domingo, 27 de mayo de 2007

Hvítasunnan

Gleðilegan hvítasunnudag (getur maður ekki annars sagt það)

Ég held að ég sé loksins orðin hress - svaf 12 tíma í nótt og nú er ég bara búin að ákveða að ég er ekki veik lengur :)

Það kom loksins úr fyrsta prófinu og ég var mjöööög sátt :) Orri er líka búin að fá úr öllum sínum prófum en hans einkunnir voru svo háar að hann gat ekki fengið þær hærri - hann er snillinn minn :)

2x heilsvikuflensur og 2vikna prófatíð á bara 4 vikum er ekki það besta til að halda manni í formi og óboj ég held ég hafi krækt mér í nokkur auka síðasta mánuðinn : | Ég verð extra sæt í fjölskyldumyndatökunni í næstu viku enda verður líka extra mikið af mér :Þ

Núna eru bara 12 dagar í að ég fari til Mývatns. Ég get samt ekki hugsað svo langt alveg strax. Óla systir mömmu er í heimsókn á Íslandi með fjölskylduna og planið er að kíkja heim í kvöld og kyssa þau og knúsa því þau fara aftur heim á morgun. Annað kvöld verður svo fjölskyldumálsverður og á þriðjudaginn er fjölskyldumyndatakan. Eldsnemma á miðvikudagsmorgun fer svo María til Svíþjóðar :) :(
En þegar þetta allt er búið þá þarf ég að fara að huga að því hvað ég þarf að gera áður en ég fer norður. Það er svona dót eins og að tala við bankann, fara með bílinn í skoðun, selja hinn bílinn og allt hitt sem hefur setið á hakanum svona frá því í MARS ! Svo þarf ég líka að kaupa mér nokkra hluti og pakka :D

Ég ætla ekki að taka fartölvuna með mér norður. Hún er alveg haugabiluð. Ég ætla heldur ekki að kaupa mér nýja fartölvu alveg strax, kannski geri ég það e-n tímann í sumar þegar ég kíki í bæinn en líklegast geri ég það ekki fyrr en ég kem heim í haust. Ég held að ég komist á net þegar ég verð að vinna í gestastofunni en fyrir utan það ekki svo ég er að spá í að vera ekkert að blogga í sumar.

Jæja best að koma sér í að setja tærnar upp í loft og njóta dagsins, það er hvort sem er allt lokað :)

jueves, 24 de mayo de 2007

Það er ekkert skemmtilegt við það að vera veikur heima - mér dauðleiðist og mér finnst ég vera búin að upplifa sama daginn 5x : |

Og enn enginn einkunn komin í hús - Hvað er málið með þessa kennara !

Kleenex rúlar

lunes, 21 de mayo de 2007

Your mom circulates like a public key - Servicing more requests than HTTP.

Ohh haldiði að mér hafi ekki tekist að krækja mér í flensu í annað skiptið á 3 vikum ! Ég var búin að lofa mér í morgunmatinn á Sunnu og svo er náttúrulega búið að plana mikið með fjölskyldunni en svona er þetta : / Það sem verra er að ég get ekki einu sinni horft á Friends í flensunni - Orri var að skipta um diska í server tölvunni og nú finn ég ekki diskinn sem þættirnir eru á.

Maður getur samt ekki annað en orðið svolítið tölvunörd af því að búa með einu svona sjeníi hence fyrirsögnin sem kemur úr því yndislega lagi So Much Drama in the PhD. Maður er farinn að rífa upp tölvurnar, defragga, fika í kóða og guð veit hvað - nú þarf ég bara að læra að formatta tölvuna og þá hef ég náð hæstu hæðum nördaleika míns


Kennararnir mínir eru ekki alveg að gera sig því það eru komnar 4 vikur frá því ég skilaði fyrsta prófinu og 3 vikur frá því ég fór í annað prófið og ENN er EKKERT komið ! : / : | Þetta er alltaf sama ruglið önn eftir önn ! Ég er búin að vera MJÖG þolinmóð og hef ekkert misst mig á Uglunni en nú fer þetta að verða erfiðara - ég vil bara drífa í að klára þessa önn. Ekki bætir það ástandið að ég er ansi hrædd um að ég sé fallin þroskasálfræðinni en það kemur bara í ljós : S

18 dagar í Mývatn, ég er útskrifuð skyndihjálpari (ætli ég hafi fengið flensuna af því að blása í dúkkurnar :Þ) og það er búið að fata mig upp með landvarðagallanum. Nú vantar mig bara að vita hvernig ég fer rúta/bíll/flug en ætli það komi ekki bara allt í ljós með tímanum.

