martes, 31 de enero de 2006

hvað á ég að gera?? e-r tillögur?

Hvað á ég að gera við líf mitt?? !!! stór spurning og ég einfaldlega finn ekki svarið við henni. Önnur spurning sem ég á líka erfitt með að svara er hvað á ég að gera næsta haust?? Valmöguleikarnir sem ég hef eru:
  • Fara aftur í sálfræði
  • Halda áfram í spænsku
  • Fara í ferðamálafræði
  • Læra eitthvað allt annað
  • Taka mér pásu frá HÍ
Ég er sífellt að reyna að vega og meta kostina og gallana við hvern valmöguleika en ég bara kemst ekki að niðurstöðu.
  1. Ef ég fer fer aftur í sálfræði þarf ég að harka mér í gegnum frekar leiðinlegt BA nám sem er með miklar kröfur, mikið að gera, ömurlegar lágar einkunnir og leiðinlegan móral.
  2. Ef ég held áfram í spænsku er ég áfram í námi sem ég hef áhuga á en mér finnst ekkert sérstaklega krefjandi. Hvað á ég svo sem að gera við BA í spænsku? Kenna :S
  3. Hmm ferðamálafræði, það yrði eitthvað alveg nýtt en enn sem komið er þá eru enginn góð, vellaunuð störf í boði fyrir fólk með þessa menntun. Gæti verið skemmtilegt.
  4. Úfff hvað ætti það eiginlega að vera, ég er búin með 2 ár af þessum 5 hjá LÍN svo ég gæti alveg byrjað á nýju námi en vá ÉG NENNI ÞVÍ EKKI, mig langar ekki að fara á 1. ár í 3. skipti :S
  5. Fara ekki í nám í haust :S ooooggg gera hvað VINNA? hljómar ekki spennandi heldur.
Ég auglýsi eftir völu sem að sér framtíðina og getur mögulega sagt mér hvað í fjandanum ég á að gera !
-Íris hinn spænskumælandi ferðamálasálfræðingur-

lunes, 30 de enero de 2006

mmmm svoooo hreint

Jei loksins komin ný vika og ég er ekki lengur veik :D hmmmm en ég mætti samt ekki í skólann í morgun :P *roðn* Það kom upp í mér ofurstress vegna fyrirlesturs sem við Kolla áttum að flytja og mér fannst ekki vera alveg nógu góður. Mér fannst voða góð hugmynd að mæta bara ekkert í dag og gera hann betur og flytja hann svo á miðvikudaginn. Kolla hinsvegar ákvað að vera dugleg og mæta samt í tímann og segja kennaranum bara að við gætum ekki flutt hann af því ég væri veik ..... Aumingjans Kolla var látin flytja hann ein :S :Þ Ég ætla rétt að vona að ég þurfi ekki að gera nýjann og flytja seinna :S Ég er að læra hérna heima en það gengur ekkert rosalega vel. Það er allt í RÚST ! Eldhúsið er eins og eftir kjarnorkusprengju, það er EKKERT leirtau hreint og ekki hægt að leggja neitt frá sér því það er drasl ALLS STAÐAR ! Ekki er restin af heimilinu skárri, þvottakarfan er svo full að það eru óhrein föt út um alla íbúð ! Svo hefur ekki verið keypt í matinn í lengri tíma svo ísskápurinn er tómur. Ég þurfti að borða peru í morgunmat ! :Þ
Áðan skrapp ég út í 11-11 til að finna mér eitthvað að borða, langaði ekki í aðra peru, og þegar ég kom aftur tók á móti mér þessi yndislega stybba :( Þannig ég sit heima hjá mér á fjallhárri ruslahrúgu umlukin úldnunarstybbu sem kemur líklegast af óhreinu diskunum : O mmmm það er yndislegt líf að vera fluttur að heiman ;) P.S Myndirnar eru ekki frá mér :P heldur frá íbúð fólks sem vann keppnina 2002 Messiest Apartment :Þ Var að spá í að taka myndir af minni og skrá okkur í ár :Þ
Annars stendur þetta allt til bóta, við höfum mælt okkur mót hérna heima uppvaskarinn og þvottakonan kl. 18:00 og áætluð verklok eru kl. 19:30. Þá get ég vonandi borðað kvöldmat í hreingerningarlykt og af hreinum disk :Þ Reyndar verður kvöldmaturinn örugglega bara pera af því það hefur enginn tíma til að kaupa í matinn í dag :S

domingo, 29 de enero de 2006

plís plís plís :Þ

Það er varla að ég þori að segja þetta svona til að jinxa þessu ekki eeeennn ég held að ég sé bara loksins að hressast :D Reyndar er ég alla veganna tvisvar áður búin að hressast og haldið að þetta væri búið en helvítið þá bara verið að hvíla sig eitthvað EN núna held ég að þetta sé komið :Þ Mmmmm ég hlakka til að fara í skólann, ÆFA, sofa á nóttunni og geta borðað það sem ég vil :Þ
Jebb hef ekkert meira að segja í bili

sábado, 28 de enero de 2006

ég þoli ekki þessa helvítis titla !

