lunes, 16 de octubre de 2006

Suma daga ...

... virðist bara ekkert ganga upp :/ Í morgun þegar ég var búin að skrifa hafragrautsfærsluna mína sat ég í rólegheitunum og japlaði á grautnum og leit þá á klukkuna ... Úps bara 5 mínútur í tíma : / Ég henti öllu sem ég þurfti fyrir skólann í tösku og stökk út í bíl. Aumingja bíllinn minn er gamalt og gigtveikur og finnst ekki gaman að keyra í kulda svo hann ákvað bara að fara ekkert í gang : / Jæja ég bý þó við Hlemm svo ég hljóp upp í næsta strætó sem ég vissi að færi upp í HÍ og þar sem ég sá að var bílsstjóri því þá hélt ég að hann færi fljótt af stað .... Vitlaust hjá minni, ég horfði á 4 strætóa sem ég veit að fara upp í HÍ leggja af stað áður en minn góði lagði í hann : / (og var þ.a.l. hálftíma of sein í tíma) Restin af deginum virtist svo ætla að rétta sig af þegar ég átta mig á því að: A. ég var ekki með kortið mitt svo ég varð að gjöra svo vel að vera í tíma frá 11:30-16 án þess að borða neitt. B. ég fékk bara 4,5 úr prófinu sem ég var í í síðustu viku og ég fór á algjöran bömmer út af því og svo C. hápunktur ruglsins þá er ég orðin VEIK !! Ég er búin að vera í bootcamp í mánuð og er búin að mæta í 2 tíma ~ hlutirnir eru bara ekki að ganga upp þessa dagana :( Er með hrikalegt samviskubit að hafa dregið Bekku með mér í BC og geta svo ekkert mætt sjálf : ( finnst það alveg ömurlegt : (
Hef heldur engann tíma til að vera veik núna, ég þarf á allri minni orku að halda til að gera þennan fyrirlestur fyrir föstudaginn ... Þannig að hvað getur maður gert... Ég kom heim og vældi í Orra útaf ömurlegu einkuninni sem að mun draga mig niður á lokaprófi í fagi sem ég er ekki sterk í fyrir. Fékk mér svo súpu til að athuga hvort að hún myndi ekki bara skola flensunni burt (gekk ekki en mátti þó reyna) og svo hringdi ég bara í doksa og á tíma núna á miðvikudaginn og þá ætla ég sko að fá á hreint hvað er eiginilega í gangi með mig. Er komin með algjört ógeð á að svífa á gráu skýi kinnholubólgunnar, vera með beinhimnubólgu, ofnæmi, excem og guð veit hvað .... Mig langar í sjálfa mig aftur !!!
Íris sem bíður eftir að e-r finni hana sjálfa á víðavangi og sendi sig á Hlemm í hraðpósti

4 comentarios:

Anónimo dijo...

Æ, þetta er nú meira vesenið hjá þér. Ég vona bara að læknirinn komi með einhverja galdralausn handa þér! en gangi þér vel að undirbúa fyrirlesturinn :)

Anónimo dijo...

Hvurslags bloggleti er þetta eiginlega stelpa?
Mamma

Anónimo dijo...

Netlaus þangað til í kvöld - þá lofa ég ofurbloggfærslu :)

Anónimo dijo...

Við lesendur bíðum spennt ;)