sábado, 31 de marzo de 2007

Veljum GRÆNT

Í dag sé ég eftir því að hafa flutt úr firðinum því ég myndi endilega vilja geta gefið mitt atkvæði Á MÓTI stækkuninni ! Þetta er stærsta lýti Hafnarfjarðarbæjar og þarf ekkert að verða stærra ... fyrir utan allar hinar GÓÐU ástæðurnar sem þarf varla að endurtaka enn einu sinni - Svo vil ég líka eignast hús akkúrat þarna eftir svona 15 ár þegar ég kem aftur úr námi ;)
Sjáiði bara hvað þetta er flottur staður að búa á ! Ég og Rebekka skelltum okkur upp á Helgafellið áðan :) Ekkert eins gott og að storma upp á fjall með vindinn í fangið ;) Nú er ég bara að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að skella mér í sturtu hérna heima eða hvort að málið sé að fara í sundlaugina og láta þreytuna renna úr sér í pottinum ... Ég á von á svari frá Umhverfisstofnun varðandi landvarðastöðuna í byrjun næstu viku eða strax eftir páska - þá fer loks að komast e-r mynd á sumarið. Eins og mig langar ótrúlega mikið í starfið þá er ég ekkert rosalega bjartsýn þar sem ég gat ekki farið á landvarðanámskeiðið. Ég stefni á að taka það eftir næstu jól. Í næstu viku er leiðinlegasta hátíð ársins - Páskarnir. Mér þykja þeir alveg óþolandi af mörgum ástæðum en þessar ástæður eru helstar
  • Búðir eru lokaðar og ég gleymi því alltaf
  • Staðirnir sem ég æfi á loka líka og ég kemst ekki á æfingu
  • Maður verður að borða súkkulaði og helst mikið af því (sem er náttúrulega einn af kostunum líka ;)) - en páskaegg er súkkulaði á okurverði, ég kaupi mér frekar bara Minstrels !
  • Allt dagsskipulagið fer í rúst
  • Maður fer í svokallað páskafrí en eins og allir háskólanemar vita þá er það dulbúningur fyrir ofurverkefnaviku þar sem maður situr sveittur við að klára allt sem þarf að skila eftir páskana
Ég held að þetta dugi - páskarnir sökka

viernes, 30 de marzo de 2007

Jibbí það eru komin mánaðarmót ! Ísskápurinn var orðinn ansi tómur :Þ
Annars er svo lítið að frétta og segja að ég veit ekki einu sinni af hverju ég er að blogga .... Langar e-n á Bootcamp námskeið? Ég þarf nefnilega að selja námskeiðin sem ég var búin að borga fyrir því ég er of mikill aumingi til að æfa þarna :Þ Beinhimnubólgan gerir bara útaf við mig ... eníhú Vor og blíða - alla veganna í mínum huga, glugginn segir reyndar að það sé rigning úti en hver trúir því Farin í sund

miércoles, 28 de marzo de 2007

Ferðafiðringurinn er alveg að gera út af við mig ! Er með vorkitl í tánum og langar að vera í flugvél á leiðinni eitthvert - hvert sem er ... Öll fjölskyldan mín er líka að plana sína flutninga til útlanda svo ég er bara abbó :Þ Núna er VORIÐ KOMIÐ, ég er alla veganna búin að segja vetrinum upp. GLEÐILEGT SUMAR :)

martes, 27 de marzo de 2007

Úkí - það er eitthvað undarlegt á seiði ... Í dag eru yfir 100 manns búnir að koma hingað inn, í gær komu 150. Alla vikuna er búið að vera að koma hingað inn fleira fólk heldur en venjulega og það skrýtnasta er að ekkert af þessu liði eru Íslendingar ! Ég vil fara aftur niður í mína 20-30 : ) Annars er mest lítið að frétta - rannsóknin okkar Unnar er LOKSINS komin í gang. Hópurinn minn í réttarsálfræði er líka LOKSINS kominn með efni sem hægt er að nota og ég er LOKSINS farin að lesa : ) Fyrir utan það þá var ég að uppgötva nýtt álegg, spægipylsa með kryddrönd er algjörlega málið !

