sábado, 29 de abril de 2006

Í dag sá ég ...

... 4 víkinga pissa utan í löggustöðina !
Fyrsta prófið á morgun og það er kominn smá stresshnútur í mallann :S Þetta er samt það próf sem ég ætti minnst að stressa mig yfir því hin 3 eru frekar áhyggjuefni :( Ég er reyndar ekkert hrædd um að falla beint heldur er ég búin að búa mér til áhyggjur af meðaleinkunninni minni því ég er ekki að sjá fram að ná 7,25 í meðaleinkunn eftir þessi 3 ár nema að ég nái 8 í öllu núna og 7,5 í öllu í sálfræðinni á næsta ári :S En jæja það þýðir víst lítið að stressa sig yfir þessu ... Við Orri eyddum kvöldinu hjá mömmu og pabba þar sem pabbi átti afmæli í dag ...
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ EINU SINNI ENN :*
Það er algjörlega kominn tími til að ég skelli mér í háttinn, nóg að gera á morgun; próf, æfing og vinna !
Que duerman con los angelitos Íris Ó.

jueves, 27 de abril de 2006

6 vikur og 4 dagar !!

Er ekki málið að blogga þegar maður nennir ekki að læra Sit á hlöðunni og er í augnablikinu ein og yfirgefin þar sem stelpurnar fóru í TÍMA ! Ég læt ekki hafa mig út í svoleiðis vitleysu og sit því hér sem yfirfartölvupassari ... Ég gerði algjörlega útaf við mig í gær ... tók þennan svaka pallatíma, nánast dó úr þreytu þegar ég þurfti að labba heim eftir hann og svo skellti ég mér í göngu upp á Haukafjöll um kvöldið. Veðrið var reyndar G E G G J A Ð sól og blíða og eiginlega bara heitt, aldrei þessu vant var maður í því að klæða sig úr fötunum en ekki í þau Yndið mitt hún María kom með mér og við skemmtum okkur stórvel. Ég tók slatta af myndum en svo virðist sem að yfir mig hafi komið smá ljóta en það verður bara að hafa það, það er erfitt að vera sætur, sveittur og þreyttur uppi á fjalli ;) Jæja ég fann loksins kraftinn til að byrja að læra af viti eftir að hafa setið í gær og reiknað út fram og til baka hvað ég þyrfti að fá í einkunn í þeim kúrsum sem ég á eftir til að ná 1. einkunn og ÓMEN við erum að tala um milli 7,5 - 8 í öllu :S ! Öss ég hefði átt að vera svolítið smart fyrir og taka spænskuna af meiri krafti því þá hefði hún getað híft meðaleinkunnina betur upp en hey ég var víst ekki búin að ákveða þetta áður svo það verður bara að hafa það ... Annars er ég ósköp fegin að vera að fara í sálfræðina, þar get ég að minnsta kosti skrifað texta án þess að fá athugasemdir út á forsetningar og sagnabeygingar :Þ -Íris ofurnörd kveður- Við erum komnar með gistingu í Köben :D

miércoles, 26 de abril de 2006

All in my grill

Já humm er ekkert búin að skrifa í nokkra daga ekki af því ég hef verið svo upptekin við að læra heldur bara af pjúra leti :Þ Síðast þegar ég skrifaði vorum við mamma á leiðinni í svaka göngu, því miður þá fórum við ekki af því veðurspáin var frekar leiðinleg, 19 m/s, rigning og 2°C hiti :S Já hljómaði ekki spennandi :S Síðasta vor þegar ég átti að vera að læra fyrir fyrsta prófið þá horfði ég á ALLA 2. seríuna í One Tree Hill ! Núna þá er ég búin að endurskipuleggja Ipodinn minn út í gegn, ná mér í helling af nýjum lögum og guð hvað þetta er búið að taka mikinn tíma :Þ Já tíma sem ætti kannski frekar að fara í lestur : / Ég virðist bara ekki finn í mér eirðina til að sitja og læra þessa dagana :S Langar mest af öllu að hanga bara í ræktinni eða storma á einhver fjöll :P Það er bara greinilega komið alltof mikið sumar í mig og ég er meira að hugsa um að koma mér í form fyrir Eyjafjallajökul en að einbeita mér að því sem er næst: P R Ó F I N Þetta er ein ómerkilegasta bloggfærsla sem ég hef nokkurn tímann skrifað ... hef greinilega ekki mikið að segja þessa dagana :Þ -Íris gönguglaða sem er á leiðinni á Haukafjöll á eftir-

lunes, 24 de abril de 2006

Ég er að mygla til dauða - takk fyrir mig !

