Ég veit að það pirrar sig enginn á þessu nema ÉG en af hverju geta kennararnir ekki verið búnir að setja kennsluáætlanirnar inn á Ugluna ÁÐUR en skólinn byrjar !!! Þá gæti maður, ef maður er súperskynsamur, unnið sér í haginn eða bara verið a.m.k. búin að kíkja aðeins yfir það efni sem á að fara yfir þessa önnina .... Jahhh og svo er fólk eins og ég sem vill setja kennsluáætlanirnar upp í
MindMap
Piparpirr
jueves, 31 de agosto de 2006
martes, 29 de agosto de 2006
fyrir forvitna
Ég viðurkenni að ...
- ég er hrikalega skipulögð á sumum sviðum
- ég týni miðum sem mér eru réttir með det samme (Guðrún María veit vel af því :Þ)
- ég elska að drekka vatn
- ég þoli ekki hávaða
- ég þarf að eiga þrjú eintök af lyklum af íbúðinni því oftast eru tveir týndir
- ég þoli ekki Idolið
- ég týni gleraugunum mínum oft á dag
- ég get ekki sofið ef ég skulda nokkra þúsundkalla og sé ekki fram á að geta borgað þá strax daginn eftir
- ég borða suma daga meira af súkkulaði heldur en mat
- ég fer á bókasafnið og les Lifandi Vísindi þegar ég vil fá frið frá umheiminum
- ég vildi óska þess að ég gæti keypt uppáhaldsmatinn minn tilbúinn út í búð svo ég þyrfti aldrei að elda
- ég myndi örugglega ráða einhvern til að þrífa LITLU íbúðina mína ef ég væri ekki svona viss um að allir myndu hlægja að mér (og svo skammast ég mín smá ;))
- ég á það til að gefa fólki/stofnunum pening þótt ég hafi ekki efni á því bara af því ég vorkenni svo þeim sem eiga bágt
- ég þoli ekki að fá sendan rusl/keðjupóst sérstaklega þann sem endar með því að segja að ég deyi innan nokkurra klst ef ég sendi hann ekki áfram
- ég á örugglega eftir að gráta í nokkra daga þegar María flytur til Sverge eftir áramótin !
- ég á eftir að gráta aðra nokkra daga þegar mamma, pabbi og Eydís yfirgefa mig næsta sumar
- ég er annaðhvort hundlöt eða rosa virk, virðist vera lítið um millivegi hjá mér
- ég þoli ekki að snúa við þegar ég er í fjallgöngu, verð að komast upp á topp
- ég sofna alltaf í sömu stellingunni á kvöldin
- ég er alltaf löt þegar ég er að leggja af stað í göngu og langar helst að keyra bara aftur heim :Þ
- ég skil ekki fólk sem finnst hlaup gott
- ég þoli ekki auglýsingar
- ég á það til að roðna út af ENGU
- borða kornflex með kakó
- elska HAFRAGRAUT
- ég er lúmskt mikið stjórnsöm og frek
Síðustu daga hefur fjöldinn sem kemur hingað inn TVÖfaldast, mér þætti mjög vænt um ef að fólk nennti að taka sér nokkrar sekúndur og segja hæ : )
smá vorkenn og væl !
Úff það er ótrúlegt hvað maður getur stundum sveiflast í skapi : /
Í gær var allt ómögulegt, ég var svo dauðþreytt og þó ég færi ekki á fætur fyrr en á HÁDEGI þá gat ég varla haldið augunum opnum stórann hluta dagsins ... svo bara allt í einu um kvöldið var ég orðin svo svaka hress og er það enn:Þ
Ég veit ekki alveg hverju er um að kenna, lenti reyndar í leiðinda rifildi við manneskju sem er mér kær þarna í fyrradag og það hefur kannski sett mig svona alveg úr skorðum en annars vil ég kenna um þessum helvítis hormónum. Það böggar mig ekkert smá að þurfa að taka pilluna svona eins og ég geri, þ.e. alveg án þess að taka pásur en það er voðalítið annað sem ég get gert. Ég reyndar var að skipta um pillu núna og fór á þessa "brjóstagjafarpillu" sem er með mun minni hormónum því ég er svo hrædd um að eftir 10 ár eða eitthvað komi í ljós að þetta sé stórskaðlegt :S En það er víst ekki mikið annað sem ég get gert, jahh nema unga út börnum en það er ekkert víst að það lagi nokkuð :(
haha jæja nóg af vorkenni
Ég fékk mér frí í vinnunni í dag, þarf reyndar að mæta í 3 tíma núna kl. 16:30 en annars er ég búin að vera að nota tímann í allsherjartiltekt. Skólinn byrjar næsta mánudag og ég veit að ef að ég er ekki búin að þessu fyrir það þá á ég ekki eftir að koma mér í að lesa svo ég tek eitt herbergi fyrir í einu og HENDI eins miklu og ég get :Þ
Úff svo eru 3 dagar í prufutímann í Bootcamp :O haha ég kvíði svo fyrir að horfast í augu við mitt lélega þol og litla kraft en ætli maður verði ekki kominn í svaka form í desember :Þ
Jæja ætla að fara að taka úr þvottavélinni og skella mér svo í vinnus
domingo, 27 de agosto de 2006
sunnan í lífi mínu
Tölvan mín eða BlogSpot er eitthvað ekki alveg samvinnuþýður þessa dagana því ég bara get ekki uploadad myndunum af Reunion (haha ég var að uppgötva það í dag að ég ber reunion alltaf fram eins og það er á spænsku en ekki ensku semsagt reúníon en ekki ríjúnion or whatever :Þ) Mér tókst þó að koma þremur inn og hér koma þær, restin kemur líklegast bara seinna :Þ

Dadara 3 vikur í Bootcamp og ég hlakka svo til að ég sef ekki á nóttunni ... Ohh ég hefði svo viljað geta byrjað strax þarna í byrjun ágúst en óreglulegi vinnutíminn minn kom víst í veg fyrir það. Ég ætla að vera svo súperdugleg því að planið næsta sumar er að ganga á Hvannadalshnjúk :D Svo er ég líka að gæla við þá hugmynd að fara á Hornstrandir næsta sumar en það verður að koma í ljós :Þ
Annars er spennó ganga næsta sunnudag, hver er game?? 12-14 km og ekki nema 300 m hækkun þannig þetta er svona 6 tíma gangur ... Mamma, María, kannski Rebekka ;) ??