domingo, 25 de marzo de 2007

Annoyed

Í næstu viku þarf ég að gera eitt það leiðinlegasta í heimi - skrá mig í námskeið fyrir næstu önn. Staðan er þannig að súper áhugaverða námskeiðið sem ég ætlaði að taka, klínísk og hugfræðileg taugasálfræði, verður EKKI KENNT ! Ég þarf því að finna bara eitthvað námskeið til að taka í staðinn því ég verð að taka 3 e til viðbótar við BA ritgerðina til að fá námslán : ( og það er ekkert áhugavert í boði :( :( :( Svekkelsi
Ég er að fara að taka BA ritgerðina sem er 8 einingar og ég hafði svo hugsað mér að taka aftur tölfræði I og próffræðina því ég fékk 5,5 í þeim báðum og hækka mig upp. Þessi tvö námskeið gilda ekkert upp í námslánin því ég er búin að taka þau nú þegar ... Þetta er alltaf svo mikið vesen ! Hvað á ég að gera? Möguleiki 1: Taka bara BA ritgerðina og fá mér 50-100% vinnu með og eyðileggja líklegast þannig möguleikana mína á að ná 1. einkunn Möguleiki 2: Verða Wonderwomen og taka BA + námskeiðin tvö og fá mér 50-100% vinnu og eiga algjörlega geðveika 4 mánuði Möguleiki 3: Taka bara eitthvað valnámskeið sem er 3 einingar fá þannig 75% námslán og taka þessi 2 námskeið aftur Held að möguleiki 3 sé sá skynsamlegasti :( Það er mögulega eitt námskeið, taugasálfræði máls, sem ég gæti tekið. Veit samt ekki hvort það skarist um of við hugfræðina sem ég tók í haust ... Takk fyrir að lesa þetta leiðinlega blogg

sábado, 24 de marzo de 2007

27, 26, 25, 24, 23, 22 .....

Það var komið að því og loks gerðist það - hið annarlega (gerist á hverri önn) taugaáfall ...
Mín bíður mannhátt fjall af lesefni, próf, skýrsluskil, rannsóknarvinna, ritgerðarskil, verkefnavinna og fyrirlestur áður en önnin klárast .... Það er bara 27 dagar eftir af þessari önn :| 27 dagar í fyrsta lokaprófið ! Hvert í fjandanum fór tíminn ! -Íris sem verður með nefið ofan í bókunum næsta mánuðinn-

jueves, 22 de marzo de 2007

Sparta

Ég skellti mér í bíó í gær á myndina 300 - Þar sem myndin fjallar um stríðið milli Spartverja og Persa bjóst ég ekki við neinu öðru en blóði og þvælu eins og gengur og gerist í stríðsmyndum - eeeennn neiheihei. Eins og þið sjáið á myndinni hér að ofan eru þetta 300 myndarmenni með þvottabretti og fótboltamannslæri ! Þeir eru alla myndina bara á nærbuxunum og með skikkju að hnykla vöðvana í bardaga ! Total chick flick skal ég segja ykkur :) Og það var ekki verra að myndin sjálf var bara mjög góð :)
Jebb ég er með thing fyrir Spartverjum !

miércoles, 21 de marzo de 2007

Grænt er gott

Nú tekur við það sem mér finnst leiðinlegast í öllum heiminum, AÐ BÍÐA. Ég er semsagt búin að skila inn umsókninni minni til Umhverfisstofnunarinnar og nú þarf ég að bíða eftir að fá af eða á ... Ég er reyndar ekkert ofur bjartsýn en held þó í vonina og krossa fingur : )
Það er reyndar alveg ótrúlegt hvað ég á erfitt með að bíða ! Bíða eftir einkunnum, bíða eftir svari og verst af öllu að bíða eftir fólki - enda tel ég það vera hinn versta galla ef að fólk ber ekki virðingu fyrir tíma annarra.
Ég er að vinna í því að koma endurvinnslumálum heimilisins í gang. Ég var voða dugleg fyrst eftir að við fluttum og tók þá allar mjólkurfernur og dagblöð og svona en þetta tók svo mikið pláss að það datt á endanum upp fyrir. Ég hætti bara að taka dagblöðin upp og henti fernunum. En nú er komið nóg af þessari sóun svo ég er að skipuleggja alla endurvinnsluna og svo þarf ég að fara í IKEA og leita að sniðugum lausnum. Það er mjög sniðugt að maður getur sent tölvupóst á sorpa@sorpa.is og fengið senda heim flokkunartöflu fyrir heimilið. Þá fær maður allar upplýsingar um það hvernig á að flokka ruslið. Ég er komin með þónokkra endurvinnsluflokka fyrir heimilið :Þ

Pappír

Sléttur pappi

Bylgjupappi

Gler

Plast

Málmur

Spilliefni

Rafhlöður

Kertaafgangar

Lyf fara til apótekanna

Gler- og plastflöskur, dósir

Þetta er náttúrulega svolítið margir flokkar svo sumt verður hérna upp í íbúð en annað niðri í geymslu. Ég er allaveganna að stefna að því að endurvinna og endurnýta meirihluta alls sem hefur hingað til farið í tunnuna. Ég ætla líka að stefna að því að endurnota meira og kíkja sem oftast í Góða Hirðinn þegar mig vantar eitthvað á heimilið - eldavélin okkar er þaðan, kostaði 8þús kall og virkar eins og gull : )

