viernes, 23 de febrero de 2007

hasta la vista

Þar sem ég verð ekki í netsambandi næstu dagana þá verður bloggpása í eina viku :) Lifið heil og sæl - ég ætla að vera með höfuðið fast ofan í skólabókunum, fara í göngur, liggja í heita pottinum og hafa það kósý :)

miércoles, 21 de febrero de 2007

vælsmæl

Ég er svo algjörlega hrútpirruð - er komin með svo yfrum nóg af fyrirlestrum, umræðutímum, rannsóknum, verkefnum, ritgerðum .... semsagt öllu þessu sem fylgir því að vera í skóla
vælvælvæl og ég er pirruð á vælinu í mér. Ég held því miður að ég þurfi að grípa til neyðarráðsins: góður skammtur af súkkulaði og tveir klukkutímar af Friends ættu að ná að koma höfðinu á mér aftur á sinn stað og að LÆRA ! Ætla ekki að blogga meira í þetta skiptið til að hlífa ykkur við vælstraumnum sem er á leiðinni ..... Krakkinn er samt krúttlegur

martes, 20 de febrero de 2007

röflur

Ég er búin að leita mig brjálaða ! Buddan með kortunum, símanum og lyklinum að skápnum uppi á Hlöðu bara finnst EKKI !
Ég er búin að snúa öllu við hérna heima, fara upp í sundlaug og kíkja í bílinn hennar Kristínar - en e-s staðar á þessum stöðum eða á milli þessara staða var ég síðast með veskið og tók a.m.k. upp húslyklana en svo hefur hún bara gufað upp ! Það undarlega er að þegar ég fór fyrst að leita að buddunni þá hringdi ég ég gemsann og það var slökkt á honum. Eftir því sem ég man best þá var ég nýbúin að hlaða hann og hann á bara ekkert að vera rafmagnslaus :| Ég verð semsagt gemsalaus í e-n tíma : / Ég komst líka að því þegar ég reyndi að hringja heim á laugardaginn að ég kann ekki einu sinni mitt eigið heimanúmer : O Ég hringdi nokkrum sinnum í "heim" úr vinnunni og aldrei svaraði neinn (Orri átti að vera heima) svo e-u seinna hringir kona til baka úr númerinu sem ég var búin að vera að hringja í : / Úps vitlaust númer : / Það er samt svo skrítið að stundum týnast hlutir og algjörlega týnast en poppa svo bara allt í einu upp rétt fyrir framan mann einn daginn. Í fyrra týndi ég 1,5 lítra vatnsKÖNNU ! Svoleiðis dót fer ekki eitt né neitt, ekki út úr íbúðinni og maður fer heldur ekkert að setja hana á e-n skrítinn stað. Eftir e-r vikur opnaði ég skáp inni í stofu þar sem mestmegnis er bara geymt drasl og snyrtidót, ég var oft búin að opna hann vikurnar á undan en þennan dag lít ég inn í hann og sé þá þessa blessuðu vatnskönnu í neðstu hillunni ! Það var bókstaflega engin ástæða fyrir hana að vera þarna en þarna var hún samt ! Fyrir 3,5 ári týndi ég svo snjóbuxunum mínum. Ég hafði þennan dag gengið Fimmvörðuhálsinn með skólanum og var þá í þeim og hélt að ég hlyti að hafa gleymt þeim í rútunni því við vorum búin að snúa öllu við heima að leita að þeim. Einu og hálfu ári seinna voru þær svo bara allt í einu í fatahenginu frammi á gangi ! Á þessu 1,5 ári hafði það oft verið tæmt fyrir veislur og það er alveg 100% að þær voru ekki þarna allan þennan tíma og enginn vildi viðurkenna að hafa sett þær þarna eða hafa haft þær allan þennan tíma .... Jebb stundum myndi ég vilja trúa á búálfa

lunes, 19 de febrero de 2007

Á Spáni er gott að djamm' og djúsa ...