Frídagur hjá minni á morgun, Orrinn að byrja í skólanum og ég öfunda hann heilann haug. Verð þó reyndar að viðurkenna að ég er farin að finna fyrir ört vaxandi kvíðahnút :S Úff vil sko ekki fara í sama stresspakka eins og þetta var þegar ég hætti í sálfræðinni. Er kannski búin að læra betur á sjálfa mig, virkar greinilega ekki vel að vera í 100% erfiðu háskólanámi og vera í 2 vinnum :S Nei núna er það bara ein vinna og ekki 4 vaktir á viku eins og síðast heldur meira kannski 4 á mánuði :Þ
Annars er ég bara farin að hlakka til vetursins, chilla og horfa á Despó með flísteppi yfir mér og hitarann í gangi því íbúðin mín heldur ekki hita :Þ Er líka að spá í að fá mér skáp uppi á Þjóbó og læsa bækurnar mínar þar inni því þá neyðist ég til að mæta á Hlöðuna til að læra :Þ Ég er svo gjörn á að fara að gera eitthvað allt annað þegar ég reyni að læra heima :Þ
Ein mynd frá sumrinu :Þ
Ég og María vorum þarna í kasti því við höfðum bara akkúrat þetta pláss sem ég sit á til að sofa BÁÐAR ! Við stukkum af stað frá Hallstatt kl. 16 seinnipartinn í algjörri óvissu um að komast til Króatíu. Svo biðum við til 02 um nóttina til að ná þessari nætur lest og hún var þá algjörlega STÚTFULL af fullum Króötum á leiðinni heim af HM - Það sést svo greinilega hvað ég er dauðuppgefin og þreytt þarna enda svaf ég alveg helling þessa nótt þrátt fyrir að hafa þurft að standa upp í hvert sinn sem við fórum yfir landamæri og svo líka í hvert sinn sem einhverjum datt í hug að fara á klósettið (við vorum við hurðina !).
Ótrúlegt en satt þá átti þessi nótt samt ekki vinninginn yfir óþægilegustu nóttina !
Bæjó hin ofurhamingjusama Íris
sábado, 26 de agosto de 2006
mange takk fyrir frábært kvöld !
Takk takk takk allir sem mættu á hið frábæra Reunion í gær. Guð hvað það var gaman :Þ Þetta verður pottþétt endurtekið :) Það var mikið drukkið og ég held að í morgun hafi verið í fyrsta skipti í 3 ár sem ég vakna ÞUNN :Þ Ég er þó sem betur fer hress núna því maður er mættur í vinnuna :)
Það var svo æðislegt að sjá allt fólkið aftur, ég hafði hugsað mér að spjalla við svo marga en svo var maður á þeytingi allt kvöldið að redda hinu og þessu og því miður náði ég ekki að tala við svo marga :( en kannski næst þá bara :)
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera valin Bros skólans ; ) takk fyrir það :Þ
Jæja restina af sögunni fá myndirnar bara að segja ...
.... hmmm nei greinilega ekki þar sem Emilía tölvus neitar að loada myndirnar ... jæja ég reyni aftur seinna !
Íris, sem fannst gærkvöldið líða alltof hratt :D
viernes, 25 de agosto de 2006
ég hlakka til ....
Það eru svo skemmtilegir þeir dagar þar sem maður hefur margt að hlakka til. Ég bókstaflega get ekki beðið eftir að byrja í skólanum :Þ er búin að kaupa allar bækur og fer 2svar á dag inn á Ugluna til að athuga hvort að einhverjir skipulagsgóðir kennarar séu ekki búnir að setja kennsluáætlunina inn ... það er ekki að gerast :S Ég var með einn kennara í spænskunni sem var alltaf búin að setja kennsluáætlunina inn löngu fyrir skólabyrjun og mér fannst það æði :Þ - jebb ég er svolítið crazy
Svo eru núna rúmar 3 vikur í Bootcamp. Vildi reyndar óska að það byrjaði bara núna 1. sept :S því þá hætti ég að vinna svo óreglulega en nei við verðum víst að bíða til 18. sept og ég safna bara spiki á meðan ; )
Ekki má svo gleyma Berlínarferðinni :Þ Ohh þetta verður geggjað, við Orri höfum aldrei áður farið til útlanda saman þrátt fyrir að vera búin að eyða næstum 4 árum saman ! Verðum á fínu hóteli og ég held að þetta verði bara voða kósý :)
Ég ætti svo auðvitað líka að vera farin að hlakka til jólanna en það verður eitthvað minni tilhlökkun þetta árið ... Ég næ ekki að sannfæra fjölskylduna mína um það að fara upp í bústað þriðja árið í röð :S Reglan var alltaf annað hvert ár en við fórum síðast af því að árið þar á undan var svolítið spes, pabbi fárveikur og okkur fennti næstum því inni og flúðum því degi fyrr heim og þurftum að berjast við veðrið og snjóinn alla leiðina heim.
En núna vilja þau ekki fara, mamma vill eiga jólahefðir líka heima og Eydís vill ekki fara af því henni leiðist svo upp í bústað. Pabbi vill svo heldur ekki fara því hann heldur að hann sé cursed eða eitthvað því síðustu 2 jól upp í bústað þá hefur eitthvað komið upp á, fyrst flensan og svo síðast brjósklos :S Ég veit ekki með Maríu en ætli hún vilji ekki vera heima til að geta verið með kærastanum ... Þá er bara ég eftir og ég er alveg til í að skilja Orra eftir heima aftur :Þ Kannski að ég leigi mér bara bústað (og bjóði kannski Orra með) og eyði jólunum bara þannig !
En já ég viðurkenni að það er kannski helst til snemmt að byrja að spá í þessu :Þ Ég ætla þó að reyna að vera súperskynsöm í ár og dreifa jólagjafakaupunum á nokkra mánuði ... Reyna að byrja í sept og eiga þá bara Orra eftir í desember. Það er alveg vonlaust að vera í prófum til 21. des og þurfa að vera að standa í jólagjafakaupum á meðan eða eftir prófin :S Svo setja öll þessi gjafakaup í desember mann bara á hausinn !
Haha jæja enginn annar farinn að spá í jólunum ?? :Þ nei bjóst heldur ekki við því :Þ
Annars bara Reunion í kvöld ! Verður rosa gaman að sjá alla aftur.
Hasta luego
miércoles, 23 de agosto de 2006
23. ágúst
Veist þú hvað þú átt að gera ef ....
