viernes, 31 de marzo de 2006

mér dettur aldrei neitt í hug til að setja hérna

Dagur 10 og ég er enn í hollustunni ... Djö. hvað er þetta er boring ! helvítis heilsa endalaust :Þ En hvað segiði, hvað þarf maður að halda sig lengi algjörlega frá nammi til að komast yfir sykurfíknina?? 2 vikur - 3 vikur ??? jú tell mí ! Svo er ég búin að vera ansi dugleg að sprikla í ræktinni :Þ Pallatímar, Kickbox, yoga, Dirty Dancing og Body Shape ... Reyndar mæti ég mest bara í pallatímana og jógað. Ég held að því miður verði ég að hætta að mæta í Kickbox í e-n tíma (kannski bara fram á haust :S). Ég fæ alltaf svo brjálaða verki frá hné og niðrúr bókstaflega :S Beinhimnubólga og svo eitthvað annað ... ég svo sver það að ég er með harðsperrur í iljunum eftir tímann ! En jæja þá mæti ég bara í elsku pallatímana mína, mér finnst þeir líka svo skemmtilegir :Þ Og hey það er ekki eins og maður taki minna á þar, ég fór með púlsmæli í tímann um daginn og á meðan verið var að gera æfingarnar á pallinum þá var púlsinn á mér í 185-190 !!!! Ég vissi ekki einu sinni að hjartað í mér gæti slegið svona hratt ! Hmmm já sá einhver Ungfrú Reykjavík í gær ?? Af hverju í ósköpunum eru þær látnar dansa svona mikið :S !! Þær eru ekki pro dansarar svo þetta verður aldrei neitt sérstaklega flott og þær voru bókstaflega dansandi allan tímann ! Hvað varð um það að LABBA bara framogtilbaka á sviðinu og búið ... maður þarf ekki að sjá þær sveifla sér á nærfötunum :Þ Annars til hamingju Jóna Kristín, glæsilegt að Hafnfirðingur vinni þetta :Þ -Íris out-

jueves, 30 de marzo de 2006

ikke bun

Jæja nú verður víst ekki lengur komist undan því að læra eitthvað :Þ Við eigum að skila ritgerð á mánudaginn og ég er að vinna alla helgina 10 tíma báða dagana svo það verður ekki mikið gert þá ... úff ætli maður verði ekki bara að spýta í lófana og taka til hendinni :Þ Planið í dag var að vakna kl. 7 ... einhvern veginn varð það að 10 :Þ Síðan þá er ég búin að búa til kjúklingasalat og ávaxtasalat svona til að nýta þessi ósköp af ávöxtum og grænmeti sem ég á ! Það er svooooo lítið merkilegt að gerast :S Ég ætla í kickbox á eftir, fór í pallatíma í gær og ég var alveg ógeðslega þreytt eftir tímann og var eiginlega viss um að ég myndi ekki geta hreyft mig í dag en sko mig, ég er bara í fínu lagi :Þ

miércoles, 29 de marzo de 2006

say what?

Nammilaus í viku :D er maður ekki duglegur :Þ Mig vantar virkilega stóra sprautu af einbeitingu, athygli og aga ... ég hef ekki haft mig í að taka upp bók í MARGA daga og ég þarf svo á því að halda að ná að læra þessa dagana :S Mér til mikillar mæðu þá virðist einhver hafa keypt íbúðina fyrir neðan okkur, hún er búin að vera tóm í rúmt ár ... Það þýðir víst að ég verð að hætta að hoppa um á klossunum og grýta dóti í gólfið