Ég var bænheyrð :) Kennarinn minn í tímanum sem átti að vera í dag er veikur og var svo góður að setja tilkynningu um það inn á netið í gærkvöldi :) Ég skreið því bara upp í rúm svona 00:30 og fékk þennan fína 10,5 tíma svefn :Þ Dagurinn í dag er alveg fullpakkaður ! Ég er að fara að stökkva af stað eftir smá stund á fund vegna rannsóknarinnar sem við Unnur erum að gera í þroskasálfræði og ef að hann gengur vel þá er þetta bara komið á góða ferð hjá okkur. Svo næ ég vonandi að taka aðeins í bækurnar áður en ég fer upp í RKÍ í heimanámið :) Beint eftir það er svo sund með Maríu og Kristínu. Við erum svo fjandi duglegar, förum saman mán-mið-fös og syndum :) Svo ætlum við María aðeins að setjast niður og spekúlera í sumrinu áður en ég fer kl. 20 á námskeið hjá RKÍ í hláturjóga :Þ Semsagt algjörlega fullpakkaður dagur. Ég talaði við systur mína í Venezuela í gær og hún var nánast viss um að ég gæti verið hjá þeim alla 3 mánuðina í sumar ef að ég vildi :Þ Svo þegar ég minntist á að mig langaði svo að fá mér þá e-a sjálfboðaliðavinnu á meðan ég væri úti þá fannst henni það bara alveg frábær hugmynd og vill endilega koma með :D Það semsagt lítur út fyrir að þetta verði algjört draumasumar en ég verð þó að viðurkenna að ég er með oggusmásmáogguhnút. Ég er e-ð svo hrædd um að verða fyrir vonbrigðum, stór meirihluti þess fólks sem ég umgekkst þarna er ekki þarna lengur, voru skiptinemar, hafa dáið, flutt .... Ég geri mér þó alveg grein fyrir því að þetta verður allt allt öðruvísi en samt .. Mér finnst líka tilhugsunin um að sjá Orra ekki í 3 mánuði hrikaleg ! 3 mánuðir :| Hann er samt svo frábær og styður mig í ferðabakteríunni minni :Þ Mögulegt ferðaplan er því núna svona:
  • Við María fljúgum út saman í byrjun/miðjum júní
  • Hún ætlar að vera í 3 vikur, við ferðum eitthvað, kíkjum á Desi og svona :D
  • Svo fer hún heim í kringum mánaðarmótin júní/júlí
  • Þá byrja ég í sjálfboðaliðavinnu og mun síðan bara hafa það náðugt það sem eftir líður sumri
  • Ferðast síðan líklegast e-ð með fjölskyldunni minni úti þegar þau fara í sumarfrí
  • Kem svo heim um miðjan/lok ágúst orðin flugfær aftur í spænsku :D
  • Semsagt 2-3 mánuðir :Þ
Chao

domingo, 18 de febrero de 2007

Á það ekki að vera þannig að maður er úthvíldur og hress eftir helgina : / Ég einhverra hluta vegna er hins vegar algjörlega DAUÐþreytt. Samt hef ég ekki gert baun, ekkert djamm eða læti. Bara vinna og læra og læra og vinna :| Veskið mitt hefur algjörlega gufað upp, það finnst hvorki tangur né tetur af því, ekki heima, ekki í bílnum hennar Kristínar, ekki í sundlauginni : / eini staðurinn sem kemur til greina núna er bara að ég hafi misst það úti : / Ég mun því líklegast vera gemsalaus næstu mánuðina :S Kannski mun bara sami álfurinn sem að kom bílnum mínum svona skemmtilega í lag, skila veskinu mínu innan nokkurra vikna - já ég ætla bara að trúa því. Það er nóg að gera í skólanum, ekki að það sé eitthvað nýtt.
Ohh ég finn koma yfir mig hin þvílíkasta bloggleti - sjáumst seinna p.s. Kristín ! Stuðið byrjaði í gær - Hvernig væri að við veittum hvor annarri smá áfallahjálp næstu vikurnar!?!

