .... vá ég held að þetta hafi bara verið jólahreingerningin .... Svo núna sit ég í svo fínni og hreinni íbúð :Þ svona nánast, ég er ekki alveg búin :Þ upp úr þessu hafði ég þó það að ég fann sundkort sem við eigum í Laugardalslaugina OG IPOD snúruna mína sem ég er búin að leita að síðan í júní !!! pabbi var meira að segja að koma heim frá útlöndum í kvöld og ætlaði að kaupa nýja fyrir mig en mér tókst að ná í hann :Þ Svo fórum við í mat til Maggýjar, æðislega grænmetissúpan :P og núna er Orri e-s staðar með Andra og ég nýt mín í botn hérna heima með kveikt á kertum, búin að gera svoooo mikið í dag og ætla að fara að horfa á Desperate housewives og Lost :Þ en svona fyrir þá sem vita það ekki þá er ekki tími hjá mér fyrr en þarnæsta mánudag .... mmmm SEMANA LIBRE mér líst vel á þetta :Þ hehe æ greyið þið sem nenntuð að lesa þetta, mig langaði bara að skrifa þetta niður svo næst þegar ég á lásí dag þá get ég lesið þetta og munað að það eru ekki allir dagar slæmir :Þ og svo litaði ég textann bleikann bara til að gera þetta verra ;)

martes, 11 de octubre de 2005

ZzZzZzZzZz

stefnur í arkitektúr á Spáni á 17. öld ZzZzZzZz hvernig á maður að halda athygli þegar þetta er viðfangsefnið ZzZ ........ En annars bara allt gott að frétta, ég og Kolla tókum þessa ritgerð bara á hörkunni og hún er núna bara meira og minna tilbúin, bara eftir svona smá púsl og snurfus. Ég er síðan búin að eiga bara mjög þægilegan dag hérna heima :Þ Sit bara og lesa og hleyp svo niður í þvottahús með svona 45 mínútna millibili og hendi í vél :Þ Orri var víst eitthvað að kvarta yfir því að hann ætti eitthvað lítið til að hreinum fötum svo ég svona gjóaði augunum yfir á óhreina tauið og ÓMEN hvernig verður allt þetta drasl svona fljótt óhreint ! en alla veganna 3 vélar komnar í dag og það stefnir í persónulegt met :D Mér finnst fátt meira kósý en að vera ein heima hjá mér :Þ kann svo vel að meta það að vera bara ALEIN ... með tölvunni minni :Þ en jæja þarf að hlaupa í þvottahúsið og svo bíður mín hérna gæða máltíð ... kínarúllur og franskar :Þ

lunes, 10 de octubre de 2005

blablablablablabla

það er ekkert að gerast í mínu lífi þessa dagana nema þessi bölv*** ritgerð :S vá en spennandi líf :Þ svona er þetta þegar maður er í skólanum, maður eyðir mestum tíma sínum í að vera að fara yfir um af stressi :S Pabbi fór út í morgun og kemur heim á fimmtudaginn :P þá fæ ég LOKSINS ný gleraugu, þessi sem ég á eru sko frá því í 9. bekk :S alveg komin tími á þetta :Þ en jæja farin í jóga

viernes, 7 de octubre de 2005

aumingja tönnin mín

á á á á á á á á á á á á á á á á tönnin mín :'( ég var hjá tannsa áðan að láta bora mikið og núna þegar deyfingin er farin þá er lífið ekkert sérstaklega skemmtilegt :S og ég borgaði rúmann 10þús kall fyrir þessar pyntingar ! Tannlæknirinn minn er samt ansi skondin, talar alveg endalaust og maður getur náttúrulega ekkert svarað því að munnurinn á manni er fullur af drasli og deyfður í þokkabót :Þ Ég og Orri áttum alveg æðislegt kvöld í gær. Við skelltum okkur út að borða á Gallerí Fisk. Ég fékk mér hlýra og humar *namminammi* og Orri fékk sér eitthvað sem mig minnir að heiti skötusteik, það var alla veganna líka algjört sælgæti :Þ Mæli sko alveg með þessum stað ef fólki langar til að prófa góðan og svolítið öðruvísi fiskrétti :Þ Eftir matinn fórum við svo í bíó á 40 year old virgin, planið var að fara á kvikmyndahátíðina en við fundum ekkert sem okkur langaði að sjá svo þessi mynd varð fyrir valinu ... hún var fín :D Ég er búin að vera svo dugleg í dag, mætti í ræktina í morgun og lét svo pynta mig hjá tannlækni og er svo búin að sitja heima og vinna í ritgerðinni sem við Kolla þurfum að skila næsta miðvikudag :S Oktoberfest er svo í kvöld og mmmiiigggg langar svoooo. Er búin að hakka í mig verkjatöflur og er að bíða til að sjá hvort það slái á verkinn .... :S