lunes, 27 de marzo de 2006

Jón spæjó

Næstsíðasta vikan af skólanum byrjuð :S og mér finnst önnin bara rétt vera farin af stað ! Hvernig fer tíminn að því að líða svona hratt :S Ég er bara nýbyrjuð í spænsku en áður en ég veit af eru báðar annirnar búnar og ég á leiðinni í sálfræðina aftur ... þetta er alveg ótrúlegt. Ég hef afrekað það að mæta ALDREI í fyrirlestrana í einum kúrsinum og 1 sinni í annan og svo held ég að í þeim þriðja þar hafi ég mætt 3 svar :S Svo er ég í einum öðrum kúrs þar sem ég hef nú reynt að mæta sem oftast :Þ Nýjasta æðið hjá mér þessa dagana eru spæjaraleikir þar sem maður á að reyna að leysa glæpi :Þ Það versta er að ég er alveg með eindæmum léleg í þessum leikjum, hef enga þolinmæði og kemst aldrei að réttri niðurstöðu :S eeennnn þetta er samt svo skemmtilegt :Þ Bæ í bili Íris spæjó (ekki spægipylsa samt)

sábado, 25 de marzo de 2006

lífrænt hvað

Össs nammibannsdagur númer 4 og I'm going strong ! :Þ Þið getið ekki ímyndað ykkur hvurslags afrek þetta er fyrir nammibanann mig ! Ég svo sver það að á hverju einasta kvöldi kemur yfir mig þessi brjálaða súkkulaðiþörf og henni fylgir smá rödd sem hvíslar að mér að rölta út í 11-11 og kaupa allt það súkkulaði sem ég hef efni á :Þ en nobb nú er komið nóg :Þ Það þýðir víst lítið að ætla að labba upp á Eyjafjallajökul í lélegu formi og er þá ekki líka lélegt að labba upp á Eyjafjallajökul sem bolla *hummhugsihugs* Það kemur í ljós hversu gott form maður verður kominn í þegar að þessu kemur, vonandi bara sem bestu því annars sé ég fyrir mér að ég verði grenjandi af þreytu alla leiðina upp :Þ Annars eru allir að beila á mér og ætli ég endi ekki á því að fara ein í þessa göngu, eða kannski ekki beint ein, heldur ein með hópnum:Þ Útivistarræktin byrjar 12. apríl og það eru þónokkrar spennandi göngur fram að sumrinu sem maður verður nú að skella sér í, aðrar eru svo minna spennandi eins og t.d. Helgafellið í Hfj sem ég hef gengið á svo skrilljón sinnum og ég hef farið allar leiðir upp og niður þetta fjall, hringinn í kringum það og ég svo sver það að það eina sem ég á eftir er að labba afturábak upp ..en ætli ég geri það :Þ Ef einhverjum langar að rölta með mér á fjöll á miðvikudagskvöldum eftir 12. apríl þá ertu velkomin(n) :D En jæja þar sem ég hætti að borða nammi þá hef ég þurft að spá aðeins í því hvað ég á að borða (því svo virðist sem ég hafi ekkert annað borðað en nammi :S :Þ) Mér finnst alveg undarlega leiðinlegt að útbúa mér mat en ég er nú að reyna að taka á því. Ég er samt svo heppin að eiga kærasta sem að þolir alla mína matardynti (eða hvernig sem maður skrifar það). Ég er nefnilega svolítið erfið í þessum málum og borða svo sannarlega ekki hvað sem er. Á mínu heimili er nefnilega ástandið þannig að þegar það er farið í búð þá verslum við Orra mat og svona dót til heimilisins í Bónus en svo storma ég í Hagkaup til að kaupa mat handa mér :Þ Ég kaupi nánast bara lífrænt ræktaða ávexti og alls kyns hollustugotterí sem mér finnst best :Þ og svo kaupi ég brauðið mitt bara í Bakaríinu í Grímsbæ því hráefnið þar er lífrænt ræktað og ég get fengið ger og sykurlaus brauð :Þ haha ó mæ þið haldið örugglega að ég sé nuts ... já ætli ég sé ekki bara nuts :Þ Mér finnst bara "venjulegur" matur ekkert góður, mamma hefur greinilega vanið mig á alltof hollan mat :Þ Jebb þannig að þannig eru öfgarnar, ef ég er ekki að borða súkkulaði í öll mál, þá er það bara lífrænt ræktaðar mandarínur, lífrænt ræktaða brauð með spægipylsu og osti (sem má reyndar alveg kaupa í Bónus) og te-ið mitt úr Maður lifandi ! Jebb það mætti halda að maður væri milli !

