miércoles, 29 de noviembre de 2006

bara eitthvað

Jæja þar sem ég er með ritstíflu á alvarlegu stigi er þá ekki bara best að blogga í staðinn fyrir að reyna að skrifa inngang í skýrsluna mína :Þ
Sörumaraþonbaksturinn gekk vel - Ég, mamma, Kristín og María bökuðum saman 13 uppskriftir af sörum og allt í allt hafa þetta verið yfir 300 sörur : O :D
Ég hlakka svo til þess að eiga desember á nprófa og geta farið að njóta þess að undirbúa jólin. Í ár er hver stund sem fer í jólaundirbúning stolin frá tímanum sem ætti að fara í bókalestur :/ semsagt eitt alls herjar jólasamviskubit ! - kannski á næsta ári :) Á dagskránni næstu vikuna er mest bara lestur og Hlöðuhangs en maður verður nú að gera eitthvað skemmtilegt líka svo við kallinn ætlum á date á föstudaginn: Caruso og svo Sinfónían. Á laugardaginn er svo sæta prinsessufrænkan mín að taka þátt í ballettsýningu og auðvitað mætir maður að horfa á hana :) Hmm ég er greinilega líka með bloggritstíflu því ég man ekkert af súpermerkilegu hlutunum sem ég ætlaði að segja - Jæja fyrst mér dettur ekkert í hug til að skrifa og ég hugsa ekki um neitt annað en jólin þá koma hér myndir frá jólunum í fyrra :D
Það er ekkert lítið mál að flytja jólin upp í bústað :Þ
Á leið í göngutúr :ÞHin árvissa ferð á Gullfoss-Geysi á Þorláksmessu :) Aðfangadagur og við mamma erum á leiðinni á Laugarvatn Mamma og pabbi :) Frábæru systur mínar Uppáhaldsjólamyndin mín Jæja best að sjá hvort ég geti nú ekki farið að skrifa eitthvað í skýrsluna Adiós

domingo, 26 de noviembre de 2006

Blogg fyrir Bekku

Í dag var hinn árlegi jólasörubakstursdagur (reyndar bara annað skiptið í röð en héðan í frá sá árlegi). Ég henti í 10 uppskriftir af b0tnum og á morgun verður deginum eytt í að setja á kremið og súkkulaðið :Þ nammi nammi :P
Fann enga mynd af sörum á netinu svo hér er mynd af mér að borða söru :Þ -frá bústaðnum um jólin í fyrra Ég tók þvílíkan leti dag í gær en kvöldið var frábært. Við Orri fórum á Þrjá Frakka og guð mig góður hvað maturinn var góður ! Ég sendi meirihluta allra gesta sem koma til mín á Sunnu og eru að leita að veitingastað á Þrjá Frakka - Hafði bara aldrei farið sjálf. Spurning um að tala við eigandann og athuga hvort maður fái ekki díl - 10 gestir/pantanir og þá fær maður fría máltíð ;) Hehe en alla veganna mæli með honum 100% Við ætluðum svo á Bond en þurftum að eins að stoppa heima og enduðum á að glápa á 4 þáttinn í nýju seríunni af OC - haha ohhh OC er komið aftur, þetta var hreint comedy :Þ
Jæja best að fara að lúlla og safna kröftum fyrir sörumaraþonið á morgun ! Þær eru orðnar vinsælar og ég er víst að baka fyrir boð líka + mig ChAo