- það stendur í einhverjum og hann getur ekki andað
- ef að barn brennir sig
- ef að þú kemur að bílslysi
- ef að þú kemur að manneskju sem er meðvitundarlaus
Ég alla veganna fyrir mína parta er nokkuð viss um að ég kann ekki öll réttu handbrögðin. Ég vil ekki vera uppi á fjalli lengst frá byggðum og jafnvel símasambandi og ekki hafa hugmynd um hver réttu viðbrögðin eru ef að einhver dettur og beinbrotnar. Enn hryllilegara er að koma að bílslysi og vita ekkert hvað á að gera og frjósa...
Þess vegna ætla ég á skyndihjálparnámskeið núna í október eða nóvember, get ekki farið fyrr vegna peningaleysis :S Mér finnst að það ættu að vera ókeypis skyndihjálparnámskeið fyrir alla á 2 ára fresti.
Kíktu hérna til að athuga hversu mikið þú kannt í skyndihjálp !
Annars er bara allt við það sama, vinna sminna og svo eru frídagar á milli. Planið er að fara í göngu í dag en eitthvað virðist andinn í hópnum vera lélegur og ég er enn aum í blessuðum hælnum ! Annars er bara eitt barnaafmæli á morgun og svo Reunionið á fös. Ég tók mig til í morgun og reyndi að sofa út (var farin á fætur kl. 10 :S) það nefnilega varla að fara á Reunion og vera svo dauðþreyttur kl. 23 (sem ég er venjulega af því ég vakna flesta daga kl. 6:45). En já ég hef semsagt 2 daga í viðbót til að hætta að vera svona mikill snemmsofari.
Ég get ekki beðið eftir að byrja í skólanum, ég hlakka svo til að fá reglu á líf mitt, berjast við að fara á fætur og fara á Hlöðuna og fara að æfa af viti ! Ég er einfaldlega ekki gerð fyrir svona óreglu :Þ Þetta væri skárra ef ég væri t.d. á 2-2-3 vöktum þá væru vaktirnar a.m.k. reglulegar en ég er bara að vinna hinn og þennan daginn.
Æ jæja best að koma sér á fætur og borða eitthvað. Já og KOMA SVO FÓLK --- KOMMENTA !! heill haugur af fólki hérna í gær og flestir læðast bara um ...
Annars er bara allt við það sama, vinna sminna og svo eru frídagar á milli. Planið er að fara í göngu í dag en eitthvað virðist andinn í hópnum vera lélegur og ég er enn aum í blessuðum hælnum ! Annars er bara eitt barnaafmæli á morgun og svo Reunionið á fös. Ég tók mig til í morgun og reyndi að sofa út (var farin á fætur kl. 10 :S) það nefnilega varla að fara á Reunion og vera svo dauðþreyttur kl. 23 (sem ég er venjulega af því ég vakna flesta daga kl. 6:45). En já ég hef semsagt 2 daga í viðbót til að hætta að vera svona mikill snemmsofari.
Ég get ekki beðið eftir að byrja í skólanum, ég hlakka svo til að fá reglu á líf mitt, berjast við að fara á fætur og fara á Hlöðuna og fara að æfa af viti ! Ég er einfaldlega ekki gerð fyrir svona óreglu :Þ Þetta væri skárra ef ég væri t.d. á 2-2-3 vöktum þá væru vaktirnar a.m.k. reglulegar en ég er bara að vinna hinn og þennan daginn.
Æ jæja best að koma sér á fætur og borða eitthvað. Já og KOMA SVO FÓLK --- KOMMENTA !! heill haugur af fólki hérna í gær og flestir læðast bara um ...
martes, 22 de agosto de 2006
Í dag er haust
Skólarnir byrja og þá er haustið bara mætt ! Þvílíkur grámi sem að liggur yfir Reykjavík.
Ég hef sem betur fer ekkert þurft að vera úti í þessum haustsudda því ég er nú bara í vinnunni en framundan er 3 daga frí :D
Planið er að fara í göngu á morgum með Útivistarræktinni, er búin að redda mér spes fríi bara til að geta farið og labbað en núna verð ég víst að sjá til hvað ég geri þar sem ég vaknaði bara hölt í morgun *hmm* Það var bara eins og ég hefði sparkað í ofninn eða eitthvað með hælnum en ég get ekki ímyndað mér að maður geti gert það án þess að vakna :O
Lífið er svo viðburðalítið þessa dagana að það er ekki frá miklu að segja, annað hvort er ég á haus í vinnunni eða ligg í leti heima (er alveg ótrúlega löt þegar ég er í fríi :Þ)
Planið var að æfa í Baðhúsinu fram að Bootcamp en ég bara tímdi ekki að borga 8500 kr fyrir mánuð þarna :S
Jæja hef ekki mikið meira að segja ... sumir mega þó fara að kommenta meira, kannski sérstaklega þeir sem eru að koma hingað af reunion síðunni ;) Counterinn minn kemur upp um alla laumupúka ;)
domingo, 20 de agosto de 2006
Á sunnudeginum eftir menningarnótt í fyrra þá labbaði ég í gegnum bæinn ... í morgun tók ég bílinn af því að mér fannst ekki öruggt að labba :S Um daginn var ráðist á stelpu á leið til vinnu í Breiðholtinu og reynt að nauðga henni og svo nokkrum dögum seinna var reynt að ræna 2 ferðamenn á leið niður götuna frá Sunnu : ( ojj mér líkar þetta ekki :S
En já það er alltaf spes að vera snemma á ferð morgnanna eftir alræmdar djammnætur; fullt fólk út um allt og úff hvað förðunin sem var svo flott í gær getur verið sjúskuð kl. 7 morguninn eftir : / :Þ
En já rólegaheitakvöld hjá mér í gær, horfði á flugeldasýninguna úr glugganum heima og var bara með eitt besta útsýnið. Fólksfjöldinn á Sæbrautinni var svakalegur og það var enn svakalegara að sjá þegar þetta fór alltaf stað eftir flugeldana ... bílflauturnar stoppuðu varla næsta klukkutímann ...
