domingo, 29 de abril de 2007

Ekki alveg samkvæmt plani ...

Align Center

Þetta er ég í dag ! Daginn fyrir próf ! Þessi prófundirbúningur hefur gengið alveg ótrúlega illa : / Það kemur víst ekki til greina að taka sjúkrapróf þar sem ég verð á Mývatni um miðjann ágúst
Ég ætla bara að krossa alla putta og vona að ég verði heppin með spurningarnar : |

jueves, 26 de abril de 2007

She's got a ticket to ride ...

Ef ég hafði einhvern tímann hugsað mér að flytja til Noregs þá er ég hætt við það núna. Könnun sem Amnesty International gerði í Noregi leiddi í ljós að 48% karlmanna telja að konur beri að öllu leyti eða hluta ábyrgð á því að þeim sé nauðgað ef þær hafa daðrað opinskátt áður en þær verða fyrir árás - Do I need to say MORE !

Tölvan mín hefur hafið göngu sína út á plankann - hvert sinn sem lokinu er lyft upp þá fæ ég þau skilaboð um að það sé eins gott að ég sé búin að taka afrit af öllu því hvað úr hverju muni hún taka síðasta skrefið út af plankanum - orðin sem hún notar sjálf er imminent sem www.ordabok.is (sem er btw að bjarga lífi mínu fyrir aðeins 990 kr fyrir 3 mánuði) segir að þýði yfirvofandi ! Hún gat ekki haldið út fram yfir prófin ! Ég nota hana enn en er í sífelldum ótta við að fjárans klikkhljóðið byrji að heyrast úr henni og þá veit ég að það næsta sem kemur er blár skjár og allt sem ég er að gera hverfur : /

Ég er að reyna mitt besta til að hugsa ekkert lengra en næstu 3 vikurnar fram í tímann.
Eftir það taka við 3 vikur í morgunmatnum á Sunnu. Ég er alltaf að koma mér í eitthvað sem krefst þess að ég vakni eldsnemma á morgnanna :Þ Mæting í vinnuna kl. 6:30 takk fyrir - En í staðinn er ég búin kl. 14 :)
Svo mun ég þurfa að kveðja Maríuna mína því hún er víst orðin svo stór að Ísland rúmar hana ekki lengur. Svíþjóð verður nýja heimilið og hver veit hvað það eru mörg ár þangað til við munum aftur búa í sama landi :'(
Eftir að hún fer mun ég svo ekki sjá hana fyrr en á jólunum ... það er alltof langur tími :'( Vonandi mun ég svo ná viku kósíheitum með Orra áður en stefnan verður tekin á Mývatn fyrir ALLT sumarið.
Ég mun þó koma heim í bæinn um mánaðarmótin júlí/ágúst til að kveðja pabba, mömmu og Eydísi þar sem þau eru LÍKA að stinga af til annarra landa. Þau munu þó ekki vera nema rétt rúmt ár en að öllum líkindum verð ég flutt af landi brott áður en þau koma aftur : / Hvað er málið með þessa fjölskyldu !
Ég held ég reyni bara að hugsa sem minnst um allt þetta :Þ Allt of stíf dagskrá ...

En já aftur að næstu 3 vikum þá á ég semsagt að vera að hugsa um PRÓF PRÓF PRÓF LÆRA LÆRA LÆRA - þetta er alveg að koma hjá mér ...
Úff ég á eftir að sakna þeirra svo ótrúlega mikið : /
Íris

domingo, 22 de abril de 2007

Harðfiskur er bestur

Þetta er búin að vera hálfundarleg helgi þar sem ég hef setið límd við skrifborðstólinn í heimalokaprófið í heilsusálfræði. Það er bara mun flóknara að taka svona heimapróf en ég hafði gert ráð fyrir. Þegar maður hefur öll gögnin þá veit maður eiginlega aldrei hvenær svarið er orðið nógu gott : / Ég vona bara að ég sé að gera þetta rétt :)

Prófið er til kl. 18 á morgun og ég ætla að nýta tímann allan. Er að svara síðustu spurningunni núna og á morgun ætla ég að fara yfir öll svörin og gögnin við það og sjá hvort ég geti ekki gert enn betur. Ég vil fá HÁTT í þessum kúrsi (þó hann reiknist ekki einu sinni inn í meðaleinkunnina mína) - ég vil geta sýnt þegar ég sæki um framhaldsnám að ég hafi fengið mína hæstu einkunn í heilsusálfræði !

