Klukkan er rétt 6 en ég er samt búin að vera vakandi í næstum 2 tíma :S Ég veit ekki af hverju !
Ég er að fara upp í bústað á eftir og ég er ekki einu sinni byrjuð að pakka því dagurinn í gær fór bara í eitthvað jólastress að klára að redda hinu og þessu.
Enívei, vildi bara segja GLEÐILEG JÓL og ég læt ekkert meira í mér heyra hérna fyrr en 1. jan.
miércoles, 21 de diciembre de 2005
Gleðileg jól :D
Klukkan er rétt 6 en ég er samt búin að vera vakandi í næstum 2 tíma :S Ég veit ekki af hverju !
Ég er að fara upp í bústað á eftir og ég er ekki einu sinni byrjuð að pakka því dagurinn í gær fór bara í eitthvað jólastress að klára að redda hinu og þessu.
Enívei, vildi bara segja GLEÐILEG JÓL og ég læt ekkert meira í mér heyra hérna fyrr en 1. jan.
martes, 20 de diciembre de 2005
3 klst 40 mín
Síðasta prófið byrjar eftir 40 mín og ég var að vakna *geisp* Ég ætlaði aldrei að geta sofnað og var alltaf að vakna svo ég er dauðþreytt og með hausverk :S Stressið að gera útaf við mann þessa dagana :Þ
Jæja en eftir 3 tíma og 40 mínútur er þessi vitleysa búin og ég get farið að undirbúa jólin :D
Wish me luck !!
Btw búin að fá eina einkunn í viðbót 7,5 málfræði ... mjög sátt :D
domingo, 18 de diciembre de 2005
plís ekki meiri próf !!
Ég held að ég sé búin að overdosa á öllu próftengdu :S próftöflur, prófstofur, lesa fyrir próf, borða próf nammi, bíða eftir að prófin klárist, mæta í próf, bíða eftir einkunnum úr prófum. Ég vil aldrei aftur heyra orðið PRÓF !!! Svo finn ég ekki út hvernig ég get sett broskalla inn á þetta blessaða blogspot blogg, svo ef einhver veit það þá má sá hinn sami segir mér hvernig ég fer að því !
Smá til að skemmta mér/ykkur, þetta er örlítið námstengt þar sem ég sé ekki betur en að þetta sé Don Quijote og myllurnar hans ----- Hvað sjáiði mörg andlit á þessari mynd ??
Smá til að skemmta mér/ykkur, þetta er örlítið námstengt þar sem ég sé ekki betur en að þetta sé Don Quijote og myllurnar hans ----- Hvað sjáiði mörg andlit á þessari mynd ??
sábado, 17 de diciembre de 2005
3 dagar enn ...
3 dagar í frelsið, afslöppunina, enginn vinna og jólajól !! Kl. 12 á miðvikudaginn verð ég hamingjusamasta manneskja í heiminum :Þ Þá þarf ég reyndar að bruna beint heim og fara að pakka, maður þarf fín föt fyrir 2 kvöld :S og svo allan annað fatnað fyrir næstum 2 vikur !! úff ég held ég eigi ekki einu sinni svona mikið af fötum (skiljið enginn aðgangur að þvottavél). og svo á ég eftir að kaupa gjafir handa Orra og Maríu (og reyndar öllum Orra megin en hann má sjá um það því hann hefur tíma).
Ég fór í Ritþjálfunarprófið áðan og ég held mér hafi bara gengið glimrandi :D Byrjaði ekki að læra fyrir það af viti fyrr en kl. 10 í morgun en það alveg bjargaði mér og ég kláraði prófið á innan við hálftíma ! Ég held að ég sé ein af þeim sem að labba alltaf út úr prófinu akkúrat á þeirri mínútu sem það má :Þ
Næsta og síðasta prófið er Menning, þjóðlíf og saga Spánar, 5e kúrs ! Ég er reyndar ekkert rosalega stressuð fyrir það af því ég er búin að lesa allt efnið og mæta vel í tímana í vetur. En reyndar er þetta ansi mikið efni því það er verið að fara yfir alla söguna frá skrilljón fyrir Krist fram á okkar daga :S Svo þetta er ansi mikið að muna :D
Eníhú ég er farin að sjá jólatré, pakka, jólakúlur, pottaferðir með baðbombum, kalkún, föndur, kyrrðina, náttúruna, jólaseríurnar og allt hitt sem að fylgir, alveg í hillingum. Bara 4 dagar í viðbót og ég er sloppin úr borginni í alveg 13 daga ! engin vinna og enginn lestur ! En reyndar líka enginn Orri :(
-Íris í jólahug-
viernes, 16 de diciembre de 2005
jibbíjei 2 (vona ég)
Vá vá vá vá vá þessi dagur getur ekki mögulega orðið betri :D Ég fékk 8 í Bókmenntafræði :Þ það er prófið sem mér gekk svo illa í :Þ
Ég er eiginlega ekki alveg að trúa þessu og eiginlega bíð bara eftir að þetta verði leiðrétt eða eitthvað :Þ Hæsta einkunnin var 8,5 og það var bara einn sem fékk það ! Úff ég er bara í vímu :Þ
Úff ég vona að þetta sé ekki einhver vitleysa :S það myndi alveg fara með mig ef það kæmi svo í ljós :S Þetta virðist bara svo ólíklegt þar sem að ég hefði þurft að fá yfir 9 á prófinu til að fá svona hátt :S og það virðist bara ansi undarlegt !!
jibbíjei
Fyrsta einkunnin komin í hús og hún er tatataratata 8 ! :D Ég fékk meira segja 9 úr munnlega hlutanum sem mér finnst alveg ótrúlegt af því að í prófinu þá var ég svo stressuð og röddin á mér skalf allan tímann og tungan var svo ekki samvinnuþýð svo mér fannst ég bara vera að segja eitthvað bull :Þ en eitthvað af því hefur greinilega hljómað eins og spænska ;)
En jæja þriðja prófið er á morgun, Ritþjálfun. Ég er EKKERT búin að læra :S er ekkert stressuð fyrir það og það væri svo gott á mig ef ég myndi falla í því :S Eftir það eru bara 3 dagar í erfiðasta prófið sem er saga :S svo ég þarf rækilega að fara að sparka í rassinn á mér !!
Ég er búin að borða svooooo mikið af sörum að ég gæti dáið ! Ég er bókstaflega sprungin af söruáti ! En ég verð örugglega komin yfir það á næstu jólum :Þ
miércoles, 14 de diciembre de 2005
Sörur, TR og hettusótt
Í gærkvöldi var hið árlega (jaaa þetta var fyrsta árið :Þ) smákökukvöld á Traðarbergi 25. Mættir voru ég og mamma :Þ og bakaðar voru sörur :D Já við ákváðum að ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og gera þetta sjálfar til að sjá what all the fuzz is about og hey þetta var bara ekkert erfitt !! Bökuðum yfir 100 stykki og það eina sem við klúðruðum var fyrsta fyllingin :Þ var enn eins og vatn eftir að hafa verið í kæli í 2 tíma :Þ Svo ég lýsi okkur mömmu hér með Sörusnilla og munum við stoltar bera þann titil fram að næsta smákökukvöldi :Þ
Annars er þessi dagur búin að fara í baráttu við TR og bleika og hvíta miða. Við eigum að fá borgaða styrki útaf aðgerðinni sem Orri fór í en við þurfum að mæta með alla pappíra til þeirra og það verður sko þrautinni þyngra að gera það :S Úff fórum í TR og fengum eitthvað borgað til baka en vá þetta á eftir að vera þvílíkt vesen, allir gamlir reikningar eru komnir niður í kjallara eða önnur hús hjá tannsa og þvílíkt vesen að fá allar þessar upplýsingar og TR veit ekki neitt af því þeir byrjuðu ekki að skrá þessar upplýsingar fyrr en eftir 2002 :S
Svoooo eru þeir svo kræfir !! Þeir borga til baka eftir SINNI gjaldskrá sem er svona 25% lægri en það sem við borgum tannsanum þannig eins og í dag komum við með kvittanir upp á meira en 60 þúsund og fengum af því 40 þús til baka :S Æi þetta er svo mikið bákn og við þurfum að fara að tína allt til svo að við fáum eitthvað af þessari svona hálfu milljón sem er búin að fara í þetta : /
Svo vil ég benda öllum sem eru fæddir 81-85 að skella sér í bólusetningu fyrir hettusótt, það er verið að benda þessum hópi á að fara útaf því það hafa víst verið óvenjumörg hettusóttartilfelli undan farið og þettu getur víst verið ansi alvarlegt for the private parts á strákunum alla veganna :P og svo er þetta víst alveg ömurleg veiki sem stendur lengi yfir og er mikið óþægileg. Við skunduðum áðan á heilsugæsluna og létum stinga okkur, voða lítil nál og svo þarf maður ekkert að borga :Þ
Tvær myndir af ofurbaksturskonunni í action :Þ



martes, 13 de diciembre de 2005
ÉG - MIG - MÉR - MÍN
ÉG/MÉR
- Get ekki borðað ávexti inn að kjarnanum
- Get ekki borðað kjúkling á beini nema einhver skeri það af beininu fyrir mig :Þ
- Borða ekki heitt og kalt saman (eins og salat og restina af matnum)
- Drekk ekki gos
- Er með 7 fæðingarbletti á tánum
- Á mjög erfitt með að gera bara 1 hlut í einu, finnst það vera tímasóun :Þ
- Er stundum svo skipulögð að það myndi hræða Monicu
- Elska súkkulaði of mikið
- Varð svaka fitubolla út í Venezuela :Þ
- Horfi nánast aldrei á sjónvarpið
- Borða eiginlega ekki kjöt
- Finnst kotasæla æði
- Borða bara mjúkar smákökur
- Snerti helst ekki neitt með berum höndum inni á almenningsklósettum
- Tek aldrei í handriðið á leiðinni upp/niður tröppur
- Hef séð mannrán gerast
- Sofið í skotti á bíl á strönd
- Tókst að byrja í 4 vinnum á 5 mánuðum á þessu ári
- Er bara 1.60
- Kalla tölvuna mína Emilíu
- Er svakalega lofthrædd
- Vakna á hverri nóttu og lít fram til að athuga hvort að það sé kviknað í
lunes, 12 de diciembre de 2005
ekki baun
Fyrir 3 dögum síðan var ég ekki byrjuð í prófunum en en í dag er ég búin með helminginn og ég veit ekki hvort ég á að vera fegin eða leggjast í gólfið og grenja :S :Þ Prófið í dag fór ekki alveg eins og ég hafði vonast til, ég og kennarinn höfðum greinilega MJÖG ólíkar hugmyndir um það hvað væri merkilegt, mér fannst bókmenntaSAGAN en svo var prófið bara í allt öðrum dúr sem sagt bókmenntaFRÆÐI -ifuknowwhatImean-
En jæja bannað að svekkja sig eftir próf og ég ætla ekki að gera það heldur :Þ
5 dagar í næsta próf og 8 dagar í próflok !! þetta verður (vonandi) liðið áður en ég veit af ... eða samt ekki, á þessum tíma þarf í líka að ná að kaupa allar gjafir og undirbúa og pakka öllu fyrir ferðina :S þvo, pakka, finna jólaföt :S ohhh stundum væri gott að búa enn hjá mömmu og pabba :Þ Á morgun eftir vinnu ætla ég svo heim til mömmu í sörubakstur :Þ fyrsta skipti sem við gerum svona en mér finnst þær ógó góðar :Þ var mjög dugleg við að borða þær þegar ég vann í bakaríinu í denn, aumingja kúnnarnir hafa bara fengið hálf box :Þ
Bueno, er í vinnunni og leiðist alveg guðdómlega mikið ! eftir 3 alveg útúrtjúnaða stress daga þá er ég bara alveg orkulaus + ég svaf varla í nótt :S Ég ætla svo að kúra mig snemma upp í rúm í kvöld og lesa Harry Potter ..... á það alveg skilið !
domingo, 11 de diciembre de 2005
pooooooohhhhh...........