Jibbíjei ég er í vinnunni :D Af hverju er það jibbíjei? Jú af því ég hef varla komist út úr húsi í næstum 2 vikur :S nema til að kíkja til doksa eða fara neyðarferðir í búðina eða eitthvað :S
Eeenn ég er reyndar ekkert hressari þó ég sé í vinnunni, ég þakka bara verkjalyfjum heimsins fyrir það að ég geti mætt í vinnuna svo að ég þurfi ekki líka að koma undan þessum mánuði skítblönk :S Það er nóg að vera búin að missa af skólanum nánast frá byrjun !
En að björtu hliðunum þá hef ég haft tíma til að hangsa alveg endalaust, ótrúlegt hvað maður fær fljótt leið á því þegar maður getur ekkert annað gert Ég er alveg up to date í öllum uppáhalds þáttunum mínum og er meira segja búin að horfa á fyrstu 5 þættina af nýjustu 24 seríunni Jack Bauer alltaf jafn hot ;)
Ég hef líka borðað ansi mikið súkkulaði, það nefnilega bráðnar svo vel í munninum ;) þá þarf maður ekki að tyggja
Hmmm jæja en það er víst próf hjá mér á fimmtudaginn :S í fagi þar sem ég hef ekki einu sinni opnað bókina og hvað þá mætt í tíma :S úff spænsk málfræði *hrollur* Ég held bara að þetta veikindatímabil mitt hafi dregið allan áhuga á skólanum úr mér :S Það er eins gott að hann komi aftur : /

viernes, 27 de enero de 2006

ennþá allt í crappi

Maður hefur ekki mikið að segja þegar maður hengur heima hjá sér allan daginn :S Ég er árangurslaust búin að reyna að fá tíma hjá HNE lækni í dag en svo virðist sem hálft Ísland sé að fara svo það er ekki séns :( Djöfull er ég orðin þreytt á þessu :(

miércoles, 25 de enero de 2006

allt í crappi

Já frábært ég er komin með aðra eyrnabólgu :( Miðeyrnabólgan farin og núna er ég með eyrnabólgu í eyrnagöngunum. Þetta er að gera útaf við mig :( Verkjalyfin virðast ekkert virka lengur, ég get ekki tuggið, hlustað, kyngt eða neitt ! Ég er komin á meðal númer 3 og það virðist bara ekki virka baun :'( Ohh ég er svo svekkt og þreytt :( Varð bara að fá að pústa smá, vonandi fer þetta að lagast.

Eyrnabólga suckar :(

Ég held að ég setji persónulega nýtt læknamet í dag :S Á þessum sólarhring hef ég talað við hjúkrunarfræðing (kl. 4 í nótt), lækni sem ég átti símatíma hjá (kl. 9:30), fékk svo tíma hjá þessum sama lækni kl. 11 og svo er ég að fara til enn annars læknis sem er HNE læknir kl. 13:20 *GEISP* Svo á ég reyndar líka pantaðann annan tíma hjá lækni kl. 15 en ég ætla að afbóka hann. Það eina sem mig langaði að gera í dag var að mæta í yoga og komast í skólann ! Ég hef aldrei þurft að éta eins mikið af verkjatöflum í einu eins og í nótt og þær virkuðu ekki einu sinni .... Þannig í dag verður dýr læknadagur en vonandi VONANDI að það gerist eitthvað af viti svo að ég fari nú að hressast :S -Íris out- sendið mér eyrnabólguviðlosandistrauma

martes, 24 de enero de 2006

Það hlýtur að koma að þessu !