Ég var að horfa á þátt af House um daginn, þar var viðfangið kona sem játaði það skömmustuleg að hafa farið til Caracas og guð hjálpi mér hún fékk sér TATTÚ, drakk VATNIÐ þar og fékk sér MAT sem mögulega var ekki nógu vel eldaður ! Ég hefði greinilega ekki átt að komast lifandi heim miðað við svipinn sem þau settu upp þarna !
Ég svaf utandyra,
var bitin eða stungin af einhverju furðudýri sem olli því að ég fékk svo mikla beinverki í fótinn og bólgnaði svo svakalega að ég gat ekki stigið í hann í 3 daga,
það fannst sporðdreki í íbúðinni sem ég bjó í,
ég var bitinn þúsund skrilljón sinnum af moskítóflugum án þess að fá malaríu,
ég stökk í fossa við landamæri Brasilíu án þess að verða meint af,
lifði á sandskeri í 4 daga bólgin af sólbruna,
drakk óhemju mikið áfengi,
prúttaði við leigubílastjórna (sem rændu mig ALDREI),
notaði almenningssamgöngur (rútur sem voru teipaðar saman :Þ)
skipti á hverjum degi um strætó í einu stærsta fátækrahverfi Caracas,
keypti mat af götunni
og ég er enn á lífi og Svana (sem var með mér úti) lifði það svo sannarlega af að hafa fengið sér tattú og guð hjálpi henni gat í tunguna ! Já það er svo sannarlega ekki allt sem ekkert er vestrænt stórhættulegt ...

En aftur að þættinum þá játaði konan líka að hafa tekið kókaín í nefið af maganum á samkynhneigðum manni en ég veit ekki hvaða máli skiptir HVAR það gerðist né af hverju það skipti máli að hann var SAMKYNHNEIGÐUR !


Mig langaði heil ósköp í göngu með Útivist í dag en ég er víst í prófi og það gengur fyrir :Þ Mig langaði líka heil ósköp á köfunardaginn í sundlauginni minni í gær en hey prófið gengur fyrir ... Bara 3 vikur af þessu í viðbót YES.


Íris með auga sem er að nálgast þrítugt núna

sábado, 21 de abril de 2007

tilgangslausa bloggið

  • Mér þykja fjallagrasaflatkökur ekki eins góðar og venjulegar
  • Ég gleðst yfir því að það rigni í dag og vona að rigningin haldist til 14. maí
  • Ég er í heimaprófi, með hundveikan kærasta og aðgerðarleysisveikina á háu stigi
  • Það er allt í drasli
  • Ég borðaði Minstrels í morgunmat
  • Ég er að brjálast af ofnæmi og það er bara APRÍL !

Ofnæmisins vegna er annað augað á mér búið að vera eins og á áttræðri konu í 5 daga. Í dag er það skárra núna er það svona sextugt !
Annars fór ég í tvær göngur á sumardaginn fyrsta. Fyrst fór ég með Kristínu í Búrfellsgjána og upp á Búrfellið og svo seinna um daginn tókum við mamma göngu um svæðið í kringum Kaldárselið.