Jæja nú ætla ég að setja tærnar upp í loft og bíða eftir að Orri komi heim með pepperonihlöllann minn og mjúka snýtipappírinn því nefið á mér er nánast farið að glóa rautt : / Sem betur fer þá hefur fjölskyldumyndatökunni sem átti að vera á miðvikudaginn verið frestað um viku :Þ

Rúdolf kveður

sábado, 19 de mayo de 2007

Here goes nothing ...

Í hvert sinn sem ég opna Blogger og ætla mér að setja inn færslu fer höfuðið á mér í baklás um leið og ég set fingurna á lyklaborðið.
Þetta er það sem er í gangi í höfðinu á mér þessa dagana:
  • Mig langar í bláber - risaöskju af þeim og helst tvær, svo vil ég skola þau og borða eintóm


    Ég er farin að efast um gróðurhúsaáhrifin séu AF MANNAVÖLDUM - Kíkið á heimildamyndina The Great Greenhouse Swindle. Hér er linkur á myndina á YouTube. Hún er í 9 pörtum :)



  • Skyndihjálp ! Höfuðið á mér er fullt af skammstöfunum til að muna hvað á að gera ef einhvern hnígur niður eða slasar sig í minni návist á Mývatni - BROS, OLSENA, BSH, VÁSE ... Þarftu að láta hjartahnoða þig?

  • Hljóðbókin A Short History of Nearly Everything - algjör snilldarbók um ALLT frá mikla hvelli til skýjanna og kjarna jarðarinnar ! Veit einhver um aðrar góðar hljóðbækur eða síður til að kaupa þær?

  • Arctic Monkeys !
  • Leti - alveg ótrúleg leti ! Eða kannski bara sjálfeyðingarhvöt og streita .. veit það ekki alveg

  • Hvernig verður að koma heim í haust og fjölskyldan öll flutt burt : /

  • Jibbí fín tækifæri til að fara til útlanda :D

  • Djö ég var búin að gleyma hvað það verður bjart SNEMMA á sumrin ! Ég er búin að vera að vesenast með þetta frá því ég man eftir mér - ég bara get ekki sofið í birtu Ég er búin að STÖKKVA á fætur á hverri einustu nóttu frá því ég þurfti að fara að vakna á morgnanna eftir prófin :Þ Ég opna augun, fæ algjört sjokk yfir birtunni og er handviss um að ég sé búin að sofa yfir mig, rétt áður en ég hendist í fötin lít ég á klukkuna og sé að hún er &$#%$/%&# 4 að nóttu til ! (Þetta er búið að gerast 5 sinnum síðustu vikuna !)


  • Get ég klónað Orra og tekið annan þeirra með mér á Mývatn?

Ég vil svo enn einu sinni hvetja fólk til að kíkja á KIVA. Lítill sem enginn aðgangur að fjármagni kemur í veg fyrir að fólk sem býr í þróunarlöndum geti lifað betra lífi ! Chao

miércoles, 16 de mayo de 2007

Nada

Eitthvað hefur bloggviljinn minnkað síðustu vikurnar svo nú ætla ég að bretta upp ermarnar og fara að gera þetta almennilega :)

Síðasta prófið var á mánudaginn og ég þori ekkert að segja um það hvernig mér gekk í því. Nú er svo leiðinlega biðin eftir einkunnunum hafin - Það eru komnar 3 vikur og 2 dagar frá fyrsta prófinu svo þetta má nú alveg fara að rúlla inn ! Ég byrjaði svo í gær í morgunmatnum á Sunnu. Það er bara ekkert erfitt að vakna svona snemma á morgnanna þegar það er svona bjart úti. Ég er samt reyndar bæði í dag og í gær búin að taka mér nokkurra klst lúr eftir vinnu :Þ Á morgun höfum við systurnar planað að eyða deginum saman og gera eitthvað skemmtilegt. Mér heyrist að stefnan verði tekin á keilu - er ekki opið annars?