Ég get ekki ákveðið mig hvort ég eigi að læra eða taka til svo ég er hvorugt búin að gera - held að það væri bara ágætt að taka 20 mín tiltektarskorpu og fara svo í b(r)ækurnar

martes, 20 de marzo de 2007

litla Gunna og litli Jón

Það er nú meiri letin í gangi hjá mér í dag - Ég þarf að gera svo margt og ég er að vinna í því að standa upp frá tölvunni og fara af stað en áður en ég geri það ætla ég að henda inn einu örbloggi :)
  • Í dag ætla ég að sendast með umsóknina mína til Umhverfisstofnunarinnar :) svo það kemur líklegast fljótlega í ljós hvort ég verði ferðaskrifstofumær í sumar eða úberlandvörður :Þ Sama hvað verður þá ætla ég að reyna að kreista inn tíma til að fara til Vzla í nokkrar vikur.
  • Áður en ég get gert það þarf ég að fara inn í Hafnarfjörð og sækja meðmælin mín frá Sunnu og fara upp í skóla til að prenta út umsóknina (á ekki blek hérna heima : /)
  • Ég þarf líka í dag að fara á bókasafnið og skila bókum sem ég er búin að vera með í láni í 2 mánuði - framlengdi þó fyrir mánuði síðan þannig ég skulda ekki nema einn dag
  • Ég skellti mér í sund í gær þrátt fyrir að sundcrewið mitt hefði algjörlega beilað ! Hmm synti heilar 12 ferðir á lúsarhraða og fór svo bara í pottinn því vöðvarnir mínir ætluðu svo sannarlega ekki að taka þátt í svona vitleysu og heimtuðu hvíld :Þ
  • Megahunkið mitt átti afmæli í gær og ég vil þakka fyrir afmæliskveðjurnar :* : )
Jæja nú ætla ég að hendast af stað - taka kannski smá chill á bókasafninu og glugga í Lifandi vísindi fyrst ég hafði ekki tíma til þess á afmælisdaginn minn (það var nefnilega eiginlega orðin hefð :Þ) Eru ekki allir búnir að skila skattaskýrslunni sinni ;) síðasti dagur á morgun ;) Svo vil ég endilega hvetja þá sem eiga blogg sem ég les til að fara að blogga ! Mig sárvantar lesefni :Þ Thank U and Goodbye