jueves, 23 de noviembre de 2006

extra

Eftir niðursveiflu síðustu daga var bara hægt að fara í eina átt - Upp :)
Rebekka fékk mig til að vakna kl. 7:30 ! í morgun og við vorum mættar á Hlöðuna að lesa við opnun (í fyrsta skipti sem ég mæti svona snemma í vetur!). Svo var maður bara duglegur að lesa til 17 : )
Ég er varla að trúa því að það sé að koma desember, alltaf þegar ég skrifa dagsetninguna á glósurnar mínar þá skrifa ég alltaf október - er engann veginn að átta mig á því að einu árinu enn er að ljúka og bráðum verða jól og áramót og svo verður komið árið 2007 ! 2007 hljómar eins og fjarlæg framtíð - eins og eitthvað sem gerist í vísindaskáldsögu *hugs*
Er búin að vera að dunda mér við eitt sem mér fannst alltaf ómissandi partur af því að jólin væru að koma - skoða Bókatíðindin : ) Man að ég merkti alltaf við allar bækurnar sem ég vildi fá og svo fékk ég alltaf haug af bókum í jólagjöf :Þ Bara svo að það sé alveg kristaltært þá vil ég ekki þessa bók í jólagjöf Í þetta skiptið var ég að merkja við allar bækurnar sem ég ætla að lesa á næsta ári og svo kannski líka upp í bústað um jólin :Þ
Datt niður á alveg ótrúlega hljómsveit um daginn Orange Blossom - ég var algjörlega dáleidd þegar ég hlustaði á þetta fyrst og hef svo ekki hlustað á annað alla vikuna Jæja 15 mín í One Tree Hill og svo er það bara bælið - er ansi þreytt eftir að hafa vaknað svona snemma í morgun og planið er að fara snemma á fætur á morgun líka til að LESA

martes, 21 de noviembre de 2006

nöldurpirringsblogg - ekki fyrir fólk í góðu skapi

Vægast sagt þá tók ég þessari einkunn í gær ekki vel og ég sé það núna að eftir mig liggur slóð eyðileggingar frá því ég opnaði þetta pdfskjal í gær sem innihélt einkunnirnar. Ég held ég hafi aldrei orðið jafn miður mín yfir einkunn sem er bara alveg allt í lagi. En er ekki málið að standa upp og halda áfram, ekkert annað hægt að gera hvort sem er. Ég fór til læknis í gær út af kinnholubólgu eða hvað sem það er. Hann lét mér líða eins og ég væri bara þarna af því mig langaði svo til að vera veik, hann passaði sig á að snerta mig aldrei, spurði mig ekki að neinu og horfði bara á mig eins og ég væri eitthvað heimsk. Alveg ótrúlegt, sagði að kinnholubólgan væri líklegast bara spennuhöfuðverkur ! en samþykkti þó með semningi að senda mig í röntgen og blóðprufu. Ég lagði nafnið hans á minnið og ætla að passa að ég fái ekki aftur tíma hjá honum - Ég hef btw aldrei heyrt um spennuhöfuðverk sem að varir í 2 mánuði og nær yfir allt andlitið ! ohh grr. Svo langar mig ekkert að fara í þessa blóðprufu og röntgen því að þá þarf ég að díla meira við þennan mann. Já greinilega mikið um pirring og þá á maður kannski ekkert að vera að blogga : / Ég er bara mest pirruð yfir því að vera búin að missa þennan góða kraft sem ég hef haft síðustu vikurnar og mér finnst ég vera dottin lengra niður en ég var áður. Mig langar bara að þessari önn ljúki sem fyrst áður en mér tekst að fella sjálfa mig algjörlega Íris öfugsnúna

lunes, 20 de noviembre de 2006

algjör bömmer

Ég held ég hafi aldrei orðið fyrir jafnmiklum vonbrigðum sem einkunn sem er þó allt í lagi. Ég fékk BARA 8 á SPSS prófinu og ég var svo svekkt þegar ég sá það að mig langaði bara að fara að gráta. Yfir 1/4 fékk 10 á prófinu og svona helmingur var með 8+ svo ég ÁTTI að ná 10 ... Ég var nefnilega efins á prófinu yfir 2 spurningum sem að voru mögulega svolítið verið að afvegaleiða mann - en ég hugsaði að það væri örugglega verið að spurja um það sem að virtist vera augljóslega spurningin en ekki eitthvað trick : / Ég þoli ekki trick spurningar, ég kunni allt námsefnið utan að og það að maður fatti ekki slaufur og þrefaldar neitanir sem kennararnir leggja fyrir mann þýðir ekki að maður hafi minni skilning á efninu. Ég er hundfúl, svekkt og þarf að rífa mig upp aftur til að læra fyrir næsta próf sem er á miðvikudaginn :( Fæ vonandi að sjá prófið, langar að vita hvað það var sem ég klúðraði.

domingo, 19 de noviembre de 2006

Hvern getur þú glatt í dag?

