Ég var á alveg frábæru námskeiði hjá Rauða Krossinum í kvöld ! Þetta var svona kynningarnámskeið fyrir nýja sjálfboðaliða og ég er alveg heilluð af þessu starfi : ) Þeir eru með alveg ótrúlega fjölbreytt sjálfboðaliðastarf hérna heima og eru með mikið hjálparstarf út í heimi.
Ég mæli með því ef að það er einhver sem les þetta sem langar að gefa svolítið af sér að kíkja á þetta. Þetta getur bæði snúið að fólki og svo líka bara hlutum eins og fataflokkun, skyndihjálp, neyðarvörnum ... Smá um sjálfboðaliðastarfið og heimasíða RKÍ
Það er bara svo gaman að geta gert gagn og þetta skiptir svo miklu máli : ) Það virðist líka vera gott félagslíf hjá sjálfboðaliðunum og það eru oft námskeið í boði eins og núna í febrúar ætla ég að fara á námskeið í hlátursjóga :Þ Svo væri líka rosa gaman að vera með einhverjum þarna sem maður þekkir :)
Undir lokin á þessu hástemmda bloggi vil ég svo óska henni Selmu minni og Oscari manninum hennar til hamingju með krílið sem er á leiðinni : ) Voðalega er maður orðinn gamall, bráðum verða ekkert nema foreldrar í kringum mann : )
mér finnst ég eiga hrós skilið fyrir bloggátakið sem ég tók, fékk miklar kvartanir þannig að ég á semsagt frekar að blogga bara um eitthvað heldur en að sleppa því þegar mér dettur ekkert í hug :Þ
Siríus kveður

1 comentario:
Hlátursjóga, það er örugglega alveg geggjað :o) hehehehe vissi ekki einu sinni að þetta væri til !
En, jæks, ég fór að sjá Dreamgirls í gær, og OMG. Þessi mynd var frekar spes, ef mig hefði langað að fara á söngleik, þá hefði ég skellt mér bara í leikhús...æ, mér fannst hún allavega spes !
Svo til hamingju með bloggátakið, ég er ekkert smá ánægð með að sjá að þú ert komin í blogggírinn aftur !
Heyrumst sæta *knús*
Publicar un comentario