sábado, 17 de febrero de 2007

Nú á ég loksins bíl sem gengur og borgaði takk fyrir 17 þús kall fyrir að láta gera EKKI NEITT VIÐ HANN : / Helvítið hætti bara allt í einu að vera bilaður daginn sem hann fór á verkstæði! Mér hefur líka tekist að týna veskinu mínu með öllum fjandanum eins og gemsanum svo ég er einfaldlega ekki í símsambandi þessa dagana - Ég er þó komin með heimasíma svona ef e-r skyldi virkilega þurfa að ná í mig .... Ég er í vinnunni núna að reyna að neyða mig til að lesa - er alveg hrikalega syfjuð jebb

jueves, 15 de febrero de 2007

bull.dagsins

Fljótt skipast veður í lofti ... eða eitthvað ;) Já eftir neyðarkall mitt í gær hafa mér borist, jahh, eiginlega 3 flott boð um skemmtileg sumar"activity" :Þ
  • Í fyrsta lagi eru Kristín og Andri að fara í draumagönguferðina mína. 6 daga ferð á Hornstrandir þar sem eru göngur og jóga á hverjum degi !
  • María og Aron eru komin í ferðahug og eru að spá í að skella sér til Venezuela með mér en það verður að gerast í júní
  • Svo er mér mögulega að bjóðast vinna á ferðaskrifstofu í sumar :Þ Ein af þeim ferðaskrifstofum sem bókar mest á Sunnu vantar manneskju í sumar og ég þekki franskan strák sem vinnur þar :Þ
Það er ekki slæmt þegar þetta er stærsta vandamálið manns :Þ Málið er semsagt að ef ég ætla til Venezuela og María og Aron koma með þá verðum við að fara í júní. Allt fólkið mitt úti er í fríi í júlí og ágúst svo ég myndi vilja vera þar á þeim tíma svo það þýðir bara Venezuela all summer long :Þ og þá semsagt engin vinna ... Well, skóli á morgun, vinna um helgina og svo er það ritgerð, rannsókn, fyrirlestur og umræðutími sem ég er að fara að stjórna. Semsagt nóg að gera og vonandi er það svo bústaðarferð í næstu viku ! Ætla að taka allar bækur með mér og taka smá lesslurk : )
Sund á morgun og heilsusálfræði :D

miércoles, 14 de febrero de 2007

Sommer2007

Skyndilega er komið í mig mikið vor og sumar. Hver ástæðan er veit ég ekki, kannski tölvupósturinn sem ég fékk frá Námsráðgjöf HÍ sem bar heitið PRÓFIN NÁLGAST ! og auglýsti prófkvíðanámskeið - ég er ekki frá því að þessi póstur hafi bara búið til hjá mér prófkvíða : / :Þ Svo getur ástæðan kannski líka verið sú að nú er ég búin að afsala mér yndisstarfinu mínu á Sunnu í sumar af því ég ætla að vera á ferðinni : ( svona er að vera flakkari : |
Svo nú er ákveða hvað maður á að gera við sumarmánuðina 2007 ! Er málið að vinna frá miðjum maí til loka júlí og skella sér svo til Venezuela í mánuð? Eða vinna bara í 2 mánuði og eyða 7 vikum í Vzla? Eða bara vinna ekki neitt og fara bara til Venezuela í 3 mánuði undir því yfirskini að þar geti ég rifjað upp og bætt við spænskukunnáttu mína og þar með sé ég í raun í skóla í sumar? Finna svo skemmtilega sjálfboðaliðavinnu og njóta sumarsins í sól (en algjörlega án Orra :|) Eða á maður að gefa Vzla upp á bátinn og fara t.d. til Suð-austur Asíu (EIN því það virðist enginn vera í ævintýrahug þessa mánuðina) Ein mynd frá Kambódíu eða skella sér í Nordjobb? eins og þessi hoppandi ungdómur Eða á maður bara að vera heimalingur, klífa fjöll í allt sumar, finna mér nýja vinnu (og gráta þessa æðislegu sem ég gaf upp á bátinn) vinna eins og hestur og vera svo ógeðslega rík eftir sumarið (öfugt við það að vera alls ekkert rík ef ég fer á ferðalag)
Hmm ef ég hefði frábæran ferðafélaga þá væri S-A Asía draumaferðalagið í sumar. Venezuela er mjög hátt á listanum líka og er líklegast ódýrasta ævintýrið : / Ég er bara svo hrædd um að verða fyrir vonbrigðum því auðvitað er ekkert eins og það var : / Ísland er "ósköp" spennandi líka en það er hætt við að maður geri lítið annað en að vinna og þar sem ég er búin að gefa upp vinnuna mína á Sunnu þá efast ég um að ég finni betri vinnu sem ég yrði ánægð með. Það yrði líka þvílík sóun á sumri að vera heima, fara ekki eitt né neitt og í þokkabót í fúllri (hvernig beygir maður orðið fúl?) vinnu ... Munið að ég á frábæran kall sem er heima að vinna ;) og er alveg til í að vinna á meðan ég skoppa um lönd - svo niðurbældi flakkarinn í mér er alveg í fullum blóma í augnablikinu Jæja nú er ég búin að kynna fyrir ykkur alla valmöguleikana svo ég set þetta bara í kosningu - Svo svarið nú HVAÐ Á ÉG AÐ GERA Í SUMAR?

