Þið verðið bara að afsaka bloggleysi síðustu viku - ástæðurnar eru margbrotnar :D
Þráðlausa netið heima er í algjöru rugli :/og ég vil sko helst ekki vera svo halló að vera með snúrunet :| en stundum gengur ekkert annað
Svo fékk ég kallinn minn náttúrulega heim síðasta mánudag. Ég svo sver það það var nú bara eins og við hefðum ekki sést í fleiri vikur en ekki bara 4 daga :Þ og ég hef bara varla sleppt honum út úr húsi frá því hann kom aftur ;) Það er alla veganna gaman að vera svona hamingjusamur og ástfangin enn eftir 4 ár :D
Framtakssemi síðustu viku hefur verið misskörp. Við skelltum hillum upp á vegg og það er það þá fyrsta sem fer á veggina frá því við fluttum fyrir öhömm 2 árum síðan. Bíllinn er svo líka bilaður og við Orri rúntum um á Almerunni hennar Maggýjar - Þessi kona er eins og yndislegur verndarengill : )
Skólinn er frábær, ég er í mjög skemmtilegum námskeiðum. Ég held ég hafi aldrei áður tekið önn bara með áhugaverðum námskeiðum ! Hmmm þrátt fyrir öll skemmtilegheitin og áhugann hefur ekki mikið farið fyrir framtaksseminni í lestrinum - en hey ég er þó að nálgast tímamætingamet frá því síðustu önn bara rétt eftir 2 vikur ;)
Ég fékk svo þær góðu fréttir um daginn að Per minn góði norski vinur er á leiðinni til Íslands á Airwaves. Ég fæ svo líka að sjá vinkonu mína frá Lettlandi þegar ég fer til Venezuela því hún mun flytja þangað á sama tíma og ég verð í landinu ! :D
Ég er að plana að fara út 12. júlí og koma aftur 31. ágúst. Það gera 7 vikur ! Ég veit ekki alveg hvort að það sé kannski of langt : / Duga 4 vikur ....??...
Farin að lesa um Skynjun hluta ! stuð