Ríf í hár, gnísta tönnum og grenja smá : / Eftir morgundaginn vil ég ekki heyra minnst á bókmenntafræði !!! Lorca, Vega, Unamuno ..... mega allir fara til helv****
Ég sat í 6 tíma í Odda í dag (já í Odda því það eru ekki til peningar til að hafa Hlöðuna opna eins og þarf í prófunum) enívei, þá held ég að það hafi varla komist neitt inn í hausinn á mér :S Svo á morgun mæti ég í prófið nánast ólærð og ætla mér víst að fara að gera greiningu á ljóði sem þarf náttúrulega að vera á SPÆNSKU !!! hmmm já ég er alveg ótrúlega bjartsýn :Þ ég held að ég hafi virkilega skilið stresshliðina mína eftir einhvers staðar !!
Jæja ég er farin að að horfa á bókmenntafræðibækurnar mínar til kl. 23
Princess Consuela Banana Hammock
sábado, 10 de diciembre de 2005
Próf og aðventuboð :D
Fyrsta prófið búið, mér til mikillar gleði :D Gekk bara svona ágætlega, eiginlega bara alveg eins og ég bjóst við, semsagt slatti sem ég kunni ekki en líka slatti sem ég kunni. Núna er bara að vona að þessi slatti sem ég kunni dugi til að ég nái :D
Annars er næsta próf bara á mánudaginn í bókmenntafræði :S Það er semsagt ekki mikill tími til að læra fyrir það : / og ég er ekkert rosalega klár í þessu efni fyrir :S en maður notar kvöldið og morgundaginn og vonandi er það bara nóg :Þ
Þetta er búið að vera mjög fínn dagur, próf og aðventuboð :D Mamma stendur alltaf fyrir sínu :Þ Heldur bestu jólaboðin með æðislegustu kræsingunum :* Það er sko aldrei leiðinlegt að borða þar sem mamma býr til matinn því maður getur stólað á það að það verður eitthvað frumlegt.
Á hverju einasta ári þarf hún að standa yfir borðinu og útskýra fyrir fólki hvað þetta sé nú eiginlega og hvað á að borða með hverju :Þ Nema þegar ég útskrifaðist því þá merktum við matinn með litlum spjöldum :Þ Já ég á sko æðislegustu fjölskyldu í heimi >------------< (þetta á sko að vera knús :Þ) Ein mynd úr boðinu því jóli mætti náttúrulega á svæðið :Þ
Á hverju einasta ári þarf hún að standa yfir borðinu og útskýra fyrir fólki hvað þetta sé nú eiginlega og hvað á að borða með hverju :Þ Nema þegar ég útskrifaðist því þá merktum við matinn með litlum spjöldum :Þ Já ég á sko æðislegustu fjölskyldu í heimi >------------< (þetta á sko að vera knús :Þ) Ein mynd úr boðinu því jóli mætti náttúrulega á svæðið :Þ Jæja en ég er komin með flensu þannig ég henti mér í náttfötin, ligg með lappann í fanginu
og ætla að "læra" til 9 því þá byrjar Miss World, maður verður nú að sjá íslensku fegurðardrottningu krýnda :Þ
viernes, 9 de diciembre de 2005
1 dagur í 1.próf - 11 dagar í próflok
Það er nú meira hvað lífið verður sorglegt þegar prófatíminn kemur :S og þá þarf bæði lítið til að gleðja mann og lítið til að pirra mann.
Pirringur:
8:15, sitja fram eftir öllum degi, borða, æfa, sofa !! og svo reyni ég að troða eins miklum upplýsingum og hægt er í grautinn minn þarna upp. Hann er orðinn yfirfullur af pronombres, sögnum og spænskri bókmenntasögu :S
- Má ekki borða á Hlöðunni (lætur mig vilja vera heima)
- Vond fýla heima (nágrannarnir í kjallaranum byrjuðu að brassa eitthvað kl. 5 í nótt. Mér finnst fátt ógeðslegara en að vakna með steikingarfýluna í nefinu)
- Bíllinn er að bila (again)
- Ég er búin að hnerra skrilljón sinnum í morgun (vont þegar maður er á Hlöðunni)
- Ekki hægt að fá almennilegt vatn hérna :S mér til mikillar mæðu fjarlægðu þeir góða kranann sem var í kaffiteríunni, why ???
- Ég á Ópalbrjóstsykra frá því í gær :)
- Ég komst aðeins í Kringluna í gær og plöggaði 1 jólagjöf, seríum og svo keypti ég í matinn (sem var mjög nauðsynlegt þar sem allt sem var í ísskápnum heima var útrunnið og myglað)
- Ég er ekki að vinna næst fyrr en á mánudaginn (og þá verð ég búin með helminginn af prófunum mínum :D)
- Prófin byrja á morgun (já það er gleðiefni því að því fyrr sem þau byrja því meira styttist í það að þau séu búin)
8:15, sitja fram eftir öllum degi, borða, æfa, sofa !! og svo reyni ég að troða eins miklum upplýsingum og hægt er í grautinn minn þarna upp. Hann er orðinn yfirfullur af pronombres, sögnum og spænskri bókmenntasögu :S
miércoles, 7 de diciembre de 2005
Þvílíkt andleysi!
Þvílíkt andleysi *geeiiiiisp* (ég var akkúrat að geispa þegar ég skrifaði þetta) Er á Hlöðunni og er búin að sitja hérna frá því kl. 9 í morgun úff og ómen ég meika ekki meira, ég er komin með ógeð á prófunum og er ekki einu sinni byrjuð :Þ
Ég er svo sybbin að ég er viss um að ef ég myndi loka augunum í svona 5 sekúndur þá myndi ég steinrotast hérna fram á borðið ! En bjarta hliðin á því er að ég mun alla veganna geta skriðið snemma upp í rúm í kvöld :Þ
Jæja hver vill koma og gefa mér orkusprautu svo ég fari að kíkja á bókmenntafræðina ???
Bíð spennt eftir því hverjum þykir vænst um mig og mætir upp á Hlöðu til mín með súkkulaði (Rittersport blátt) og fær í staðinn knús og koss ..... Jæja ég sit og bíð !! Annars enda ég eins og stelpan á myndinni !!!
Svona í lokin þá eru hérna 2 linkar á alveg hilarious barnalandsumræður, svona fyrir þá sem vilja taka smá pásu frá lestrinum og grenja smá (úr hlátri auðvitað
Versta jólagjöfin
Skrítnasti staðurinn
Gangi ykkur öllum vel í lestrinum elskurnar mínar
Bíð spennt eftir því hverjum þykir vænst um mig og mætir upp á Hlöðu til mín með súkkulaði (Rittersport blátt) og fær í staðinn knús og koss ..... Jæja ég sit og bíð !! Annars enda ég eins og stelpan á myndinni !!!
Svona í lokin þá eru hérna 2 linkar á alveg hilarious barnalandsumræður, svona fyrir þá sem vilja taka smá pásu frá lestrinum og grenja smá (úr hlátri auðvitað
Versta jólagjöfin
Skrítnasti staðurinn
Gangi ykkur öllum vel í lestrinum elskurnar mínar
lunes, 5 de diciembre de 2005
Gerum góðverk
Ég óska eftir töfrafjarstýringu, hún verður að vera bleik og með forwardtakka. Þessi takki verður svo að virka til að geta forwardað lífi mínu fram um svona eins og 16 daga. Ég vil vakna aftur akkúrat þar sem ég geng út úr síðasta prófinu mínu. Svo óska ég líka eftir minniskubb sem getur innihaldið allt sem ég þarf að vita fyrir prófin næstu 16 dagana, hann vil ég geta plöggað í heilann á mér og vista allar upplýsingarnar þar. Þetta verður til þess að ég mun líka brillera á öllum þessum prófum sem eftir eru. Ef einhver lumar á þessum galdrabúnaði þá er hann vinsamlegast beðin um að láta vita af sér í kommentum hérna fyrir neðan. Takk
Að öðru, ég vil minna fólk á að það er komin desember og komin tími til að vera góður við náungann hvort sem hann er hér á landinu eða erlendis.
Fyrir þá sem vilja styrkja hjálparstarfið í Pakistan þá er hérna bankareikningurinn 1151-26-12 og kennitalan er 530269-2649 Svo er líka hægt að hringja í 9072020 og láta 1000 krónur dragast af símreikningum !! Þúsund kall er enginn svaka peningur fyrir okkur en getur virkilega hjálpað þeim sem þurfa á honum að halda !!
Ansi gott að hugsa aðeins um náungann alla veganna svona einu sinni á ári :D
ó mæ ó mæ
ó mæ !!! Hvað gerði ég nú !!!
Mér tókst að setja inn hversu margir væru online en ekki alveg eins og ég vildi hafa það .... af hverju breyttist letrið á stöfunum og þeir eru ínímíní !!! og svo er komin einhver crazy popup auglýsing !!! Hvernig fer ég að þessu !! :Þ
Tölvunörd plís gefi sig fram til að bjarga mér, alla veganna svona þangað til að Orri kemur heim úr vinnunni !!!
