Haha er ekki eitthvað hálf aumt við það að Paris Hilton stingi af frá árekstri, common á manneskjan ekki nóg af pening til að borga tjónið !! Fréttin á mbl
Ég er á alveg undarlegum sólarhring þessa dagana, jahh eða reyndar alveg undarlega heilbrigðum sólarhring. Síðustu daga hef ég verið að lognast út af kl. 23 alveg dauðuppgefin og svo sprett ég á fætur alla daga kl. 8 (engin vekjaraklukka hér !!) Ætli ég verði ekki að þakka vinnunni minni fyrir þetta því að þegar maður vaknar svona oft kl 6:45 þá verður það að sofa til 8 algjör lúxus :Þ
Ég er búin að vera í hálfundarlegu skapi undarfarna daga og ég kenni algerlega um OC tónlistinni sem ég var að downloada, hún hefur bara e-r skrýtin róandi áhrif á mig :Þ
En jæja þetta verður síðasta færslan hér þangað til loka júlí (kem aftur á klakann 28.júlí). Þangað til má forvitnast um gjörðir mínar hér


