viernes, 31 de agosto de 2007
martes, 5 de junio de 2007
3 dagar í brottför ...
og ég er svona alveg að verða tilbúin.
Ég ætla ekki að blogga hérna í sumar - eftir að ég þurfti að fara að setja inn öll greinarskil með kóða þá er þetta orðið svolítið þreytt. Kannski kem ég bara sterk inn aftur í haust þá annaðhvort hér eða með aðra síðu (og þá set link hingað inn).
Ég ætla bara að njóta lífsins í sumar og vona að þið gerið slíkt hið sama

domingo, 27 de mayo de 2007
Hvítasunnan
Gleðilegan hvítasunnudag (getur maður ekki annars sagt það)
Ég held að ég sé loksins orðin hress - svaf 12 tíma í nótt og nú er ég bara búin að ákveða að ég er ekki veik lengur :)
Það kom loksins úr fyrsta prófinu og ég var mjöööög sátt :) Orri er líka búin að fá úr öllum sínum prófum en hans einkunnir voru svo háar að hann gat ekki fengið þær hærri - hann er snillinn minn :)
2x heilsvikuflensur og 2vikna prófatíð á bara 4 vikum er ekki það besta til að halda manni í formi og óboj ég held ég hafi krækt mér í nokkur auka síðasta mánuðinn : | Ég verð extra sæt í fjölskyldumyndatökunni í næstu viku enda verður líka extra mikið af mér :Þ
Núna eru bara 12 dagar í að ég fari til Mývatns. Ég get samt ekki hugsað svo langt alveg strax. Óla systir mömmu er í heimsókn á Íslandi með fjölskylduna og planið er að kíkja heim í kvöld og kyssa þau og knúsa því þau fara aftur heim á morgun. Annað kvöld verður svo fjölskyldumálsverður og á þriðjudaginn er fjölskyldumyndatakan. Eldsnemma á miðvikudagsmorgun fer svo María til Svíþjóðar :) :(
En þegar þetta allt er búið þá þarf ég að fara að huga að því hvað ég þarf að gera áður en ég fer norður. Það er svona dót eins og að tala við bankann, fara með bílinn í skoðun, selja hinn bílinn og allt hitt sem hefur setið á hakanum svona frá því í MARS ! Svo þarf ég líka að kaupa mér nokkra hluti og pakka :D
Ég ætla ekki að taka fartölvuna með mér norður. Hún er alveg haugabiluð. Ég ætla heldur ekki að kaupa mér nýja fartölvu alveg strax, kannski geri ég það e-n tímann í sumar þegar ég kíki í bæinn en líklegast geri ég það ekki fyrr en ég kem heim í haust. Ég held að ég komist á net þegar ég verð að vinna í gestastofunni en fyrir utan það ekki svo ég er að spá í að vera ekkert að blogga í sumar.
Jæja best að koma sér í að setja tærnar upp í loft og njóta dagsins, það er hvort sem er allt lokað :)

jueves, 24 de mayo de 2007
lunes, 21 de mayo de 2007
Your mom circulates like a public key - Servicing more requests than HTTP.
Ohh haldiði að mér hafi ekki tekist að krækja mér í flensu í annað skiptið á 3 vikum ! Ég var búin að lofa mér í morgunmatinn á Sunnu og svo er náttúrulega búið að plana mikið með fjölskyldunni en svona er þetta : / Það sem verra er að ég get ekki einu sinni horft á Friends í flensunni - Orri var að skipta um diska í server tölvunni og nú finn ég ekki diskinn sem þættirnir eru á.
Maður getur samt ekki annað en orðið svolítið tölvunörd af því að búa með einu svona sjeníi hence fyrirsögnin sem kemur úr því yndislega lagi So Much Drama in the PhD. Maður er farinn að rífa upp tölvurnar, defragga, fika í kóða og guð veit hvað - nú þarf ég bara að læra að formatta tölvuna og þá hef ég náð hæstu hæðum nördaleika míns
Kennararnir mínir eru ekki alveg að gera sig því það eru komnar 4 vikur frá því ég skilaði fyrsta prófinu og 3 vikur frá því ég fór í annað prófið og ENN er EKKERT komið ! : / : | Þetta er alltaf sama ruglið önn eftir önn ! Ég er búin að vera MJÖG þolinmóð og hef ekkert misst mig á Uglunni en nú fer þetta að verða erfiðara - ég vil bara drífa í að klára þessa önn. Ekki bætir það ástandið að ég er ansi hrædd um að ég sé fallin þroskasálfræðinni en það kemur bara í ljós : S
18 dagar í Mývatn, ég er útskrifuð skyndihjálpari (ætli ég hafi fengið flensuna af því að blása í dúkkurnar :Þ) og það er búið að fata mig upp með landvarðagallanum. Nú vantar mig bara að vita hvernig ég fer rúta/bíll/flug en ætli það komi ekki bara allt í ljós með tímanum.
Jæja nú ætla ég að setja tærnar upp í loft og bíða eftir að Orri komi heim með pepperonihlöllann minn og mjúka snýtipappírinn því nefið á mér er nánast farið að glóa rautt : / Sem betur fer þá hefur fjölskyldumyndatökunni sem átti að vera á miðvikudaginn verið frestað um viku :Þ
Rúdolf kveður