viernes, 21 de abril de 2006

heimsmet í buxnamátunum með minnstum árangri

Í dag setti ég heimsmet í buxnamátunum með minnstum árangri. Við mamma eyddum rúmum 6 tímum í Smáralindinni, fórum í svooo margar búðir og í hverri einustu mátaði ég bara allar buxur sem ég gat hugsað mér að ganga í. Það er bara greinilegt að gallabuxnaframleiðendur vilja ekki peningana mína Hehe í gamla daga hefði ég örugglega orðið voða leið og sár yfir að vera svona ómöguleg í vextinum en það er ekki ég sem er ómöguleg það eru beyglu buxurnar sem eru seldar ...
Ég kom þó út úr þessu verslunarævintýri með G E Ð V E I K A N kjól, 3 boli í gymmið og allskyns smálegt dót fyrir heimilið úr Sösterne Gröne búðinni (heitir hún það ekki annars ??). Það gerðist nú reyndar margt sniðugt í þessari búðarferð, ég festi mig í einum kjól sem ég var að máta ! Ég hélt að það gæti aldrei gerst að brjóstin á mér væru of stór ! Svo gerðist það í Vero Moda að ég var að máta alveg hrúgu af gallabuxum og mamma alveg súper hjálpsöm og tók fyrir mig allar buxurnar sem ég var búin að máta, þær héngu allar á snaga og á næsta snaga voru buxurnar mínar. Ég er eitthvað voða upptekin að baksa við að koma mér í næstu buxur en lít svo upp og sé að allir snagarnir eru tómir Mamma hafði þá farið með buxurnar mínar fram á slá Það tók smá tíma að finna þær aftur því að einhver dugleg búðarstelpa hafði farið að ganga frá fötunum á slánni og þar með buxunum mínum líka ... Hehe já þetta endaði samt vel og ég þurfti ekki að ganga ber að neðan út úr Smáralindinni
En jæja, alvaran hefst á morgun þá þarf maður víst að fara að byrja að læra fyrir þessu blessuðu próf sem byrja eftir viku :S Ég ætla reyndar að skrópa í lesturinn á sunnudaginn og skella mér í staðinn í ....... já auðvitað göngu Ólafsskarðsvegur er það víst í þetta skiptið, 19 km en bara 200 m hækkun (guð sem betur fer). Þetta á alveg örugglega eftir að taka allan daginn með keyrslu fram og til baka svo þetta verður víst bara að kallast smá lestrarfrí
Well, Íris uppgefna segir góða nótt

jueves, 20 de abril de 2006

7 vikur og 4 dagar :D

Eigum við ekki að vona að þessi skíni sem mest næstu mánuðina :DJæja sumardagurinn fyrsti kominn og ég vaknaði með sólina í augunum :D mmm ég elska vorið og sumarið. Loksins get ég farið í allar göngurnar sem mig er búið að dreyma um allan veturinn og ég þarf ekki að dúða mig frá toppi til táar til þess eins að hlaupa út og inn úr bílnum :)
Í gær fór ég í fyrstu gönguna með Útivistarræktinni þetta árið. Þetta var hin fínasta ganga þar sem gengið var frá FlekkuvíkKeilisnesi og svo bara til baka. Aldrei þessu vant var ekkert verið að storma á nein fjöll heldur var þetta kósíheita jafnsléttu ganga :) Ég er búin að vera í miklum pælingum með hárið á mér (sem ég virðist aldrei geta verið sátt með ) Er búin að hugsa um þetta síðustu daga, toppur ekki toppur, safna eða klippa styttra and who knows what else EN svo rann það allt í einu upp fyrir mér að það er eins gott fyrir mig að halda því bara eins og það er og láta blessaðann toppinn vaxa svo að vonandi komist það bara allt í tagl fyrir sumarið ! Ég þarf nefnilega víst að lifa af í 6 vikur hárblásara- og sléttujárnslaus svo það er eins gott að vera ekki með einhverja fancy klippingu sem krefst mikillar vinnu En heyriði er ENGINN sem er til í að koma með mér á Eyjafjallajökul !!??!! Ég alveg treysti á mömmu en hún verður víst í útlöndum :( og þetta er nú ekki eins skemmtilegt þegar maður fær ekki að deila því með einhverjum ... HÉRNA er hægt að sjá ferðaplanið og svona helstu upplýsingar. Þetta verður hörkuferð og á eftir að reyna á en svo þess virði þegar maður er búinn :) Kannski að mér takist að blikka Orra til að koma með mér En jæja er í vinnunni eins og svo oft áður, á morgun er planið að reyna að versla einhver föt, æfa smá, kíkja kannski í ljós og taka loka dekur/hangs/tímasóunar dag áður en prófalesturinn hefst á laugardaginn ! Gleðilegt sumar ÍÓ