Svo eru núna nokkrir dagar í Reunionið, var að spá hvort að maður þyrfti ekki að vera með flotta lygi um allt það merkilega sem maður er búin að gera frá því maður kláraði grunnskóla ... Mín á að vera einhvern veginn svona: Tók framhaldsskólann bara í fjarnám og nýtti tímann í að ferðast um heiminn á einkaþotunni minni (sem ég fékk í arf). Ég fann upp Post-it miðana og er núna milli. Ég á hús á Arnarnesinu og þarf aldrei að taka til né elda því ég borga öðrum fyrir að gera það fyrir mig. Og já svo á ferðalaginu mínu um heiminn fékk ég borgað fyrir að liggja í sólbaði og borða bláber bara af því ég er svo mikið æði :D
Hljómar þetta ekki trúverðugt :Þ Hljómar alla veganna meira spennandi heldur en the real life situation ... hún er meira svona: Kláraði grunnskóla, fór í fjölbraut, tók hann á 3 árum og eyddi 1 í Vzla. Svo var það Uni og ég er þar flakkandi á milli deilda því ég get ekkert ákveðið. Keypti mér íbúð fyrir 2 árum síðan og bý núna með mínum heittelskaða .... ohh mig langar í einkaþotu !
sábado, 19 de agosto de 2006
súkkulaðihnetufiskur
Jæja ég vissi ég ætti eftir að blogga aftur í dag ... það er búið að vera ansi rólegt hérna hjá mér. Fáir að checka út og fáir að checka inn og þó að húsið sé fullt þá eru bara allir einhvers staðar að menningarnóttast...
Ég þurfti ekki að hafa miklar áhyggjur af sveltinu og nartinu því að ég er í bestu vinnu í heimi og það er dekrað við mig :P Fiskisúpa, hnetutoppur og súkkulaðikaka - Gerist það betra :D
Svo verð ég eiginlega að fá smá feedback út á síðuna - Hvernig er nýja lookið ?? Ég er ansi hrifin, ekkert smá gaman að geta loksins breytt útlitinu án þess að vera hrædd um að tapa öllum linkum og breytingum. Á reyndar enn eftir að mastera þetta alveg, þeir voru bara að breyta Blogger eitthvað í tengslum við Google og ég held að það eigi eftir að koma betur í ljós hvernig þetta verður í lokin, enn eru alla veganna örfáir gallar en ég trúi ekki öðru að þeir lagi þá :)
Svo síðast en alls ekki síst þá á SELMUS er 22 ára í dag :D Til hamingju með daginn sæta, hlakka til að sjá þig næsta föstudag :*
svoooo svöng
Ó já ég er í vinnunni. Búin að hrista af mér leti og slen síðustu daga og er nú bara ágætlega hress --- jahh fyrir utan það hvað ég er svöng í MAT og það er ekkert eldað hérna á Sunnu í dag : ( og ég kemst ekkert til að kaupa mér að borða svo ætli ég verði ekki bara að narta í allan dag :S
En já menningarnótt í dag og það eina sem ég sé af henni eru bílarnir sem endalaust hrúgast hérna upp á allar stéttir.
Ég er búin að hanga í allan morgun að skoða framhaldsnám. Er enn alveg jafnspennt fyrir heilsusálfræðinni en mér gengur eitthvað illa að finna skóla sem að kenna hana.
Ég held líka að ég drífi mig bara núna og klári sálfræðina með 90e en ekki 60e eins og ég ætlaði að gera. Fyrst ég ætla hvort sem er í framhaldsnám í sálfræði þá er eins gott að læra bara sem mest af henni :P (þá get ég líka verið lengur í skóla :D)
Já mér leiðist svolítið og hungrið er farið að segja meira til sín
Ef einhver góðhjartaður er á leiðinni niður í bæ (líklegara í dag en aðra daga) þá myndi ég þiggja rétt dagsins frá Grænum Kosti og svo Minstrels úr Krambúðinni : *
Bless í bili
viernes, 18 de agosto de 2006
tromp
Ojj Ojj þvílík leti og andleysi í gangi hjá mér þessa dagana :S Er búin að vera í fríi í gær og í dag og mig langar mest að skríða undir sæng og sofa bara ...*geisp*
Annars skellti ég mér þó í Bóksöluna áðan og keypti mér 1 skólabók (hef ekki efni á meiru í bili :Þ). Bókin sem ég keypti er úr Félagslegu sálfræðinni og mér líst ekkert smá vel á :D
Helgin er ekkert nema vinna :S svo ekkert menningarnæturdjamm fyrir mig...
Hehe æ þetta er svo depressing blogg að ég ætla bara að hætta :P kem aftur seinna í betra skapi
miércoles, 16 de agosto de 2006
Ein hlið af litlu broti mannkynssögunnar
Það er svolítið skrítið en kannski skiljanlegt að fréttaflutningurinn um stríðið milli Líbanon og Ísraela er að hafa undarlega mikil áhrif á mig. Þegar við vorum í Sarajevo þá hitti maður og talaði við svo marga sem að bjuggu í borginni á meðan Serbar sátu um hana í næstum 1000 daga ! Þau sögðu manni ótrúlega sögu sína; hvernig borgin var rafmagns, matar, vatns og gaslaus. Það var bókstaflega verið að reyna að murka lífið úr fólkinu með því að einangra það algjörlega.
Öll hús sem voru byggð fyrir 1992 eru sundurskotin og um alla borg má sjá "rósir Sarajevo" en það voru förin sem komu eftir loftskeytin þegar þau lendu á malbikinu.
Umsátur Serba um Sarajevo
Um alla Sarajevo má sjá litla kirkjugarða, þetta er kirkjugarður Múslima í einum almenningsgarði.
Við fórum í mjög áhrifamikla skoðunarferð sem hostelið okkar stóð fyrir. Guide-inn hafði búið í borginni á þessum tíma. Þegar Serbar voru búnir að einangra Sarajevo frá umheiminum þá voru borgarbúar að deyja úr hungri og þorsta. Þá gerðu SÞ díl við Serba um að fá að opna flugvöll sem var á hernámssvæði þeirra við borgarmörkin og fengu þá að koma með mat (hlutur sem Sarajevobúar eru ekki sáttir við þar sem það kom í veg fyrir að Nato gerði flugárás á Serbanna til að hrekja þá í burtu). Því miður dugði það ekki til.
Það var ein leið til að ná í mat og það var að reyna að hlaupa yfir flugvöllinn í búð sem Króatíubúar voru með einhverja kílómetra frá. Þessar laumuferðir voru mjög hættulegar þar sem leyniskyttur Serba voru í hæðunum allt í kring og voru ekki í miklum vandræðum með að skjóta á þá sem reyndu þetta.
Þá ákvað króatíski "herinn" að grafa göng undir flugvöllinn og opna þannig leið inn í borgina. Göngin voru hæst 160 cm á hæð, 1m á breidd og 800 metra löng.