lunes, 12 de febrero de 2007

Er veggjakrot glæpur eða list?

Er Kleenex með balsam ekki lifesaver á kveftímum ! Bjargar mér alltaf frá Rúdolfrauðanefinu :) Ég mætti í fyrsta skipti í sjálfboðaliðavinnuna mína í dag :) Ég er í verkefni þar sem innflytjenda börn fá hjálp með heimanám einu sinni í viku. Mér fannst þetta bara alveg frábært og það var góð tilfinning að gera gagn. Hlakka mikið til að vinna í sjálfboðaliðastarfinu hjá RKÍ og ætla að taka að mér fleiri verkefni þegar ég er búin að vera þarna aðeins lengur :Þ Þessi vika er skipulögð út í ystu æsar, hver einasta mínúta hefur verið tekin frá í eitthvað, mest af tímanum fer þó í að læra og læra og vinna upp : / Stefni á að vera á réttum stað næsta föstudag og geta þá unnið bara fyrir vikuna sem er framundan ! Vonandi er ég að fara upp í bústað þar næsta föstudag, það er að segja ef að ég á einhvern bíl sem keyrir : / Mig alveg klæjar í fingurna mig langar svo út úr bænum. Kristín og Andri verða með um helgina en svo verður vikan bara tekin í lestur, ritgerðarvinnu og meiri verkefnavinnu ... Alltaf gott að komast í burtu til að koma miklu í verk :) Ætla þó að koma heim í tæka tíð til að mæta í heilsusálfræðtíma - það er ekki séns að ég missi af einum einasta ! Hehe reyndar er ég þó ekki einu sinni byrjuð að lesa í heilsusálfræðinni :Þ Ég veit bara að um leið og ég byrja þá verður ekkert mál að lesa og lesa og lesa þannig ég ætla að vinna allt hitt upp fyrst. Svo ætla ég að setjast niður með góðan bolla af mmm jahh vatni og hella mér ofan í lífeðlisfræði heilans og líkamans og alveg missa vitið af ánægju :D Já ég er greinilega of þreytt til að skrifa blogg af viti góðanótt siríus sefur