miércoles, 19 de abril de 2006

miðvikudagsbull - letiblogg

Mér líður eins og einhver hafi tekið frá mér alla orku ... ohhh ég bara meika ekki einu sinni að standa upp *geisp* Ég var að koma úr gymminu, skellti mér í pallatíma. Ég ætti að vera að gera EITTHVAÐ núna, bara eitthvað. Ég gæti til dæmis tekið til það veitir víst ekki af því eeeennnnn ég bara svoooo nenni því ekki *annaðgeisp* Ég held reyndar að ég viti alveg hvað kom mér í þetta letikast, ég uppgötvaði það að gönguskórnir mínir og stafirnir eru í bílnum og Orri fór á honum í vinnuna og gemsinn hans er batteríslaus :S Og þetta er vesen af því ég er að fara í göngu á eftir ..... hmmm ég bara nenni svo ekki að reyna að redda þessu ... Er samt búin að fá ýmsar hugmyndir t.d. taka strætó upp í vinnuna hans og sækja dótið (ég nenni samt ekki að taka það allt með mér í strætó aftur heim), hringja í vinnuna hans og athuga hvort einhver geti gefið mér samband við hann (ég hef ekki hugmynd um hvert ég á að hringja) og svo voru fleiri ekki eins sniðugar :Þ Ætli ég endi ekki bara göngustafalaus, í hinum gönguskónum mínum og mamma lánar mér húfu og vettlinga :Þ Við Orri sáum í gær myndina The Matador. Hún er algjör snilld :Þ Ótrúlega fyndið að sjá Pierce Brosnan í þessu hlutverki þar sem ég man bara eftir honum sem Bond, James Bond Eníhú, ekkert merkilegt að frétta héðan, komin dagur 2 í nammileysinu og það gengur bara stórvel :) Ég er að fara að vinna allan morgundaginn en svo verð ég ekkert að vinna meira fram að fyrsta prófi (29. apríl :S) þannig að ég ætla að byrja að læra fyrir prófin á laugardaginn :Þ Jæja ég ætla að reyna að rífa mig af stað, henda í vél og svona :Þ

lunes, 17 de abril de 2006

páskar og interrail

Ég verð að viðurkenna það að ég þoli ekki páskana ! Þetta er svo pointless frí, allt lokað, maður er bara að vinna og svo er maður étandi allskyns óhollustu allan daginn "því það eru nú páskarnir" :S Það fer bara allt úr skorðum ... jebb ég þoli ekki páskana, þar hafiði það :Þ Ég og María tókum roadtrip til Akraness í gær. Við vorum að sækja ýmislegt matarkyns sem að stelpa sem ég þekki frá Venezuela kom með til landsins fyrir mig :Þ mmmm amminammi, ég sat hérna í gær og úðaði í mig eeennnn núna eru páskarnir búnir og ég ætla að halda áfram í nammibanni og vera svolítið dugleg að hreyfa mig. Mér leið svo svakalega vel þarna á meðan ég var duglegust í þessu svo auðvitað heldur maður áfram :Þ Ég er alveg að missa mig ég hlakka svo til sumarsins :Þ Ég og María plönuðum hitt og þetta fyrir ferðina á meðan við keyrðum Hvalfjörðinn í gær og núna þá er þetta orðið svo raunverulegt :Þ Ég er virkilega að fara að láta þennan draum rætast :D Ferðaplanið er komið, það er mjög gróft en það er líka best, við ætlum bara að spila þetta eftir því hvernig ferðin fer. En svona er planið núna:
  • Byrjum í Köben 12. júní og erum þar til 15. júní. Kannski förum við reyndar til Odense og verðum þar einn dag bara til að sjá hvar við bjuggum og svona.
  • Svo verður farið til Þýskalands
  • Pólland/Tékkland
  • Svo ætlum við bara að þræða okkur niður A-Evrópu
  • Kíkja kannski til Tyrklands
  • Fara svo til Grikklands
  • Taka ferju til Ítalíu og þræða okkur þar upp
  • Þarna eigum við örugglega lítinn tíma eftir, ætlum að reyna að stoppa í París
  • Svo er það bara lest til London og frá London til Brighton þar sem við endum líklegast 15. júlí :D
Hljómar þetta ekki bara geðveikt :D Við ætlum að taka eins lítið af dóti með okkur og við mögulega komumst upp með og svo ætlum við bara að SKEMMTA OKKUR STÓRKOSTLEGA VEL :D Það er alltaf svo gaman að ná að uppfylla drauma sína. Ég hef nú þegar náð að uppfylla nokkra :Þ Fór út sem skiptinemi, kláraði stúdentinn á 3 árum, fór í HÍ :D og svo flutti ég að heiman þegar mér gafst tækifæri til (ohhh það var samt kósý að búa heima) :Þ En jæja nú get ég bráðum bætt interrailinu á listann yfir það sem ég er búin með og farið að einbeita mér að næsta draumi sem er að fara út í nám :Þ Þetta kemur allt í ljós :) Jæja sólin kallar á mig, hvað ætti maður að gera í dag; fara í sund, ræktina, ljós, í heimsókn eitthvert eða bara taka til í blessuðu íbúðinni minni :Þ hmmm ég held ég fari í ræktina ... Hasta luego .... og ég meina það ef að fólk fer ekki að kommenta hérna þá nenni ég þessu varla lengur :S Byrja þá bara að blogga aftur þegar við förum út til að eiga ferðasöguna.