Best að reyna að gera EITTHVAÐ af viti : /

miércoles, 18 de abril de 2007

Farsímablogg

Eftir að ég týndi gemsanum mínum í febrúar er ég búin að vera í stökustu vandræðum. Ég man ENGIN símanúmer ! Maður er orðinn svo háður tækninni og þegar símaskráin fór með símanum þá komst ég bara að því að ég kann ekki einu sinni númerin hjá mínum nánustu vinum og fjölskyldu. Ég gat ekki einu sinni hringt heim til MÍN ! Ég var í vinnunni og var allan dag að reyna að ná í Orra, hringdi og hringdi heim (að ég hélt). Svo um kvöldið hringdi í mig kona og sagði að það væri búið að hringja í hana margOFT í dag úr þessu númeri (semsagt mínu) - úpposí þá semsagt komst ég að því að ég kunni ekki heimasímann minn : /

Svo var Kristín svo æðisleg að lána mér einn gamlann forngrip - ætli hann sé ekki svona 8 ára gamall :Þ Ég hef ekki haft þolinmæði í að setja neitt í símaskrána. Ætli þetta sé ástæðan fyrir því að símreikningurinn minn hefur frá febrúar farið niður í varla neitt nema þjónustugjaldið :Þ Ég hringi bara í gemsann hans Orra og María því það eru einu númerin sem ég kann og ég hringi frítt í þau bæði.

Um daginn þurfti ég að hringja í vinnuna hennar mömmu, var auðvitað ekki með númerið, hugsaði smá og voilá fékk númer upp í hausinn sem ég var viss um að væri númerið hennar. Nahh þá hringdi ég á gamla vinnustaðinn hennar mömmu í númer sem ég hef ekki notað í svona 5 ár !

Ég ætla að þola þetta fram í júní en ég ætla pottþétt að kaupa mér síma áður en ég fer á Mývatn :Þ Ég vil geta talað við kallinn minn í fleiri klukkutíma (batteríið í þessum gamla dugar bara í hálftíma :Þ)

Íris með bólgna augað o°

lunes, 16 de abril de 2007

Zooooolander

Ég hef mikið horft á America's Next Top Model - mjónur með drama og þættirnir eru hilarious. Það sem ég vil fá núna er America's Next Top MALE Model :Þ Ef þeir myndu bara sprangla um berir að ofan væri það nóg til að fá mig (og restina af kvenkyninu) til að horfa ; ) Semsagt einhvern veginn svona
En betra væri þó ef það þættirnir væru í anda Zoolander - þá gæti maður meira segja horft á með hljóðið á :Þ
Vinna, skóli, RKÍ, æfing, meiri skóla, minni vinna og bara 4 vikur í frelsið sem mun var í 3 mánuði og 2 vikur !

viernes, 13 de abril de 2007

Mývatn 2007

Þá er sumarið 2007 komið á hreint

Ég verð landvörður á Mývatni frá 8. júní til 31. ágúst.

Það verður ekkert úr Venezuela ferðinni þetta árið - vonandi kemst ég bara á næsta ári :)

Í þessu umhverfi mun ég njóta sumarsins

Þetta verður draumurinn sem ég læt rætast í ár

Planið mitt að láta einn stórann draum rætast á ári hefur bara gengið nokkuð vel

2001-2002: Eyddi ári í Venezuela sem skiptinemi

2004: keypti mér íbúð :)

2005: fór hringinn í kringum landið

2006: fór á interrail um Austur og Vestur Evrópu

2007: fæ að búa úti á landi, vera í náttúrunni og láta landvarðadraum minn rætast

Áætlaðar draumarætingar næstu ára eru:

2008: Vonandi Venezuela ferð og heimsreisa með ástinni minni

2009: flytja til útlanda

Jæja best að snúa sér nú að skólabókunum - nefið verður víst þar allt til 14. maí

jueves, 12 de abril de 2007

Nú líst mér vel á ...