viernes, 24 de marzo de 2006

versta bloggið :Þ

Sykurlaus dagur 3 :) og það er ekkert mál :Þ
Ég er að blogga fyrir hana Rebekku því henni virðist eitthvað leiðast í prófalestrinum :Þ hmmmm hvað hef ég að segja !! Beinhimnubólga er hundleiðinlegur fjandi ! Ég veit ekki af hverju ég fæ þetta alltaf aftur og aftur þegar ég fer að æfa eitthvað af viti ! og svo er svo erfitt að losna við þetta :S Ætli ég verði ekki bara að reyna að taka því rólega í ræktinni, þ.e. mæta bara í jóga og svona rólegari skemmtileg heit þangað til að þetta lagast. Annars erum við Kristín Þóra á leiðinni í Dirty Dancing tíma á eftir :Þ Það gæti orðið fróðlegt en örugglega gaman :Þ haha þetta er eitt versta blogg sem ég hef postað en vonandi skemmtir þetta þér Rebekka mín :Þ

miércoles, 22 de marzo de 2006

Dagur 1 í sykurbanni

Ég er farin í sykurdetox eftir hrikalegan afmælismánuð sem hefur verið stúttfullur af súkkulaðikökum og já súkkulaði ! hmmm og fyrir chocoholic eins og mig þá hefur þetta verið heaven en ég held að nú sé komið nóg :Þ Jebb við tekur vika af fráhvarfseinkennum og baráttu við súkkulaðihliðina mína :Þ Ohhh og ég sver það að sjónvarpið er á móti mér í þessum, í hverjum einasta þætti þá fær einhver sér súkkulaði !!
Jebb við Augustus eigum margt sameiginlegt

martes, 21 de marzo de 2006

ég er komin aftur heim

Jebb ég er komin aftur :D langar að blogga frítt og á eldrefinn minn .... verð víst bara að sætta mig við broskallaleysið :Þ Hvað er málið með fólk sem að stelur úr þvottahúsum? Ég er ekki alveg viss um hversu mikið af fötum hefur verið tekið af okkur en það er nú samt sem áður alveg nóg, tvær uppáhaldspeysurnar hans Orra eru horfnar ! og svo hhmmhmmm nærbuxur af mér *roðn* ætli einhver krakkinn sé að flagga þeim einhvers staðar :Þ Ég er nokkuð viss um að þetta sé ekki einhver hérna úr húsinu, við erum ekki þau einu sem hafa misst föt, veit alla veganna um einn annan því hann setti auglýsingu niðri til að auglýsa eftir þeim, það gætu alveg verið fleiri ég bara hitti aldrei neinn sem að býr hérna .... Þannig að þetta hlýtur þá að vera fólk sem að labbar inn í blokkina og labbar út aftur með föt af okkur ! Það er því miður þannig að sumar hurðar hérna eiga það til að lokast ekki eða að sumir hérna gleyma/nenna ekki að loka þeim :S og þá getur náttúrulega hver sem er valsað hérna um sameignina :S Hvað er málið með Biblíu fallega fólksins ?? og hvað er málið með þennan Gilzeitthvað ! Jesús kristur ef að útlitsdýrkunin er ekki að drepa manninn, sá á eftir að lenda í krísu þegar rassinn á honum fer að síga og typpið skreppur saman :S Annars skrifaði Freyja (linkur hérna hægra megin) fínan pistil um þessa "ágætu" bók fyrir nokkru síðan, hún veit sko hvað hún segir stelpan !
Hvað er málið með fólk sem leggur illa í stæði ??? hehe nei ég nenni sko ekki að koma með þessa ræðu einu sinni enn ... þið vitið hvað mér finnst :Þ