Göngin voru grafin í bílskúr hússins sem er lengra frá á myndinni, þakið er algjörlega þakið kúlnagötum
Göngin voru grafin úr báðum áttum af mönnum með lítinn tækjabúnað. Íbúar Sarajevo höfðu bara skóflu og hjólböru ! Allann tímann á meðan verið var að grafa göngin vissi enginn hvort að þeir myndu ná að mætast þar sem samskipti þeirra á milli voru nánast ómöguleg.
Göngin voru grafin úr báðum áttum af mönnum með lítinn tækjabúnað. Íbúar Sarajevo höfðu bara skóflu og hjólböru ! Allann tímann á meðan verið var að grafa göngin vissi enginn hvort að þeir myndu ná að mætast þar sem samskipti þeirra á milli voru nánast ómöguleg.
Seinna meir fór í gegnum þessi göng, matur, rafmagn, gas, vatn og annað sem þurfti. Í fyrstu átti þetta að vera leyndarmál milli fárra háttsettra innan hersins en smám saman fréttist þetta um borgina og almennir borgarar fóru að leggja á sig ferðir að flugvellinum til að geta fengið að fara í gegnum göngin að kaupa mat. Til að komast að þeim þurfti að fara um "Dauðastræti" en á þeirri götu höfðu Serbar einstaklega gott færi á að skjóta fólk.
Ein af rósum Sarajevo


Við fórum í húsið þar sem göngin voru grafin. Allt í kring voru kúlnagöt og rósir. Við stóðum fyrir framan húsið og þar var ein rós og fengum að vita það að akkúrat þarna höfðu 9 manns látist ... fleiri höfðu slasast. Við fengum að fara inn í 25 m hluta ganganna og þau eru svo lág að fullorðinn karlmaður þar að vera vel beygður í baki, í þokkabót voru þeir með allt að 40 kíló af nauðsynjavörum á bakinu.
Á leiðinni í gegnum göngin

Í ferðinni fórum við svo líka í kirkjugarð Gyðinga sem er upp í hlíðinni. Hann var þakinn kúlnagötum en leyniskyttur Serba notuðu þennan garð til að liggja í felum.
Sarajevo er í 1. sæti yfir alla frábæra staði sem ég sá í ferðinni. Það var bara ótrúlegt að finna andann í borginni og allt lífið. Ég efast um að það sé margar borgir í heiminum sem hafa jafnmörg jöfn trúarbrögð. Þarna eru moskur, sýnagógur og kirkjur út um allt, nánast allar hlið við hlið. Maður borðar geggjað burek fyrir 50 kall og fer svo og fær sér geggjaðann kúluís á 25 kall kúluna. Svo verður maður að fara í hnetubúðina og kaupa poka með allskyns húðuðum hnetum :P
mmmm Burek :D
Zack (elskulegur strákur frá Manchester) að fá sér kafa, tyrkneskt kaffi sem er svo þykkt að sykurmolinn sekkur hægt ofan í.
Við kvöddum borgina leiðar, og vonandi fæ ég tækifæri til að koma aftur og vera þá lengur.
martes, 15 de agosto de 2006
Blogg að morgni dags
Ohh þetta þriggja daga frí mitt er búið. Ég hafði það bara ansi kósý um helgina :P Ég man ekkert hvað ég var að bralla á föstudagskvöldið (sökum gleymsku, ekki drykkju) en laugardagskvöldið var svaka skemmtilegt, ég og Orri fórum í brúðkaup í Keflavík og svo var veislan langt fram á kvöld ...
Fyrir sunnudaginn var ég svo búin að plana þvílíkar fjallgönguferðir en allir beiluðu á mér og mín nennti ekki ein og ákvað því að gera bara EKKI NEITT og ég stóð við það :Þ
Því miður verður engin Snæfellsjökulsganga þetta árið, ég gat ekki fengið frí í vinnunni (það á hvort sem er að rigna á jöklinum næstu helgi :Þ). Það hefði samt verið gaman að komast í eina jöklagöngu :S En hey ég valdi að eyða sumrinu spígsporandi um Evrópu, maður getur víst ekki gert allt í einu :Þ Úff já btw símreikningurinn frá ferðinni var að renni inn í heimabankann - litlar 23 þús kr :O þannig að saman er þetta 33þús kall sem ég er að borga fyrir að spjalla í gemsann á meðan á ferðinni stóð :Þ
Annars er allt í rólegheitunum - Ég og Rebekka erum að fara út að borða á Indian Mango í kvöld. Mér var boðið að koma frítt með einn gest af því ég vinn á gistiheimili og var að hringja til að bóka borð fyrir gesti sem að voru hérna - Auðvitað sagði ég bara "ó já ég mæti" ! Maður neitar ekki ókeypis máltíð ! :Þ
Ég er líka alltaf að leita mér að tíma og fólki sem þjáist ekki af innilokunarkennd eða alltaf að vinna þegar ég er í fríi til að koma með mér í eitthvað af ferðunum hjá Arctic Rafting Geggjaðar ferðir en ég hef ekki farið í eina einustu þrátt fyrir að geta farið frítt + 1 gest
Framundan er svo ekkert nema vinnan og grunnskólareunionið 25. ágúst. Það verður spes og gaman :Þ Örugglega skrítið að hitta allt í einu fólk sem maður deildi með 10 árum, nánast allri barnæskunni. en maður hefur svo ekkert séð í 6 ár ...

sábado, 12 de agosto de 2006
Göngublogg og fl. :Þ
Jæja ég sagðist ætla að koma með göngublogg fyrir svolitlu síðan en tæknilegir örðugleikar komu í veg fyrir það ... svo hér kemur það :)
Við María skelltum okkur með Útivistarræktinni á Kerlingarhnúk í Bláfjöllum síðasta miðvikudag, gönguleiðin var eitthvað á þeim slóðum þar sem 10 km gönguskíðabrautin er í Bláfjöllunum (haha good memories).
Ferðin byrjaði ekki með besta móti, við vorum latar, með blöðrur og svo þurftu sumir mikið að pissa :Þ En það rættist úr þessu og eftir að við vorum búnar að ganga af okkur byrjunarletina þá reyndist þetta vera hin fínasta ganga.