domingo, 16 de abril de 2006

soooo bored

Ég er að DEYJA úr leiðindum ! Dagurinn byrjaði svo vel, var með 45 manns í morgunmat á Sunnu og mér leið eins og að það væri komið sumar :Þ eeeennnn núna er ég búin að tékka allt fólkið út og það eru nánast engir í húsinu eins og stendur *geisp* Ég á eftir að vera hérna í 6 tíma í viðbót og mér dettur ekkert í hug til að gera :S Búin að baka og þrífa og fylla á og vazka upp og allan fjandann ... !!! Ég og Kristín skelltum okkur í göngu í gær, fórum á Grímannsfell í Mosfellssveit. Við fórum nú reyndar ekki alla leið upp á topp þó að það hafi ekki munað miklu, sumir voru þreyttir og svo var veðrið hið undarlegasta og það bókstaflega skiptust á skin og skúrir Næsta ganga verður líklegast á miðvikudaginn, þá ætla ég í fyrstu göngu með Útivistarræktinni þennan veturinn. Fyrsta gangan var reyndar síðasta miðvikudag en ég nennti ekki með þeim á Helgafellið ... En gangan næsta miðvikudag er á jafnsléttu, 7 km, gengið frá Flekkuvík að Keilunesi ... svooooo hver er game?? Á morgun þarf ég víst líka að fara í smá roadtrip til Akraness, þar býður mín Toddy og harina pan frá V E N E Z U E L A :D mig vantar líka sjálfboðaliða til að halda mér félagsskap á leiðinni þangað svo það er spurning, hver nennir ;) ? Jæja brauðvélarnar eru llloookkksssinnnsss búnar og það þýðir að ég get sett deigið í form JEI ! Þá tekst mér að eyða 5 mínútum af þessum 6 klst sem eftir eru í að gera eitthvað annað en að horfa á puttana á mér ... Hasta luego