Ég þakka fyrir það að hafa sofið í vinnunni í nótt því ég hefði aldrei komist í vinnuna með allt dótið mitt því bíllinn minn fer ekki eitt né neitt á sumardekkjunum :Þ Voðalega er þessi snjór kósý - ég er reyndar ekki enn búin að fara út - en útum gluggann þá fær hann mann bara til að brosa :)
Eftir síðasta póst um hvað heimurinn er ljótur væri þá ekki skemmtilegara að spá í því góða sem er að gerast. Ég minntist um daginn á þessa síðu og finnst ástæða til að gera það aftur Kiva Hvernig væri að gera góðverk fyrir jólin og hjálpa fyrirtækjaeiganda í þróunarlandi að bæta eða setja af stað fyrirtæki ?? 25$ er ekki nema rétt rúmar 1700 krónur og þetta er lán ekki gjöf! Dagur rauða nefsins er svo framundan. Nefin eru seld í Bónus, 10-11, Essostöðvunum og fleiri stöðum, Kosta ekki nema 500 kr og ágóðinn rennur til verkefna UNICEF - Hver vill ekki gleðja börn um jólin?? Af öðru góðu og sætu þá gaf afskapleg sæt gömul kona mér fingurkoss um daginn af því ég stoppaði fyrir henni og hleypti henni og vinkonu hennar yfir götuna :) Bílarnir brunuðu bara framhjá þeim og enginn stoppaði svo þær gætu komist yfir - skamm skamm Ég virðist loksins vera búin að ákveða og sætta mig við það að vera bara í sálfræðinni :Þ Og þá strax varð þetta líka miklu skemmtilegara. Það er ekki hægt að vera í námi sem að er svona mikil vinna og stress án þess að gera það af hug og hjarta. Ég er búin að vera á Uglunni eins og crazy síðustu daga að vonast eftir einkunninni úr SPSSprófinu þó að ég viti að það kemur í fyrsta lagi á morgun ef ekki seinna. Maður er bara alltaf svo vongóður :Þ ----------------------------- Smá ljótt: Hvað er málið með OJ Simpson og If I did it gróðabraskið sem er í gangi ! Þvílíkt óforskammað og alveg ótrúlegt að ætla sér að fá pening út úr þessu máli hvort sem hann myrti þau eða ekki - Þetta er bara svo siðblint og svo RANGT ! Mér finnst þetta nú bara hljóma eins og játning - hann segir meira segja hversu mikið þeim hefði blætt EF hann hefði myrt þau !!??!! Only in America ! Farin að lesa um single concept-learning mechanism - Hugfræðipróf á miðvikudaginn og stefnan er á 8+ :) ps. það gengur einhver vibbavírus á msn þessa dagana. Ekki opna neina linka sem heita mypics eitthvað !

viernes, 17 de noviembre de 2006

Bandarísk háskólalögrela teisar nemanda sem getur ekki framvísað nemendaskilríkjum !

Velkomin til Bandaríkjanna - Vinsamlegast skiljið allar kröfur um mannréttindi eftir við landamærin ! Smá forsaga: Nemandi við UCLA sem er af írönskum uppruna sem gat ekki framvísað skilríkjum þegar að háskólalögreglan gerði random check á bókasafninu. Hann var semsagt að labba ÚTAF bókasafninu þegar háskólalöggan stoppar hann með því að grípa í handlegginn á honum. Hann er ekki með nemendaskilríkin sín og segir við lögguna "Get off me" og þá er hann teisaður ! Eftir það heyrist hann öskra margoft "I'm not fighting you" og "I said I would leave". Þrátt fyrir þetta er hann handjárnaður og teisaður aftur og aftur af því hann stendur ekki upp. Hvert skipti varir í svona 3-5 sekúndur og það dugar til að maður geti ekki hreyft sig frá nokkrum sekúndum upp í allt upp í 15 mínútur - Hann ógnar lögreglunni aldrei og er ekki boðin nein önnur leið til að sanna að hann sé nemandi við skólann. Það er hellingur af fólki þarna í kring og löggan hótar bara að teisa það líka þegar það biður um nöfnin á lögregluþjónunum og "badge number"! Afsökun löggunnar: þeir gátu ekki vitað hvort að hann væri nemandi og hvort hann væri óvopnaður ! Guð minn almáttugur á að gera ráð fyrir að hver einasta manneskja á háskólasvæðinu sem gleymir skilríkjunum sínum heima hjá sér gæti verið vopnuð og hættuleg og það sé þá afsökun fyrir að ráðast á hann - Myndband af atburðinum Myndbandsfrétt um málið Dagblaðafrétt Mér er bókstaflega óglatt !