Auðvitað gat veðrið ekki haldist jafngott og það var búið að vera svo að það var niðadimm þoka og rigning annað slagið. Við vorum báðar einhverra hluta vegna ekki alveg rétt útbúnar fyrir þetta veður, kennir manni (þó maður eigi nú að vita það) að maður þarf alltaf að taka með sér útbúnað fyrir öll veður þegar maður gengur fjöll á Íslandi :)
En jæja góð ganga allt í allt, villtumst ekki neitt (veðrið var nefnilega ansi líkt veðrinu þegar við gengum á Grímannsfellið í vor og villtumst !) og ég fékk meira segja smá harðsperrur í lærin :Þ
Á leiðinni upp fyrstu brekkuna, alltaf jafn erfitt að þurfa að storma strax upp brekku þegar maður er enn kaldur
Komnar upp á sléttuna og erum að ganga að tindinum sem við sáum ekki fyrir þoku (það er fjall fyrir aftan mig !)
Litli krúttlegi Útivistarræktarhundurinn :Þ
Á leiðinni til baka, þokan fór bara sisona og þarna sjáiði fjöllin sem voru í kring
En já þá er maður kominn í 3 daga frí :D Ekkert smá gott eftir 7 daga vinnutörn og það er búið að vera MIKIÐ að gera í vinnunni, maður nær aldrei að setjast niður til að borða heila máltíð og hafragrauturinn minn verður alltaf kaldur svo ég er búin að skipta yfir í brauð í morgunmat því það kólnar ekki á milli þess sem maður svarar í símann og hjálpar ferðamönnum.
Brúðkaup á eftir og ég var í klippingu áðan og klippti á mig topp (again). Ég veit ekki alveg hvort að ég sé ánægð með þetta, á eftir að venjast toppnum aftur held ég.
Annars fer ég líklegast lítið í göngu á sunnudaginn þar sem ég er búin að krækja mér í sár á báðar hásinarnar útaf einhverjum skóm sem ég var í um daginn :S meira klúðrið en maður leggur varla af stað í 30km göngu vitandi það að þetta á eftir hafa áhrif :S
Annars er ég að spá í að fara á mánudaginn og kaupa mér mánaðarkort í Baðhúsinu, það er svo nálægt og þeir eru með pallatíma kl. 6:30 til 7:20 svo ég gæti mætt í hann áður en ég fer að vinna og kannski get ég dílað við næturverðina um að fá að mæta hálftíma seinna ef að þeir fá bara í staðinn að koma hálftíma seinna um kvöldið :Þ Ég kemst nefnilega aldrei að æfa þegar ég er á þessum 12 tíma vöktum, þegar ég kem heim að ganga 20 þá er ég bara ekkert í stuði fyrir ræktina, er algjörlega útkeyrð.
Jæja kannski að maður fari að ýta við Orra, erum að fara í hinn vikulega brunch til Maggýjar ömmu.
jueves, 10 de agosto de 2006
Dumbass
Ú la la Eva Longoria er ekki nema 1,57 m á hæð, maður þarf semsagt ekki að vera 1,70 til að vera fallegur ;)
Já maður uppgötvar margt merkiilegt þegar að það er rólegt í vinnunni :Þ
En nóg af slúðri og meira af aulanum mér ...
Hér á Sunnu dvelur núna strákur (kannski svona 23 ára) frá Austurríki, hann er svona voða saklaus og góður og er á ferðalagi aleinn. Hann er svona týpískur kandídat í það að hanga í gestamótttökunni og tala við mig (þoli ekki svoleiðis). Svo kemur hann hingað um daginn, stekkur inn í móttökuna og segist hafa sérstaka bón handa mér (ónei) og svo stynur hann því upp úr sér hvort ég væri til í að kíkja með honum á kaffihús einhvern tímann því hann langaði að kynnast Íslendingi og væri einn á ferðalagi (:S) Ohhh og ég er svo mikill asni og vildi ekki vera vond og leiðinleg við hann og sagði OK :S og nú spyr hann mig á hverjum degi hvenær ég sé laus (ughh) Ohh Aulinn ég :S
Já ganga í gær, myndir og göngublogg líklegast bara í kvöld ef ég nenni :P
Já ganga í gær, myndir og göngublogg líklegast bara í kvöld ef ég nenni :P
martes, 8 de agosto de 2006
Mega göngublogg - bara fyrir ógöngufúla
Enn einn dagurinn í vinnunni og ég er ansi sár út í alla bloggarana sem ég les ... Það hefur bara enginn bloggað FOR DAYS og mér leiðist ! koma svo :)
Annars á ég eftir 3 tíma í vinnunni og ég sé fram á að þeir verði busy, af þeim 25 herbergjum sem ég á von á hafa bara 7 komið, þannig að ég sé fram á að milli 17-19 mæti allir :O alltaf gaman þegar það er nóg að gera :)
Ég lít út um gluggann og sé þetta geggjaða gönguveður ! eins gott að það verði líka svona gott annað kvöld þegar ég fer á Kerlingarhnúk, bara 300 m hækkun og 7 km allt í allt ...
Þvílíkt yndi :D
Annars eru margar spennandi göngur framundan og ég ætla að sjá hvað ég get mætt í (og á pening fyrir). Klakkur á sunnudaginn, 3 skór, bara 500 m hækkun en gangan er hvorki meira né minna 30 km sem þýðir 10-12 tíma gangur !