sábado, 15 de abril de 2006

Brún færsla fyrir páskaeggið sem ég er að borða

Ég virðist hafa gefist upp fyrir páskaeggjadjöflinum í ár but well who cares :Þ Í dag eru 8 vikur og 1 dagur þangað til við María förum á Interrailið !!! Vá þetta er að nálgast ... það sem ég kvíði mest fyrir er að sjá Orra ekki í 6 vikur :O Það er svooo langur tími :S Þetta verður samt svo æðislegt ferðalag :D Stór draumur að rætast :)
Berlin
Prag Skakki turninn í Piza
Ef að það eru 8 vikur og 1 dagur í Interrailið þá þýðir það að það séu 7 vikur og 6 dagar í Eyjafjallajökul :S Obbosí, mín þarf að fara að taka sig á :Þ En jæja víst maður er farinn að telja niður þá verð ég víst líka að segja að í dag eru 2 vikur í fyrsta prófið mitt og 4 vikur þangað til að prófin eru búin og ferli mínum sem spænskunema formlega lokið (allaveganna í bili). Kannski fer ég aftur í spænsku eða tek meiri sálfræði haustið 2007 því Orri verður þá að taka síðustu önnina sína en ég verð búin að útskrifast með BA svo kannski ég nýti bara þá önn í að hanga aðeins lengur í skólanum í staðinn fyrir að fara að vinna 100% starf *hrollur* Ég er búin að vera í vinnunni í 2 tíma og það eru 4 tímar eftir :Þ Þá er planið að hendast í IKEA og kaupa eitthvað :Þ Ég er algjörlega komin með ógeð á öllu dótinu sem ég á ! Eitthvað vorhreingerningarbrjálæði býst ég við. Seinna í dag kemst ég svo vonandi í gönguna sem ég ætlaði í í gær en var frestað vegna veðurs og syfju hjá ákveðnum aðila :Þ Ég verð víst líka að klára að taka til í íbúðinni eftir að ég tók til um daginn, hún er nefnilega ennþá í rúst Orra til mikillar mæðu :Þ well á maður að fara og vinna smá :Þ Ég á örugglega eftir að skrifa nokkrar færslur hérna á morgun, verð víst í vinnunni í rúma 12 tíma svo ég þarf að gera eitthvað til að stytta mér stundir ! :D

viernes, 14 de abril de 2006

Föstudagurinn langi 2006

Ég elska þvottastöðina í Sóltúninu. Þeir þrifu bílinn minn :D Við erum að tala um 2ja vetra tjörudrullu + 2 sumur þar af ein hringferð sem skyldi bílinn eftir algjörlega brúnann :Þ En þessar elskur þarna smúluðu og þrifu bíllinn tvisvar sinnum fyrir mig :Þ Ein ferð dugði ekki til að ná drullunni almennilega af :Þ Þannig ég mæli bara með þeim 200% 1800 kall og skínandi hreinn bíll :D Ég elska líka að Adam Brody og Rachel Bilson séu saman í real life. Þau eru bara alltof krúttleg saman :Þ Og annað, hvað er málið með magann á Mariah Carey ?? Of mikið lipo :Þ eða kannski bara ekki neitt... Já mín er á leiðinni í Bláa Lónið :D svo ætla ég að skella mér á Grímannsfell seinni partinn með Stínu stuð og kannski Andra líka. Ég hef ákveðið að setja nammibannið á hold fram yfir páska, fólk virðist bara ekki geta hætt að gefa mér súkkulaði (egg, kökur, á brauð u name it) þessa dagana svo ég ætla bara að njóta þess og halda síðan áfram á þriðjudaginn næsta :Þ

jueves, 13 de abril de 2006

fkjegfdaskflæ

Það er ótrúlegt að ég gleymi alltaf þessum blessuðu "frí"dögum ... ég ætla alltaf út í búð þegar það er lokað :S Sem betur fer keypti ég í matinn í gær :Þ Ég missti vitið í gær og hóf mikla tiltekt ... íbúðin er núna í RÚST ! Hvernig getur maður endað með meira drasl eftir að vera búin að taka til í 4 tíma ?? Ég er komin með algjört ógeð á öllu hérna inni hjá mér, langar svo til að breyta til :Þ eeeennn það á ekki eftir að gerast því við erum ekki að fara að eyða pening í húsgögn þegar við eigum húsgögn fyrir :S En ef þið þekkið einhvern sem er að fara að losa sig við sófa ;) þá megiði láta mig vita, hann getur varla verið ljótari en minn svo ég bið bara um að hann sé þægilegur :Þ Ég sveik nammileysið mitt á mánudaginn en er núna bara byrjuð aftur :Þ Mér leið svo vel af því að borða ekkert svona drasl .... Ég er eitthvað einum of ný vöknuð til að geta skrifað bloggfærslu sem meikar sens ... Ég ætla bara að fara í gymmið og svo í vinnuna þar sem ég mun vera alla páskana ... hasta luego