Æ kannski ég verði bara svolítið löt að blogga fram í júni - það er nefnilega bókstaflega algjörlega bara ekki frá neinu að segja :Þ

domingo, 13 de mayo de 2007

Drekkum vatn - það er svalt

Í dag hef ég lýst yfir fegrunardegi þrátt fyrir að í dag sé síðasti dagurinn fyrir síðasta prófið. Prófaljótan er núna búin að ná yfir heilann mánuð enda er lífið búin að snúast um lítið annað en verkefnavinnu og prófalestur frá því um páskana !
Í dag er komið nóg svo nú sit ég alsæl með ólífuolíu í hárinu - maður verður víst að vökva hárið á sér rækilega svona annað slagið þegar maður fer svona oft í sund ! Ég komst að því þegar ég var með appelsínugula hárið að ólífuolía er betri en nokkur djúpnæring - maður verður bara að muna að setja sjampóið í hárið ÁÐUR en maður bleytir það
Önnur mikilvæg verkefni sem á að sinna í dag verða háreyðing, plokkun, naglasnyrting og augnháralitun Já og fyrir utan allt þetta þá ætla ég líka að sitja sveitt yfir skólabókunum


Þessi prófalota er búin að vera sú afslappaðasta sem ég hef upplifað og ég veit ekki af hverju - ég hef bara ekki orðið stressuð (ekki að ég hafi ekki ástæðu til þess :/). Fyrir prófið á morgun á ég enn EFTIR AÐ LESA næstum því helminginn af námsefninu - en það reddast :)

Verður maður ekki að segja eitthvað um Evróvisjón og kosningar líka. Fyrst Evró - ég vildi að Úkraína myndi vilja en jæja. Kosningarnar - ég er ekki algjörlega ósátt en ég hefði þó viljað sjá ríkisstjórnina falla. Nú er bara að sjá hvaða moð við fáum úr þessu.

Næstu vikurnar þangað til ég fer til Mývatns eru svo algjörlega pakkaðar.
Ég er enn í heimanámsaðstoðinni í RKÍ og ég byrja að vinna í morgunmatnum á Sunnu á þriðjudaginn og verð þar til mánaðarmóta.
Með fjölskyldunni er búið að plana spilakvöld, systradag, tónleika og myndatöku. Á föstudaginn fer ég á undirbúningsnámskeiði fyrir landverði.
Næstu helgi er ég að fara í útskrift og ég verð líka alla helgina á skyndihjálparnámskeiði fyrir landvarðastarfið.
Helgina eftir það er frábæra móðursystir mín og hennar fjölskylda að koma til landsins og þá verður fermingarveisla og ég hlakka svo til að sjá þau. Næst mun ég þurfa að kveðja Maríu :'( þar sem hún flytur út um mánaðarmótin.

Eftir allt þetta þá ætlum við Orri að vera í vikufríi frá vinnu áður en ég fer norður. Planið er bara að hafa það ósköp kósý og slappa af áður en vinnutörn sumarsins tekur við :)

Best að skella sér í lesturinn

jueves, 10 de mayo de 2007

4 dagar í viðbót : )

Ég er ekkert búin að vera neitt sérstaklega virk í blogginu síðustu dagana enda er nóg að gera. Þrjú próf búin og bara 1 eftir : ) 4 dagar í frelsið : )

Ég er farin að hlakka svo mikið til sumarsins - ég fékk bréf í gær um að það verði haldið undirbúnings og skyndihjálparnámskeið í næstu viku svo þetta er bara alveg að bresta á. Á sama tíma styttist í að öll fjölskyldan mín hverfi af landi brott enda er seinni hluti maí þéttbókaður af fjölskyldugamani :Þ Í dag eru bara 20 dagar í að krúttkjötið mitt hún María flytji og ég er bara varla að fatta það. Það verður svo skrýtið að hafa þau ekki hérna ....