Ég er af kynslóð sem þekkir ekkert annað en líf með tölvum, ég er af internetkynslóðinni ! Ég þekki ekki annað en að fara í hraðbanka til að taka út, nota kort í staðinn fyrir peninga, borga reikninga í gegnum heimabanka, senda email í staðinn fyrir bréf í pósti, nota msn til að vera í sambandi við þá sem ég þekki, fæ allar upplýsingar úr skólanum á Uglunni, þekki varla lengur það að skrifa heldur er allt pikkað inn á lappann og ég nota netið til að krækja mér í allar þær upplýsingar sem mig gæti mögulega vantað.... já það má segja að líf mitt sé ansi tæknilegt :Þ En einhverra hluta vegna þá þarf ég að stela til að fá önnur svipuð þægindi sem í dag ættu að vera sjálfsögð. Hvers vegna tóku framleiðendur kvikmynda, tónlistar og sjónvarpsþátta ekki þátt í þessari byltingu? Af hverju berjast þau á móti tækninni og sætta sig við að fólk vill fá auðveldan aðgang að þessu efni eins og öðru í dag? Tónlistarframleiðendur hafa af þessum þremur gert mest og náð lengst. Sú þjónusta að geta keypt lög á netinu, stök eða heilu diskana var bylting. Ég vil ekki kaupa geisladiska ! Ég hef ekkert við þá að gera því ég hlusta á tónlist í Ipodnum, þannig að augljóslega tek ég þessa þjónustu fram yfir það að rölta í Skífuna. Kvikmyndaframleiðendur eru kannski í smá basli ! Hvað eiga þeir að gera þegar myndirnar leka á netið á sama tíma og þær koma í sýningu í bíóum? Fyrir mína parta held ég að besta lausnin væri bara að bjóða upp á þær á netinu á sama tíma og þær koma í bíó. Verðið gæti verið svipað og að leigja spólu og þá gæti maður valið um það að fara út og kíkja í bíó eða kúra á sófanum heima og horfa á sömu myndina. Ég efast um að bíóin færu á hausinn vegna þessa, fólk vill alltaf fara í bíó af því það er bara meiri upplifun heldur en að sjá myndina í litlum skjá heima. Reyndar gæti þetta gert útaf við vídeóleigurnar en HEY hver á hvort sem er vídeó og það má bara breyta þeim í sjoppur :Þ Leiðinlegast þykir mér að sjónvarpsþáttaframleiðendur virðast alls ekki vera að grípa bylgjuna. Ég er svo heppin (óheppin) að búa á Íslandi þar sem þættir koma í sýningu mörgum mánuðum eftir að þeir eru sýndir úti. Þegar þeir eru svo sýndir þá þarf ég að þola auglýsingar á kortersfresti. Svo eru myndgæðin í sjónvarpinu bara ekki eins og góð eins og þegar maður horfir á tölvuskjá. Hmmmm hvort ætli ég sæki þáttinn á netið, horfi á hann án auglýsinga á tölvuskjá sem gerir myndina algjörlega skýra eða horfi á hann á crappy sjónvarpinu og þarf að hlusta á dömubinda- og bankaáróður á 15 mínútnafresti ! Valið fyrir mér er algjörlega augljóst en þjónustan er ekki fyrir hendi, ég get ekki keypt mér aðgang að þessum þáttum í gegnum netið. Ég væri til í að borga eitthvað ákveðið verð fyrir þáttinn eða ákveðna upphæð fyrir seríu og geta einfaldlega downloadað þættinum um leið og hann er sýndur úti. Ég held líka að það þurfi einfaldlega að ala næstu kynslóð upp í því að kaupa þetta efni á netinu. Þeim mistókst einfaldlega með okkar kynslóð, þeir bara tóku ekki við sér. Mögulega væri hægt að hafa þetta til að byrja með alveg fáránlega ódýrt svona til að fá fólk til að venjast því að borga og hækka það svo smám saman upp í sanngjarnt verð. En það sem er pottþétt í þessu er að til að fólk hætti að stela þessu efni þá þurfa þessir framleiðendur einfaldlega að stíga inn í nútímann og koma til móts við þær kröfur sem fólk gerir í dag. Ég vil horfa á það sem mér finnst skemmtilegt, þegar ég hef tíma og ég vil eiga auðveldan aðgang að því efni. Það hentar mér einfaldlega ekki að líta í sjónvarpsdagskrána og sitja heima svo að ég geti séð það sem að mig langar til að horfa á. -heyr heyr- ps. Friends var bara plat .... því miður.

lunes, 23 de enero de 2006

jamm

Góðar fréttir fyrir Friendsaðdáendur eins og mig „Vinir” snúa aftur
ahhh the good old times
Farin að læra :D

domingo, 22 de enero de 2006

stalker motherfu*ker

Í gegnum tíðina hef ég þónokkrum sinnum lent í því að eiga smá stalker :S Enginn þeirra verið neitt sérstaklega scary en guð minn almáttugur hver öðrum hallærislegari ! Ég virðist bara vera svolítið freakmagnet :Þ
Ég held að þeir fyrstu hafi verið e-r strákar úr sérdeildinni í Öldó sem að hringdu heim til mín á öllum tímum, ég talaði aldrei við þá og þá fóru þeir bara að spyrja eftir öðrum fjölskyldumeðlimum mínum !
Annar var strákur sem var með mér í skóla í Vzla, hann mætti einn daginn og sýndi mér stoltur hvernig hann hafði skorið nafnið mitt í handlegginn á sér ! hmm ég reyndi pent að segja honum að svona væri hann ekki líklegur til að ná hylli kvenna en það virðist ekki hafa hjálpað neitt :Þ
Sá nýjasti (en er samt gamall) er strákur sem ég hitti í svona 3-4 daga á ferðalagi um Venezuela ! Var sem sagt frændi fjölskyldunnar sem ég fékk að vera hjá á þessu ferðalagi. Hann er búinn að vera að stalkera mig í gegnum msn síðan ég kom heim, biðja mig um giftast sér og flytja til Parísar og allan fjandann, var búinn að ákveða hvað við ættum að eignast mörg börn saman :S Hef ekki viljað henda honum út út af því að hann er frændi þessa fólks en ó men :Þ Hann eignaðist svo kærustu og hefur nú látið mig í friði í lengri tíma en svo var ég að tala við hann áðan og hann tilkynnti mér það að kærastan hans væri afbrýðissöm út í mig ! Ég hugsaði nú bara WHAT hvernig er það hægt ..... Nei nei segist gæinn þá ekki bara vera með risaspjald í herberginu sínu BARA MEÐ MYNDUM AF MÉR ! *hrrooollluuurr* ég veit ekki hvar hann hefur fengið myndir af mér því ég man ekki eftir að hann hafi einu sinni átt myndavél :S
Já sætt ekki satt :Þ Annars var ég alveg hryllilega andvaka í nótt, fór upp í rúm kl. 23 og steinsofnaði en vaknaði svo kl. 2 af því að einhver hringdi :S og ég gat ekki sofnað aftur fyrr en kl. 5 : / þannig að núna held ég mér varla vakandi *geisp* er að vinna til 14 og þá ætla ég beint upp úr rúm að sofa !