sábado, 10 de febrero de 2007

4 vikur í 23. árið

Í morgun uppgötvaði ég árangursríka leið til að koma mér á fætur ! Ég semsagt missi bara gemsann undir mitt rúmið og þarf svo að hendast fram úr þegar hann byrjar að hringja til að finna hann og reyna að ná í hann. Hleyp svo inn í eldhús til að sækja sóp til að fá smá aukahandleggjalengd og svo þegar það gengur ekki þá þarf ég að draga stóra rúmið mitt fram á mitt gólf til að sækja símann - Eftir þetta er maður alveg pottþétt glaðvakandi ! Mér til mikillar "gleði" fékk ég svo þær fréttir þegar ég var að labba út úr dyrunum að fólkið sem var að flytja út fyrir nokkrum dögum síðan seldi Félagsbústöðunum íbúðina sína. Hmmm einstaklings/para íbúð á Hlemmi fyrir fólk á Féló : / Það væri annað ef þetta væri fólk með börn en ég er ekki alveg róleg yfir þessu... Vona bara að við fáum eitthvað gæðalið þarna inn : ) Í gær kom ég svo líka að einum nágrannanum mínum þar sem hann var að nota þurrkarann MINN. Sagði að hann hefði haldið að hann væri eign hússins. Þurrkarinn stendur samt sko ofan á þvottavélinni MINNI, kannski hann sé búinn að vera að nota hana líka. Mér er svo sem sama og væri alveg til í að leyfa honum að nota tækin en ég hef engann áhuga á að vera að borga rafmagnið undir hans þvotta - nei takk. Hehe ég gat samt ekki annað en hlegið það kom svo mikið fát á manninn ! Vinnuhelgi - og ég sit með skólabækurnar og er að reyna að koma mér af stað :Þ Hrikalegt hvað maður getur stundum verið góður við sjálfan sig :Þ Er að spá að stökkva kannski út í Krambúðina og fá mér smá góðgæti og múta mér til að byrja að læra :Þ Og svona af því ég ætla að lesa í skynjunarsálfræði í dag þá er hérna smá sjón illusion handa ykkur : )

viernes, 9 de febrero de 2007

Hvalir, augabrúnir og BA

Hvað þýðir það eiginlega að "veiða hvali í vísindaskyni". Sá á mbl.is að Japanir ætla í ár að veiða 850 hrefnur og 10 langreyðar. Hvaða vísindi og rannsóknir koma svo upp úr þessum veiðum? Hvaða vísindi erum við eiginlega að stunda með okkar vísindalegu hvalveiðum? Ég er búin að taka þá miklu og merkilegu ákvörðun að safna augabrúnum (getur maður sagt þetta?) - held að vaxarinn minn hafi farið aðeins offörum. Þannig ef þú sérð illa brýnda konu á gangi í myrkri ekki vera hrædd/ur þetta er bara ég : ) Það lítur líka út fyrir að ég sé búin að ákveða eða alla veganna setja mér línu varðand BA-verkefnið mitt. Líklegast mun ég taka fyrir eitthvað tengt tjáningu tilfinninga og heilsu. Það hafa víst fundist tengsl milli þess að geta ekki/vilja ekki/kunna ekki að tjá tilfinningar sínar og einhverra heilsufarsvandamála. Mér finnst þetta bara hljóma mjög spennandi. Svo nú er ég bara að vonast eftir því að finna mér vinnufélaga ! Takmarkið er að gera alla undirbúningsvinnu núna á vorönn og geta svo byrjað strax í gagnasöfnun í haust :) Hehe mér finnst þetta verkefni líka eiga svo vel við mig þar sem ég get nú verið ansi dugleg við að tjá tilfinningar mínar : Þ Jæja Kristín er á leiðinni til mín og við ætlum að taka smá sund : )