sábado, 19 de mayo de 2007
Here goes nothing ...
Í hvert sinn sem ég opna Blogger og ætla mér að setja inn færslu fer höfuðið á mér í baklás um leið og ég set fingurna á lyklaborðið.
Þetta er það sem er í gangi í höfðinu á mér þessa dagana:

- Mig langar í bláber - risaöskju af þeim og helst tvær, svo vil ég skola þau og borða eintóm
- Ég er farin að efast um gróðurhúsaáhrifin séu AF MANNAVÖLDUM - Kíkið á heimildamyndina The Great Greenhouse Swindle. Hér er linkur á myndina á YouTube. Hún er í 9 pörtum :)
- Skyndihjálp ! Höfuðið á mér er fullt af skammstöfunum til að muna hvað á að gera ef einhvern hnígur niður eða slasar sig í minni návist á Mývatni - BROS, OLSENA, BSH, VÁSE ... Þarftu að láta hjartahnoða þig?
- Hljóðbókin A Short History of Nearly Everything - algjör snilldarbók um ALLT frá mikla hvelli til skýjanna og kjarna jarðarinnar ! Veit einhver um aðrar góðar hljóðbækur eða síður til að kaupa þær?
- Arctic Monkeys !
- Leti - alveg ótrúleg leti ! Eða kannski bara sjálfeyðingarhvöt og streita .. veit það ekki alveg
- Hvernig verður að koma heim í haust og fjölskyldan öll flutt burt : /
- Jibbí fín tækifæri til að fara til útlanda :D
- Djö ég var búin að gleyma hvað það verður bjart SNEMMA á sumrin ! Ég er búin að vera að vesenast með þetta frá því ég man eftir mér - ég bara get ekki sofið í birtu Ég er búin að STÖKKVA á fætur á hverri einustu nóttu frá því ég þurfti að fara að vakna á morgnanna eftir prófin :Þ Ég opna augun, fæ algjört sjokk yfir birtunni og er handviss um að ég sé búin að sofa yfir mig, rétt áður en ég hendist í fötin lít ég á klukkuna og sé að hún er &$#%$/%&# 4 að nóttu til ! (Þetta er búið að gerast 5 sinnum síðustu vikuna !)
- Get ég klónað Orra og tekið annan þeirra með mér á Mývatn?
Ég vil svo enn einu sinni hvetja fólk til að kíkja á KIVA. Lítill sem enginn aðgangur að fjármagni kemur í veg fyrir að fólk sem býr í þróunarlöndum geti lifað betra lífi !
Chao
miércoles, 16 de mayo de 2007
Nada
Eitthvað hefur bloggviljinn minnkað síðustu vikurnar svo nú ætla ég að bretta upp ermarnar og fara að gera þetta almennilega :)
Síðasta prófið var á mánudaginn og ég þori ekkert að segja um það hvernig mér gekk í því. Nú er svo leiðinlega biðin eftir einkunnunum hafin - Það eru komnar 3 vikur og 2 dagar frá fyrsta prófinu svo þetta má nú alveg fara að rúlla inn ! Ég byrjaði svo í gær í morgunmatnum á Sunnu. Það er bara ekkert erfitt að vakna svona snemma á morgnanna þegar það er svona bjart úti. Ég er samt reyndar bæði í dag og í gær búin að taka mér nokkurra klst lúr eftir vinnu :Þ Á morgun höfum við systurnar planað að eyða deginum saman og gera eitthvað skemmtilegt. Mér heyrist að stefnan verði tekin á keilu - er ekki opið annars?
Æ kannski ég verði bara svolítið löt að blogga fram í júni - það er nefnilega bókstaflega algjörlega bara ekki frá neinu að segja :Þ

Suscribirse a:
Entradas (Atom)