miércoles, 5 de octubre de 2005

auli auli

Er ansi svekkt út í sjálfa mig í augnablikinu :S *Fór ekki að sofa fyrr en 2 í nótt og svaf náttúrulega yfir mig :( auli auli :(

lunes, 3 de octubre de 2005

öhhh já mér leiðist :Þ

Mér leiðist !! Ég er eirðarlaus og mér leiðist .... ég veit reyndar alveg ástæðuna fyrir því en fjandinn hafi það MÉR LEIÐIST !! Mér leiðist svo mikið að ég get ekki einu sinni horft á Friends !! Það er alvarlegt ! Ég reyndar kláraði að horfa á seríu 4 í 24 .... úff maður. Mér skylst að það sé ekki byrjað eða búið að sýna hana hérna svo ég segi ekki meira .... en ég alla veganna grenjaði, mikið. Ohh ég þarf að taka strætó í skólann á morgun :S minnz nennir því sko ekki .... En ég er að vera góð við Orra því hann er e-n staðar úti núna, þá þarf hann ekki að fara með mér í skólann svona snemma ... Það er naumast að maður er góðhjartaður ! Það eru ritgerðarskil hjá mér í einu fagi í næstu viku .... oooog ég er ekki byrjuð ! eða reyndar þá erum við ekki byrjaðar en það á að bæta úr því á morgun :Þ Ég ætla reyndar að vera góð við sjálfa mig og fara í augnbrúnavax á morgun (ohhh ég þoli ekki að skrifa þetta orð augnbrúnavax, ég veit aldrei hvernig á að skrifa það !!) Næsta horror vax er svo 15.okt Ég og María ætlum aftur í það brasilíska .... Núna í minningunni þá var þetta ekkert svo slæmt og það var alveg þess virði svo ég ætla bara að halda í þessa draumaminningu mína fram að vaxinu :Þ eeeeennnnn mér leiðist svo ég held ég fari bara að sofa ! úff vá hvað manni leiðist mikið þegar það skásta sem maður getur gert er að vera meðvitundarlaus :Þ Gúdnæt

domingo, 2 de octubre de 2005

smósý kósý

Úff mér er enn illt í maganum eftir allt nammið sem ég borðaði í gær : / Ég held að takmarkið með nammidögum sé ekki að borða einfaldlega 7faldan skammt af nammi ... ég á eftir að læra það :Þ Annars átti ég mjög kósý kvöld þar sem afraksturinn var 1 desperate housewives þáttur og þó nokkrir 24 :Þ og já ég fór allt of seint að sofa :S Í morgun þurfti ég svo að bruna inn í Hafnarfjörð áður en ég átti að mæta í vinnuna kl. 10 því elsku pabbi ætlar að skipta um bremsuklossa fyrir okkur handfatlafólin svo að bíllinn verði aftur ökuhæfur : O Það var ekki gaman að keyra og heyra bara svona stál í stál hljóð þegar maður bremsaði : / ekki mjög traustvekjandi :Þ En jæja ég er alla veganna einu sinni enn mætt í vinnuna , 10 tíma vakt í dag frá 10-20 :Þ er búin að vera nokkuð dugleg og er búin að læra allt sem ég þarf fyrir morgundaginn :Þ Já hver segir að það sé ekki gott að vera í vinnunni þegar það er EKKERT að gera :D

sábado, 1 de octubre de 2005

hmmm

Ég átti einn ferlegasta dag ever í dag :S Það bara ætlaði ekkert að ganga upp : /kortið mitt var týnd og svo kom í ljós á versta tíma að kortið hans Orra rann út í dag, vá ég hef sjaldan verið jafn pirruð eeeeennnnn núna hef ég það sko bara kósý heima, Orri er að vinna svo ég sit hérna ein með nammi (af því að í dag er nammidagur) og er að horfa á 24 :Þ Horfði líka á fyrsta þáttinn í Desperate housewives :Þ byrjar alveg jafn undarlega og þættirnir enduðu ..... En vá talandi um undarlega þætti ! LOST ! ég er búin að horfa á fyrstu 2 þættina í seríu 2 og OMG þvílík sýra, en það á reyndar eftir að koma í ljós hvernig þetta fer :S :) þetta gæti orðið mjög gott :Þ jæja er að missa af 24, það er nýbúið að fanga Bauer svo ég verð að fylgjast með :Þ