Þá er maður mættur aftur í vinnuna sem þýðir að vikan er að verða búin :S vá hvað tíminn líður hratt, mér finnst alltaf vera helgi !
Fyrsta prófið var á fimmtudaginn og .... æ ég ætla bara sem minnst að segja um það hvernig mér gekk, þetta var alla veganna ekki hræðilegt en samt ekkert stórkostlegt :S Það kemur í ljós næsta fimmtudag hvernig þetta fór :Þ
Ég var alveg rosalega dugleg í morgun og tók strætó upp í Laugar af því Orri var á bílnum í skólanum :D Tók bara örfáar mínútur og hann stoppar bara rétt fyrir utan sundlaugina .... Svo þetta kemur nánast niður á sama fyrir mig því ég bý nánast á Hlemmi, labba út um dyrnar og beint inn í strætó .... Ég er alveg búin að halda nammibannið mitt líka, reyndar er það ekkert erfitt því mig hefur bara ekkert langað í nammi svo ég hef ekki einu sinni þurft að hugsa út í það, en það er samt nammidagur á morgun :Þ ætla að fá mér Ritter Sport súkkulaði með núggati *slurp* og kannski Djungelvral (eða hvernig sem það er skrifað) eða kannski ég verði bara dugleg og "baki" :Þ
Annars er bara frekar löng vakt í dad, mætti 13:30 og er til 22 ... Þetta er bara rétt rúmir 8 tímar en mér finnst þetta e-a hluta vegna mun lengra en að vera t.d. frá 8-16. Það er samt alveg rosalega rólegt hérna, bara 3 herbergi að koma í dag svo ég get bara lært .... eða hangið á netinu eins og ég er búin að gera síðustu 4 tímana :Þ