Góðir dagar

Jebb þetta eru búnir að vera góðir dagar :) Kynningin í morgun gekk vel þó að mér hefði tekist að sofa yfir mig og mæta of seint. Það voru sem betur fer 10 aðrir hópar að kynna svo þetta var ekkert mál. Stressaðist samt óvænt upp við að tala fyrir framan hópinn og mér fannst ég ekki koma þessu alveg nógu vel frá mér. Svo var líka hið mikilvæga SPSS próf í dag og ég svo sver það ef ég fæ ekki 10 þá var þetta próf gallað. Ég er samt með smáhnút því að voru 1-2 spurningar sem ég var ekki alveg 110% á og þar sem prófið innihélt svo fáar spurningar þá giltu þessar tvær spurningar 15% hvor :/ Svo ef ég klúðraði einni eða báðum þá fæ ég 8,5 eða 7 : ( Svo bara krossa putta og vona það besta :) Ég og Rebekka kíktum út í kvöld. Skelltum okkur á Á næstu grösum og borðuðum, fórum svo á Svarta Kaffið og ræddum um allt sem er að menntakerfinu - miklar pælingar í gangi skal ég segja :) Annað ómerkilegara í fréttum er að ég ætla í permó á mánudaginn. Fór þarna fyrir ári síðan en var með svo sítt hár þá og lét setja í mig of stórar rúllur þá var ég aldrei ánægð með það, það var ekki fyrr en ég klippti það styttra að allt í einu birtust krullur .... oooog mig langar aftur í krullur :Þ Hmm meira, ég og Orri ætlum á tónleika Sinfóníunnar, rokkhljómsveitar og fjölda söngvara 1. des. Það á að flytja öll bestu lög John Lennons og ég held að þetta verði magnað ! Gaman líka að fara einu sinni svona út - það er ekki oft sem maður skellir sér á Sinfóníuhljómsveitina :) En skamm ég, ég veit ekki af hverju ég er enn vakandi. Ég var dauðþreytt í allan dag og svo þegar ég hafði hugsað mér að fara að sofa var ég bara svona glaðvakandi : /Ætla þó að reyna að vakna snemma á morgun svona til að fara ekki í þetta leiðinlega dagsvefnmynstur.

miércoles, 15 de noviembre de 2006

Operation Damage Control

Það er enginn smá harka á manni í dag - Sólarhringurinn hjá mér var orðinn ansi öfugur, var vakandi til 3 og sofandi til hádegis og það var ekki alveg að virka :Þ Svo er ég að fara að halda fyrirlestur kl. 8:20 og fara í próf á morgun svo að það var augljóst að eitthvað varð að gerast ... Það sem mín gerði var bara að fara heim í föðurhúsin og ég svaf þar :Þ Ég svaf reyndar ekkert rosalega mikið þar sem ég var andvaka til 4 og var svo vakin svo kl. 7 en ég get þó loksins farið að sofa á skikkanlegum tíma í kvöld : ) Já það er greinilega ekki margt að blogga um þegar ég blogga um svefninn minn - Er búin að vera að læra fyrir prófið á morgun síðustu daga og það gengur ágætlega. Verð að viðurkenna að ég er óvenju óróleg fyrir þetta próf þar sem ég fékk svo lágt í síðasta hlutaprófi og mig langar svoooo mikið að fá GÓÐA einkunn í þessu prófi og þar sem ég misreiknaði mig svona svakalega á síðasta prófi þá hef ég smá áhyggjur ... Geisp Ég sit inn í andyri Odda og einhverra hluta vegna horfa allir á mig sem ganga fram hjá, ætli ég sé með risa svartan blett á nefinu?? eða bara svona svaka sæt í dag ;) Jæja 20 mínútur í tíma og svo er það bara læra læra læra og læra svo aðeins meira fram til 20. desember -kuldabolinn-

