Ég er svo algjörlega hrútpirruð - er komin með svo yfrum nóg af fyrirlestrum, umræðutímum, rannsóknum, verkefnum, ritgerðum .... semsagt öllu þessu sem fylgir því að vera í skóla
vælvælvæl og ég er pirruð á vælinu í mér.
Ég held því miður að ég þurfi að grípa til neyðarráðsins: góður skammtur af súkkulaði og tveir klukkutímar af Friends ættu að ná að koma höfðinu á mér aftur á sinn stað og að LÆRA !
Ætla ekki að blogga meira í þetta skiptið til að hlífa ykkur við vælstraumnum sem er á leiðinni .....
Krakkinn er samt krúttlegur
Krakkinn er samt krúttlegur

1 comentario:
Vona að friends hafi bjargað þessu hjá þér ! Ef ekki þá er ég viss um að góður gróttugöngutúr á eftir með mér, reddar þessu öllu :o)
Sjáumst fljótlega sæta :o)
Publicar un comentario