Klakkur "einn af útvörðum Langjökuls"
Við Orri erum annars líka að spá í að fara í göngu bara sjálf á sunnudaginn og það á eftir að koma í ljós hvað verður þá fyrir valinu - kannski Móskarðshnúkarnir eða að við brunum út að Reykjanesvita :P
Ú og svo er önnur alveg svakalega spennandi ganga um Menningarnæturhelgina, ferð frá fös-sun á Snæfellsjökul : ) Nokkrir gallar þó við það; það er gist í skála sem þýðir að hún verður líklegast svolítið dýr og svo er ég tæknilega á 12 tíma vakt báða dagana : / maður má þó láta sig dreyma :)
Á toppi Snæfellsjökuls
Haha já ég komst að því á ferðinni að ég gæti aldrei búið í stórborg í útlöndum (alla veganna ekki til mjög langs tíma). Ég fæ bókstaflega innilokunarkennd, ég finn meira segja fyrir henni þar sem ég bý núna í miðbænum. Það er svo gaman að ganga á fjöll, finna sigurtilfinninguna þegar maður kemst dauðþreyttur upp á topp og það er svo ótrúlegt að einföld túnfisksamloka bragðast eins og gourmet máltíð á fjallstoppi :P
Haha já það er ótrúlegt að hugsa til þess að ég hafi alltaf verið hundpirruð út í mömmu þegar hún var að reyna að draga mig með sér í göngur hérna fyrir nokkrum árum síðan. Svo "neyddi" hún upp á mig pari af gönguskóm þegar ég átti 19 ára afmæli og áður en ég vissi af var ég orðin algjör fjallageit :P Ætli ég verði ekki bara að segja Takk Mamma :* ég held samt að hana hafi bara mest langað í félagsskap ;)
Já enn eitt göngubloggið, ég er bara svo ánægð með að vera komin heim :D
Við Orri erum annars líka að spá í að fara í göngu bara sjálf á sunnudaginn og það á eftir að koma í ljós hvað verður þá fyrir valinu - kannski Móskarðshnúkarnir eða að við brunum út að Reykjanesvita :P
Ú og svo er önnur alveg svakalega spennandi ganga um Menningarnæturhelgina, ferð frá fös-sun á Snæfellsjökul : ) Nokkrir gallar þó við það; það er gist í skála sem þýðir að hún verður líklegast svolítið dýr og svo er ég tæknilega á 12 tíma vakt báða dagana : / maður má þó láta sig dreyma :)
Á toppi Snæfellsjökuls
lunes, 7 de agosto de 2006
lífið er bara ansi gott
Önnur 12 tíma vakt í vinnunni, ég hef nóg af vinnu alla þessa vikuna, næsti frídagur ekki fyrr en á laugardaginn en þá fer ég reyndar í 3 daga frí :D Annars veitir mér nú ekkert af því að VINNA því að visa skviza kemur í heimsókn til mín um næstu mánaðarmót og þá þarf víst að borga :) og það er nú eins gott að eiga fyrir henni !
Það er alveg týpískur ágústfílingur í mér - þvílík plön í gangi, lofa bót og betrun í öllu og er nú þegar farin að standa við sumt af því. Ágúst fyrir mér er eins og áramótin hjá flestum, tími til að gera breytingar og líta yfir það sem betur má fara innra sem ytra í lífi manns, ég er bara aldrei í stuði fyrir breytingar í dimmum janúarmánuði :)
Reyndar ganga ekki öll heitin mín eins vel, ég hef ekki komist í göngu frá því síðasta miðvikudag og ég kemst ekkert fyrr en á sunnudaginn næsta því ég er alltaf að vinna til 19:30, maður verður víst bara að nýta þann tíma sem maður fær og reyna að hreyfa sig sem mest í vinnunni (sem er reyndar ekki erfitt því ég er stanlaust hlaupandi þessar 4 hæðir sem eru hérna á Sunnu).
Ég get líka ekki beðið eftir að byrja í Bootcamp ! Verst að það þurfi að vera næstum 1 og hálfur mánuður í það : / svo missi ég líklegast af fyrsta tímanum því ég verð ekki heima :S Svo ætla ég líka að vera dugleg í jóganu í vetur :P Það bara gerist voðalega lítið í þessum duglegheitum á meðan ég er að vinna svona mikið því ég er á svo óreglulegum vöktum og svo kem ég líka til með að vera að vinna flestalla daga í ágúst - Í vetur verður þetta mun betra, bara önnur hver helgi 2x12 tíma vaktir ... SwEeT
Ú og eru ekki allir farnir að hlakka til að byrja aftur í skólanum !! :) eða er ég bara ein ;) Ég er að fara í svo áhugaverð námskeið; félagslega sálfræði og hugfræði (jahh og svo líka í próffræði). Svo ætla ég líka að taka 1 námskeið í spænsku; Spænskar Kvikmyndir. Það er bara 2,5 eining og stangast ekkert á við stundatöfluna í sálfræðinni svo ég held að þetta sé bara fullkomið :)
Jæja tveir og hálfur tími eftir ... það eiga enn 15 herbergi eftir að mæta á svæðið og núna heyri ég í einu labba innum dyrnar --- chao
domingo, 6 de agosto de 2006
Dagurinn á undan Frídegi verslunarmanna
Í dag er sumarfríinu officially lokið. Mætti í vinnu á 12 tíma vakt og er að vinna næstu 6 daga ... Ég held ég sé búin að hafa það of kósý í sumar :Þ
Það er brjálað að gera hérna á Sunnu, næstum 30 herbergi að fara í dag og annað eins að koma líka :O Jamm ég hefði kannski betur farið fyrr að sofa í gærkvöld *geisp* Við Orri tókum rúnt upp á Apavatn þar sem öll föðurfjölskyldan er með risasumarbústað (200+ fermetrar !) og þar var hin veglegasta grillveisla :D Því miður þurftum við að bruna til baka aftur í gærkvöldi en það var rosalega gaman :D
Í vinnunni þarf ég oft að baka brauð fyrir morgunmatinn .... Einhvern veginn tekst mér alltaf að dreifa hveiti ÚTUM ALLT ! og ég sjálf er líka alltaf alveg hvít :S Þetta er eitthvað skrítið - einhver bökunarálög held ég af því ég subba alltaf mest út þegar ég er í dökkum fötum ! :P
Mmmm alltaf langar mann í eitthvað sem maður getur ekki fengið ... Í augnablikinu langar mig svo í MAMÓN !! *slurpslurp* nammi nammi - Ég á líka svo góðar minningar tengdar mamón, ég og Per hökkuðum þetta í okkur í Vene, rölta á Sabana Grande, kaupa mamón af götusölumanni sem reyndi að plata mann af því við vorum útlendingar, taka svo caminión heim í La Bonita :)
Jebb það verður á toppnum (jahh alla veganna mjög ofarlega) á To Do listanum mínum að kaupa mamón næst þegar ég fer til Venezuela ....