sábado, 21 de enero de 2006

vá vá vá ég trúi þessu varla

Vá sumarið orðið raunverulegara ! Við erum búnar að panta miða út til Köben 12. júní og svo miða heim frá London 28.júlí :D Bara geðveikt :Þ og svo Lonely Planet bókin í gær og ég sæki hana á mánudaginn :D

viernes, 20 de enero de 2006

Enn einn veikindadagurinn í þessari viku

Ég var að koma frá doksa og ég er með eyrnabólgu :S Ætli kvefpestin sem ég var með hafi ekki komið henni svo svakalega af stað, mér er nefnilega búið að vera illt í eyranu frá því á áramótunum en ekki svona SVAKALEGA ! Ég verð að segja að ég er komin með nýjann skilning á því af hverju lítil börn gráta svona mikið þegar þau eru með eyrnabólgu, þetta er alveg ótrúlega sárt ! ég set þetta á sama stall og túrverkirnir sem ég fæ, sem ég hef BTW heyrt frá konum sem eru með þetta sama og hafa eignast börn, að séu verri en hríðir ! En jæja ég er búin að troða í mig verka- og sýklalyfjum og planið er að skríða upp í rúm um leið og þetta kikkar inn því ég svaf í svona 3 tíma og lá svo frá kl. 4 í nótt til 10 algjörlega að brjálast af því ég vildi ekki taka verkjatöflu áður en ég færi til læknisins svo ég gæti sagt honum hvar mér væri illt. Svo þegar ég vakna á eftir þá ætla ég að BORÐA sem hefur verið lúxus síðustu daga af því þetta leiðir svo í kjálkann og ég get varla opnað munninn :Þ Haha æ þetta er meira ástandið á manni en góðu fréttirnar eru þær að sýklalyfin eiga víst að virka fljótt á þetta !
-Íris sjúklingakjúklingur-

jueves, 19 de enero de 2006

gemsatíðindi

Ég fékk mér nýjann gemsa í dag :D Ákvað loksins að taka mark á öllu fólkinu sem sagðist ekki geta talað við mig í símann fyrir dósahljóði og skruðningum, var sko alveg viss um að þeirra símar væri bara bilaðir :Þ En þegar 3 sögðu þetta sama bara í gær þá fór ég að spá og já síminn minn er ónýtur :S Mjög leiðinlegt af því ég alveg dýrkaði elsku dömubindasímann :Þ Hann nefnilega blikkaði alltaf svo snilldarlegu bláu ljósu þegar það voru missed calles :Þ
En jæja þetta er nýji gripurinn :D Ekkert aukadrasl á honum, er bara alveg eins og ég vil hafa gemsa :Þ Hann er líka minni og léttari en sá gamli svo ætli ég taki hann ekki í sátt fljótlega :) Hann er líka mörgum kostum búin, ég á bara eftir að sjá þá :Þ

miércoles, 18 de enero de 2006

á mér ekkert líf !

hmmm til marks um hversu mikið mér hefur leiðst síðustu dagana þá er þetta bloggfærsla númer 5 á 2 dögum !! Mig langar í Gmail !! Hvernig fæ ég svoleiðis ?? Og svo vann ég Orra áðan í pool :D Reyndar spiluðum við 5 leiki og ég vann bara 1 en hey það var rosalegt af því að mér tókst að hreinsa allar kúlurnar mínar í einum leik eða hvað sem maður kallar það :Þ Svo ossalega klár ! :D Hmm ég sá auglýsingu á Sirkus fyrir Ný andlit 2006 --- Hvaða fólk er þetta eiginlega !!! Brynja Björk, Gilzenegger, Partý Hans !!! Ég held að íslenskri sjónvarpsmenningu fari hratt hrakandi en annars veit ég það ekki af því ég horfi aldrei á það :S Hmm já þetta er allt það merkilega sem hefur gerst frá því ÁÐAN, úff ég kemst í skólann á morgunn, þetta er að gera útaf við mig ! :Þ