jueves, 8 de febrero de 2007

Bloggæði

Ég var á alveg frábæru námskeiði hjá Rauða Krossinum í kvöld ! Þetta var svona kynningarnámskeið fyrir nýja sjálfboðaliða og ég er alveg heilluð af þessu starfi : ) Þeir eru með alveg ótrúlega fjölbreytt sjálfboðaliðastarf hérna heima og eru með mikið hjálparstarf út í heimi. Ég mæli með því ef að það er einhver sem les þetta sem langar að gefa svolítið af sér að kíkja á þetta. Þetta getur bæði snúið að fólki og svo líka bara hlutum eins og fataflokkun, skyndihjálp, neyðarvörnum ... Smá um sjálfboðaliðastarfið og heimasíða RKÍ Það er bara svo gaman að geta gert gagn og þetta skiptir svo miklu máli : ) Það virðist líka vera gott félagslíf hjá sjálfboðaliðunum og það eru oft námskeið í boði eins og núna í febrúar ætla ég að fara á námskeið í hlátursjóga :Þ Svo væri líka rosa gaman að vera með einhverjum þarna sem maður þekkir :) Undir lokin á þessu hástemmda bloggi vil ég svo óska henni Selmu minni og Oscari manninum hennar til hamingju með krílið sem er á leiðinni : ) Voðalega er maður orðinn gamall, bráðum verða ekkert nema foreldrar í kringum mann : ) mér finnst ég eiga hrós skilið fyrir bloggátakið sem ég tók, fékk miklar kvartanir þannig að ég á semsagt frekar að blogga bara um eitthvað heldur en að sleppa því þegar mér dettur ekkert í hug :Þ Siríus kveður

miércoles, 7 de febrero de 2007

says who?

Hmmm Dreamgirls ! Er það bara þannig að ef að það er gerð söngvamynd í Hollywood þá fær hún sjálfvirkt verðlaun og óskarstilnefningar í hrúgum ... Ég skil heldur ekki hvað málið er með umræðutíma - af hverju að láta mann lesa grein bara til að mæta svo í tíma til að láta annað fólk segja manni um hvað greinin var ?.? Jebb very busy dagur og núna sit ég og horfi á House Góða nótt
Eins og mér þykir gaman að vera í skóla og læra þá get ég ekki neitað því að það er komin í mig hrikaleg náms- og skólaþreyta. Mér líður eins og þegar ég var í framhaldsskóla og var svo ekki að nenna þessu en vildi jú klára stúdentinn ... þá tókst mér á undraverðan hátt að peppa mig upp í að drífa hann bara af á 3 árum í staðinn fyrir að vera að dóla þetta. Mér finnst eiginlega bara hálf sorglegt að ég sé að upplifa háskólann svona, ég er í skemmtilegum kúrsum, er að læra það sem ég vil vera að læra en eitthvað vantar upp á : / Ég krossa bara puttana, bið um meiri orku og hugsa til þess þegar ég verð komin með BA gráðuna mína :Þ Eftir ár verð ég komin í skólafrí :)
Ég ætla svo að taka mér pásu í einhvern tíma áður en ég fer í masterinn. Fæ líklegast í millitíðinni að búa e-s staðar úti, kannski í Bandaríkjunum á meðan Orri er að læra :) Svo þarf ég að finna mér eitthvað snilldarland til að læra heilsusálfræðina :Þ Annars virðist þessi skólaþreyta vera í öllum í kringum mig - alla veganna í sálfræðinni. Allir komnir algjörlega með nóg ! Jæja ætla að fá mér te og læra smá áður en ég skelli mér í sund lanegrita

martes, 6 de febrero de 2007

Erum við virkilega ekki að meika þetta?