lunes, 19 de marzo de 2007

1. göngublogg ársins 2007: Vilborgarkelda - Djúpidalur

Rétt rúmlega 10 komu mamma, pabbi og María og sóttu mig og förinni var haldið á BSÍ. Alls mættu 50 manns í göngu svo rútan var alveg full. Ákveðið var vegna veðurs að ganga gönguna í öfuga átt svo við myndum ekki vera með vindinn í fangið svo keyrt var í áttina að Þingvöllum. Gangan var semsagt yfir Mosfellsheiðina.
Kl 11:30 var svo byrjað að ganga. Hérna erum við alveg í byrjun fyrir utan rútuna: Mamma, María, ég og Pabbi Veðrið var á mörkunum að vera gönguhæft. Það var vindur upp á 10-15 m/s sem blés á okkur allan tíma frá hægri, stanslaus skafrenningur og svona 5 stiga frost sem varð að fimbulkulda í rokinu. Við gengum í 8 tíma í snjó sem náði oftast upp fyrir miðja kálfa, mjög oft var snjórinn dýpri og annað slagið vorum við svo heppin að geta gengið á harðfenni þannig að maður sökk ekki niður en það voru alltaf bara svona 3 skref í einu : / ! Til að gera þetta sem auðveldast var gengið í halarófu og fremst fór fólkið sem var á gönguskíðum (those lucky bastards) og eftir komu þau sem tróðu leiðina.
Þetta var án efa erfiðasta ganga sem ég hef farið í ! og allt við aðstæðurnar spilaði saman í að gera þetta sem erfiðast. Þarna fannst okkur við vera komin rosalangt, litum svo við og þá sáum við veginn þar sem við byrjuðum ekki svo langt frá : ) Gönguhraðinn var líka ansi lítill þarna í byrjun, fórum 3 km á 2 klst. Venjulega í svona færð hefðu 3 km á klst verið gott.
Allt vatn sem var hægra megin í pokunum fraus. Þær flöskur sem við gátum drukkið úr, þar fraus vatnið bara við það eitt að maður fékk sér sopa svo það myndaðist klakabrynja inn í flöskunni og stútnum. Vindurinn var svo kaldur og maður reyndi að hlífa andlitinu sem mest (það var það eina sem var ekki alveg hulið) en þegar vindurinn blés í augun á manni og maður táraðist þá frusu tárin á augnhárunum ! Ég var með vatnspoka í bakpokanum og slöngu út úr honum sem maður getur svo drukkið úr, vatnið í slöngunni var orðið gegnfrosið rétt eftir að við lögðum af stað !
Þarna er ég lengst til vinstri, pabbi og María. Þarna eins og alla ferðina stöndum við með rokið í bakið en það er ekki að sjá á myndinni. Eins og þið sjáið var fólk ekki mikið að láta skína í bert hold :Þ
Þetta var þó gott tækifæri til að prófa allan búnaðinn og ég var mjög ánægð með hann allan ! Það eina sem mig hefði vantað við þessar aðstæður voru algjörlega vindheldar lúffur því þó ég væri í göngufingravettlingum og hnausþykkum tvöföldum flíslúffum þá blés samt í gegn og mann verkjaða í fingurgómana því þeir voru svo kaldir.
Jibbí loksins komin inn á Kóngsveginn en það var leiðin sem var verið að ganga.
Að ganga 8 klst. í snjó er erfitt. Að ganga 8 klst. í djúpum snjó er mjög erfitt. Maður þurfti allan tímann að horfa niður til að sjá hvar maður átti að stíga næst. Svo reyndi maður að stíga alltaf í sömu spor og manneskjan á undan manni því sá snjór var mest þjappaður. Ég held ég þekki núna betur legghlífarnar hjá fólkinu sem var í ferðinni frekar en andlitin á þeim ! Þetta var það sem maður sá mest allan tímann - HVÍTT
Þetta er eins og að vera einn í heiminum Loksins mynd sem sýnir skilyrðin eins og þau voru
Eftir að við vorum búin að ganga í svona rúma 6 klst. var maður aðeins farin að þreytast og farið að langa eftir rútunni. Eftir það gengum við í 2 klst. í viðbót. Þá komumst við að því að rútan gat ekki komið og sótt okkur þar sem hún átti að vera svo við þurftum að labba á móti henni. Ég held að þessi síðasti spölur hafi verið það langerfiðasta, hvert einasta skref tók á og vindurinn var svo sterkur að maður átti erfitt með að halda sér á veginum. Ég fauk tvisvar útaf !
Viltu te? Síðasta matarpásan og það var svo hrikalega kalt. Þarna í bakgrunninn sést Esjan : )
Það var mikil gleði að sjá loks rútuna. Ég er sólbrennd eftir endurkastið af snjónum en alveg ótrúlega lítið þreytt í skrokknum miðað við hvað þetta tók mikið á. Eftir að hafa gengið úti í svona veðri þá skil ég hvernig fólk getur orðið úti ! Maður heldur engum áttum, það eru engin kennileiti og í svona kulda þá er erfitt að hugsa skýrt.
Síðasti spölurinn þar sem við gengum veginn
Myndirnar sýna engann veginn veðurskilyrðin, þegar ég kíkti á þær þá fannst mér bara líta út fyrir að ég hefði eytt gærdeginum í sól og logni :Þ En svona til að taka þetta saman þá voru gengnir 20 km á 8 klst og 20 mínútum : ) Enginn gafst upp en ein kona þurfti þó að snúa við nánast strax í byrjun eftir að hafa fengið sykurfall, ég held að hún hafi verið sótt af sjúkrabíl. Eins og fararstjórarnir sögðu eftir ferðina að fyrst maður komst í gegnum þetta þá erum við formi til að fara í hvaða göngu sem er : )

helgin

Mikið hrikalega líða helgarnar alltaf hratt ! Reyndar líður vikan öll alveg ótrúlega hratt !
Ég átti mjög góða og skemmtilega helgi :) Á föstudagskvöldið skelltum við María okkur á Tapasbarinn :) Við ákváðum í staðinn fyrir að kaupa afmælisgjöf handa hvor annarri að þá myndum við bara bjóða hvor annarri út að borða ;) Við fengum svo góðan mat, humarveislu, kjúkling, snigla, kartöflusalat og kengúrukjöt :Þ Ég á alveg pottþétt eftir að fara þangað aftur ! Laugardagurinn byrjaði á brunch-i hjá Maggý eins og alltaf. Svö hörkuðum við Unnur okkur upp í skóla og kláruðum að búa til spurningalistana og allt sem vantaði upp á rannsóknarverkefnið okkar. Næst tók svo við 2 klst tilhöfun ;) því mín var að fara á árshátíð :Þ Árshátíðin var stórskemmtileg og ég fékk bestu súkkulaðiköku EVER ! Gærdagurinn var svo eiginlega bara svo rosalegur að ég ætla að koma með sér blogg um hann um leið og ég er búin að fá myndavélina mína aftur (sem verður á eftir). Ég, María og mamma og pabbi fórum í göngu með Útivist - 20 km takk fyrir ! Annars er bara kominn enn einn mánudagurinn en hann er þó ekkert eðlilegur því að draumaprinsinn minn á afmæli :D Tuttuguogþriggjaára hvorki meira né minna ! Því miður eru mánudagar ekkert sérstaklega hentugir til að fagna svo við gerum kannski e-ð aðeins seinna :Þ ChAo

