Aloha !
Jæja það var mikið - er loksins komin með netið aftur ! Við vorum að skipta frá Hive yfir í OgVoðafokk því við fengum svo fínan díl hjá þeim í gegnum vinnuna hans Orra. Þeir voru búnir að lofa okkur að við myndum ekki missa netið niður en hvað gerist ! Þeir tengja okkur án þess að láta okkur fá router *reiðurkall* Semsagt ég er búin að vera netlaus og bíllaus frá því á þriðjudaginn !
En jibbí jei nú er ég komin með heimasíma : ) Ég var búin að láta einhverja fá númerið fyrir langalangalöngu þegar við fluttum hingað en þeir sem vita það ekki og vilja fá það bara let me know, ætla ekki að fara að setja það hérna á síðuna.
Í dag var ég með umræðutíma í Félagssálfræði - það gekk alveg allt í lagi en ég talaði alltof hratt og í belg og biðu, vonandi dregur það mig ekki mikið niður : /
Ég var svo ánægð með að vera búin með þennan umræðutíma að ég tók kast á íbúðinni minni þegar ég kom heim og hún er núna glansandi hrein :D Þvílíkur munur því það var allt á haus hérna enda enginn búinn að hafa tíma til að taka til alla vikuna :Þ

2 comentarios:
Gott að heyra að umræðutíminn gekk vel, svona tímar eru svo innilega not my thing ;o) En skvís ég vona að þú hafir það gott um helgina, sjáumst vonandi fljótlega :o)
Voðafokk er sko réttnefni. Ég er ekki ennþá tengd netinu heima hjá mér og það erbúið að vera vesen með þráðlausa netið í mömmu tölvu since the beggining of times. Við grunum routerinn um græsku...
En til hamingju með umræðutímann :) Tala ekki hvort eð er allir í belg og biðu?? nema náttúrulega einstaka undartekningar sem eru bara alls ekkert mannlegar ;)
Publicar un comentario