martes, 11 de abril de 2006

arggargbölvogragn

Ert þú einn af ösnunum sem kunna ekki umferðareglurnar og svínar reglulega fyrir mig á gatnamótunum á Rauðarárstíg og Laugavegi ?? !! ?? Ég veit að þessi gatnamót eru svolítið skrýtin en ef þú ert að keyra niður Rauðarárstíginn og ætlar að beygja inn á Laugaveginn, þá átt þú EKKI réttinn heldur umferðin sem að er að keyra beint upp Rauðarárstíginn. Vinsamlegast vertu ekki með þessa helv%&# frekju því að næst þá ætla ég ekki að stoppa og keyri bara í hliðina á þér !! Ég svo lofa ! Sama með ykkur asnana á leiðinni niður Laugaveginn, ef að það er allt stappað og stopp hinum megin við gatnamótin EKKI keyra þá inn á þau og og vera svo strand þar þegar rauða ljósið kemur !! Það er bara plein stúpid !! Úff jæja mér líður mun betur núna ... þetta er búið að byrgjast inni alla síðustu mánuði :Þ En að einhverju gleðilegra þá skelltum við Orri okkur á Hótel Keflavík síðustu nótt :Þ Mamma og pabbi gáfu okkur gjafabréf og þetta var algjört æði :Þ Fengum svaka flott herbergi og æðislegan kvöldverð :D Gaman að fá stundum tækifæri til að gera eitthvað svona nýtt :) Annars er ég hundlöt og léleg þessa dagana :( Ég borðaði nammi í gær eftir að hafa ekkert borðað í 20 daga ! Nú þarf maður víst að byrja að telja aftur frá 0 :( Verð reyndar að byrja að telja á morgun því ég er líka búin að borða nammi í dag :( Svo hef ég ekki farið í ræktina í viku :S Ég ákvað að hægja aðeins á af því mér var svo hrikalega illt í fótunum en í staðinn fyrir að hægja á þá bara hætti ég að mæta :S En það verður líka tekið á því Á MORGUN :Þ

sábado, 8 de abril de 2006

ohh svo lítið

YES loksins er hið miður skemmtilega Æl-dol búið ! Núna get ég loksins farið að tala við alla þá sem eru með Stöð 2 án þess að vera spurð um Snorra, Bríet something og hvað sem þau heita öll .... mmmm ég ætla að njóta þess að það eru alla veganna 7 mánuðir þangað til að þetta byrjar aftur, hvílíkur friður.
Ég er búin að vera að horfa á gamla þætti af ANTM og ég verð bara að segja að þessir grey þættir náðu sínum hápunkti í seríu 2 ... Annars iða ég alveg í skinninu af því mig langar svo að tala við einhvern um Jade í seríu 6 ... anyone ???? Ég er bókstaflega að springa ... !!! Eníhá, ég er búin að vera í vinnunni í 8 tíma ... og ég á enn 2 tíma eftir og svo fæ ég frí í 14 tíma og mæti þá aftur og verð í 10 tíma. Þetta er helgi 2 sem að ég vinn svona og vá hvað maður verður þreyttur á því ... ekki misskilja mig, I love my job en ég hef bara ekki komist í morgunmat til ömmu hans Orra í 3 vikur og kemst heldur ekki næstu helgi :S Svo er bara smá leiðilegt að fá ekkert helgarfrí... en jæja nóg væl Jamm þið sjáið að þetta er greinilega mjög viðburðalítil helgi hjá mér :Þ Ég sé fram á að sitja fram á kvöld og læra og reyna að klára þetta verkefni sem ég átti að skila í gær :S Ætli maður fari svo bara ekki snemma að sofa því ég er alveg hundþreytt... Næsta helgi verður ekki mikið skárri þar sem ég er að vinna bæði lau og sun kl. 7 um morguninn, ég verð bara að fara að skemmta mér á mánudögum !