viernes, 16 de marzo de 2007

Superfly

12 tíma heilsusálfræðiritgerðarmaraþoninu er alveg að ljúka og því miður er ég ekki að klára í fyrsta sæti heldur e-s staðar lengst lengst aftast - Crap ! Mig grunaði ekki að þetta yrði svona mikið vesen, bjóst við að heimildavinnan yrði bara ljúf en hún er það víst aldrei : / Common eru bara ekki gerðar neinar rannsóknir á heilbrigðu fólki ! Ég er alla veganna búin að tala helling um það í ritgerðinni hvaða áhrif hreyfing hefur á heilsu sjúkra svo það verður bara að duga : / : | Ég var að uppgötva það mér til mikillar gleði að þessi margumtalaða árshátíð verður bara hérna nánast við húsdyrnar hjá mér - Það er svona svipað langt að labba í salinn eins og fara á Hlemm :Þ High 5 fyrir því að spara leigubílinn og high 5 fyrir því að geta labbað full heim til mín ! ; ) Ég er búin að sitja svo lengi yfir ritgerðinni að orð hafa misst merkingu sína - ég get ekki lengur lesið textann en hann er svo langt frá því að vera tilbúinn :S Skil í fyrramálið kl. 8:20 takk fyrir ! Kannski að maður fái smá frest og fái að skila eftir hádegið, þá getur maður að minnsta kosti lesið yfir þetta, fengið enn stærri hnút í magann þegar ég sé hvað þetta er ferlegt og verið svo komin með vænt taugáfall þegar ég skilað ... Sounds like a plan : ) Jæja ég er nú reyndar bara að blogga til að drepa tímann - ég er svo góð að ég samþykkti að sækja kallinn inn í Hafnarfjörð kl. 1 *geisp* Skemmtilegar upplýsingar: ég þoli ekki Times New Roman ! GN

miércoles, 14 de marzo de 2007

Cindy og Ég

Þá erum við búin að halda fjölskylduafmælisboðið - ótrúlegt hvað komast margir fyrir í litlu íbúðinni með smá tilfærslum og tiltekt
Voðalega verður maður líka þreyttur af því að halda boð ! Ég er algjörlega uppgefin ! Það gæti þó verið eftir sundið - Við María erum sko búnar að spíta í lófana (eða er það spýta?) og erum núna að synda 1250m, planið er að hækka þetta svo upp í 1500m. Morgundagurinn verður undirlagður ritgerðarskrifum þar sem ég þarf að hrista eina 5-10 blaðsíðna heilsusálfræðiritgerð fram úr erminni :) Það tókst svo vel í síðustu viku að þetta hlýtur að ganga líka á morgun :Þ Maður er byrjaður í heilsubreytingarverkefninu í heilsusálfræðinni og það er útskýringin á öllu sundinu :Þ Svo lofaði ég líka að mæta 2-3 í viku í jóga og jafnvel henda inn einni fjallgöngu líka ! Svo þorir maður ekki annað en að gera þetta allt saman því annars þarf maður líklegast að játa syndir sínar fyrir öllum hópnum :Þ Svo var maður ekki búin að segja hvað maður er alltaf fjári heppinn :Þ Í búið er búið (haha) að bætast við sjónvarp og bíll :Þ Fengum þetta fína oldschool sjónvarp frá frænda hans Orra, gamla okkar var svo bilað, gult öðrum megin og blátt hinum megin og svo þetta hátíðniískur sem gat látið hvern sem er missa vitið. Bíllinn kemur frá Maggý ömmu hans Orra, hún var að kaupa sér nýjann :) Þessi fína Nissan Sunny a.k.a Sóley - Svo ég er með þennan fína Hyundai Accent á sölu :D Gæðabíll, fer fyrir slikk og ég mun sjá eftir honum :'( Svona ef einhvern vantar bíl þá er hann nýbúinn að vera á verkstæði og var útskrifaður með því að það væri EKKERT að honum :Þ Mér finnst nú reyndar að Orri ætti að halda númerinu enda passar það svo vel :) Brumminn á hringferðinni 2005 ;) Jæja nóg af bílum Það er árshátíð á laugardaginn eins og ég var búin að minnast á. Ég ætla í þessum fína og flotta, svarta, vel flegna kjól og hvað haldiði ! Ég, í fyrsta skipti á ævinni, er með bólu á BRINGUNNI ! Hún er reyndar voða lítið en SAMT ! Amma hans Orra var svo góð að gefa mér nýja Cindy Crawford sturtusápu ! Ætla að hella henni í ljóta dollu áður en ég tek hana með mér næst í sund :Þ Mér dettur ekki meira í hug til að skrifa nema ER EKKI AÐ FARA AÐ KOMA SUMAR - hvað er málið með marssnjóinn ! Ég er ekki sátt, ég vil komast í opna skó og upp á fjöll !