á listanum er líka að fá Gabi mömmu til að búa til handa mér mínar spes arepas með hveitiklíð, þurrsteiktar á pönnu og svo bakaðar í ofni SLURP
og með þessu vil ég fá stórt glas af Toddy :D
Já þetta er örugglega orðinn eitt sundurliðaðasta blogg sem ég hef skrifað af því ég er búin að vera að skrifa það síðan kl. 9 í morgun *hmmm* ég næ aldrei að klára því ég þarf alltaf að gera eitthvað - sem er eðlilegt verandi í vinnunni :P
Jæja ég ætla samt að segja nóg hérna, vonandi eru allir að njóta Verslunarmannahelgarinnar :D temmilega fullir, ekki rennandi blautir og með far heim á mánudaginn ;)
Bæjó
á listanum er líka að fá Gabi mömmu til að búa til handa mér mínar spes arepas með hveitiklíð, þurrsteiktar á pönnu og svo bakaðar í ofni SLURP
og með þessu vil ég fá stórt glas af Toddy :D
Já þetta er örugglega orðinn eitt sundurliðaðasta blogg sem ég hef skrifað af því ég er búin að vera að skrifa það síðan kl. 9 í morgun *hmmm* ég næ aldrei að klára því ég þarf alltaf að gera eitthvað - sem er eðlilegt verandi í vinnunni :P
Jæja ég ætla samt að segja nóg hérna, vonandi eru allir að njóta Verslunarmannahelgarinnar :D temmilega fullir, ekki rennandi blautir og með far heim á mánudaginn ;)
Bæjó
viernes, 4 de agosto de 2006
Hver og einn skiptir máli !
Ohhh mig langar svo í göngu en það þarf svo virkilega að TAKA TIL hérna heima ... Þrátt fyrir rigninguna þá sé ég það alveg í hyllingum að skella mér á eitthvað fjallið hérna í nágrenninu .... Ég svo sver það að um leið og ég hef efni á því þá mun ég borga einhverjum fyrir að taka til heima hjá mér ! Ég hef enga hæfileika á þessu sviði ! og Orri er meira segja sammála mér í því !
Annars er ég búin að vera súperdugleg í morgun, vaknaði rétt fyrir 10 :P og skutlaði Orra í vinnuna - Svo fór mín bara og keypti í matinn (það hefur ekki verið gert síðan í apríl !) og á leiðinni heim úr búðinni kom ég við Esso og ryksugaði bílinn, henti öllu draslinu úr honum og þreif hann eins vel að innan og ég gat með þeim takmörkuðu áhöldum sem ég hafði :P en vá þvílíkur munur !!
Æ ætli ég drífi ekki í mig smá orku og taki bara íbúðina í gegn og gangan verður bara að bíða seinni tíma ... Mig langar að reyna að fara alla veganna 2x í viku í fjallgöngu í ágúst svo að ef einhver er í fjallgöngustuði þá endilega tala við mig ;) Móskarðshnúkarnir heilla mikið núna ! Hef ekki farið þangað síðan sumarið 2003 og þá algjörlega missti ég vitið af lofthræðslu þarna uppi :P Held að það gerist ekki aftur þar sem núna veit ég að þegar maður kemur upp þá sér maður allt í einu niður í hyldýpið hinum megin ... :S
Hmmm já og ég er alveg húkt á That '70 show þessa dagana, ó men ég hlæ jafn mikið yfir þeim og Friends !
Þá er ekki meira í Írisarfréttum ! leita þó eftir húshjálp, fær að launum knús og 1 koss !
Þá er ekki meira í Írisarfréttum ! leita þó eftir húshjálp, fær að launum knús og 1 koss !
jueves, 3 de agosto de 2006
Bætti bara inn myndum frá göngunni fyrir gönguskvísurnar að sjá :)
Mætti í vinnuna í dag í fyrsta skipti í næstum 2 mánuði :O lífið er sweet :P Skólinn er svo bara á næsta leiti, ég held áfram að vinna á Sunnu með skólanum og svo er það bara Bootcamp í september :S úff ég á eftir að grenja yfir að hafa tekið þessa ákvörðun :P
En já það er eitt sem er búið að vera að pirra mig - Af hverju er það alltaf þannig að þegar ég kaupi mér tannbursta að þá kem ég heim með SOFT ! Hvað er málið, eru þeir settir extra fremst svo að fólk eins og ég sem gleymi alltaf að tékka fari heim með ömurlegan tannbursta og þarf svo að koma aftur næsta dag og kaupa MEDIUM tannbursta ! Er þetta eitthvað scheme til að hafa út úr mér pening !
ÚÚ en annars var fyrsta gangan eftir intarrailið í gær :P Við mamma og María skelltum okkur í göngu með Útivistarræktinni ... Það þurfti svo mikið til að koma okkur af stað, þvílíka sumarfrísletin í gangi en gangan var æði :P svolítil þoka og og smá kalt en hey er málið ekki bara að vera vel klæddur :P
Ohh jæja hálf súrt blogg en alla veganna skemmtiði ykkur öll vel sem eruð að fara eitthvert um helgina - Ég verð í vinnunni !
Mamma og María í kaffipásu á toppnum, það var svolítið kalt eins og kannski sést :P
miércoles, 2 de agosto de 2006
BOOTCAMP - hver er til??
Jæja eins og ég lofaði (sjálfri mér og örugglega einhverjum fleiri :P) þá á að taka þetta árið í skólanum af miklum krafti og planið er ekki bara að láta það ná yfir skólabækurnar, heldur líka matarræðið, svefninn, hreyfinguna og heimilislífið ....
Frá og með deginum í gær var sumarfríið búið þannig að það má ekki lengur bara lifa á súkkulaði :P núna eru það bláber í staðinn fyrir súkkulaðið og mmmm þau eru svo góð. Næst á planinu er svo hvað maður ætti að gera til að hreyfa sig eitthvað í vetur og ég held að ég sé búin að finna rétta prógrammið .... mig langar svo í BOOTCAMP ! www.bootcamp.is ohh þetta er bara svo fullkomið, mig langar helst í útitíma og mig langar í FÉLAGSSKAP !! svo er einhver þarna úti til í að koma með mér ??
Jamm annars lítið að frétta, ekkert nema chill á þessum bæ. Við Orri keyrðum reyndar á Þingvelli í gær og röltum aðeins í góða veðrinu. Planið fyrir daginn í dag er að koma tölvumálunum hérna í lag, það þarf að taka rækilega til og formatta Emilíuna mína því hún er stútfull af drasli. Ég held að það sé líka kominn tími til að einhver kaupi í matinn ! og ætli maður þurfi ekki að taka aðeins til á heimilinu :S ohhh real life sucks, þegar ég verð rík og þá ætla ég að borga einhverjum fyrir að taka til heima hjá mér !
Það verður lítið stuð hjá mér um Versló, vinna bara og svo kíki ég aðeins upp á Apavatn á familíuna. Ég er að vinna 12 tíma vaktir allar helgar í ágúst þannig að ég sé Orra varla neitt fyrr en að skólinn byrjar aftur :S
Jæja farin út í góða veðrið ....
Suscribirse a:
Entradas (Atom)