viernes, 7 de abril de 2006

Fat bottomed girls

Hmmm síðustu 2 dagar hafa eiginlega bara verið svolítið skrýtnir. Ég hef ekki gert neitt af því sem ég ætlaði að gera, btw tók ekkert til á miðvikudaginn eins og ég sagðist ætla að gera í blogginu :Þ nei í staðinn þá hreyfði ég mig ekki af sófanum allan daginn og var bókstaflega föst í e-m tölvuleik *roðn* Síðustu 2 nætur erum við Orri líka búin að gista uppi á Sunnu því ég tók að mér næturvörslu. Það var bara nokkuð kósý :Þ Fínt að fá borgað fyrir að dútla sér svona og það var náttúrulega ekkert að gera, ég þurfti bara að vera þarna ef eitthvað skildi koma upp á eða ef brunakerfið færi í gang :D Ég er heldur ekkert búin að fara í ræktina síðustu daga og ég svo nenni heldur ekki í dag :S Ó mæ þvílík leti, ég kemst heldur ekkert í ræktina um helgina því ég er að vinna frá 10-20 báða dagana, ekki nema ég verði úber dugleg og vakni snemma en ég sé það ekki vera að fara að gerast :Þ Annars var SÍÐASTI kennsludagurinn í dag og nú er spænskunámi mínu við HÍ lokið (allaveganna í bili, hver veit hvað gerist). Ég á reyndar eftir að skila inn einu verkefni og svo eru það auðvitað lokaprófin í byrjun maí .... en samt búhú ég á eftir að sakna spænskunnar :Þ :'( Ég for áðan og skráði mig í kúrsa fyrir næstu önn, svona verður næsta árið:
Haustið: Próffræði 5e Hugfræði 5e Félagsleg sálfræði 5e Vor: Skynjunarsálfræði 5e Þroskasálfræði 5e BA-ritgerð !!! 8e
Þetta er alveg ótrúlegt, eftir ár verð ég alveg pottþétt á fullu að gera BA-ritgerðina mína og eftir rúmt ár verður minz bara komin með háskólagráðu ... voðalega er það eitthvað fullorðins :Þ Ætti maður kannski að hætta að vera svona hissa á þessu öllu saman og bara sætta sig við það að maður er orðinn fullorðinn og allt sem maður gerir er voðalega fullorðins ! Búin að kaupa íbúð, á bíl, búin með stúdent, er að fara á 3. árið í HÍ, kallinn kominn með algjöra "fullorðins"vinnu, maður er komin með námslán og íbúðarlán :Þ þetta er allt voða fullorðins :Þ Jæja ég ætla að fara og jafna mig á áfallinu, kannski læra smá, og horfa á ANTM 6 seríu :Þ

miércoles, 5 de abril de 2006

Göngublogg svona fyrir þá sem nenna ekki að lesa svoleiðis

Loksins ! komst ég í göngu :Þ Var ekki búin að fara í mánuð, eða frá því að ég og Orri tókum Esjuna með trompi í byrjun mars.
Ég og Kristín skelltum okkur á hið kunnuglega Helgafell, ja kannski ekki svo kunnuglegt fyrir Kristínu en ég held að ég sé farin að þekkja þetta fjall fram og til baka. Við létum ekki rigningu, rok og þoku stoppa okkur og þetta var æði :Þ Eeennn svo kom ég heim kl. 20, Orri ekki heima og ég náði ekki í hann og viti menn ég ekki með lyklana mína (lengur) ! Jebb ég virðist hafa misst húslyklana mína einhvers staðar uppi á fjalli :Þ Ég vona að þetta verði ekki að reglu því að þegar við fórum á Esjuna þá týndi ég bíllyklinum mínum svo núna eigum við bara einn. En alla veganna, ég stóð úti í korter RENNANDI BLAUT eftir gönguna og það hélt áfram að rigna, mér var svvvoooo kalt ! Ótrúlegt en satt þá svaraði ekki neinn í húsinu til að hleypa mér inn svo ég þurfti að bíða þangað til að einhver kæmi heim :Þ Þannig að eftir korter komst ég inn og svo var pabbi svo góður að bruna úr Hafnarfirðinum með aukalykla og bjarga þannig svöngu, þreyttu, köldu og blautu dóttur sinni :* Smá sýnishorn úr göngunni, það var svo mikil þoka á toppnum að það bara sást ekki neitt :Þ Jæja ég er að spá í að eyða deginum í brjálaða tiltekt, er samt ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera, bílinn, ganginn, kjallarann eða íbúðina !! Það er af nógu að taka :S Ótrúlegt hvað það draslast hratt til aftur, mér finnst ég alltaf vera í stórtiltekt :S

martes, 4 de abril de 2006

íris

Vissir þú að:
  • það er 3x meira C vítamín í rauðri papriku en appelsínu
  • tómatar eru upplagt megrunarfæði af því þeir innihalda fáar kaloríur
  • tómatar innihalda mikið af A og C vítamíni
  • jarðarber eru hitaeiningasnauð og innihalda mikið af mikilvægum steinefnum
  • gulrætur innihalda efnið karoten sem er m.a, mikilvægt fyrir sjón, húð og slímhimnur
  • kartöflur eru mikilvægar uppsprettur fyrir B og C vítamín
  • rófur innihalda mikið af vítamínum og steinefnum
  • gúrkur innihalda aðeins 12 hitaeiningar í 100 gr og þær eru í raun 96% vatn
Hehe já þetta er fróðleikur í boði www.islenskt.is
Annars er ég á leiðinni á Helgafellið á eftir, mmmm rigning í andlitið, rok á toppnum og hressandi hreint loft :D getur maður beðið um meira :Þ Síðasta vikan í skólanum, tvær vikur komnar í nammileysi, ritgerðarskil á morgun *éggætiælt*, verkefnaskil á föstudaginn í verkefni sem ég skil ekki, ég fer bráðum á hótel *jeijei*, við Sylvía fengum 9 fyrir glæsilega fyrirlesturinn okkar *meirajeijei*, ég eyddi 16 þúsund kalli í mat í gær*WHAT* .... er þetta ekki nóg ?? Hasta luego ÍÓ

domingo, 2 de abril de 2006

ein með útþrá (samt bara út úr húsi)