martes, 13 de marzo de 2007

Ég hef týnt og tapað ótrúlega mörgum hlutum síðustu vikurnar og það er undarlega er allt sem ég hef týnt varanlega hefur horfið þegar ég fer í sund ! Fyrst var náttúrulega buddan góða með símanum og kortunum. Næst fór ég í sund og gleymdi sjampóinu og hárnæringunni og það var e-r búin að taka það þegar ég leitaði næst þegar ég kom. Rándýrt úr Lush : / Svo í gær þá tók sig einhver til og rótaði í handklæðinu mínu og STAL hárnæringunni minni og sturtusápunni ! en var svo góð að skilja nánast tóma sjampóbrúsann eftir ! Djö !! Hvað er að fólki - hver stelur svona dóti ! Sturtusápuna fékk ég í afmælisgjöf, Cindy Crawford, með svo æðislegri lykt ! Ég ætla rétt að vona að karma muni bíta þessa í rassinn ! Það er semsagt kominn tími á verslunarferð í LUSH þar sem allt sem ég keypti síðast hefur bókstaflega horfið úr höndunum á mér ... Annars er nóg að gera þessa vikuna ! Skólinn gefur manni engann grið og fyrir utan það er búið að plana margt og mikið. Kaffihúsaferðir, afmælisboð í litlu íbúðinni okkar, ég er að fara á Tapasbarinn á föstudaginn með minni heittelskuðu Maríu ; ) og eftir það er ætlar hennar heittelskaði að mæta á Hlemm og það verður kannski tekið smá Catan - Á laugardagskvöldið er svo árshátíð Kögunar :D Ég er svo með fingur krossaða og vonast til að komast í göngu á sunnudaginn (ef að þynnkan verður ekki í heimsókn ) Hvernig er það annars þegar maður fer á svona alvöru árshátíð þarf maður ekki að vera SÚPER fínn og sætur ? Er málið greiðsla og förðun eða ég bara að vera svona au natural með krullurnar út í loftið og maskarann á lofti? Svona í lokin vil ég minna á KIVA og það góða starf sem fer fram þar. Ég er núna að styrkja 9 verkefni og þau eru öll að borga til baka á tíma. Fyrsta verkefnið sem ég tók þátt í er búið og ég fékk það endurborgað mánuðum fyrir áætlun : ) Þetta er svo einfalt mál : ) -ÍÓ-

domingo, 11 de marzo de 2007

23 ára - farin að leita að gráu hárunum

Ég átti frábæran afmælisdag í gær þó að veðrið hafi komið í veg fyrir upphaflega planið mitt :) Í staðinn fyrir fjallgöngu var bara tekið innanbæjarrölt, í staðinn fyrir gömlu laugina í Hveragerði þá var bara farið í Vesturbæjarlaugina og í staðinn fyrir að fara á Við fjöruborðið á Stokkseyri þá var bara farið á Þrjá Frakka : )
Svo vil ég bara þakka þessum aragrúa sem sendi mér afmæliskveðju : * Hehe smá vandamál að með gemsanum fór náttúrulega öll símaskráin mín þannig að ég veit ekki alveg hverjir allir voru :Þ En takk :D Dagurinn í dag hefur verið mikill rólegheita og leti dagur. Ég ætlaði í 18 km langa göngu ! en veðrið var ekki að leyfa það - Í staðinn var bara annar kózíheitadagur hjá okkur Orra - Við skelltum okkur á Tækni og Vit sýninguna, svo fórum við aðeins á Súfistann í Hafnarfirði, heimsókn til tengdó og svo var farið á American Style því ég var með alveg stórfurðulega þörf fyrir hamborgara ! Siríus

sábado, 10 de marzo de 2007

Jammli í dag Jammli í dag Jammli Jammli Jammli í dag : )
Hádegisbrunch, fjallganga, sundferð og svo út að borða :) Þannig ætla ég að eyða deginum Chao