lunes, 13 de noviembre de 2006

senn koma jólin, senn koma jólin, senn koma jóóólin

Mér finnst eitthvað svo einstakleg gott en þó pirrandi við það að veturinn sé genginn í garð. Það virðist ekki breyta neinu hversu marga vetur ég lifi það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað það er dimmt, kalt, hvasst og hált á veturna ! En bjarta hliðin við þetta er að það verður svo kósý að vera inni undir teppi, kveikja á kertum og fá sér kakó :Þ
Í gær fögnuðu foreldrar mínir 18 ára brúðkaupsafmæli og 27 ára samveruafmæli :) Í því tilefni fórum við öll 7 á Austur-Indíafjelagið. Maturinn var stórgóður og það var svo gaman að fara út með ALLRI fjölskyldunni svona einu sinni :) Hérna koma nokkrar myndir frá kvöldinu :) Annars var ég að fá þær góðu fréttir áðan að ég slepp við lokapróf úr verklega hlutanum í Hugfræðinni :) Það áttu allir möguleika á að sleppa við það en skilyrðin voru að maður myndi mæta í ALLA tímana og skila ÖLLUM verkefnum. Ég missti af fyrsta tímanum þar sem ég var í Berlín og bjóst því við að þurfa að taka það - Í dag tilkynnti svo kennarinn að þeir sem hefðu bara misst af einum tíma mættu sleppa :D Alltaf mikil gleði að sleppa við próf !
Þessa dagana er alveg hrikalega mikið að gera og ég sé ekki fyrir endann á því - ætli maður slaki ekki bara næst á í jólafríinu :Þ Öll þessi verkefnavinna síðustu vikurnar hefur sett lesturinn algjörlega úr skorðum og núna skulda ég margra vikna lesefni : / Svo eru 2 próf hjá mér næstu vikuna og fyrirlestur á fimmtudaginn - Eftir það þarf ég að fara að klára skýrsluna fyrir félagslegu sálfræðina og þegar ég skila henni þá er bara kominn tími til að sökkva sér í prófalestur :O Ætli maður líti þó ekki aðeins upp úr bókunum til að kíkja á vini sína, sérstaklega þá sem eiga afmæli á næstu vikum ;) Svo er villibráðarhlaðborð næsta föstudag hjá vinnunni hans Orra sem við ætlum í, ballettsýning hjá uppáhaldsfrænkunni, sörubakstur, hugsanleg próflestrarsumarbústaðarferð í byrjun des og svo auðvitað hið árlega aðventuboð mömmu :Þ Ohhh já jólin eru að koma :D

jueves, 9 de noviembre de 2006

Rebekka, ég er hér !

Á þriðjudaginn fékk ég úr STRONG prófinu mínu og samkvæmt því þá er líklegt að ég sé á vitlausri hillu í lífinu -Hér sjáiði topp 10 störfin mín samkvæmt prófinu
1. Heyrnarfræðingur 2. Geislafræðingur 3. Framkvæmdarstjóri félagsþjónustu 4. Næringarfræðingur 5. Skógræktarmaður 6. Hjúkrunarfræðingur 7. Sjúkraþjálfari 8. Sjóntækjafræðingur 9. Yfirmaður listi og/eða skrúðgarða 10. Eigandi lítils fyrirtækis Er ekki smá kaldhæðni að flest þessara starfa krefjast þess að maður klári af náttúrufræðibraut í framhaldsskóla - og hvað þau virðast vera fjarri því sem ég er að gera í dag ... Ég sé samt alveg af hverju þessi störf hafa verið valin. Maður gat ekki merkt neinsstaðar við að maður væri með gróðurofnæmi og væri þannig ekki líklegur til að verða skógræktarmaður eða yfirmaður listigarða. Skýrslan sem maður fær með niðurstöðunum er örugglega alveg 30 blaðsíður og ég á eftir að setjast niður og grúska og spá aðeins í þessu. ---------------------------- Mig langaði að benda á þessa síðu Kiva Á þessari síðu getur hver sem er styrkt fyrirtækjaeigendur í þróunarlöndunum með því að LÁNA þeim pening. Hlutfall þess penings sem er borgað til baka er 96% Ég er búin að skoða hana ansi vel og þetta er ekkert pýramídasvindl eða annars konar óþvætti, kíkið bara sjálf ! Koma svo - verum hluti af lausninni, ekki vandamálinu