Reykjavík ! Græn skref í Reykjavík :) Frítt í strætó fyrir námsmenn, blá tunna undir pappír, það á að bæta strætókerfið og setja upp rauntöluupplýsingar ... Þetta er líka bara brot af því besta :)

Ég tilkynnti það hérna minnir mig í febrúar að ég ætlaði að safna augabrúnum ! crazy - ég hef hér með GEFIST UPP, þær bara vaxa ekki neitt og ég er búin að vera illbrýnd í 2 mánuði ! Mín er búin að panta tíma í vax í næstu viku ! Ekki nóg með það þá ætla ég líka í klippinu enda komnir margir margir mánuðir frá því ég fór síðast :O Beautymission ;)

Loksins í dag fékk ég svo fréttir sem ég er búin að vera að bíða eftir (mjög óþolinmóð :Þ) í 3 vikur. Það var haft samband við mig bæði frá Mývatni og Jökulsárgljúfurs þjóðgarðinum :D Í báðum tilvikum voru þetta bara svona atvinnuviðtöl en kannski mun ég þurfa að velja. Svo nú er ég komin með valkvíða :Þ

Smá hröð sannindi um báða staðina

Jökulsárgljúfur:

Lengra í burtu (tekur þó nokkuð lengri tíma að keyra þetta)

Lengra að fara heim og lengra fyrir Orra að koma til mín

Fleira fólk að vinna á staðnum

Lengri vinnutími yfir sumarið (21. feb-31. ágúst)

Kemst ekki til Venezuela

Stórkostlegt umhverfi

Meiri innivinna

Mývatn:

Mýflugur :Þ

Styttra að fara

Vinnutíminn er styttri (21. júní - 31. ágúst)

Ég get því farið til Venezuela t.d. 17. maí - 17. júní :Þ

4 að vinna á staðnum

Stórkostlegt umhverfi

Meiri útivinna

Ég veit ekkert hverjir af þessum punktum eru gallar, þetta virðist eiginlega vera frábært í báðum tilvikum. Það er nú samt mjög spennandi að hafa möguleikann á því að fara til Venezuela en ég væri þá að fara á tíma þar sem enginn er í fríi.

Hugsi hugs

miércoles, 11 de abril de 2007

Neikvæðnin í gær var svo sannarlega hrist úr mér þegar ég fór að hitta heilsusálfræðikennarann minn. Ég fékk þvílíkt hrós fyrir ritgerðina mína og allt verkefnið - ég bara gat varla hætt að brosa þegar ég gekk út úr viðtalinu :Þ Svo skýrðust líka margir hlutir varðandi BA verkefnið mitt svo ég get hætt að spá í þeim :)

Í dag tókst mér að stroka tvo hluti út af Skóla To Do listanum þannig að hann hefur styst (örlítið). Akkúrat núna ætlaði ég að vera að læra en ég er alveg dottin ofan í ferðaheimasíður :Þ Hvað segiði er Síberíuhraðlestinn ekki bara alveg geggjuð eða er Afríka málið? Bhutan er komið næstefst á lista hjá mér núna yfir lönd sem ég ætla mér að fara til yfir ævina (á eftir Japan :Þ)

Það eru ekki nema 9 dagar í fyrsta prófið og prófaandinn er mættur á heimilið. Nú þarf bara að þrífa allt og þvo, kaupa í matinn og þá er hægt að byrja að læra truflunarlaust. Verst að kallinn minn er líklegast fótbrotinn og því algjörlega engin not af honum í tiltektinni : /

Veit einhver hvar ég get keypt stórt heimskort til að setja upp á vegg? Mamma??

Íris í (próf)ferðahug

martes, 10 de abril de 2007

Neikvæðnisfærsla

Mikið rosalega á ég erfitt með sjálfa mig þessa dagana. Ég þarf að vinna svo mikinn lestur upp, vinna svo mörg verkefni og undirbúa mig fyrir próf en ég er bara algjörlega komin með upp í kok. Páskarnir hefðu verið fullkominn uppvinnslu tími en ég gat ekki neitað aukavöktunum. Tókst að tvöfalda mánaðarkaupið og það veitti ekki af því : / Ég er semsagt að pirra mig á því að ég hafi ekki náð að gera allt sem ég þurfti að gera yfir páskana af því ég var að vinna.