Um daginn tókst mér að eyða öllu útaf síðunni :S svona er að vera stanslaust að fikta :Þ
domingo, 4 de diciembre de 2005
lov jú gæs
Í mínu lífi eru 2 æðislegar stelpur sem þurfa ekki nema að brosa og gefa mér knús til að gera slæman dag að góðum og ég er svo heppin að þær eru systur mínar svo þær eru aldrei langt í burtu þó þær taki upp á því að fara hinum megin á hnöttinn eða blokka mig á msn :Þ
sábado, 3 de diciembre de 2005
Eníhú hú ar jú
*geeeeeeiiiiiiiisp* eru það fleiri en ég sem sjá eitthvað mynstur hérna :Þ alltaf þegar ég þarf að mæta snemma í vinnuna er ég alveg ónýt af því ég er svo þreytt !! Það var nú reyndar ein ákveðin manneskja sem gerði sitt besta til að láta mig sendast út um allan bæ eftir miðnætti í gær og þar með gulltryggja þennan króníska geispa sem ég er með í augnablikinu !
Ég og Orri fórum að jólajólast í gær, reyndar jólajóluðumst við ekki neitt en úr þessu var svaka bæjarferð um allar trissur að redda hinu og þessu. Jahh eða reyndar þegar ég hugsa um það þá náðum við ekki að gera það sem við ætluðum að gera á einum einasta stað, eða svona fyrir utan ferðina í Ríkið en það er nú oftast einfalt :Þ
Tryggingastofnun heimtar að við komum með allar kvittanir frá árinu 2000 til að leysa út vinninginn okkar, Tannsinn var svo farinn snemma heim því það var föstudagur. Lentum nánast í slag við þjónustufulltrúana í KB-banka á Suðurlandsbraut, í guðanna bænum ekki fara með peningana ykkar til þeirra, þeir væru vísir til að týna honum !! Nenni ekki að rekja það hérna en ef það kemur eitthvað aftur upp ÞÁ ER MÉR AÐ MÆTA !!! *arghégervoðareið*
Fórum svo fórum við í IKEA að kaupa jólastöff en HEY whats up with all the ugly christmas stuff !! ég fann ekkert sem að mig langaði í og passaði heima :( er enn að leita að drauma jólaljósinu fyrir stofugluggann.
Þannig að allt í allt var bæjarferðin ekkert svaka success en jæja kemur næst :Þ
Í gærkvöldi var svo læri hjá mömmu og pabba og þau helltu Orra fullann, ég fæ alltaf að vera driver en ég driveaði mig bara eina heim því Orri fór að get2getherast með strákunum *hmmmm*
Í kvöld er það svo eitt stykki ammli, jahh eða reyndar 2in1 þar sem bæði Kristín og Andri eiga afmæli :Þ Andri þú færð örugglega enga gjöf þar sem hún var í höndum Orra og hann var ekki búin að kaupa hana síðast þegar ég vissi og ég efast um að hann fari fram úr rúminu áður en búðir loka í dag :Þ þannig ég skal gefa þér einn af stöku sokkunum mínum og þú getur búið þér til brúðu.
En jæja eníhú er í vinnunni mygluð as hell, ómáluð með skítugt hár geispandi og of löt til að læra, ég þarf alvarlega á björgun að halda !! Af hverju heimsækir mig aldrei neinn í vinnuna, ég er meirihlutann af tímanum ein og heng í tölvunni !! Ég auglýsi hér með eftir einhverjum til að koma og halda mér smá félagsskap í staðinn skal ég bjóða upp á kalt vatn og kanilsnúða.
jueves, 1 de diciembre de 2005
Kósíheit par exelans
....Allir þurfa jú að passa línurnar.
Viljum ekki enda eins og svín - er það?
Fokkitt - skítt með það - fáum okkur ögn meiri rjóma....
Ég er með prófa-jólakvíðaröskun. Er ég sú eina sem finnst prófin í háskólanum eyðileggja jólin !! Ég þoli ekki að vera í prófum til 20. desember, maður missir alveg af desember og öllu því yndislega sem honum fylgir því maður getur ekkert gert nema stela tíma frá lestrinum...
Ég alveg krossaði alveg alla mína putta og tær og vonaði að í ár myndi ég vera búin í prófunum fyrir 20.des, var meira segja að vona að losna kannski svona 17. eða 18. og kannski getað verslað gjafirnar og svona í rólegheitunum því ég er að fara úr bænum 21. des og kem ekki aftur heim fyrr en í janúar ... Ohh æ ég er bara pirruð :Þ Mig langaði líka að eiga smá jól með Orra fyrst hann verður heima eeeeennnn nei greyið er í 2 prófum 21. des svo það er ekki eins og við náum e-m jólatíma : /
hmmm já ég er greinilega í jólaskólaþunglyndi !! vildi óska þess að ég væri enn í framhaldsskóla :Þ
Annars fór ég í munnlegt próf í morgun, það gekk nú alveg ágætlega svona fyrir utan það að röddin á mér skalf svo mikið og tungan þvældist fyrir af eintómu stressi :Þ ekki gott þegar mðaur er í prófi í AÐ TALA :Þ en ég vona að ég hafi komið upp e-u af viti :Þ
Eníhú 9 dagar í fyrsta próf - 19 dagar í próf lok - 23 dagar til jóla hmmmm já og ég er blönk :Þ svona er það þegar það bætast við 2 reikningar sem saman eru upp á 120 þús kall !! össs en nei nei það reddast reyndar þegar við höfum fengið borgað úr almannatryggingalottóinu sem við unnum í október ;)
Kveðja Íris í jólaskólaþunglyndi sem er með öll jóla/aðventu/þorláksmessu lög Baggalúts á repeat til að halda geðheilsunni :Þ
.....Réttu rauðkálið, grænu baunirnar
Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar?
Hvernig smakkast svo? - Þetter yndislegt.....
martes, 29 de noviembre de 2005
hverf inn í draumaheim þar sem allt getur gerst
Ást mín á bókasöfnum er endalaus og hefur verið til staðar frá því ég man eftir mér lesandi. Mamma vill meina að ég hafi kennt sjálfri mér að lesa á viku.
Að fara inn á safnið og finna kyrrðina og allar þessar bækur ... hafsjór af fróðleik og endalausum mómentum þar sem maður kúrir upp í sófa með bók og flísteppi. Líka ótrúlegt að á bókasöfnum geti maður fengið nánast hvaða bók sem er og maður borgar kannski bara 1000 kall á ári og hefur ótakmarkaðann aðgang, mér finnst það bara aðdáunarvert.
Þegar ég var lítil og í grunnskóla þá gerði ég það reglulega að taka bækur á bókasafninu þar, það muna allir sem voru með mér í skóla eftir Birni bókasafnsverði :D en allaveganna, þá labbaði ég alltaf heim lesandi, ég gat ekki beðið með það að byrja þangað til ég kæmi heim svo ég hef verið ansi undarlegur krakki og bara heppin að enginn keyrði á mig :Þ Þegar ég var svo svona 9 ára þá fór ég það sumarið á bóksafnið nánast annan hvern dag af því ég mátti bara taka 3 bækur í einu, það vakti greinilega athygli einhverrar afskaplega góðrar bókasafnskonu og ég fékk fljótlega að taka mun fleiri bækur í einu mér til mikillar gleði :Þ
Eftir því sem ég eldist þá minnkar ást mín á bókum ekki neitt þó að smekkurinn hafi óneitanlega breyst. Eftir að hafa lesið allar Fimmbækurnar og Ævintýrabækurnar, Gunnubækurmar og Frank og Jóa bækurnar og líka Nancy bækurnar þá tóku við gelgjubækurnar og ég svelgdi þær í mig alveg eins og allar hinar. Í jólafríinu 2003 las ég á viku 5 bækur eftir Arnald Indriðason, heppin af því að þær voru ansi vinsælar í þeim íslenskuáföngum sem ég tók önnina eftir :Þ Um sumarið 2004 las ég svo allar 5 Harry Potter bækurnar á viku !! geri aðrir betur. Eftir það tók við Da vinci lykillinn en sá lestur stóð nú bara yfir í rúman sólarhring :Þ
En eftir að ég byrjaði í háskólanum þá hef ég ekki samviskubitslaust getað tekið upp bók sem MIG langar að lesa því þá stara alltaf skólabækurnar á mig með sakandi augnaráði til að minna mig á það að ég sé nú komin svolítið á eftir í sögu og sú bók ætti nú frekar að vera fyrir framan mig .... EEEENNN nú ætla ég að breyta þessu og taka smá forskot á sæluna fyrir jólafríið, ég skellti mér á Borgarbókasafnið áðan og krækti mér í 4 gersemar, Kleifarvatn, Harry Potter nr.6, 101 dagur í Bagdad og svo tók ég reyndar líka fyrir forvitnissakir Konur sem hugsa um of :Þ af því ég hef fengið að heyra það að ég hugsi stundum einum of mikið :Þ
Þannig að ef að ég hverf skyndilega og mæti ekki í prófin eða eitthvað þá hafa bækurnar endalega gleypt mig.
próf eru ekki mitt thing
Jæja þá er þessi törn svona eiginlega búin, eftir að hafa skipt 3 eða eiginlega 4 sinnum um ritgerðarefni þá kláraði ég hana loksins í gærkvöldi og ég er eiginlega bara búin á því eftir það :Þ Svo var próf í morgun í Ritþjálfun og vá, ég algjörlega klúðraði því, það var samt ekki af því að ég lærði ekkert fyrir það, það hefði ekki breytt neinu :S
Jólin eru aðeins farin að kitla mann og ég er komin með 1 jólaskraut :Þ Mamma gaf okkur aðventukrans svo ég kveikti á fyrsta kertinu í gær ... ég veit það var ekki sunnudagur í gær :Þ ég var bara ekkert heima á sunnudaginn til að hafa kósý svo það má alveg hliðra smá til :Þ
Skólinn er bara að klárast þessa dagana, ritgerðarskil á morgun og síðasti tíminn í sögunni og bókmenntafræðinni. Á fimmtudaginn er svo munnlegt próf í Málnotkun :S Ég er svolítið stressuð fyrir það, sérstaklega af því að ég sendi inn þau 3 efni sem ég vildi fá að tala um, kennarinn velur svo 1. En málið er að ég man ekki nema 2 af þeim og það er alveg týpískt að hann velji þetta þriðja sem ég man ekki hvað er :Þ
Úff ég er svvvooo þreytt af því ég svaf nánast ekkert í nótt, sofnaði ekki fyrr en 3 og var svo alltaf að vakna því ég var svo hrædd um að sofa yfir mig því ég þurfti að vakna kl.8 :S Þannig ég var kolrugluð í allan morgun alltaf að hrökkva upp og líta á klukkuna og svo loksins þegar hún hringdi þá slökkti ég á henni því ég hélt að það væri eitthvað allt annað að hringja ... já svona er maður crazy á morgnana
domingo, 27 de noviembre de 2005
vinna og læra
Jæja ég held að ég sé loksins komin af stað í þessari ritgerðarvinnu, btw þá var planið að vera búin með hana í gær :Þ en eftir miklar þrautir þá skipti ég á fimmtudaginn um efni úr því að vera með Franco og hans tímabil yfir í það að stytta það bara niður í Borgarastyrjöldina. Eftir mikið maus og heilasoð þá var ég samt ekkert að komast áfram þannig að í gærkvöldi :S þá skipti ég enn einu sinni um efni :Þ og er núna með Los Iberos :Þ Ég er semsagt búin að skrifa 2 bls um 3 ritgerðarefni ... spurning um hvort að ég megi ekki bara setja þær þrjár saman og skila inn í staðinn fyrir 6 bls um eitt efni :Þ
Ískalt úti og minna en mánuður til jóla :D mínz er mjög ánægð.