martes, 7 de noviembre de 2006

tókst að skila mínu skýrslulokauppkasti í dag :D

Þessa dagana þegar það er svona mikið að gera í skólanum, þá bara trúi ég varla hvað sumarið mitt var ótrúlegt ! Að hugsa til baka og vita að ég eyddi 1,5 mánuði bara í að gera það sem mér finnst skemmtilegast er alveg magnað :) Á morgun fæ ég niðurstöðuna úr STRONG prófinu. Ég veit svo sem ekki af hverju ég er svona spennt, það er ekki eins og þarna sé svarið - kannski bara smá vísbending í rétta átt :) Það hefur gripið mig mikil ferðalöngun síðustu dagana (samanber það sem ég skrifaði hérna ofar). Mig langar svo að heimsækja fjölskylduna mína í Venezuela, mig langar til Suð-Austur Asíu og til Japans. Mig langar líka til Grænlands og Tyrklands og ... og ... og ... Mig langar bara burt :) Ég hef komist að því síðustu daga að ég er ekki sú eina sem er komin með skólaleiða. Það er kannski ekki skrítið eftir 17 ára skólagöngu að maður þreytist. Ég held að það sé kominn tími til að endurnýja námsgleðina svo ég ætla að stefna að því af öllum krafti að klára í vor. Þá get ég gert eitthvað annað næsta árið þangað til við Orri flytjum eitthvert út. Hvað þetta annað verður fer eftir efni og aðstæðum en vonandi verður það eitthvað skemmtilegt :) Hmmm af hverju er ég svo að skrifa færslu kl 1:21 að nóttu - ég svaf til 12:30 í morgun : /

