Veit einhver af hverju við erum farin að veiða hvali í atvinnuskyni? Mér skilst að við getum ekki selt þetta eitt né neitt - Erum við Íslendingar sjálfir að borða svona mikið af þessu??
Helgin með hinu rólegasta móti. Ég er að vinna bæði lau og sun frá 10-20 svo ég nýti tímann bara í að læra : )
Ég var svaka ánægð með það að ég er búin að missa tæp 3 kíló frá 1. sept :Þ Því miður gekk Bootcamp ekki eftir í bili en þó að ég sé ekkert að æfa þá lækkar talan á vigtinni hægt og rólega. Mér sýnist þó að ég sé ekki að gera þetta the right way - Mín aðferð virðist vera að borða hollan og góðan morgunmat og jafnvel smá hádegismat en svo er það oft þannig að seinni partinn fæ ég mér eitthvað sætt og eftir það hef ég ekki matarlyst.
Ótrúlegt hvað maður getur verið stupid !
Ég bara skil ekki af hverju mér finnst svona leiðinlegt að fá mér að borða ... Mér finnst ekkert leiðinlegt að borða ef að ég þarf ekki að taka til matinn minn sjálf en svo virðist vera að ég taki mig ekki til og fái mér almennilega máltíð nema ég bókstaflega neyðist til þess eða að ég sé í svona svakalega góðu skapi :Þ Það er bara ekkert gaman að elda fyrir sig einan, það er svo miklu skemmtilegara þegar að maður hefur einhvern til að njóta matarins með : /
Svo er það líka bara svo oft þannig að ísskápurinn er tómur og maður stekkur út í 11-11 til að ná sér í eitthvað og þá kaupi ég mér frekar bara tilbúna samloku en að kaupa brauð og allt á það .... Ég er algjör dekurprinsessa : /
8 vikur og 1 dagur til Jóla : ) það þýðir að það eru 6 vikur og 3 dagar í fyrsta prófið og 4 vikur og 5 dagar í síðasta kennsludag :Þ
Vá hvað tíminn líður hratt :)
sábado, 28 de octubre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Minns er bara farinn að hlakka til jólanna *<:o)
Publicar un comentario