miércoles, 15 de marzo de 2006

flutt, einu sinni enn

Jebb búin að kveðja blogspot alla veganna í bili, mig er núna að finna hér

martes, 14 de marzo de 2006

bloggleiði, bloggleti og mögulegir bloggflutningar

Ég er að reyna að gera upp við mig hvort að ég eigi af hætta að blogga eða kannski færa mig bara eitthvert annað ... Mér finnst svolítið leiðinlegt að geta ekki gert broskalla hérna :S Annars ætti maður kannski bara að hætta þessu, það er lítið merkilegt að gerast þessa dagana og örugglega mun skemmtilegara að blogga þegar maður verður á ferðinni í sumar ... en jæja ég ætla að spá og spekúlera aðeins meira :Þ Ég er búin að opna blogg á 123.is svona til að prófa það er www.123.is/naguara síðan er reyndar læst en lykilorðið er bara brandari if u know me at all ! Fyrir utan þetta þá er lítið að frétta ... mætti 2x í ræktina í dag, fór í pilates í morgun en þessir tímar eru farnir að fara svo í taugarnar á mér að ég labbaði bara út í miðjum tímanum, ég hef verið með eitthvað keis af morgunfýlu :P En jæja eftir þetta þá fór ég út í búð og keypti mér risapoka af Minstrels og ÁT HANN ALLAN !!! ómæ. En jæja restin af deginum leið bara á meðan ég sat í sófanum, lærði, svaf og hékk í tölvunni !! Ég ákvað að þetta væri ekki alveg nógu gott svo ég dró Kristínu (AFTUR) með mér í ræktina og við fórum í Brennslukickbox ! I'm in love !!! Vá þvílíkt púl og ég ætla sko aftur, þetta var æði ! En jæja kveð í bili og spurning hvort ég mæti næst aftur hér eða hinum megin á 123, kemur í ljós

domingo, 12 de marzo de 2006

orðin 22 ára ellikelling

Þá er maður orðinn 22 ára !! Takk fyrir allar kveðjurnar og símtölin :* Rebekka verður nú samt að fá alveg sérstakar þakkir því hún mætti heim til mín með pakka :D :* Ég átti fínan afmælisdag, kúrði heima til hádegis og þurfti þá að fara aðeins upp í skóla að vesenast, eftir það fór ég í bakarí og fékk mér snúð :P Eftir hádegi brunaði ég svo inn í Hafnarfjörð þar sem María var heima veik, hún var búin að gera miniafmælisveislu handa mér og ég fékk að blása á kertin :Þ Seinni partinn kíkti Rebekka svo til mín og við spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar :D Kvöldið var svo bara hið rólegasta, dýrindis matur hjá M+P, kíktum svo aðeins til Pésa og svo þurfti ég að keyra haugfulla drengi niður í bæ ! Ekki það skemmtilegasta þegar það snjóar eins og aldrei áður og ég sá ekkert út um gluggann :Þ Laugardagurinn varð þó eiginlega enn betri, ég fékk svona seinni afmælisdag af því Orri þurfti að vera í skólanum allan föstudaginn og við gátum því ekkert gert saman. Við byrjuðum daginn hjá Maggý ömmu hans og borðuðum þar morgunmat með báðum ömmum hans (sem búa eiginlega bara hlið við hlið :Þ) Svo eyddum við restinni af deginum bara saman, kíktum í Glæsibæ, fengum okkur ís í Álfheimum og fórum svo í Kolaportið ! Ég hef ekki farið í Kolaportið í MÖRG ár og það var bara mjög gaman, keyptum 3 geisladiska og 2 bækur. Önnur bókin var með myndum frá Reykjavík milli 1880-1930 og svo aftur 1985 og mér fannst hún svo flott, það er svo gaman að sjá hvernig Reykjavík hefur breyst. Það voru t.d. myndir af Skólavörðustígnum og Hlemmi frá aldamótunum þarsíðustu og það var alveg magnað að sjá hvernig það var bara EKKERT þarna þar sem þetta er miðbærinn í dag. Um kvöldið fórum við svo í 2x fertugsafmæli í Keflavík, við reyndar stoppuðum ekki lengi af því ég þurfti að mæta í vinnuna í morgun. Svo næstu helgi verður næsta afmæli, ég og Orri ætlum að reyna að fara á hótel þá en það virðist ekki ætla að ganga upp...