Ohh það er kannski ekki gáfulegt að byrja á svaka tiltekt um miðnætti þegar maður þarf að vakna snemma :| Hvað þá þegar hún endist í 1,5 tíma og svo þegar maður er hættur að taka til þá er maður búinn að peppa sig svo upp að það er engin leið að sofna. Svo loks þegar maður sofnar þá sefur maður svo órólega - ég fékk martröð um að ég þyrfti að kunna að sauma til að geta útskrifast úr HÍ ! Svo vaknaði ég einhvern tímann í nótt, viss um að ég væri bara búin að vera að brölta þarna í svona 2 tíma - nei þá var klukkan að verða 6:30 og alveg að verða komin fótaferðatími :|
Ég er veik í dag ! Hugurinn á mér er á sveimi þessa dagana. Það er svo margt sem þarf að gera hérna heima og það er svo margt sem þarf að gera í skólanum og ég virðist ekki alveg ná að jöggla þessu nógu vel saman. Ég virðist einhvern veginn alltaf þurfa að láta eitthvað sitja á hakanum til að hitt gangi. En ég er þó að reyna að bæta úr þessu núna. Ég er samt alltaf með voða samviskubit yfir því að mæta ekki alltaf í fyrirlestrana - þó að ég sé alveg búin að finna það út að ég missi ekki af það miklu... en samt finnst mér eins og ég sé þá ekki að gera allt sem ég á að vera að gera = samviskubit ! Ég er reyndar að lesa mjög áhugaverða bók núna sem heitir Spin Sisters. Hún fjallar um þær konur í Bandaríkjunum sem hafa mikil völd í fjölmiðlum. Þær stjórna fjölmiðlamarkaði kvenna, eru semsagt ritstjórar blaða, fréttakonur o.s.frv. Ég er enn bara á 2. eða 3. kafla en bókin hefur þó opnað augu mín fyrir því að konur í dag eiga að eiga voðalega bágt. Þær eiga allar að vera ósáttar með líkama sinn, vinnuna sína, börnin sín, manninn sinn = lífið sitt ! og það er alltaf verið að reyna að selja okkur lausnir. Lítið bara á fyrirsagnir blaðanna sem eru gefin út hérna, við eigum allar voðalega bágt með appelsínuhúðina og hrukkurnar sem bara við sjáum! Við eigum allar að vera með samviskubit af því börnin okkar eru svo vanrækt þegar við erum í vinnunni og svo þegar við erum heima þá er það samviskubitið yfir að vera ekki að sinna vinnunni - ! Fyrir utan allt þetta þá erum við allar að berjast fyrir að fá ME-time eins og við séum ekki við sjálfar á meðan við vinnum eða erum með fjölskyldunni? Ég vil ekki verða samviskubitchkona. Er þetta allt saman virkilega svona erfitt? Er bannað að skríða aftur upp í rúm? Siríus kveður

lunes, 5 de febrero de 2007

Enn ein helgin liðin :) Mér finnst tíminn þjóta hjá á alveg ógnarhraða ! Mig langar að byrja á því að óska Pólverjum til hamingju með 2. sætið á HM :) Eru þeir ekki stærsti innflytjendahópurinn á Íslandi :) Helgin var hin ágætasta, ósköp róleg fyrir utan skrallið sem var hérna á laugardagskvöldið :) Voða gaman og ég fór ekki í rúmið fyrr en kl. 7. Ég er með algjört major case bloggritstíflu. Það eru allir hættir að kommenta og þá er bara eins og maður sé að skrifa þessa vitleysu fyrir sjálfan sig. blessíbili

viernes, 2 de febrero de 2007

Föstudagsblogg

Núnú bara ekkert búin að blogga frá því á sunnudaginn :| og mamma er farin að skamma mig fyrir bloggleysið svo ætli það sé ekki best að bæta úr þessu - Málið er ekki að það sé svo mikið að gerast hjá mér heldur frekar að ég hef bara voða lítið hér að segja... Eitt gott gerðist þó í dag - Ég talaði við kennarann sem er draumaleiðbeinandinn minn fyrir BA-ritgerðina. Það er auðvitað heilsusálfræðikennarinn minn :) Ég fæ að vinna hjá henni og er að fara næsta þriðjudag til hennar til að ræða ritgerðina, finna efni og svona :) Það er náttúrulega ekkert nema frábært :) Þarf næstu daga að grúska smá, finna hugmyndir að efnum og sjá hvort ég lendi ekki á e-u sniðugu ! Ég er búin að vera í því síðustu daga að setja lög á Ipodinn. Þvílíkur metnaður í gangi því ég er búin að gefa öllum lögunum stjörnur og er auðvitað með svaka kerfi á þessu :Þ Afraksturinn eru tæplega 1000 lög sem eru öll í uppáhaldi hjá mér :) Gleðilega helgi öll sömul, mín verður líklegast bara hin rólegasta. Það er próf í næstu viku þannig að líklegast verður bara tekið á í lestrinum :) María ! Ég sakna þín ! Komdu nú með uppástungu að skemmtilegu systrakvöldi !