Ég er svo andlaus að það er bara ekki ein skýr hugsun í kollinum á mér núna ... það mætti halda að ég hefði verið á einhverju hörkudjammi í gær eeeennnn nei, mín sat bara heima, var búin seint í vinnunni og þurfti svo að mæta aftur snemma í dag svo það var rétt tími í gær til að speisa út og fara svo bara að sofa :S
Oooooohhhhhhhhh ég bara nenni svo ekki að læra !!!!!!!!! Mér finnst þetta bara vera kvöl og pína (í augnablikinu :Þ) Ég held að það sé bara komið alltof mikið sumar í mig, ég vil hafa tíma til að fara í ísrúnt á kvöldin, skella mér í sund um miðjan dag, naglalakka á mér táneglurnar og hvað það er sem að maður gerir svo sem á sumrin ... Mest langar mig í ferðalag og svona næst mest þá langar mig upp á fjall. Mér tekst þó líklegast að láta þetta seinna rætast þar sem ég og Kristín erum að plana Helgafellsgöngu á þriðjudaginn. Ég man sumarið góða þegar við Orri vorum löngu komin með nóg af því að labba bara Helgafellið svo við tókum alltaf Helgafell-Valahnjúkar-Húsfell :Þ Það er ekki skrýtið að ég hafi komist í gott form þetta sumar ! Annars tekst mér svo sem líka næstum því að láta hitt rætast, með ferðalagið. Við Orri erum að fara á hótel í eina nótt í apríl, hótel í eina nótt í Keflavík, má ég ekki kalla það ferðalag?? :Þ Hérna er ein góð frá því við fórum á Hrafnabjörg síðasta sumar, ég, mamma, María og Erla frænka. Ótrúlegt hvað maður er happy uppi á fjalli í dempandi rigningu og roki (btw þá var gefin út stormviðvörun þennan dag). Mig minnir að þessi ganga hafi verið um 15 km og tekið 8 tíma og þarna erum við rúmlega hálfnuð. Bless í bili Íris sem vill komast eitthvert út

sábado, 1 de abril de 2006

ha hvað vissiru ekki að ég er hætt að borða nammi ??

Dagur 11 í nammileysinu, mig hefur þrisvar dreymt að ég borði súkkulaði eða súkkulaðiköku og vakna í hvert einasta skipti með samviskubit ! :Þ Hvað ætli ég haldi þetta lengi út, fæ súkkulaðiskjálfta bara af því einu að hugsa um páskana eða Súkkulaðihátíð Írisar eins og ég er búin að endurskíra þá. Planið er semsagt að fá sér páskaegg þegar að þeim kemur, mmmmm dýrindis Nóa-Siríus páskaegg, súkkulaðið bráðnar upp í manni ............... arrrgggghhhh ég er að missa vitið ! Ja, myndin hér að neðan segir sannleikann ! Ég E L S K A súkkulaði
Qué más .... námsleiðinn er alveg að gera útaf við mig þessa dagana ! Það er bara langaftast á listanum að setjast niður með skólabók og eins og Sylvía sagði, þá verkjar mig í skrokkinn bara af því einu að hugsa um að læra :Þ Í staðinn læt ég hugann reika og hugsa um, já greinilega súkkulaði :Þ en líka ofurfrábæra Interrailið sem ég er að fara í eftir 2 og hálfann mánuð !!! Annars hefur ræktin líka tekið sinn tíma þessa vikuna, það er svo mikið af skemmtilegum tímum í Laugum og ég vil helst bara mæta í þá alla :Þ Fór í Salsaþolfimi í hádeginu gær og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum :Þ Annars er nú tveggja daga æfingahlé ... ég er algjörlega að gera útaf við fæturna mína ... beinhimnubólga og þessi fjandi, þetta sökkar :( Jæja ég ætla að reyna að læra eitthvað fyrst ég er nú í vinnunni :Þ Íris sem hefur ekki borðað súkkulaði í 11 daga (ætli þetta sé heimsmet??)