Eftir viku fæ ég niðurstöðurnar úr STRONG prófinu og ég hlakka mikið til að sjá hvað kemur út úr því ... Ég hef það nefnilega ansi sterkt á tilfinningunni að ég sé á vitlausri hillu í lífinu eða þá að ég sé bara búin að hugsa svo mikið um þetta að ég er á réttri hillu en viti bara ekki af því :Þ Ég er bara ekki að sjá tilganginn með svo mörgu sem ég er að gera í sálfræðinni. Til hvers að gera stupid einfaldar tilraunir á einhverju sem að skiptir engu máli ... fæst okkar í þessu námi munum fara í rannsóknarvinnu í framtíðinni en samt er það 90% af náminu að kunna að gera tilraun, kunna að vinna úr niðurstöðum tilraunarinnar, kunna tölfræðina og kunna að skrifa skýrslu : / Ég er algjörlega komin með nóg af þessu bulli !
Ég gerði þau mistök áðan að kaupa mér Kristal SPORT með lime og jarðaberjabragði : / þvílíkur viðbjóður ! Þetta bragðast eins og eitthvað lélegt bland og lyktin af því minnir mig á fyllerí : /
Jæja best að fylgjast með, er víst í tíma og kennarinn minn er búinn að teikna mynd af neti viðhorfa á töfluna
lunes, 30 de octubre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

3 comentarios:
mér er illa við allt með jarðaberjabragði, nema ís. Allt annað en jarðaberjaís verður bara ógeðslega væmið eins og lélegur kokteill.
En ég bíð líka spennt eftir því að heyra hvað þú færð út úr STRONG ;)
Bara tilhugsunin jarðaberja og sítrónu drykkur, pjakk... En já ég vona að þú fáir eitthvað skemmtilegt og spennandi út úr STRONG prófinu :o)
Já ég veit ekki hvað ég var að hugsa með þennan viðbjóðsdrykk. Ég var bara svo gasalega þyrst og ég gleymdi vatnsflöskunni minni heima. Þetta var það sem mér fannst líkjast vatni mest bara :Þ En svona er þetta, mistökin eru til að læra af þeim ;)
Publicar un comentario