Mig langar svo ekki að lesa og þegar ég sest niður við bækurnar þá reikar hugurinn langt LANGT í burtu og fram í tímann. Þar sem ég er ENN að bíða eftir svari frá Umhverfisstofnun þá hef ég ekkert getað ákveðið varðandi sumarið sem er að koma og það er að gera mig brjálaða ! Hrikalegt að sækja um vinnu og bíða svo 3 vikur án þess að fá já, nei eða kannski ! Ég vil bara fá mitt (nei) svar svo ég geti ákveðið eitthvað. Þolinmæði er ekki mín sterka hlið : Þ

Bloggið mitt er svo algjörlega í rúst, ég þarf að html-a (nýtt orð) öll greinarskil og svona í textann því annars kemur textinn bara í einni runu þegar ég pósta. Ég ætlaði að þrífa og selja bílinn minn um páskana en það var enginn tími. Ég ætlaði að fara í IKEA og koma endurvinnslunni á heimilinu í gang, æfa, taka til og læra - Ég hefði þurft að klóna sjálfa mig : / : ( Djöfull hlakka ég til þegar maður verður hættur í námi og orðið FRÍ fer virkilega að merkja tími sem maður hefur fyrir sjálfann sig en ekki tími til að LÆRA eins og brjálæðingur eða tími til að VINNA eins mikið og maður getur ...

Mig vantar ærlega stóra sprautu af skólastressi til að moka út skólaleiðanum og kæruleysinu.

lunes, 9 de abril de 2007

Það hefur tekið sér ból í mér enn stærri og sterkari ferðabaktería, hún er sko eiginlega risastór ...

Það er samt allt enn á umhugsunarstigi og eins og oft áður þá veltur þetta mikið á ferðafélaganum. Þessi ferð er þó ekki í bígerð fyrir þetta árið heldur verður 2008 fórnarlambið. Þessi ferðabaktería gæti fært mig í lönd þar sem pýramídar hafa verið byggðir, búddamunkar búa og kengúrur hoppa um ...

Nú er bara að sjá og bíða

og ég þarf víst að klára skólann fyrst svo það er eins gott að ég snúi höfðinu á mér í þá áttina svona næsta mánuðinn eða svo.

Öll þessi vinna í páskafríinu hefur skilað af sér ZERO lestri og MUCHO monní. Það breytir þó því ekki að það er próf á miðvikudaginn sem ég á eftir að lesa fyrir, niðurstöðukynning á fimmtudaginn sem á aðeins eftir að klára og ritgerðarskil í heilsunni á föstudaginn sem ég eftir að vinna.

sselB

domingo, 8 de abril de 2007

Gleðilegt súkkulaðifyllerí

sábado, 7 de abril de 2007

ansans

Skrambans

Er komin hálfa leiðina með það að breyta útlitinu á síðunni en ég nenni ekki meiru. Mest langar mig að fá mér lénið www.íris.is :) er komin með leið á höftum og sérsmíðuðum útlitum sem ég kann lítið að breyta : / Er enginn snilli hérna í vefsíðugerð sem langar til að redda mér ; )

Ég er í súperfitun í vinnunni í dag, endalaust dælt í mig pönnukökum, nammi og muffins. Svo vogaði sér e-r að koma hérna inn með páskaegg og gefa okkur og þar sem ég mun meira og minna vera í vinnunni næstu 2 daga þá kemur það í minn hlut að borða það :O ég er að springa !

Hver veit hvað á að standa hérna ...

