Hvaða hvaða 3 dagar án þess að ég blogga ... hvað er í gangi :Þ
Málið er að það er bara mest lítið í gangi, alltaf þetta sama. Á að vera í skólanum en ég er sísofandi, sólarhringurinn hjá mér er eitthvað undarlegur þessa dagana, veit ekki hvort að þetta er bootcampið en ég á alltaf erfitt með að sofna eftir að hafa mætt á æfingu þó að ég sé alveg dauðdauðþreytt.
Það eru framkvæmdir í gangi hérna rétt hjá mér og ég vakna á hverjum morgni við lætin í þeim ! Ég sver það að þeir byrja kl. 7 og þeir vinna líka á LAUGARDÖGUM ! Þetta er bara cruel fyrir allt fólkið hérna í kring ... og þeir eru nonstop með einhvern svona loftbor eða eitthvað í gangi þannig að allt sem maður heyrir allan liðlangann daginn er dunk dunk dunk dunk dunk dunk dunk ... Ég var búin að gleyma því hvað það er þreytandi að hafa svona framkvæmdir rétt hjá en þar síðasta vor þegar þeir voru að gera allt þarna í kringum Hlemm, þá var ég að verða brjáluð. Það voru stanslaus læti, vatnið var nokkrum sinnum tekið af og við ekki látin vita, húsið víbraði allt og svo var alltaf verið að sprengja og mér dauðbrá í hvert einasta skipti !
Ég er búin að skrá mig í STRONG próf 24. okt og ætla nú að reyna að fá einhvern botn í það hvað í fjandanum ég vil gera. Eftir að ég byrjaði aftur í sálfræðinni þá hefur það svona verið að rifjast upp með mér af hverju ég hætti ... og ég er bara ekki að fíla mig þarna : / Ætli ég klári samt ekki þessa önn og þá líka næstu og útskrifist bara þá og hey þá er ég að minnsta kosti komin með BA próf :Þ Kannski maður ætti bara að hella sér í jóga og verða jógakennari en ég veit ekki alveg hvort maður getur lifað á því *hmmm*
Annars er mikil gleði hér þessa dagana (jahh hjá mér af því ég er svolítið bil) Það á loksins að fara að gera eitthvað við þessa skítasameign í blokkinni. Á þriðjudaginn pöntuðum við Arna (formaður) sendiferðabíl og tæmdum sameignina í kjallaranum. Það var allskyns drasl þar sem að fyrri eigendur höfðu skilið eftir þ.á.m. ísskápur, 2 þvottavélar, sjónvarp, hjól, hægindastóll og borð ! og svo alveg heill haugur bara af drasli ... en nú er það allt farið og mín andar léttar :Þ Svo ákváðum við að kaupa þjónustu til að þrífa sameignina því það gengur ekkert að virkja fólkið hérna til að gera nokkuð. Þeir komu í gær og þó að þetta sé bara dropi í hafi þá munaði um það. Þetta verður ekki orðið fínt fyrr en það verður málað og teppin hreinsuð en það er bara á dagskrá um leið og við fáum málara :D Svo á loksins að gera við lásinn á bakdyrahurðinni svo núna hættir útigangsfólkið kannski að stela fötunum okkar .... eða hver sem er að því.
Jæja komin með hafragrautinn svo ég segi bæ
jueves, 5 de octubre de 2006
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

1 comentario:
Gott hjá þér að fara í STRONG - hlakka til að sjá hvað kemur út úr því.
Mamma
Publicar un comentario