hús þe nörd

Jæja mín er loksins farin að hressast :D það er ekki eins gaman og maður heldur að hanga heima í 3 daga og gera ekkert nema horfa á þætti og myndir og hanga á netinu ..... eeeennnn úff ég er komin með nóg !! Mig langar ÚT, í SKÓLANN, YOGA og RÆKTINA !! Annars hef ég uppgötvað margt merkilegt og skemmtilegt þessa daga sem ég hef eingöngu setið í sófanum: ég lærði að búa til könnun !! Svo þið verðið skooo að svara henni, það tók mig nefnilega langann tíma að átta mig á þessu :Þ Ég er líka búin að skoða flug út um allan heim og plana hellings utanlandsferðir (sem bæði verða farnar og ekki :S) Svo enduruppgötvaði ég gamlan gleðigjafa (nörd) þetta er sko landafræðileikur sem stytti mér stundir þegar ég var að vinna upp í Leifsstöð :Þ ofurnördalegur landafræðileikur :Þ

martes, 17 de enero de 2006

ný könnun :P

Henti óvart fyrstu könnunninni svo hérna er ný :Þ (eru í alvörunni svona mörg N í orðinu könnun??!!??)

KJÓSA KJÓSA

Jei í leiðindum mínum fann ég út hvernig ég get sett skoðanakönnun inn svo kjósið nú !!

veikindablogg :P

Jæja ég er í ögn meira bloggskapi í dag en í gær :Þ Sit heima, enn veik og ég svo sver það að ég er svo kvefuð að ég heyri verr en vanalega ! :O Ég er mjög léleg í að dunda mér heima þegar ég get ekkert annað gert :Þ eins og mér finnst nú venjulega ágætt að hanga ein hérna heima hjá mér þá er ég bara að deyja úr leiðindum Ég ætlaði nú reyndar í skólann í morgun eeeenn þegar ég vaknaði og leit út um gluggann þá hætti ég við, valkostirnir sem ég hafði voru að annað hvort fara út í ískuldann og moka bílinn út úr stæðinu eða taka strætó og labba síðan smá spöl, leist ekki vel á hvorugan valmöguleikann svo ég bara svaf :Þ En það var kannski bara eins gott því Orri fór svo í skólann seinna um morguninn, fór á bílnum, það voru enginn stæði laus upp í skóla og svo festist hann og missti af tímanum :Þ Já stundum sökkar lífið smá Þar sem að mér leiðist svo mikið þessa dagana þá eyði ég mestum tíma mínum í að hlakka til sumarsins :Þ Það er svona komin skýr mynd á hvernig þetta verður og ferðaplanið hljómar núna einhvern veginn svona: 13. júní fljúgum við út til Köben, 15. júní byrjum við Interrailið sem stendur til 15.júlí. 15. júlí endum við í Brighton alveg syðst á Englandi þar sem mamma og pabbi verða með hús og við verðum þar með þeim til 24. júlí. Þá förum við til London og verðum þar í svona 4 daga áður en við fljúgum heim alveg í lok júlí :Þ Hljómar þetta ekki yndislega :D ég bara get ekki beðið eftir því að komast aðeins burt :Þ Jæja ég ætla að hætta að lifa í dagdraumum og athuga hvort ég meiki ekki að lesa smá um sögu Azteka

lunes, 16 de enero de 2006

ÉG HATA KVEF, blogga á morgun

domingo, 15 de enero de 2006

hún ammli í dag :*

Ég fæ alveg grænar af því að þurfa að fara inn á blog.central síðuna mína, þessa gömlu. Ég er núna að reyna að ná í gömlu færslurnar þar til að geta einfaldlega geymt þær í wordskjali á tölvunni minni eeeennnn nei þetta er bara ekkert að ganga. Fyrst þá gat ég ekki signað mig inn til að fá færslurnar bara þar, fæ alltaf upp að ég sé ekki með rétt lykilorð. Ég er búin að gera 3 tilraunir til að fá þá til að senda mér nýtt lykilorð en það kemur bara aldrei !!! Svo frétti ég af annarri aðferð en þá setur maður bara endingu á nafnið á síðunni og getur þannig farið aftur um síður, eeeenn ég kemst ekki lengra en á síðu 4 og þar stoppar allt !!! Úff anda inn anda út ! Í þokkabót get ég ekki spurt á hjálparsíðunni af því ég get ekki signað mig inn og ég veit ekkert hvert annað ég get sent þetta til að fá hjálp !! Grrrr blog.central ! Annars er ég bara að drepast úr eirðarleysi þessa dagana, öll þessi ferðaplön láta mig bara fá fiðring í tærnar og mig langar eitthvert út NÚNA ! Mér líður alltaf svooo vel á ferðalagi, smitaðist af ólæknanlegu eintaki af ferðabakteríunni þegar ég fór út til Venezuela ! En þrátt fyrir þetta þá hef ég ekki farið af klakanum í næstum 3 ár !! Síðast þegar ég fór út var það um páskana 2003 þegar ég var að heimsækja Per !! Ég lofaði sjálfri mér úti í Venezuela að áður en ég færi í annað svona útlandaævintýri þá myndi ég kynnast og sjá Ísland og ég hef núna staðið við það: sumarið 2003 var steingeitaðist ég upp á öll þau fjöll sem mér datt í hug að klífa hérna í kringum höfuðborgarsvæðið, sumarið 2004 keypti ég mér íbúð svo það var ekki mikið í boði að fara neitt út og svo sumarið 2005 fór Orri í aðgerð svo ég varð að vinna en við fórum svo seinna um sumarið hringinn og þar með uppfyllti ég loforðið :D Þannig að nú er kominn tími til að ég sletti úr klaufunum fyrir utan landsteinanna !! :Þ ooogggg ég get ekki beðið ! Þannig nú er bara að spara og spara :S því maður er nú enginn milli, og njóta svo næsta sumars í botn :Þ Eníhú, ein besta manneskjan í þessum heimi, MAMMA, á afmæli í dag. Til hamingju með daginn :* Takk fyrir að vera góð mamma, vinkona og frábær fjallgöngufélagi :*