Er ljótt að gleðjast yfir rigningunni þegar maður þarf sjálfur að vera í vinnunni allan daginn :Þ Ég er alla veganna mjög glöð :D Ég var að spjalla áðan við Rebekku um íbúðir og íbúðaverð og fór í kjölfarið að kíkja á hvað íbúðir sem eru mjög svipaðar okkar (stærð, aldur, staðsetning, skipulag ...) myndu kosta. Sú ódýrasta sem ég fann var á 12,7 milljónir - það er +4 milljónir fyrir okkur ! Flestar voru á yfir 13 milljónum og þær voru líka flestar 10+ árum eldri en íbúðin okkar :O Mikill bónus fyrir okkur og þvílík súperávöxtun á peningnum sem við lögðum í íbúðina í byrjun - en þetta er hrikalegt fyrir fólk sem er að kaupa sínu fyrstu íbúð núna : / Ég fékk loks smá gæðakvöld með Orranum mínum í gærkvöldi. Við vorum bókstaflega varla búin að sjást frá því á þriðjudaginn þó við séum bæði búin að vera á svæðinu. Ég er bara búin að vera í verkefnavinnu og meira og minna í vinnunni svo það var mjög gott að fá að knúsa hann smá. Þessa dagana er Sleep trackerinn hans Orra algjörlega að bjarga mér. Ég þarf að vera mætt í vinnuna kl. 7 og er ekki svo mikill morgunhani að ég stökkvi á fætur af gleði á þessum tíma. Ég man ekki hvort ég var búin að segja e-ð frá þessu undratæki hérna. Þetta er tölvuúr með vekjaraklukku sem vekur mann á þeim tíma sem maður er næstur því að vera vakandi. Það er svo miklu auðveldara að vakna svona - maður bara opnar augun og það er eins og maður sé búinn að vera vakandi heillengi. Best að læra smá...

viernes, 6 de abril de 2007

Vinnupáskar 2007

Í dag er föstudagurinn LAAAANGI. Hann ætlar alla veganna að verða langur hjá mér þar sem ég er nú þegar búin að vera vakandi og vinnandi í 4 tíma og á eftir 3 tíma í vinnunni. Restin af deginum fer svo í verkefnavinnu, vonandi smá sund og ég býst við því að fara dauðþreytt að sofa í kvöld.
Það var nú reyndar ekki svo slæmt að vakna í morgun því ég gisti bara í vinnunni minni :Þ Var að vinna til 23 í gærkvöldi og þar sem ég þurfti að vera mætt aftur kl. 7 þá fékk ég bara að lúlla hérna :Þ Ég er náttúrulega að vinna á besta stað í heimi :) Annars er bara mest lítið að frétta - Þetta verða sannkallaðir vinnupáskar þar sem ég var að vinna í gær 9 tíma, í dag 7 tíma, lau 13 tíma, sun 7 tíma og svo mán 13 tíma = MULTIMONNÍ ! :D ÉG næ því miður samt lítið að læra þar sem það er bara alveg hellingur að gera hérna. Ég er samt komin í svaka sumarfíling af því að vera innan um alla þessa ferðamenn :Þ Ég er að vonast eftir því að komast í smá göngu á sunnudaginn en það verður bara að koma í ljós ... Jæja ætla að gera e-ð af viti Gleðilega páska :D

lunes, 2 de abril de 2007

Mig vantar eitt ofur spark ! Ég er svo ekki að nenna að lesa : S Mig langar út í fjallgöngur, fara til útlanda, sprikla í sundlauginni, fara á bókasafnið, fara með mömmu í búðir og jafnvel taka til og gera eitthvað skemmtilegt - allt annað en það að setjast niður með þroskasálfræðibókina : / Núna er ég orðin ansi óþreyjufull eftir svarinu frá Umhverfisstofnun (þó ég viti að það kemur annað hvort ég næstu dögum eða strax eftir páskana). Ég er bara svo viss um að ég fái nei :( og ég vil helst bara ljúka því af svo ég geti farið að huga að sumrinu ... Æ fjárinn hafi það - ég ætla að fara að lesa ...