Sigurrós í kvöld með skvízunum mínum já og einum skvízuherra :Þ
Farin að vinna og læra og vinna og læra
hasta luego
viernes, 25 de noviembre de 2005
æ þessi pólitík
Hahaha mér hefur alltaf verið illa við Chavez (forseta Venezuela) eftir að hafa
- þurft að eyða lengri tíma innan dyra í útgöngubanni þegar landið var á barmi borgarastyrjaldar - þurft að horfa á hann synga (falskt) og gera allskyns bull í hvert sinn sem að hann rauf útsendingar allra sjónvarpsstöðva í Venezuela,
- var líka ansi hrædd þegar hann sendi herþotur yfir Caracas til að ógna fólkinu sem bjó þar þegar hann var hræddur um að gerði yrði uppreisn og það nötraði allt og skalf í íbúðinni minni þegar þær flugu yfir húsið því þær flugu svo lágt ............
- já og milljón aðrir hlutir svo sem morð á saklausu fólki og spilling sem hafa gert það að verkum að hann er ekki on my good side
.... en mér líkar verr við Bush og Chavez líkar líka illa við Bush
og í dag las ég frétt í Mogganum sem kom mér til að hlæja og fyrirsögnin var "Öreigar í Boston fá olíu frá Venesúela"
og greinin í stuttu máli:
"Fátækt fólk í Boston í BNA mun framvegis geta keypt olíu til húshitunar við lágu verði frá fyrirtæki sem stjórnvöld í Venesúela reka .... Það er Citgo-fyrirtækið sem selur hinum fátæku olíuna en það er útibú ríkisolíufélags Venesúela í Bandaríkjunum....Samkomulagið var gert við hjálparsamtök í Boston en þingmenn bandaríska Demókrataflokksins komu einnig að gerð þess...Samkvæmt því munu fátækir íbúar Boston og samtök sem að vinna að því að lina þjáningar þeirrra geta keypt olíu til húshitunar á verði sem er um 40% undir markaðsverði....
Olíusalan er liður í áætlun , sem Hugo Chavez, forseti Venezuela, hefur samið og miðar að því að bæta kjör öreiga fólks í ríkjum Ameríku. Sendiherra Venezuela í BNA sagði að olíusalan væri í samræmi við "loforð" það, sem Chavez hefði gefið bandarísku þjóðinni"
hehe æ þetta er þvílíka steypan, flott að hjálpa fátækum Bandaríkjamönnum en hvað með fátæku Venezuelana ! Því að svona býr það
Ég efast um að Bush finnist þetta eins fyndið og mér :Þ kannski líka af því Chavez er góður vinur Castro :Þ
Jæja en ég er mætt í vinnuna og það er nákvæmlega EKKERT að gera, engin að fara og enginn að koma og semstendur bara 1 gestur í húsinu fyrir utan alla fastagestina (mjög lítið ónæði af þeim) svo ég held ég fari bara að koma mér í það að læra smá :P
Jæja en ég er mætt í vinnuna og það er nákvæmlega EKKERT að gera, engin að fara og enginn að koma og semstendur bara 1 gestur í húsinu fyrir utan alla fastagestina (mjög lítið ónæði af þeim) svo ég held ég fari bara að koma mér í það að læra smá :P
bloody lélegt blogg
mmmmm vá voðalega er maður einhverfur svona þegar kemur nær prófunum. Ég er búin að eyða öllum dögunum þessa vikuna heima fyrir framan tölvuna, ALEIN ! já svona verður þetta út desember .....
Ritgerð, ritgerð, ritgerð úff ég er að verða crazy á þessu, en þetta gengur línu fyrir línu :Þ fékk samt góðar fréttir að skil eru 2 dögum seinna en ég hélt svo JEI :P
Já þetta er eitt lélegasta blogg sem ég hef skrifað ! það er ekkert til að borða hérna ! ekki búið að taka til í viku ! já ástandið er lélegt, eða frekar ferlegt :P
En jæja House, ritgerð, Lost, ritgerð, ANTM, ritgerð og svo fer ég í vinnuna á eftir ... gúd bæ
jueves, 24 de noviembre de 2005
hehe æ bara að nöldra eitthvað
Ég fékk að kynnast nýrri hlið á sjálfri mér í morgun, Íris hin morgunfúla !!
Ég rauk á fætur kl.9 því ég var að fara í próf kl. 9:40. Það hefði nú verið allt í lagi ef ég hefði sofnað e-ð fyrr en kl. 3:30 !!
Rölti inn í eldhús og eldaði minn daglega hafragraut, settist niður og stakk upp í mig skeiðinni og leit á klukkuna á tölvunni minni (sem er ALLTAF í gangi) og úps klukkan orðin 9:25 :S Jæja ekki mikill tími fyrir grautinn og ég fer út .... þegar ég finn loksins bílinn (einum of mörg stæði til að leggja í hérna) þá er klukkan orðin 9:37 og mín orðin virkilega grumpí ....
Jæja þegar hér var komið þá set ég bara í bakkgír og held af stað ... ooooggg lít þá á bensínmælinn, fokk bíllinn BENSÍNLAUS, ég bölvaði Orra alveg fram og til baka því hann ætlaði að taka bensín í gær en fokk 1 mínúta þangað til að ég á að vera mætt og ég þurfti að keyra á bensínstöð
Komin með bensín fyrir 500 kall bruna ég upp í skóla, SKÍTSTRESSUÐ um að vera orðin of sein sem að gengur varla þegar maður er að fara í hlustunarpróf! Varla eins og maður geti beðið kennarann að byrja upp á nýtt :Þ
Well, kem upp í skóla, finn stæði hleyp upp í Árnagarð og upp í stofu 311 oooggg hvað haldiði, jújú kennarinn sjálfur er ÓSTUNDVÍSARI en ég og mætti 10 mínútum á eftir mér !!!
Annars var ég líka alveg hundfúl í prófinu, þrátt fyrir að hafa náð að mæta :Þ Kennarinn var að gera mig alveg nuts, sérstaklega þegar hann skammaði bekkinn fyrir að taka prófið ekki nógu alvarlega ..... hey hver mætti næstum 20 mínútum of seint !
En jæja ég er ekki lengur fúl :P er búin að sitja heima í allan dag og horfa á House :S ! og spá í þessari helvítis ritgerð sem ég er að gera, er held ég búin að ákveða að skipta um efni :S skil á mánudaginn :S Efnið sem að ég var með var bara of yfirgripsmikið.
Í kvöld ætla ég svo að horfa á Herra Ísland, maður verður nú að sjá Kollu krýna :Þ og svo skemmir ekki fyrir að þarna eru strákar á nærbuxunum ;)
miércoles, 23 de noviembre de 2005
núverandi hvað??
Smá blogg í tilefni þess að ég kem mér alls ekki til að gera þessa ritgerð :S
Núverandi tími: 14:25
Núverandi föt: náttbuxur, hlýrabolur og flíspeysa (hey ég veit að kl. er hálfþrjú en svona má þegar maður er veikur :Þ)
Núverandi skap: hálforkulaus
Núverandi hár: same old blonde
Núverandi pirringur: LETI bigtime
Núverandi lykt: hmm leitt að segja það en ég þarf örugglega að fara í sturtu, maður er ekki kræsilegur með gubbupest :Þ
Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: Skrifa ritgerð um Francisco Franco
Núverandi skartgripir: þeir eru allir út í svefnherbergisglugga
Núverandi áhyggja: Voða litlar, prófin náttúrulega að koma svo örugglega þau bara :D
Núverandi löngun: gott veður til að fara upp á Esjuna
Núverandi ósk: að ég muni e-n tímann aftur hafa lyst á kjúklingabringum :Þ
Núverandi farði: Bókstaflega enginn
Núverandi eftirsjá: ekki margt, væri ekki sú sem ég er í dag nema vegna alls þess sem ég hef gert og gerst hefur fyrir mig ! :)
Núverandi vonbrigði: að vera svona andskoti andlaus við þessa ritgerðarsmíð
Núverandi skemmtun: ansi lítil
Núverandi ást: á maður ekki að segja Orrinn sinn :Þ
Núverandi staður: Upp í sófa með flísteppi yfir mér og tölvuna í fanginu :Þ
Núverandi bíomynd: Horfði síðast á The Unbreakable (er það skrifað svoleiðis) en fór síðast á Corpse Bride í bío
Núverandi íþrótt: sprikl í Laugum og ég vildi að ég færi oftar í jóga
Núverandi tónlist: engin tónlist
Núverandi lag á heilanum: Sameinumst hjálpum þeim er búið að spilast ansi oft í hausnum á mér síðustu dagana
Núverandi blótsyrði: coño
Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Kíkja til Rúnu og koma svo heim og halda áfram að stara á tölvuna mína og vonast til að ritgerðin skrifi sig sjálf.