Nú tekur bara við 4 daga lestrarhark - ég skulda svo mikinn lestur í þroskasálfræðinni ! Þvílíkur lúðaskapur.

Þetta er nú ekki merkilegt blogg en ég vildi bara láta vita af mér : )

lunes, 7 de mayo de 2007

From Ritz to the Rumble

Hvað get ég sagt - ég veit ekki alveg hvað er í gangi en ég get ómögulega fengið sjálfa mig til að vilja læra. Get svo sem neytt sjálfa mig til að læra en í hnotskurn þá er mér alveg sama (þó mér sé það samt ekki alveg). Flensan setti mig svona útaf sporinu og ég kemst ekki inn á það aftur.

Mig langar svo bara að vera að gera eitthvað allt annað - er komin með ógeð á að vera námsmaður en það er ekki eins og mig langi í 9-5 vinnu rútínuna heldur. Eirðarleysið hefur náð tökum á mér meir en nokkru sinni áður. Mig langar í sól, geta rölt um í sandölum og kjól og borðað kirsuber - af hverju er svo ómögulegt að gera þetta á Íslandi ! Kannski ég hendist bara í kjól og ullargammósíur undir, loðna sandala og borði kirsuber sem kosta 500 kall 10 stykki ! Sjarminn er bara ekki eins (enginn sól sko).

Rúmt ár í viðbót og þá get ég verið komin á einhvern nýjan stað - húsfrú í Bandaríkjunum, bakpokaferðalangur í Asíu, hver veit.

Ég er samt farin að halda að þetta eirðarleysi fari aldrei - ég muni alltaf verða leið á því sem ég er að gera og hreinlega verð að skipta um umhverfi. Hvernig á maður að mennta sig þegar manni finnst einna næst öruggt að manni á eftir að leiðast í því starfi eftir nokkur ár : / Á maður ekki að eyða þessu stutta lífi í að njóta þess - af hverju eru allir að drífa sig svona mikið að festa sig í skuldbindingum ?

sábado, 5 de mayo de 2007

Allt í kvefi endalaust ...

Ég hef ekkert bloggað frá því á mánudaginn því ég hef bókstaflega ekki haft neitt að segja - nema ég hefði kannski getað vælt hérna yfir því hvað það er fúlt að vera veikur heima en ég vildi hlífa fólki við því.


Ég er núna loksins mætt í vinnuna en ég er smá hrædd um að ég hefði átt að hafa mig hæga ögn lengur því ég er búin að vera hrútslöpp hérna í vinnunni frá því ég mætti :/ Þetta er að verða ein lélegasta prófavertíð sem ég hef nokkurn tímann staðið í ... :| Næsta próf er á fimmtudaginn og ég er ekki byrjuð að læra fyrir það og síðasta prófið er 14. maí og ég á enn eftir að lesa hálfa bókina ... hmmm ég hef greinilega ekki meiri tíma til að liggja veik upp í rúmi.

Veit einhver hvernig maður ber sig að ef maður vill selja bíl til partasölu? Minn er bilaður og ég vil losna við hann N Ú N A Kvefpestin kveður

martes, 1 de mayo de 2007

Ég var nokkuð sátt við prófið í gær. Ég þurfti ekki að sleppa neinum spurningum og skrifaði svo bara allt sem ég vissi :Þ Þetta er engin 10 og engin 8 en ég næ þessu alveg pottþétt. Ég ákvað að vera bara ekkert að pirra mig á því að vera veik, ég lærði eins og ég gat, henti svo bara í mig tveimur verkjatöflum og stífluspreyi fyrir prófið. Liðið í stofunni hefur samt örugglega haldið að ég væri að missa mig kannski smá af því nokkrum sinnum yfir prófið þá var ég svo þreytt að ég lagðist fram á borðið til að safna smá kröftum :Þ

Jæja þarna kláraði ég orkuna - skrifa meira seinna