sábado, 4 de noviembre de 2006

no-ki-a

Enn aftur komin helgi og enn einu sinni sit ég inni í matsal í vinnunni minni og blogga þegar ég á að vera að læra : )
Vikan er búin að vera bara nokkuð ljúf. Ég áttaði mig á því áðan að ég hef ekki tekið upp skólabók frá því á sunnudaginn síðasta en ég gleymdi nefnilega öllum bókunum mínum í vinnunni og hafði ekki einu sinni tekið eftir því :O :Þ Vikan er nefnilega öll búin að fara í undirbúning og framkvæmd tilraunarinnar og svo núna síðustu daga úrvinnslu gagnanna og skýrsluskrif - spennandi ekki satt :Þ Annars var þetta ansi skemmtilegt. Tilraunin sem við gerðum var að við sýndum fólki 10 orð sem við báðum það að leggja á minni. Því næst spiluðum við fyrir það tónlist í 3 mín og svo fengu þau 20 sek til að skrifa niður öll orðin sem það mundi. Loks átti það að ganga með blaðið út úr herberginu í annað herbergi 8 metra frá og skilja blaðið eftir þar í skál. Það sem við vorum að mæla var hvort að taktur tónlistinnar sem það hlustaði á hefði áhrif á gönguhraðann. Hóparnir voru tveir og hlustaði fólkið annað hvort á tónlist með hröðum eða hægum takti. Okkar tilgáta var sú að þeir sem að hlustuðu á hröðu tónlistina myndu ganga hraðar en niðurstaðan varð ÖFUG ! þeir sem hlustuðu á rólegu tónlistina gengu hraðar :Þ Ég vildi bara þakka þeim sem að nenntu að taka þátt í þessu fyrir mig. Þetta var svaka skemmtilegt og gaman að sjá hvað fólk hafði mikinn metnað fyrir minnisverkefninu (þó að það hafi að öllum líkindum verið ástæðan fyrir því að niðurstaðan okkar varð svona skrýtin :Þ) Einn tilraunabrandari svona í tilefni dagsins En nóg um tilraunir og skólann :Þ Í vikunni fékk ég líka að sjá gullfallega fyrirburaprinsessu. Ég hef aldrei áður komið upp á vökudeild og það var ótrúlegt að sjá hversu mikið af tækjum og tólum fylgja þessum börnum. Það var líka ótrúlegt að sjá hversu lítil þau eru en þetta eru algjörar hetjur og með hjálp tækninnar þá verður allt í lagi með þau :)
Ég gerði áhlaup á jólagjafainnkaupalistann í gær og nú er lítið eftir að gera nema kaupa gjöfina hennar Eydísar, bæta aðeins við gjafirnar handa ömmum, öfum og foreldrum og svo bara baka :D Þetta ætla ég að klára í nóvember svo desember verði jólagjafainnkaupafrír. Ég fékk nefnilega að heyra það að ég hefði verið nánast óbærileg að búa með og ansi erfið í desember í fyrra :Þ Mamma og Orri voru að kvarta sko :Þ Ég meina kommon það er ekki auðvelt að vera að læra fyrir próf, vinna, reyna að hafa kósý aðventu, þurfa að kaupa gjafir og svo líka pakka og vera reddí til að fara út úr bænum um leið og maður gengur út úr síðasta prófinu 20. des. Jamm þannig núna er planið að dreifa þessu og vera ekki með neinar monníáhyggjur í des. Slaka svo bara á og borða sörur yfir skólabókunum á meðan ég læri.
En jæja þetta blogg er að ná metlengd ... það gerist alltaf þegar maður skrifar blogg í pörtum á milli þess sem maður vinnur og svona :Þ Manni dettur alltaf eitthvað nýtt í hug til að bæta við þegar maður kemur aftur að tölvunni :Þ
blessbless

miércoles, 1 de noviembre de 2006

54 dagar til jóla

Ég var búin að gera ýmis plön fyrir daginn í dag en þegar á hólminn er komið þá langar mig bara að gera ekki neitt. Ég ætlaði nefnilega að verðlauna sjálfa mig fyrir að vera svona dugleg í léttingunni með því að fara á Grænan kost og fá mér gott að borða og fara svo á bókasafnið og lesa Lifandi vísindi :Þ Já já ég veit ég er svaka skrítin, hver verðlaunar sjálfan sig með því að lesa vísindablöð og borða úber hollan mat :Þ Þessa dagana er ég líka á fullu að vinna í gagnasöfnun fyrir tilraunina í Félagssálfræðinni. Mig vantar nokkra í viðbót til að fylla upp í úrtakið mitt því það voru nokkrir sem að gátu ekki komið sem ég hafði gert ráð fyrir :/ vona að það reddist bara því mig langar innilega mikið að ná að klára gagnsöfnunina í kvöld svo að það sé hægt að byrja á skýrslunni á fimmtudaginn .... Erum að gera smá easypeasy minnistilraun og þetta tekur svona rétt rúmlega 5 mínútur. Í dag er náttúrulega payday, guði sé lof því ég er búin að lifa á minna mál kexi í næstum viku : / Ótrúlegt hvað þetta kex er seðjandi ! en að borða lítið annað en það í viku er hálfsúrt. Ég fór því áðan og keypti mér pastabakka svona í tilefni af því að eiga smá monní en ojj hann var svo vondur : / Á morgun ætla ég svoooo að fara í Hagkaup og kaupa hollan góðan mat, ávexti og fleira djúsí : ) Stórfrétt dagsins er svo að vinkona mín er að eignast barn núna as we speak svo ég ætla að vera fyrst til að óska þeim TIL HAMINGJU MEÐ SKVÍSUNA : ) Jæja got2go að slæpast