Núverandi manneskjur sem ég ætla að forðast: hmmm bara enginn
Ég datt nú líka inn á ansi svona spes blogg áðan, semsagt fangar á Kvíabryggju að blogga :S svona ef þið viljið sjá Bryggjutröllin hljómar bara ansi kósý að vera þarna !! Fær borgað fyrir að læra og svona :Þ Sveitasæla, billard, golfvöllur og æfingasalur og svo mega þeir fara þarna um jörðina eins og þeir vilja :O
Ég átti svo ógeðslegt kvöld í gær að ég er bara enn að jafna mig, hef aldrei fengið aðra eins gubbupest en hún gekk sem betur fer hratt yfir en í dag er ég bókstaflega eftir mig :S Maður þolir margt en ég svo sver það af þessum pestum sem maður fær er gubbupestin langlangverst :S Mér er bara illt í rifbeinunum og með harðsperrur í maganum :O
Jæja ég ætla að halda áfram að stara á tölvuna mína .....
martes, 22 de noviembre de 2005
ready or not here I come
Það er einhver veginn þannig að þegar líður að prófum þá verða bloggfærslurnar alltaf svona hálfaumingjalegar ... maður hefur ekkert að segja nema e-r hérna hafi áhuga á að hlusta á mig babla um sögu tónlistar á Spáni á 20. öldinni ... nei hélt ekki :Þ
En það er semsagt kominn í mann smá próffílingur og maður er að gera sér grein fyrir því að önnin er sama sem búin ! og manni fannst hún varla vera byrjuð ! Ég hefði ekkert á móti því að spóla bara mánuð fram í tímann og vera bara búin með prófin og mætt upp í bústað :Þ
Annars er ég að fara að skella mér í hið hroðalega kjallaravax á eftir :0 fór þarna einu sinni í ágúst eða september svo það er alveg kominn tími á þetta aftur :Þ
En eitt svona að lokum, það er ekkert smá fyndnar og sniðugar myndir á síðunni hennar Maríu :Þ www.blog.central.is/lummur
Hérna er smá preview :D
bara svona fyrir þá sem vilja sjá eitthvað skemmtilegt í lestrarpásunni sem ég giska að þið séuð í :Þ
bara svona fyrir þá sem vilja sjá eitthvað skemmtilegt í lestrarpásunni sem ég giska að þið séuð í :Þ
lunes, 21 de noviembre de 2005
andlaus
Það er ekkert smá andleysi í gangi hérna og það kemur sérstaklega fram í því að ég bara get ekki byrjað á síðasta verkefni annarinnar, ritgerð um Franco, sem ég þarf að skila næsta mánudag : / En í staðinn er ég reyndar búin að lesa svolítið svo kannski kemur þetta bara út í plús :Þ
Andleysið kemur reyndar fram í því að ég nenni ekki að fá mér að borða og reyndar líka í því að ég nenni ekki út í búð að kaupa eitthvað í matinn því það er ekkert til hérna fyrir mig að borða :0 þannig ég sit heima svöng af því ég er of löt !! Þannig kemst ég heldur ekki að æfa því ég er of löt til að borða !
Nei þetta gengur ekki, ég er farin út í búð !!
domingo, 20 de noviembre de 2005
Ég þoli ekki ...
Ég þoli ekki ...
- Fólk sem að leggur bílunum sínum í fleiri en 1 stæði !! Sérstaklega óþolandi upp í HÍ og maður er að verða of seinn í tíma og öll stæði full því þá eru alltaf nokkrir asnar sem virðast alltaf vera á ógeðslega dýrum bílum og nota það sem afsökun að þeir eru hræddir um að e-r rekist utan í bílinn þeirra .... hey ef bíllinn þinn er svona svaka flottur hafðu hann þá bara heima þá rispast hann aldrei !!!
- Opna skápa og skúffur, bara verð að loka þeim.
- Þegar fólk bankar í dót í takt við tónlist eða enga tónlist
- Þegar fólk gnístir tönnum
- Fólk sem að reykir alveg við innganga og maður þarf að labba í gegnum skýið á leiðinni inn/út
- Stafsetningarvillur - mínar og annarra (hvernig í fjandanum skrifar maður annarra?? tvö r??)
- Þegar ég sef yfir mig
- Þegar fólk setur klósettsetuna ekki niður, brr vill bara hafa klósettið lokað !
- Þegar fólk treðst í biðröðum
- Þegar fólk sem að hefur ekki rétt til þess leggur í fatlaðrastæði
- Þegar fólk svarar ekki í símann sinn og ég VERÐ að ná í það
- Þegar ég fer með bílinn á verkstæði og það er komið fram við mig eins og hálfvita af því ég er kvenkyns !! Það segir mér enginn að öryggi í bílum sé til þess að springa um leið og rúðuþurrkumótorinn bræðir úr sér !! ASNI !!
- Fólk sem gefur ekki stefnuljós áður en það ætlar að beygja eða er á leiðinni út úr hringtorgi
- Þegar strætó kemur/fer ekki á þeim tíma sem að áætlunin segir
- Þegar fólk kemur ekki og lætur ekki vita *grrr*
- Þegar fólk er á móti fólk sem er af öðrum kynþáttum og býr á Íslandi!! Mér er alveg sama hvað er sagt þetta fólk má alveg vera hér eins og allir aðrir, alveg eins og ég ætlast til þess að geta flutt til annarra landa og búið þar
- Fólk sem þykist vita ALLT !!
- Þegar útlendingar sem tala ekki ensku koma hingað á Sunnu og tala bara stanlaust við mig á sínu móðurmáli og verða fúlir þegar ég skil þá ekki .... þetta á sérstaklega við um Frakka og Þjóðverja :Þ
- Fólk sem er tapsárt og reynir að svindla *hmmm*
- Þegar ég neyðist til að eiga smalltalk við fólk sem mér líkar ekki einu sinni við !
- Þegar það er lítill bíll við hliðina á stórum bíl í stæði og maður heldur að stæðið sem að litli bílinn er í sé laust alveg þangað til maður kemur framhjá þessum stóra (stórt vandamál í HÍ :Þ)
hehe er þetta ekki bara komið nóg :D nú get ég farið brosandi út í daginn :*
sábado, 19 de noviembre de 2005
Hver ég? já þú
I'm a working girl nei samt ekki alveg þannig girl en ég er alla veganna í vinnunni hmmmm
Margt gaman og gott hefur gerst þessa vikuna.
- Maggý amma Orra lánaði okkur rafmagnsofn !! Vá núna man ég aftur hvernig það er að vera ekki með nefrennsli, stífa putta, kaldar tær og undir flísteppi þegar ég er heima hjá mér :)
- Ég er aftur orðin hafragrautsæta eftir að hafa farið mikla afturför í morgunmatsáti sem fór hring s.s kornflex með kakó svo cocoapuffs sem varð svo honeynut cheerios sem varð að blandi af honeynut og venjulegu og núna mmmmm hinn æðislegi hafragrautur !!
- Það eru þónokkrir RISAR hérna á Sunnu, bandarískir körfuboltamenn eru huges, ég þarf að horfa nánast beint upp í loftið þegar þeir mæta í móttökuna að tala við mig
- Þetta var næst síðasta vikan í skólanum !! guuuuud bara ein ritgerð eftir og þá mega prófin fara að koma .... æ já reyndar eru eiginlega 3 próf eftir líka en hey skítt með þau :Þ
- Samkvæmt talningunni á síðunni hennar Kollu eru 35 dagar til jóla ! 36 dagar þangað til að ég fer upp í Miðhúsaskóg í bústað nr.18 sem ég er farin að þekkja ansi vel. Ég hlakka til að liggja með tærnar upp í loft og borða mackintosh og mandarínur í næstum 2 vikur ! wow 2 vikur án msn og án netsins !!! ég er viss um að frasinn "ég gúggla það þegar ég kem heim" verður ansi heitur ;)
En jæja þetta var allt, bara klst eftir af vinnu og þá þarf ég að fara að taka mig til því að í kvöld er ég víst að fara út að borða með spænskuskorinu á Mama's Tacos :D það verður örugglega frábært. Ég er líka með smá drauma um að komast inn í Hafnarfjörð seinna um kvöldið í afmæli en ég þarf helst að beita smá göldrum til að það gangi upp *hmmm*

jueves, 17 de noviembre de 2005
eintómt væl :Þ
Þetta er ekki alveg minn dagur, ekki út af neinu sérstöku beint, þetta bara er ekki minn dagur :S Ég held ég hafi sjaldan verið jafn tuskuleg, mygluð, úldin og þreytt eins og ég er núna : /
Ég byrjaði daginn líka á að sofa yfir mig, btw þá átti ég ekki að mæta fyrr en 11 í skólann svo það er eiginlega bara afrek að hafa ekki vaknað :ÞEn ég vaknaði bara akkúrat 11 og náði að mæta í skólann og fara með þennan fyrirlestur sem ég þurfti að gera fyrir málnotkunina.
Ég bara sef út í eitt þessa dagana og langar eiginlega mest til að liggja bara undir rúmi með hlýja sæng því að þá er ég alla veganna ekki að frjósa úr kulda ! Svo þoli ég ekki þessa birtu sem er úti, grábjart eitthvað, ég fæ bara hausverk og verð að vera inni með dregið fyrir gluggana :S Og það er það sem ég er búin að vera að gera í allan dag : /
Já væli væli væli þetta verður liðið hjá eftir nokkra klukkutíma þegar það verður orðið dimmt :Þ svo ég ætla bara að leyfa mér að vera svona til 17:30 þegar við förum í mat til Maggýjar :Þ Við fáum líka kannski rafmagnsofn hjá henni og ég er svona að vona að það dugi til að hita aðeins upp hjá okkur því ég er bókstaflega alltaf að frjósa !! Ég sest ekki niður hérna heima án þess að vera vafinn inn í flísteppi *brrrr*
Jæja ég ætla að fara að vola smá í Orra :Þ og fá mér kannski heitt kakó því mér er svo kalt á puttunum að ég get varla pikkað inn : /
martes, 15 de noviembre de 2005
estoy cansada
Ég er stíf og stirð, síðustu 9 klukkustundirnar hef ég varla staðið upp nema til að borða, mér er illt í bakinu, fótunum og hausnum og meira segja augunum og afrakstur dagsins er líka ekki lítill :D
En vá hvað það er þreytandi að læra, ég er bókstaflega búin á því *geispgeispgeisp*
Ég fór í gær á mörgæsamyndina, The march of the penguins held ég að hún heiti, oggg mér fannst hún æði :D Ekkert smá sætar og alveg ótrúlegt hvað þær leggja á sig til að eignast unga !