jueves, 8 de marzo de 2007

8. mars

Í dag á mín gullfallega og frábæra systir afmæli :) Skvísan er orðin hvorki meira né minna 21 árs ! Í mínum huga verður hún þó aldrei eldri en 18 ára (af því ég held að ég verði alltaf tvítug)
Til hamingju með daginn sæta : )

miércoles, 7 de marzo de 2007

Koma svo - framlag einstaklingsins SKIPTIR MÁLI

Þetta ár er að fara frá manni á ofurhraða ! Áramótin eru nýbúin og ég á núna afmæli eftir 3 daga og María sætapæ á afmæli bara á morgun ! Mér finnst alltaf eins og við eigum 3 daga afmæli, það hefst á afmælinu hennar Maríu og lýkur á mínu Ég er reyndar að spá í að lengja þetta í 11 daga afmælishátíð því Orri á nú afmæli 19. mars þannig ég hlýt að geta teygt afmælið mitt alveg að því Þessi crazy vika er núna hálfnuð, búin með umræðutímann og hann gekk svona ljómandi vel og við fengum mikið hrós fyrir að vinna okkar vinnu vel :D sem er bara gaman. Svo var próf í morgun í skynjunni : / Það á eftir að koma í ljós hversu vel það gekk, en allt yfir 3,5 er betra en síðast
Nú þarf ég bara að fá andann yfir mig og hrista svo mikið sem eina ritgerð fram úr erminni þar sem henni þarf að skila á morgun :O Það ætti nú ekki að vera neitt svo erfitt, ég er byrjuð og er búin að lesa yfir allar heimildir og er svona með þetta í kollinum, hef bara ekki komið þessu á blað enn sem komið er :) Svo fyrir föstudaginn þarf ég að búa til hegðunarlýsingu á e-i hegðun sem ég vil breyta hjá sjálfri mér. Mjög skemmtilegt og hagnýtt verkefni sem tengist heilsusálfræðinni beint :) En þetta er verkefni sem tekur mánuð og inni í því eru 6 skil - semsagt nóg að gera :) Við Orri tókum okkur til í gær og rifum fram hjólin okkar. Þau þurftu bæði að fara í viðgerð svo við brunuðum með þau upp á höfða og þau ættu að vera reddí í dag :D Kominn tími til að maður geri eitthvað sjálfur persónulega til að vinna á móti gróðurhúsaáhrifunum. Mæli með því að allir sem ekki hafa séð An Inconvinient Truth með Al Gore horfi á þá mynd ! Hugarfarsbreytingin verður bara hjá hverjum og einum og það verða allir að taka sig á og hugsa um framtíðina. Verum partur af lausninni en ekki vandamálinu ! Svo um leið og ég fæ smá öndunarrými frá skólanum ætla ég í IKEA og finna e-r lausnir varðandi endurvinnslu. Plássið hérna heima er svona af skornum skammti En ég er viss um að ég geti fundið þægilega lausn þannig að við getum flokkað ruslið á heimilinu. Við vorum að fá nýjan fjölskyldumeðlim, Simbað sjónvarp heitir hann. Gamla sjónvarpið mitt er búið að vera í andarslitrunum undanfarin 3 ár Það kemur frá því eitthvað hátíðniískur sem lagast stundum ef maður lemur almennilega í það og eins og það sé ekki nóg þá er liturinn á skjánum þannig að hægra megin er hann gulur en vinstra megin blár Simbað sjónvarp eða Simbi imbi eins og það er líka kallað krefst allsherjar breytingar á stofunni því það er ekki hægt að koma því fyrir þar sem gamla sjónvarpið er. Það er svo ótrúlegt að við höfum ekki keypt okkur nein húsgögn frá því við fluttum, hmm nema kannski skrifborðsstóla (höfum keypt 4 svoleiðis ) og við vorum svo heppin að fá þetta sjónvarp gefins, þetta er gamalt frá frænda hans Orra. Svo vil ég endilega minna á Kiva : ) Við erum núna með 10 verkefni í gangi sem við erum að fá greidd til baka. Eitt verkefni sem var það fyrsta sem við styrktum er búið og við búin að fá endurgreitt, endurgreiðslan var svo bara notuð beint í að hjálpa næsta Mann munar svo lítið um þetta. Ég læt 25$ í hvert verkefni og styrki 2 verkefni á mánuði sem eru semsagt 50$ =3400 ikr á mánuði ! Svo fær maður peninginn til baka og ræður þá hvort þú notar hann beint til að styrkja aftur eða tekur hann bara út og færð hann aftur. Ég er aftur orðinn stoltur farsímaeigandi, þessi síma er (vonandi) skammtímalausn Muniði ekki eftir gamla góða Nokia 3210 ;) Það var hún Kristín sem lumaði á þessum gamla. Ég er með sama númerið en ég er núna búin að missa öll númer sem voru á gamla símanum og eins og kom fram e-n tímann hérna þá mundi ég ekki einu sinni mitt eigið heimasímanúmer : / Jæja miðað við lengdina á þessu bloggi þá er skrifandinn greinilega í húsinu þannig að það er eins gott að nýta hann í ritgerðina :Þ Siríus út