jueves, 9 de marzo de 2006

I'm alive :D

Hellúúú já ég er á lífi ! Úff ég skil ekki þessa bloggleti, ég bara hef ekkert merkileg né ómerkilegt að segja :P Þessi vika er búin að líða í skólastressi, harðsperrum og leti ! Ég er rétt svo í dag að losna við harðsperrurnar eftir Esjuferðina miklu síðasta sunnudag :Þ Við komumst hvort sem er örugglega ekkert á Esjuna í bráð aftur, strax á mánudaginn var hún orðin snjóhvít. Í gær átti svo megakrúttbabeið mitt hún G. María afmæli ! Hún er orðin tvítug (núna finnst mér ég vera orðin hryllilega gömul :S Hún á bara að vera 18 ára og ÉG á bara að vera tvítug :Þ) En alla veganna það var heljarinnar veisla í gær heima hjá mömmu og pabba. Til hamingju enn og aftur dúllan mín :D Hún er núna orðin velgræjuð og fjármögnuð fyrir interrailið í sumar :P Hérna er svo mynd af gerpinu í tilefni dagsins (í gær:Þ)
Ég hef annars bara haft það fínt, var allan fyrri hluta vikunnar að djöflast við enn eina leiðindaritgerðina ... en ég er búin að skila henni af mér þannig núna er maður bara að vinna í næsta verkefni sem ég þarf að skila á morgun ... oooooggggg svona fyrir þá sem að þykir vænt um mig þá skuluð þið muna að senda mér hamingjuóskir í síma 8247470 á morgun og svo fyrir þá sem vilja gefa pakka þá vitiði hvar ég bý ;)

lunes, 6 de marzo de 2006

nokkrar myndir

Jæja nokkrar myndir frá föstudeginum af því ég nenni ekki að búa til albúm
Ég og Sigrún á skautum :Þ
Erum við ekki klárar !!
Sylvía
Roberto og Kolla á Rossopomodoro
Sigrún, Sylvía y yo :D á Rossopomodoro

Ganga 101

Jæja gönguárinu 2006 hefur formlega verið startað :D Ég og Orri fórum á Þverfellshornið í gær í geðveiku veðri ! Það var alveg slatti af fólki þarna á ferðinni og bílastæðið nánast fullt ! Það er sko ekkert grín að fara með Orra í fjallgöngu, þetta er bara eins og að vera í bootcamp eða eitthvað, það eru sko ekki teknar neinar pásur til að ná andanum ! og vatnspásur þeim má bara gleyma ! Ég er reyndar búin að finna lausn á því vandamáli :Þ Síðasta sumar þá keypti ég mér snilldar dagspoka, hann er með hólfi inni í pokanum fyrir vatnspoka og svo gat á toppnum til að leiða út slönguna, svo er slangan bara fest við böndin á bakpokanum og þannig getur maður alltaf fengið sér sopa án þess að stoppa :Þ Ég fór að finna fyrir hælsæri þegar við vorum komin svona 2/3 af uppleiðinni, ég skil ekki af hverju en jæja .... ég er samt svo þrjósk að það kom ekki til greina að snúa við svo upp fórum við :Þ En alla veganna þá vorum við sæl og þreytt þegar við komum niður og núna get ég ekki farið í skó og ég er með massívar harðsperrur í lærunum ! það gerist þegar maður skokkar niður Esjuna ! Jæja það verður víst skrópadagur í skólanum í dag :S Ég þarf að fara að vinna kl. 15 og missi því að aukatíma sem er seinnipartinn .... vona bara að ég nái að komast eitthvað áfram með þessa ritgerð sem ég á að skila á miðvikudaginn :S Og annað, djöfull hata ég að gera skattskýrsluna mína ! Hún er nú frekar einföld í ár en þessi íbúðalán og vaxtatekjur og kjaftæði gerir mig alveg crazy ! Ég bara skil ekkert í þessu :S og núna er ég búin að senda mína skýrslu inn og ég er svo hrædd um að hún sé eitthvað vitlaus :S Hasta luego - la negrita

sábado, 4 de marzo de 2006

bloggleiði, skautar, matur og fyllerí !