En jæja ég held ég fari og stari út í loftið þangað til ég fer að sofa eða bara stari á sjónvarpið
enn og aftur sama sem ekkert
Er ekki ágætt að blogga þegar maður er strand í lestrinum :D
Ég er að REYNA að gera fyrirlestur sem ég og Kolla eigum að flytja á morgun :S Það er bara smá vandamál, við erum að gera fyrirlestur upp úr leikriti og allir fengu eitt hlutverk til að tala um .... Eeeenn hlutverkið sem við erum með er bara svo oggulítið : / í alvörunni ég er búin að skrifa textann og endurskrifa hann og lengja og hann er enn bara 8 línur !!! og ég er búin að segja allt sem hægt er að segja um hlutverkið :S hmmmm spurning um að lesa bara EXTRA hægt og reyna þannig að ná 5 mínútum :Þ
Annars eru bara 2 vikur eftir af skólanum :O smá sjokk, hvernig flýgur tíminn svona frá manni, nér finnst ég enn bara vera nýbyrjuð :S En ég tel bara niður dagana til jóla og hlakka mikið til, nenni ekki að vera að stressa mig á prófunum alveg strax :Þ
Ég komst að því um daginn að það er lúmskt hversu lítið ég man úr grunnskóla ! Ég er eiginlega bara viss um að ég hafi aldrei verið í grunnskóla ég man svoooo lítið eftir því :Þ
En jæja stuð vika framundan 2 fyrirlestrar og próf :S en toppurinn verður á föstudagskvöldið þegar hinir árlegu Persónuleikar sálfræðinnar fara fram :Þ Ég ætla að svindla mér inn :Þ reyndar ekki til að keppa heldur bara til að fylgjast með dýrðinni :Þ
domingo, 13 de noviembre de 2005
samansafn af engu
*geispgeisp*
Já ég held að ég skrifi ekki oft blogg svona snemma *geisp* það er kannski af því ég vakna aldrei fyrr en um 10 leytið : Þ en í dag þá þurfti ég að mæta í vinnuna kl. 7:15 *geisp* því ég er að sjá um morgunmatinn :Þ í fyrsta sinn :Þ
Annars er voða lítið af mér að frétta :Þ Síðasta vikan flaug bara framhjá mér og ég er bara ekki einu sinni viss hvað ég var eiginlega að gera, ég var alla veganna ekki að læra og mæta í tíma það er víst :S :Þ Í gær var stórfjölskyldumyndataka hjá föðurfjölskyldunni minni :D Við erum 30 og eitthvað og það komust allir :D Hlakka til að sjá útkomuna þar sem ég myndast sko EKKI vel :S og það væri nú alveg týpískt að það eigi eftir að hanga uppi mynd af mér með asnalegan svip næstu áratugina :S :)
Ég horfði á Pirates of the Caribbean í fyrrakvöld og ÓMEN hvað Johnny Depp er HOT ! hann er meira segja HOT þegar hann leikur fyllibyttusjóræningja !
Í dag er ég að fara að mæta á fyrsta fund skipulagsnefndar reunion-s útskriftarárgangs árið 2000 í Öldutúnsskóla, u know what I mean :Þ
Verð nú eiginlega líka að minnast á það að ég fékk 7 fyrir 5árabarnaritgerðina mína :Þ Nokkuð sátt :D Og hey María, þú skuldar mér ís ! Ég ætla að taka hann út næsta sumar e-n daginn á Interrailinu þegar það verður extra heitt :Þ
*geisp* ég meika ekki að skrifa meira bull svo ég skrifa bara seinna, þegar ég er kannski vöknuð aðeins :Þ
jueves, 10 de noviembre de 2005
7 hlutir hvað ?
Hmm núna hef ég verið kitluð í 3ja sinn þannig ég held ég verði bara að fara að svara þessu !
Sjö hlutir sem ég vil gera áður en ég dey:
Búa í útlöndum í ár eða meira - aftur
Fara á Interrail - það er nú in progress
Fara í nokkurra daga göngu um hálendi Íslands eða Hornstrandir - þarf bara að æfa smá :Þ
Vinna Orra í sjómann - það gerist víst seint :Þ
Ná lagi inn á Billboard listann í BNA - þarf fyrst að hætta að vera svona laglaus
Fara í Safaríferð og sjá ljón
Læra blessuðu spænskuna almennilega
Sjö hlutir sem ég get gert:
Pikkað hratt inn á lyklaborð og sms
Setið klukkutímum saman og lesið góða bók
Gengið upp á Esjuna
Verið afskaplega pirrandi skipulögð :Þ
Borðað mikið nammi á stuttum tíma
Gert lista af hlutum sem ég ætla ekki að gera fyrr en eftir MARGA mánuði : /
Verið afskaplega feimin
Sjö hlutir sem ég get ekki gert:
Eldað
Sungið
Teiknað
Þvegið fötin hans Orra þannig að þau séu ekki eins og harmonikka
Vaskað upp
Haft viftuna inni á baði í gangi án þess að verða crazy
Snoozað með góðri samvisku
Sjö hlutir sem heilla mig við karlkynið:
Augun
Hárið
Bakið
Brosið
Heiðarleiki
Metnaður (enga leti takk)
Fyndni
Sjö frægir sem heilla:
nenni ekki að svara þessu :S dettur bara ekkert í hug :Þ
Sjö hlutir sem ég sé einmitt núna:
Ipodinn
Orra að læra
Vatnskönnu og glas
Umbúðirnar utan af súkkulaðikökunni sem ég ÁT
Flísteppi
Tölvuna hans Orra
Tölvuna mína
Jæja þá er þetta loksins komið :Þ og mér dettur bara enginn í hug til að klukka sem ég er sjor að sé ekki búin að þessu svo ég bara sleppi því líka :Þ
Hmm voðalega hljóma ég eitthvað antipatica í þessu bloggi :Þ er annars í bara mjög góðu skapi
lunes, 7 de noviembre de 2005
voða lítið
Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér við að slæpast og nenna ekki að læra að ég hef bara engann tíma haft til að blogga *roðn* æ smá lesleiði í gangi hérna :Þ
Helgin var æðisleg, föstudagskvöldið náttúrulega frábært eins og ég var búin að minnast á en svo var laugardagskvöldið alveg æði. Við vorum á Hótel Geysi með allri föðurfjölskyldunni minni að fagna 75 ára afmæli ömmu og 50 ára brúðkaupsafmæli ömmu og afa :D Það var ekkert smá kósý að vera þarna og ég verð að viðurkenna að núna hlakkar mig enn meira til jólanna af því þetta er nú svona jólasvæðið mitt :Þ Alltaf á Þorláksmessu, þegar við erum í bústaðnum, þá förum við "The Golden Circle" SAMA HVAÐ ! síðast þá fórum við í 20 stiga frosti og vinda :S
Ég var alveg skuggalega dugleg áðan og hjólaði í gymmið og tók klukkutíma brennslu .... eeennnn svo kom ég heim og er síðan þá búin að vera að hakka í mig nammi : / já svona er lífið þegar Orri er að vinna :Þ enginn til að hafa hemil á mér :Þ
sábado, 5 de noviembre de 2005
da hair
Jæja hér koma myndir af HÁRINU :D svona fyrir þá sem vildu sjá : *
Annars átti ég frábært kvöld í gær, þegar saman kemur hjálpartækjasýning, frítt áfengi, Helga Braga og stripparar þá er held ég ekki annað hægt en að skemmta sér vel :Þ ég segi bara takk fyrir kvöldið þið sem voruð með mér :*
Eníhú ég er farin á hótel, svo I just see you later :D
jueves, 3 de noviembre de 2005
NIA nnníííííaaaaa
Það er einhver undaleg bloggleti í gangi hjá mér þessa dagana. Ég var klukkuð um daginn og ég er búin að vera að reyna að hugsa um einhver svör við þessu en mér hefur enn ekkert dottið í hug svo þetta verður ekki klukkblogg eeeennn annars að öðru...
Ég skilaði loksins þessari bjálfaritgerð :S og er hætt að hugsa um það, ég og Kolla fengum 7,5 :D fyrir fyrstu ritgerðina okkar á spænsku :Þ Gott teamwork hér á ferð : ), ég er búin að þjást af ofþreytu frá því snjórinn kom og tekst ekki fyrir nokkra muni að vakna fyrir 10 sama hversu snemma ég fer að sofa semsagt fyrr að sofa = ég sef bara lengur : / mig hefur líka langað í kjöt alveg frá því það fór að snjóa, mjög skrítið og rétt í þessu var ég að torga 4 hamborgaranum þesa vikuna !!! Það eru fleiri en ég hef borðað allt árið !
Mest niðurlægjandi moment lífs míns tóku nýjum hæðum í dag, ja fyrir utan það þegar ég flaug næstum því á hausinn fyrir utan HÍ í gær eeeennnn alla veganna þá skellti ég mér í e-n nýjan tíma upp í Laugum í dag, heita NIA minnir mig ooooggg ég var EINA manneskjan sem mætti + kennarinn :Þ Það í sjálfu sér var reyndar fínt því þetta voru nú meira funkífurðu æfingarnar ! Ég var á fullu að láta útlimina mína hreyfast eins og sjal ! og því bara fínt að vera einn þar sem ég er algjörlega ekki gerð til þess að hreyfa mig svona eeennn þar sem ég var í miðju hláturkasti af því ég sá sjálfa mig í speglinum þá koma inn tveir HOT einkaþjálfarar og þeir svo svo þarna inni restina af tímanum 20 MÍNÚTUR !!! Hmm ég hefði kannski frekar bara viljað fljúga almennilega á hausinn fyrir framan HÍ í gær og sleppa þessu :Þ
hehe æ nei ég lifði þetta alveg af en ég svo sver það ég gat varla haldið í mér hlátrinum allan tímann þar sem ég þurfti til dæmis að hrista á mér brjóstin :Þ og svo seinna rassinn :S :Þ og já það var á meðan þessir tveir gæjar þarna voru inni :D
En annars frábærir tíma og ég ætla að mæta aftur :D
En ég verð eiginlega að minnast á hárið á mér *arghhhhh* hvernig datt mér í hug að klippa það stutt !! Það hefði nú verið svona OK ef ég hefði ekki fengið mér permanett fyrir svona 3 mánuðum síðan sem bókstaflega kom í ljós um leið og hárið á mér var stytt !! nono fékk ekkert permanett fyrr en daginn sem helmingurinn af hárinu á mér fauk af og núna lít ég út fyrir að vera með krúttlega álf á hausnum á mér :S Æ fjandinn þetta vex og næst þegar ég fæ svona heimskulega hugmynd, plís plís !! einhver að gefa mér selbit í hausinn !
Ég kveð og svíf í burtu eins og sjal í vindi *yeahright*
lunes, 31 de octubre de 2005
jújú núna er smá titill
jæja ok ég er búin að jafna mig á brjálæðispirrings kastinu sem ég tók áðan :Þ biðst afsökunar þið sem að lásuð hina færsluna og hélduð að ég hefði misst vitið ;)
Ég verð víst bara að sætta mig við það að skila inn 5árabarnaritgerð :/
enginnhelv.titill
Ég er svo pirruð að mig bókstaflega langar að henda tölvunni minni út um gluggann !!! Ég er að skrifa einhverja leiðinlegustu ritgerð í heimi og hún er svo léleg að það liggur við að ég sofni þegar ég les hana yfir !!!