lunes, 5 de marzo de 2007

Haha nei þetta er nú bara einum of ... How do you like Iceland You are just a rækjusalat .... I'm from Reykjavík, Iceland, the best country in the world and I'm hrokagikkur muhahahahaha

domingo, 4 de marzo de 2007

XanaX

Ég held ég hafi bara lært yfir mig síðustu vikuna því frá deginum sem við komum aftur hef ég varla haft í mér eirð til að setjast niður og læra. Ég hefði nú frekar átt að sleppa yfirlýsingum í gær um að nú væri sko vorið komið af því ég á afmæli eftir bara viku (ég á sko afmæli að vori til). Þegar ég svo leit út um gluggann í morgun og sá snjóinn þá var ég nú bara sár. Hann er þó farinn aftur og nú býð ég bara eftir grænu laufi og sólarljósi *ofurbjartsýn*
Næsta vika er síðan alveg pökkuð frá mánudagsmorgni til sunnudagskvölds. Það verður bara gaman en mér verður þó létt á föstudaginn þegar ég verð búin að skila af mér og flytja og taka öll verkefni, próf og ritgerðir vikunnar. Næsta laugardag fæ ég svo vonandi bara kósýdag með Orra. Mig langar mest að glíma við e-ð nýtt fjall en það þarf víst að fara eftir veðri :Þ Á sunnudaginn ætla ég þó í fína göngu, Sandakravegur, með Útivist. Hún er ansi löng, 17-18 km, en hækkunin er ekki nema 100 metrar svo þetta ætti að vera ekkert nema gaman : ) Ég held að mamma ætli með, vonandi María líka og svo ef fleiri hafa áhuga þá eru allir velkomnir með : ) Ætli maður verði ekki að halda áfram með lærdóminn, mín bíða 4 greinar um áhrif svefns á námsárangur. Siríus kveður

sábado, 3 de marzo de 2007

HomeSweetHome

Jæja þá er ég komin heim eftir tæpa viku í Húsafelli. Kristín og Andri voru með okkur um helgina og það var alveg stórskemmtilegt. Virku dagarnir fóru svo í maraþonlestur rétt með pásum til að skella sér í göngur og í pottinn. Ég vona að ég fái tækifæri til að fara þarna seinna að vor/sumar/hausti til skólabókalaus og þá ætla ég að storma á öll fínu göngufjöllin þarna í nágrenninu. Ég bókstaflega sat og las frá því ég vaknaði þanga til ég fór að sofa. Steinsvaf svo flestar nætur í 9+ tíma algjörlega búin á því (samt eyddi maður dögunum sitjandi f. framan tölvuna). Síðan ég kom heim hef ég bara verið í vinnunni og verð það alveg þar til kl. 20 annað kvöld. Ég þarf svo sárnauðsynlega á því að halda að vera að læra því næsta vika er örugglega sú mest busy á allri þessari önn en ég er bara ekki með eirðina í mér til að læra : / svo er húsið fullt af fólki og það er alltaf einhver hérna sem ég þarf að sinna :S (hmmm nema núna og ég er að nota tímann í að blogga :|) Eins og ég virðist alltaf gera þegar ég hef mikið að gera þá missi ég mig í sumarfrísplanleggingum :Þ Ég er búin að vera að bíða eftir svari frá fjölskyldunni minni í Vzla til að fá að vita hvort ég geti verið þar allt sumarið en þar sem þau eru ekkert að drífa sig í því að svara þá býst ég við að þetta sé ekki að ganga upp - Þannig nú er ég kannski bara búin að taka 180° snúning á þetta. - nýjasta hugmyndin er að sækja um sem landvörður :Þ Það má reyna, líkurnar eru held ég samt ekki miklar á að fá starfið, í fyrra sóttu 60 manns um 30 stöður : / Og þeir sem eru búnir að fara á landvarðanámkskeið (sem kostar btw 75. þús og verður held ég, ekki haldið í ár) og þeir sem hafa unnið áður ganga fyrir .... Það hefur samt lengi verið draumur að vinna sem landvörður og ég myndi helst vilja vera sem lengst upp á hálendinu eða e-s staðar afskekkt :Þ Einhvers staðar á Laugaveginum Annars vil ég bara minna mína nærstöddustu á að ég á afmæli eftir VIKU : ) Er í vinnunni, þarf að byrja að læra