Jæja farin að drepa fleiri heilafrumur (ef maður getur lesið þær til dauða)
domingo, 22 de octubre de 2006
Blogg 2
Anda inn - anda út
úff ég er að lesa svo leiðinlegan texta að hausinn á mér er að breytast í graut ... þetta er ekki alveg mitt áhugasvið :Þ
smá sýnishorn:
... Allt annað verður upp á teningunum þegar skoðuð er skynjun hljóðlengdar í nákvæmlega sömu orðum. Hér flytjast skynmörkin verulega til, ef reiknað er út frá lengd sérhljóðs við skynmörk stuttra og langra hljóða. Ef skynmörkin eru reiknuð á grundvelli hlutfallsins V/(V+C) verður hins vegar engrar slíkrar tilfærslu vart og rennir það frekari stoðum undir þá kenningu að skynjun hljóðlengdar ræðst öðru fremur af hlutfalli sérhljóða- og samhljóðalengdar..
Má ég vorkenna mér smá??
Vúha annars er ég búin að taka að mér slatta af aukavinnu þessa vikuna. Verð að vinna allan næsta laugardag og er að öllum líkinum að fara að sofa hérna í vinnunni minni einhverjar nætur svo að eigendurnir komist í burtu í nokkra daga. Fínt að fá borgað fyrir það :Þ
Ákvað að spæna bara svolítið á vaktirnar það sem eftir er mánaðarins því ég sá að mér veitir ekki af meiri pening næstu mánaðarmót þar sem á heimilinu er bilaður bíll, spangir sem þarf að fjarlægja, fégráðugur tannréttingalæknir sem þarf að gera upp við, skrifborðstóll sem þarf að kaupa (því annar brotnaði) og það er komin desperate need á að fara í klippingu og vax því bráðum verð ég unibrow ef ekkert er að gert ! Svo má ekki gleyma því að jólin eru að koma (alla veganna í mínum huga ;)) og maður þarf að kaupa gjafir og svona í nóvember :Þ
Ég var heldur ekki búin að tilkynna þær gleðifréttir hér að ÉG ER AÐ FARA UPP Í BÚSTAÐ UM JÓLIN í held ég 7. sinn :O :D Ohhh það er eiginlega bara þess vegna að ég hlakka svona til jólanna .... mmm jólachill í pottinum, baka sörur, búa til músarstiga, Golden Circle á Þorlák, rúnta á Laugarvatn á Aðfangadag að kaupa rjóma, göngutúrar með fram ánni og bara liggja með tærnar upp í lofti með frábæru fjölskyldunni minni :D
Ein mynd frá Þorlák í fyrra :)
Jæja farin að drepa fleiri heilafrumur (ef maður getur lesið þær til dauða)
Jæja farin að drepa fleiri heilafrumur (ef maður getur lesið þær til dauða)
Suscribirse a:
Comentarios de la entrada (Atom)

2 comentarios:
Ekki beint þjáll texti sem þú ert að lesa þessa dagana, ég gef þér því fulla heimild til að vorkenna sjálfri þér í þessu ! En geggjuð jólin þín, hljómar svo ótrúlega kósý, að þegar ég var að lesa færsluna þína þá fékk ég á tilfinnuguna að maður væri bara komin vestur og út í sveit, hmmmm...þetta verður örugglega geggjað hjá ykkur ! Bara 63 dagar, 6 klst. og 25 mínútur til jóla í þessum töluðu orðum ;o)
Sparnaðarráð dagsins: plokkari kostar ca. 100 kall ;)
Publicar un comentario