Hvernig er hægt að skrifa ritgerð um málefni eins og trú og það að trúa á máli sem maður hefur vald á á við 5 ára barn !!! ojj ef ég skrifa einu sinni enn religión, creer, secreto, San Manuel eða Díos þá æli ég !!
anda inn anda út .... nei það bara virkar ekki neitt, helvítis ritgerðin er ennþá hérna ! og svo gildir þessi bjáni 30% ! já wish me luck því ég er fallinn í spænsku
*égvildiéggætigertreiðakallaþvíþáværualvegskrilljónafþeimhérna*
domingo, 30 de octubre de 2005
Honey I'm home
Ohh gott að vera kominn aftur heim :D mengun, skítugur snjór og INTERNETIÐ !! :Þ
Þetta var æði og ég mæli svo sannarlega með þessum bústöðum þarna hjá www.gljufur.is
Annars er ég svo þreytt, sjúskuð og og ótrúlegt en satt þá er ég þunn :Þ í augnablikinu að ég ætla bara að kúra mig undir sæng, María ætlar að koma og við ætlum að horfa á ANTM :Þ
Skrifa meira seinna þegar ég nenni því :)
lunes, 24 de octubre de 2005
klippi klipp :D
Ég er að fara í klippingu á morgun :D og ég ætla að klippa þetta blessaða hár af ...... ah nei ekki alveg af, ætla að taka smá tímaferðalag til ársins 2003 og fá mér topp, og stytta og þynna þennan flóka sem ég er með :Þ Verð fegin að losna við leiðinda flækjur, hárlos og það að það taki hárið á mér margar klukkustundir að þorna af því það er svo þykkt :Þ
sábado, 22 de octubre de 2005
dyoga
Loksins - Ég kláraði loksins að lesa þessa sögu ! þannig að nú get ég farið að pæla í ritgerðinni ... ég sé samt ekki fram á það að ég muni ná að klára hana fyrir sumarbústaðarferðina :S
Ég er algjörlega búin á því, ég skellti mér í þennan svakalega jógatíma í gær. Það er mjög langt síðan ég hef farið í svona erfiðan tíma, ég var eiginlega bara búin að gleyma því að jóga getur verið alveg svakalega erfitt ! Í alvörunni ég kom bara titrandi út úr tímanum eftir að hafa þurft að halda í armbeygjustöðu í lengri lengri tíma og svo halda á hlið bara með einni hönd ...... svona var þetta allan tímann ! oooogg þetta var svo gaman, ætla alveg pottþétt að halda áfram að mæta í þessa tíma, þarna fer þetta saman jóga og hörkuworkout.

Á fimmtudagskvöldið fórum við Rebekka á kaffihús :D Við höfðum sko ekki hist í eitt og hálft ár ! og svona þegar ég fór að hugsa um það þá man ég ekki eftir því að við höfum nokkurn tímann gert e-ð svona saman. Ég held að ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að hún sé með allra elstu vinkona mín, hófst allt þegar við vorum svona 8 ára og við vorum pennavinkonur :Þ
Annars er ég enn einu sinni komin í framtíðarkrísu ! Í augnablikinu er ég alla veganna búin að ákveða að taka 1 kúrs í sálfræði á næstu önn ofan á þá sem ég þarf að taka í spænsku og svo er ég eiginlega búin að ákveða að skipta aftur yfir í sálfræðina næsta haust, taka þetta bara á hörkunni með það að leiðarljósi (:Þ) að geta bara farið í e-ð ógurlega skemmtilegt framhaldsnám ! Svo verður spænskan bara svona eilífðar BA námið mitt :Þ æ maður má allaveganna pæla :Þ
jueves, 20 de octubre de 2005
beilari
Ég beilaði á morgun á þessu brasilíska, ég vaknaði bara ekki í stuði til að láta pynta mig :P svo þetta verður bara að bíða aðeins lengur : )
Gærkvöldið fór bara allt öðruvísi en ég ætlaði, eftir að ég var búin að væla hérna þá talaði ég við Heiðu sem tókst að sannfæra mig um að koma inn í Hafnarfjörð og hitta hana. Orri og strákarnir voru á Hansen að kveðja Einar sem er að fara út (skilst mér :Þ) og af því ég ætlaði hvort sem er að sækja Orra kl. 1 þá kíkti ég bara í fjörðinn ... alltaf svo gott að koma þangað, er bara heima hjá mér í Hafnarfirði :Þ eeeennn í kjölfarið þá bara fór ég allt of seint og alltof sjúskuð að sofa :P
Núna sit ég með hrúgu af dóti sem ég þarf að lesa og gera, klára ritþjálfunarverkefnið :S gera ritgerð í Bókmenntafræði og ég er búin að vera að lesa söguna sem ritgerðin á að vera um og díses ég verð marga daga með þessar 20 síður :S ég er búin með 4 !
svo eru 2 próf í næstu viku ! Það er eins gott að ég er á leiðinni úr bænum að fá smá afslöppun :Þ
hmm jæja ég ætla að drífa mig í gymmið ...c ya
miércoles, 19 de octubre de 2005
pirr pirr en það gengur yfir
Ritþjálfun I er að gera útaf við mig í augnablikinu þar sem ég er að reyna að klára eitt stykki stórskemmtilegt verkefni sem er svo loðið að það er að gera mig crazy :S
Þoli ekki verkefni með lélegum leiðbeiningum sem ég get svo ekki klárað þegar ég ætla að klára það af því ég skil ekki baun :( pirrpirrpirrpirrpirr
Heng ein heima því Orri er í Hfj á Hansen og ég ætlaði að læra svo mikið en það er greinilega ekki hægt : / ég held ég gefi bara skít í þetta allt og fari að horfa á Veronica Mars nýja uppáhaldsþáttinn minn :Þ OC virðist vera í fríi fram í nóvember hver svo sem ástæðan er fyrir því, One Tree Hill er bókstaflega leiðinlegt og ég er búin að horfa á nýjustu þættina í Lost og Desperate housewives + það að vera búin með ANTM seríuna .... OMG hvaðan fæ ég þennan tíma til að horfa á allt þetta drasl :Þ hmmmm ætti kannski frekar að vera að læra eða hreyfa minn feita rass :Þ
Við Orri vorum alveg ógeðslega dugleg áðan og hjóluðum í jóga ! Það hefur bara ekki gerst áður :Þ það var bara ótrúlega fínt og tók bara ekkert svo miklu meiri tíma heldur en ef við hefðum keyrt af því jógatíminn er á þessum umferðatíma :D en þetta var 3ji jógatíminn minn á 3 dögum ... mmm þetta er bara svo gott og svo fær maður svo skemmtilegar harðsperrur á undarlegustu stöðum eftir tímana :Þ
Hmm jæja þá er það annað hvort sagan San Manuel Bueno í bókmenntafræðinni sem ég þarf að skrifa ritgerð um á næstu vikunni :S eða bara elsku Veronica Mars, ætla aðeins að hugsa málið :Þ
domingo, 16 de octubre de 2005
bara smá upplýsingar um mig
Nafn: Íris
Systkin: Guðrún María 19 ára og Eydís 14 ára
Augu: mógræn, Orri vill samt halda því fram að þau séu stundum gul :S
Hæð: Ég slefa víst rétt svo upp í 160
Fæðingardagur og ár: 10. mars 1984
Greindarvísitala: ég er alveg örugglega einstök í hvora áttina sem er
Stjörnumerki: Fiskur :Þ
Uppáhalds ?
Litur: Blár og fjólublár
Matur: góðir grænmetisréttir eru alltaf æði, annars kjúklingabringur og fiskur
Drykkur: Vatn Vatn Vatn og svo stundum smá Kristall +
Þáttur: OC, Desperate housewifes, Lost og svo ANTM :Þ
Bók: Hús andanna og Kryddlegin hjörtu, hef lesið þær báðar margsinnis
Bíómynd: úff þessi er erfið Mér finnst bara öðruvísi myndir oft skemmtilegar, svona kvikmyndahátíðamyndir :Þ
Vikudagur : Mér finnst alltaf voða gott þegar helgin er að koma, ætli ég segi ekki fimmtudagur (af því þessa önnina er ég ekki í tímum á föstudögum :Þ)
Mánuður : Enginn sérstakur, mér finnst e-ð gott og spes við þá alla
Hefurðu einhvern tíma.....
Strokið að heiman? nei ég bara held ekki
Valdið einhverjum ástarsorg? úff ég hef ekki hugmynd, ekki svo ég viti til alla veganna
Verið ástfangin? óJá er það núna
Grátið þegar einhver deyr? já
Langað í einhvern sem þú veist að þú getur ekki fengið? já geri stundum svoleiðis vitleysur
Brotið bein? nei ég hef bara ekki brotið eitt einasta bein 7-9-13
Logið? já held að allir hafi einhvern tímann logið
Trúirðu á......
Ást við fyrstu sýn? nei ekki beint, kannski skot við fyrstu sýn
Guð? nei ekki enn
Skrímsli? nei
Stjörnuspár? guð nei meira bullið
Geimverur? gætu alveg verið til
Drauga? Orri kom einu sinni með góðan punkt sem að læknaði mig nánast af myrkfælninni: ég ætti bara að vera ánægð ef ég sæi draug því þá væri ég búin að fá sönnun fyrir því að það væri eitthvað eftir dauðann .... en ennþá hef ég ekkert séð :Þ
Hvort er betra?
Coke eða Pepsi? ojjjj bæði viðbjóður :S
Sprite eða 7-Up? þarf ég að segja það :S
Strákar eða stelpur? strákar, alltaf strákar
Blóm eða nammi? nammi......
Hávaði eða næði? Little bit of both, svona eftir skapinu
Sundlaugar eða heitir pottar? Best að geta gert bæði, fyrst í pottinn svo í laugina og svo aftur í pottinn
Buxur eða stuttbuxur? buxur
Hitt kynið.........
Hverju tekurðu fyrst eftir? Augum
Sítt eða stutt hár? æi alveg sama ef að það er bara snyrtilegt
Göt einhversstaðar? nei helst ekki
Hver.....
Fær þig til að hlæja mest? hehe það hlýtur að vera Orri
Fær þig til að brosa? þarf nú ekki mikið til
Er skotinn í þér? ætla rétt svo að vona að það sé Orri :Þ
Hefurðu einhvern tíma...............
