lunes, 2 de octubre de 2006

bootcamp love

Úff ég er bókstaflega HIGH hérna .... nei ekki þannig high --- heldur Bootcamp high .... Ótrúlegt hvað manni líður vel eftir svona hrikaleg átök. Ef að einhver var að keyra Miklubrautina milli 18:15-19:15 þá voru þetta við að sjálfspína okkur í vegkantinum :Þ Ég spái harðsperrum í kálfum, lærum, maga, bringu, öxlum, handleggjum - þarf ég að halda áfram :Þ Kom svo heim og skellti tveim pylsum á grillið svo að mín borðaði meira segja kvöldmat. Kannski ekki alveg hollasta og besta kvöldmatinn en þetta er þó mikil bót frá mínum venjulega kvöldmat sem er annað hvort ekkert eða bara nammi : / Rebekka er svo mikil snilldarmanneskja, við erum algjörlega í sama pakkanum. Hvetjum hvor aðra áfram þegar hin er þreytt og það er algjörlega nauðsynlegt á svona æfingum :) Jæja ég ætla að drífa mig í sturtu, svo þarf ég víst að bruna upp í skóla með skilaverkefni fyrir heimilislúðann sem er veikur - af hverju er ekki bara hægt að emaila svona dóti ! Jógus á morgun og svo bootcamp aftur á miðvikudaginn - veit ekki hvernig ástandið á manni verður þá : / oAhC ÓÍ Hey og koma svo fólk KOMMENTA - spænskuskvísur, sálfræðiskvísur, Selma, mamma .... ég veit að þið eruð hérna ! Rebekka og Kristín fá hrós fyrir mikinn commentadugnað .... þið hin fáið ekki neitt !

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Komment frá mömmu: Duglega stelpa, áfram á þessari braut. Ég fór líka í ræktina í morgun áður en ég fór í vinnuna :-) Veistu að litla systir þín er orðin dökkhærð!!! Hún er voða sæt, eins og alltaf, en mér finnst undalegt að eiga dökkhært barn.

Anónimo dijo...

Þegar ég keyrði Miklubrautina á leið í vinnuna í sumar sá ég reglulega svona fólk í sjálfspíningargírnum og hugsaði alltaf *ohhh vitleysingar*. Jebb nú lít ég svona á þig ;)