Ég er haldin bloggleiða ! Ég hef bara haft svo mikið að gera síðustu dagana að ég hef ekki haft tíma til að blogga og ef ég blogga ekki á hverjum degi þá nenni ég þessu varla yfirhöfuð eeeeennn ég ætla að halda smá áfram, sjá hvort blogggleðin komi ekki aftur (3 G í röð !) En alla veganna ég er búin að eiga góða daga :P Á fimmtudaginn var ég svaka dugleg og mætti með Kristínu í pilates kl. 9 :D svo var planið að mæta í próf eftir hádegi en ég áttaði mig á því að ég þyrfti að skila ritgerð eftir minna en viku og ég væri ekki byrjuð svo að stefnan var tekin á Hlöðuna þar sem ég sat straight í 6 tíma og fór í gegnum heimildir og náði að byrja aðeins ! Ég hef ekki setið svona lengi á Hlöðunni í einu alla þessa önnina .... ahh ef ég hugsa um það þá held ég að ég hafi bara ekkert farið á Hlöðuna yfir höfuð alla þessa önn :S Um kvöldið fórum við Orri svo til Maggýjar ömmu hans og fengum æðislegan fiskrétt :P Gærdagurinn var enn betri :P Ég svaf pent yfir mig og missti af 3 tímum :P ákvað að bæta það upp með að skella mér í pallatíma sem ég gerði, ég rölti svo heim eftir pallatímann og ég sver það að þegar ég kom heim þá átti ég ekki eftir eina einustu örðu af orku, ég settist niður og bókstaflega gat ekki hreyft mig eeeenn ég neyddist til þess því við stelpurnar spænsku vorum búnar að plana skautaferð :P Á endanum fórum við bara 3, ég, Sylvía og Sigrún, því Kolla beilaði :P en við 3 sýndum af okkur einstaka skautahæfileika :Þ Um kvöldið var svo farið á Rossopomodoro og borðað með allri spænskudeildinni, svona árshátíðarmáltíð :P ógeðslega góður matur !! Eníhú seinna um kvöldið skelltum við fjórar okkur svo til Sigrúnar og enn seinna um kvöldið skelltu þær skvísurnar sér á ball á Hótel Sögu en ég var beiler og fór heim. Planið var að fara að sofa en það tókst ekki fyrr en um kl. 3 :Þ En alla veganna í alla staði frábær fimmtudagur og föstudagur :Þ Það sem eftir er helginnar bíður mín hinsvegar ekkert nema vinna og lærdómur ... nema kannski að ég og Orri komumst upp á Esjuna á morgun en það er planið svona ef að veður leyfir :D
Jæja chaooooo ---- og aumingja þið sem að komust í gegnum þessa vitleysu sem þessi texti er ...

miércoles, 1 de marzo de 2006

kókómjólk er best

Ég er svo heppin að eiga tvær bestustu systur í heimi :D Þær eru sætastar, æðislegastar og skemmtilegast -- Ekki útaf neinu sérstöku, þær eru bara svona :* Minnsta gerpiElli gerpi
Mið gerpi
En að öðru, mínz vaknaði kl. 5:30 í morgun og skellti sér í pallatíma með Lóu *GEISP* ég er ekki mjög vel samhæfð svona snemma á morgnanna :Þ Svo tókst mér að mæta í tíma en það útaf fyrir sig er stórafrek. Ég er líka loksins búin að taka ákvörðun um þetta blessaða nám mitt og nú er bara að sjá hvort að ég fái ekki leyfi til að taka spænskuna sem aukafag ... það er nú líka eins gott því annars missi ég vitið ! En alla veganna ég er mjög sátt við þetta, er að fara í mest bara skemmtileg fög á næsta ári .... En jæja er að bíða eftir að kallinn komi heim að dekra við mig því hann var búinn að lofa því :D