Setið við símann og beðið eftir símtali alla nóttina? E-n tímann gerði ég svo heimskulegan hlut já, biðin reyndist svo sannarlega ekki vera þess virði
Óskað þess að þú værir önnur en þú ert? Já það hef ég líka gert
Óskað þess að vera karlmaður? jájá, var svo fast bara einu sinni í mánuði þegar ég lá grenjandi uppí rúmi vegna verkja :Þ
Óskað þess að líta öðru vísi út?? jebb
Grátið vegna einhvers sem hefur verið vondur við þig? ójá
Myndirðu giftast vegna peninga? nei það held ég nú ekki
Plokkaru augnbrúnirnar? nei ég er svo mikil dekurrófa að ég fer bara og læt vaxa :Þ svo þægilegt
Hver er uppáhaldsávöxturinn þinn? mmm ber ber ber, kiwi, perur, æ og svo margir fleiri
Hver er uppáhalds staðurinn þinn? Það eru svo margir en eftir hringferðina í sumar þá á ég nokkra alveg spes hér og þar um landið
Dreymir þig í lit eða svarthvítt? held í lit, mig dreymir alla veganna nógu crazy drauma
Manstu fæðingu þína? nei guði sé lof það er ekki eitthvað sem ég myndi vilja muna
Hvort líkar þér betur við sólsetur eða sólarupprás? sólarupprás mér finnst svo æðislegt að byrja daginn
Hvort finnst þér betra að hafa slökkt eða kveikt á ljósunum þegar þú horfir á sjónvarpið? ha horfa á sjónvarpið hvað er það
Færðu martraðir? Margoft, búin að fá tvær í þessari viku, voru báðar eitthvað um mafíu og morð ! :S
Finnst þér nefið á þér fallegt? nei ekki svona þegar ég pæli í því
Hlustaru á tónlist daglega? já alveg örugglega
Hvað áttu mörg skópör? alveg heilan helling en nota samt fá og hef ekki keypt mér ný í svolítið langann tíma
Notarðu sömu skóna á hverjum degi? nei ég er eiginlega með tvenn pör sem ég svona skiptist á að vera í, það er bara þægilegt að ganga mikið í öðru parinu svo ég fer í þá þegar ég sé fram á að þurfa að labba mikið :Þ
Hvernig finnst þér best að sofa? Á hliðinni með sængina með andlitið að veggnum og með opinn glugga og frekar kalt í herberginu
Hvort finnst þér betra að fara á fín veitingahús eða svona matsölustaði? þoli ekki að láta stjana við mig á veitingastöðum þannig bara svona hálffína staði með góðan mat en ekki of mikla þjónustu
Ertu hamingjusöm manneskja? já í augnablikinu
Hversu sítt er hárið á þér? eitthvað neðar en axlir
Hvernig viltu að augun í þér séu á litin? bara eins og þau eru
Tekurðu einhver lyf? ofnæmislyf þegar ég man eftir því :Þ
Talaru mikið? ég veit það ekki en mömmu finnst ég tala HÁTT
Já ég er í vinnunni og það er lítið að gera :Þ
sábado, 15 de octubre de 2005
alveg búin á því :Þ
Úff mér leiðist :S Ég er í vinnunni og það er mjög lítið að gera og ég er bara of eirðarlaus til að læra :Þ ég held að eftir þetta brjálaða orkukast sem ég er búin að vera í síðustu vikuna þá er ég bara búin á því :Þ
Ég kom heim klukkan svona 21 í gærkvöldi algjörlega búin á því ... Þá var ég búin að vera á fullu frá því ég skutlaði Orra upp í skóla kl. 10. Fór og lét setja vetrardekkin undir, fór með flöskur fyirr 3000 kall í Sorpu, fór í IKEA, tók til í geymslunni. þvoði þvott, fór í heimsókn til Selmu, ömmu, afa og ömmu og svo líka mömmu og pabba, tókst að verða rafmagnslaus svo pabbi þurfti að keyra inn í Reykjavík og gefa mér start og taka til íbúðinni !!!! vá ég verð bara þreytt af því að skrifa þetta :Þ Ég ætlaði meira segja í ræktina í gær en þegar ég kom heim um kvöldið þá bara meikaði ég ekki að hreyfa mig meira og ég sver það ég held ég sé með smá harðsperrur í dag eftir þetta .... Það er nefnilega ekki auðvelt að hlaupa upp og niður 4 hæðir með þvott og kassa !
En jæja núna stefnir allt í ágætisverkefnaviku, þarf bara að koma mér aðeins niður á jörðina svo ég eyði ekki allri vikunni í að taka til :Þ ég er með langann lista sem ég þarf að vinna og lesa :S svo það er eins gott að maður læri :D
well ætli ég reyni ekki að gera eitthvað gagnlegt þennan 1 og hálfa tíma sem ég á eftir að vera í vinnunni og rölti svo bara heim og horfi á Friends í kvöld því ég þarf víst að mæta í vinnuna kl.8 í fyrramálið svo ég fer lítið út í kvöld :S
jueves, 13 de octubre de 2005
minn endalaust kósý dagur :Þ
Ég er búin að eiga alveg frábæran dag :Þ svo gaman þegar maður á daga sem eru góðir út í gegn :D
Ég vaknaði eldhress kl.8 og lærði aðeins fyrir prófið sem ég var að fara í kl.10 .... mætti í prófið og vona bara að mér hafi gengið sem best :S það gilti víst 20% og þetta voru bara 7 spurningar :S svolítið mikið að láta 2 heila af lokaeinkunn velta á 7 spurningum í hlustunarprófi ! en allaveganna þá vona ég bara að það hafi gengið fínt :Þ
Svo fór ég bara heim af því ég nennti ekki í málfræði .... kennarinn les bara beint upp af glærunum sínum og mér finnst ég ekkert græða á þessum tímum. Þegar heim var komið tókst mér að sannfæra Orra um það að við ættum skilið að eiga smá dag fyrir okkur og dró hann með mér í Kringluna þar sem við keyptum föt á kappann ;) veitti ekki af, hann átti ekkert nema íþróttabuxur :Þ við vorum alveg búin á því eftir að fara í 4 búðir :Þ svo við fórum aðeins heim en planið var bara að borða og halda svo áfram með langa listann af hlutum sem við þurftum að gera ..... þegar við vorum komin heim spurði ég Orra hvort hann ætti ekki að fara í neina tíma í dag .... úps þá gleymdi hann víst voða mikilvægum tíma (ég að spilla honum :Þ) en þurfti að mæta í næsta svo það varð ekki meira úr dekurdeginum okkar :Þ
en ég hélt áfram og omg ég veit ekki hvaðan ég fékk orkuna til að gera það sem ég gerði næst :S ég byrjaði á því að shæna baðherbergið svo fór ég leitaði að öllum flöskum sem við áttum og taldi þær allar í poka .... ég er sko búin að vera að safna kjarki í þetta í marga mánuði en hey þetta tók hálftíma :Þ svo tók ég og setti í vélina og eyddi svo restinni af deginum í að rífa úr skápum og henda og henda og henda .... vá ég held að þetta hafi bara verið jólahreingerningin .... Svo núna sit ég í svo fínni og hreinni íbúð :Þ svona nánast, ég er ekki alveg búin :Þ
upp úr þessu hafði ég þó það að ég fann sundkort sem við eigum í Laugardalslaugina OG IPOD snúruna mína sem ég er búin að leita að síðan í júní !!! pabbi var meira að segja að koma heim frá útlöndum í kvöld og ætlaði að kaupa nýja fyrir mig en mér tókst að ná í hann :Þ
Svo fórum við í mat til Maggýjar, æðislega grænmetissúpan :P og núna er Orri e-s staðar með Andra og ég nýt mín í botn hérna heima með kveikt á kertum, búin að gera svoooo mikið í dag og ætla að fara að horfa á Desperate housewives og Lost :Þ
en svona fyrir þá sem vita það ekki þá er ekki tími hjá mér fyrr en þarnæsta mánudag .... mmmm SEMANA LIBRE mér líst vel á þetta :Þ
hehe æ greyið þið sem nenntuð að lesa þetta, mig langaði bara að skrifa þetta niður svo næst þegar ég á lásí dag þá get ég lesið þetta og munað að það eru ekki allir dagar slæmir :Þ og svo litaði ég textann bleikann bara til að gera þetta verra ;)
martes, 11 de octubre de 2005
ZzZzZzZzZz
stefnur í arkitektúr á Spáni á 17. öld ZzZzZzZz hvernig á maður að halda athygli þegar þetta er viðfangsefnið ZzZ ........
En annars bara allt gott að frétta, ég og Kolla tókum þessa ritgerð bara á hörkunni og hún er núna bara meira og minna tilbúin, bara eftir svona smá púsl og snurfus.
Ég er síðan búin að eiga bara mjög þægilegan dag hérna heima :Þ Sit bara og lesa og hleyp svo niður í þvottahús með svona 45 mínútna millibili og hendi í vél :Þ Orri var víst eitthvað að kvarta yfir því að hann ætti eitthvað lítið til að hreinum fötum svo ég svona gjóaði augunum yfir á óhreina tauið og ÓMEN hvernig verður allt þetta drasl svona fljótt óhreint ! en alla veganna 3 vélar komnar í dag og það stefnir í persónulegt met :D
Mér finnst fátt meira kósý en að vera ein heima hjá mér :Þ kann svo vel að meta það að vera bara ALEIN ... með tölvunni minni :Þ
en jæja þarf að hlaupa í þvottahúsið og svo bíður mín hérna gæða máltíð ... kínarúllur og franskar :Þ
lunes, 10 de octubre de 2005
blablablablablabla
það er ekkert að gerast í mínu lífi þessa dagana nema þessi bölv*** ritgerð :S vá en spennandi líf :Þ
svona er þetta þegar maður er í skólanum, maður eyðir mestum tíma sínum í að vera að fara yfir um af stressi :S
Pabbi fór út í morgun og kemur heim á fimmtudaginn :P þá fæ ég LOKSINS ný gleraugu, þessi sem ég á eru sko frá því í 9. bekk :S alveg komin tími á þetta :Þ
en jæja farin í jóga
viernes, 7 de octubre de 2005
aumingja tönnin mín
á á á á á á á á á á á á á á á á tönnin mín :'(
ég var hjá tannsa áðan að láta bora mikið og núna þegar deyfingin er farin þá er lífið ekkert sérstaklega skemmtilegt :S og ég borgaði rúmann 10þús kall fyrir þessar pyntingar !
Tannlæknirinn minn er samt ansi skondin, talar alveg endalaust og maður getur náttúrulega ekkert svarað því að munnurinn á manni er fullur af drasli og deyfður í þokkabót :Þ
Ég og Orri áttum alveg æðislegt kvöld í gær. Við skelltum okkur út að borða á Gallerí Fisk. Ég fékk mér hlýra og humar *namminammi* og Orri fékk sér eitthvað sem mig minnir að heiti skötusteik, það var alla veganna líka algjört sælgæti :Þ Mæli sko alveg með þessum stað ef fólki langar til að prófa góðan og svolítið öðruvísi fiskrétti :Þ
Eftir matinn fórum við svo í bíó á 40 year old virgin, planið var að fara á kvikmyndahátíðina en við fundum ekkert sem okkur langaði að sjá svo þessi mynd varð fyrir valinu ... hún var fín :D
Ég er búin að vera svo dugleg í dag, mætti í ræktina í morgun og lét svo pynta mig hjá tannlækni og er svo búin að sitja heima og vinna í ritgerðinni sem við Kolla þurfum að skila næsta miðvikudag :S Oktoberfest er svo í kvöld og mmmiiigggg langar svoooo. Er búin að hakka í mig verkjatöflur og er að bíða til að sjá hvort það slái á verkinn .... :S
Suscribirse a:
Entradas (Atom)