sábado, 14 de enero de 2006

snjórail

Ég elska snjó en samt bara í hófi. Mér fannst ósköp kósý að fara út í gærmorgun og nánast grafa bílinn minn undir snjófarginu sem hafði lagst á hann yfir nóttina, alveg hreinn hvítur fallegur snjór og svo finnst mér líka svo gaman að keyra í snjó af því að maður er bara eins og á skautum (sem er náttúrulega líka ókostur :Þ) Eeeenn svo líður dagurinn og snjórinn verður að slabbi og slabb þoli ég ekki. Bílarnir keyra framhjá manni og henda yfir mann gusu af drulluslabbi og svo þarf maður að labba í þessu sulli. Þannig ég vil semsagt bara hafa hvítann nýfallinn snjó og ég vil að það rigni svo til að hann fari bara en verði ekki að vibbaslabbi sem að skemmir skóna mína og skilur mig eftir blauta í fæturna ! Jæja 5 mánuðir í Interrail og ég er farin að hugsa um hverju ég á að pakka, það sem ég er komin með eru spilastokkur, sólarvörn og hælsærisplástrar :Þ

viernes, 13 de enero de 2006

lazy people

*Geisp geisp* ég hef varla sofið síðustu 2 nætur og er alveg afskaplega syfjuð núna :O :) Gat heldur ekkert bloggað í gær því að blogspot var með stæla en nóg um það. Ég er búin að fara hamförum í líkamsræktinni, mætti tvisvar í jóga í vikunni, einu sinni að lyfta og svo prufaði ég líka Pilates. Eftir allt þetta uppskar ég auðvitað mikla strengi og í dag get ég varla hugsað mér að hreyfa legg né lið svo ég tek pásu á ræktinni í dag :Þ Fyrsta vikan í skólanum er búin og mér líst bara svona ágætlega á þetta, held jafnvel að önnin verði rólegari en síðast :Þ Ég nenni ekki að blogga og er því að blogga um ekki neitt - en alla veganna þá vil ég segja letingjunum að svara þessari síðustu bloggfærslu minni (letingjarnir eru t.d. Selma, María, Kolla og Sylvía svona til að nefna einhverja :Þ) Kveð í bili Íris hin þreytta

miércoles, 11 de enero de 2006

Ég um Mig frá Mér til Mín

Hmm hver er ekki hrifinn af mér !! kemur í ljós. Til tilbreytingar þá ætla ég ekki að skrifa heldur þú hver sem þú ert :Þ
1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

Undirskriftalisti

Langaði að benda á þessa undirskrifasöfnun í ljósi nýskeðra atburða og fleiri mannorðsmorða sem að DV hefur átt þátt í.

martes, 10 de enero de 2006

Er ferðamálafræði svarið?

Ég held ég hafi fengið uppljóstrun áðan (segir maður það ekki annars :P) Ég held að ég sé loksins komin með hugmynd um það hvað ég vil gera við líf mitt og hvað ég ætla að læra og svarið er FERÐAMÁLAFRÆÐI :D !! Ég vinn nú þegar í ferðaþjónustu og finnst það æði, ég er með bullandi ferðasýki sem virðist vera ólæknandi, ég tala nú þegar spænsku sem kemur sér vel :Þ og svo var þetta líka það sem ég var að stefna að með spænskunáminu :D Þannig að ég tek 30e í spænsku sem ég klára í vor og svo þessar 60e sem eru í ferðamálafræðinni og voilá ég verð ferðamálafræðingur Mig reyndar grunar og ég veit það reyndar fyrir víst að launin hjá þessari stétt eru kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir en hey það er ekki eins og ég sé á leiðinni að verða milli með annað hvort spænskumenntun þar sem maður endar líklegast sem kennari :S eða sálfræðingur sem vinnur hjá ríkinu eða við gagnagreiningu :S Þannig þetta er bara allt í lagi og svo er náttúrulega aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni :)

lunes, 9 de enero de 2006

Húsmóðir á Hlemmi í Heilt ár

Ég gleymdi alveg að minnast á það í morgun að í dag er ár frá því við Orrum fluttum inn saman og ár frá því ég stakk af að heiman :D Það tók svo langann tíma fyrir okkur að komast inn í íbúðina einfaldlega vegna tímaleysis, við fengum hana nefnilega afhenta 15. september en þá var skólinn kominn á fullt skrið og ég í prófum flesta laugardaga svo það gekk mmmjjjöööggg seint að mála og gera allt tilbúið :Þ Við fengum náttúrulega heilmikla hjálp frá svo mörgum, Foreldrar okkar beggja hjálpuðu okkur mikið og Maggý amma hans Orra var algjört gull eins og alltaf og var galvösk hérna í íbúðinni með okkur að mála og þrífa :D Andri, Kristín og Óli eiga líka marga kossa og knús skilið fyrir að hafa nennt að hjálpa okkur með allt sem þurfti að gera :D Það er ekki slæmt að vera húsmóðir á Hlemmi (mamma kom með þetta nafn :Þ) Það er bókstaflega öll þjónusta og allt sem maður getur ímyndað sér hérna í næsta nágrenni en ég verð þó að viðurkenna að stundum sakna ég my beloved Hafnarfjörður ... CSI er byrjað svo það verður engin meiri vella frá mér, ég vildi bara segja takk þið öll sem að hjálpuðuð okkur að gera þetta að veruleika, við erum búin að eiga yndislegt ár hérna :D

sLeEpInG bEaUtY

Djöfull er mér KALT !! Ég er ekki að trúa því að það sé svona kalt úti, held frekar að hitastillirinn í mér hafi eitthvað skekkst í morgun af því brrrrr ég er algjörlega að frjósa ! Well fyrsti skóladagurinn eftir jól *geisp* bíllinn er rafmagnslaus svo í dag er strætó bara málið ! Spáiði það kostar okkur Orra 1000 kall af fara í og úr skólanum í dag ! 1000 KALL !! og ef ég kaupi miða þá kostar það 800 kall !! Já strætó er raunhæfur kostur :S En fyrst að ég er komin að málum sem krefjast mikillar peningaeyðslu þá spáiði í þessu .... Bækurnar fyrir mig og Orra þessa önnina kostar 60þús kall ! Orra 40 þús og mínar 20 þús. Það mætti halda að bækurnar hans Orra væru allar gullni slegnar :S En þar með tæmist ferðasjóðurinn minn sem ég var aðeins búin að ná að safna í :S Orri er hættur að vinna á Háspennu svo hann verður bara að vera heima að vinna næsta sumar á meðan ég og María ætlum að skella okkur á Interrail :D En ferðasjóðurinn minn verður samt varla aumari en hann er í dag, stendur eiginlega á núlli :( svona er að vera í skóla. Ef að það verða samt engin frekari áföll fram að sumri þá ætti þetta nú að reddast. Svo nú er bara að krossa puttana og vona að bíllinn bili ekki (allaveganna ekki meira en hann er bilaður núna) :Þ *geisp* mér tókst að fara á fætur kl.8 í morgun ! sem er afrek miðað við það að í gær þá þurfti ég að fara á fætur kl. 11 og ætlaði varla að geta það :Þ Ég hélt nefnilega að ég ætti að mæta í tíma kl. 9:40 en hey mér til mikillar "gleði" þá er tíminn ekki fyrr en 11:05 svo ég hef hangið á netinu í allan morgun *geisp* hmm ætli ég fari ekki bara að skella mér af stað, kíki kannski á bóksöluna og kaupi eitthvað af þessum gullbókum fyrir önnina ! :D

sábado, 7 de enero de 2006

eyrasmeyra

Á einhver hérna töfraráð við verk í eyra. Mamma er búin að segja mér að setja hvítlaukrif í eyrað en það hljómar bara spúkí :Þ Ég er alveg að brjálast, mikið rosalega getur verið óþægilegt að vera illt í eyranu, það verður bara óþægilegt að hlusta og hey því miður þá getur maður ekki bara hætt að hlusta með öðru eyranum af því manni er illt !! Voðalega er maður vanþróaður
Eníhú þá er síðasta einkunnin komin í hús :D 7,5 í Ritþjálfun :D Þannig að ég er með 7,5 í meðaleinkunn fyrir þessa önn :D Orri er líka búinn að fá sínar og það þarf ekki að spyrja að því hann stendur sig alltaf frábærlega !!
Skólinn byrjar eftir 2 daga og mér líst bara ágætlega á þá kúrsa sem ég er að fara í. Ég reyndar get ekki með nokkru móti ákveðið hvort að ég eigi að taka fíluna eða fara í einhvern kúrs í sálfræði. Ef ég tek fíluna (sem er skylda fyrir BA í spænsku) þá verð ég með 18 einingar en ef ég tek sálfræðikúrs þá verða það brjálaðar 20 einingar. Ég óska semsagt eftir ákvarðanamaskínu sem gæti hjálpað mér að ákveða hvort að málið verður SPÆNSKA eða SÁLFRÆÐI !! Úff ætli ég endi ekki bara á því að fara ekkert í skóla næsta haust og kannski skelli mér bara út í heim ! Aldrei að vita ;)
Jæja þarf að fara að vinna :D

viernes, 6 de enero de 2006

06.01.06

Jæja nýr og betri dagur :Þ Ég fór ekki að sofa í nótt fyrr en að ganga 5 svo það varð ekki mikið úr þessum degi hjá mér :Þ en æ stundum er bara fínt að kúra uppi í rúmi :D Það eru bara 3 dagar í að skólinn byrji, jólafríið hefur alveg flogið frá mér ! Ég er samt búin að ná að vinna mér inn smá pening þannig að 1. febrúar ætti að vera góður dagur :D Eins og svo oft áður þá stefni ég að mikilli betrumbót, hún er eiginlega farin að vera mjööööggg þörf. Ég einhvern veginn hlunkaðist í gegnum síðustu önn og núna langar mig að lifa aðeins reglusamara lífi u know mæta í tíma og svona til tilbreytingar !! og eyða kannski smá tíma á Hlöðunni við að læra !! svo náttúrulega líka krækja mér í smá sjálfsaga bæði til að drösla mér á fætur á morgnanna og svo líka til að mæta smá í ræktina :Þ En það kemur í ljós hvort að mitt nýja og betra líf hefjist á mánudaginn ;) Ég er enn að bíða eftir síðustu einkunninni !! ótrúlegt hvað það getur tekið langann tíma að fara yfir nokkur próf !! Maður fyrirgaf það svosem alveg í sálfræðinni þar sem voru yfir 100 með manni í kúrsi en núna erum við bara rétt 30 oft og allir hinir kennararnir hafa bara tekið sér svona rúmlega viku svoooo nú er mín orðin óþolinmóð :Þ Jæja ég er víst í vinnunni og ætla að sýna smá lit :D

jueves, 5 de enero de 2006

ein svolítið ein

Ég held ég þurfi bara að flytja út í sveit !! Frá því ég kom heim er ég búin að vera pirruð, uppstökk og útúrtjúnuð af stressi ... það er varla búandi með mér :S Úff og skólinn er ekki einu sinni byrjaður !! Ég held ég þurfi bara að kaupa mér hús einhvers staðar á Djúpavogi, skilja tölvuna eftir í bænum og vera svo bara þar ! já og fá mér hund því ég er ekki mjög mannvæn í svona skapi... Ein mynd frá betri tímum. Sætar á áramótum :D Íris sem mun pipra ef að henni tekst ekki að verða borgarstelpa á ný :Þ

martes, 3 de enero de 2006

Back in to time

Er ekki kominn tími á að taka smá reflection á árið sem er liðið .... Ansi viðburðaríkt verð ég að segja :D Ég flutti að heiman 9. janúar með hjartað í buxunum af því ég var viss um að þetta væri nú allt voða flókið þið vitið að þvo þvottinn sinn sjálfur og kaupa í matinn en hey ekkert mál :D Ég kláraði 1. árið í sálfræði (með einu falli sem ég bjargaði svo með glæstu sumarprófi). Ég og Orri fórum í hringferð um Ísland (æðislega gaman :D). Ég fékk vinnu sem ég elska (eftir að vera búin að vinna á 3 öðrum stöðum áður á árinu). Ég hætti í sálfræði og fór í spænsku og mér finnst það æði og svo í lok þessa árs náðum við Orri því að vera búin að vera saman í 3 ár !!
Ég er ekki mikil áramótaheitamanneskja því ég stend hvort sem er aldrei við svona heit einhver :Þ Ef ég ætlaði mér að setja mér einhver heit þá væru þau einhvern veginn svona: léttast um 10 kíló, standa mig betur í skólanum, vera agaðari, eyða minni pening, vera duglegari að hitta fólk, taka ákvarðanir án þess að skipta um skoðun 10 sinnum ..... en glætan að ég nenni þessu öllu svo ég set enginn heit þá þarf ég ekki að hafa samviskubit yfir að efna þau ekki :Þ
Í staðinn vil ég bara leggja línurnar fyrir árið sem er runnið upp, þessar línur mínar eru mátulega óskýrar sem hentar mér vel :Þ Það sem ég ætla að gera er: Klára fyrsta árið í spænsku, fara á Interrail næsta sumar og vera úti í svona 6-8 vikur og reyna að ákveða hvað ég ætla að gera næsta haust :D
Kveð í bili - Íris sem er aðeins að komast aftur inn í tækniöldina og er hætt að verða hissa þegar það birtast takkar á skjánum þegar hún ýttir á takkana á lyklaborðinu :D

lunes, 2 de enero de 2006

komin í siðmenninguna

Jæja ég er komin heim eftir 11 daga dekur og yndisleg heit. Þetta voru æðisleg jól í alla staði :D Ég er orðin ansi fráhverf tölvunni minni eftir þessa löngu fráveru, ég kann varla lengur að pikka á lyklaborðið svo ég ætla ekki að hafa þetta langt :Þ Núna tekur bara við vinna hjá mér fram til 9. jan þegar skólinn byrjar aftur ! maður þarf víst að meika smá monní til að komast á þetta blessaða interrail næsta sumar !!!