Fljótt skipast veður í lofti ... eða eitthvað ;)
Já eftir neyðarkall mitt í gær hafa mér borist, jahh, eiginlega 3 flott boð um skemmtileg sumar"activity" :Þ
- Í fyrsta lagi eru Kristín og Andri að fara í draumagönguferðina mína. 6 daga ferð á Hornstrandir þar sem eru göngur og jóga á hverjum degi !
- María og Aron eru komin í ferðahug og eru að spá í að skella sér til Venezuela með mér en það verður að gerast í júní
- Svo er mér mögulega að bjóðast vinna á ferðaskrifstofu í sumar :Þ Ein af þeim ferðaskrifstofum sem bókar mest á Sunnu vantar manneskju í sumar og ég þekki franskan strák sem vinnur þar :Þ
Það er ekki slæmt þegar þetta er stærsta vandamálið manns :Þ Málið er semsagt að ef ég ætla til Venezuela og María og Aron koma með þá verðum við að fara í júní. Allt fólkið mitt úti er í fríi í júlí og ágúst svo ég myndi vilja vera þar á þeim tíma svo það þýðir bara Venezuela all summer long :Þ og þá semsagt engin vinna ...
Well, skóli á morgun, vinna um helgina og svo er það ritgerð, rannsókn, fyrirlestur og umræðutími sem ég er að fara að stjórna. Semsagt nóg að gera og vonandi er það svo bústaðarferð í næstu viku ! Ætla að taka allar bækur með mér og taka smá lesslurk : )
Sund á morgun og heilsusálfræði :D

1 comentario:
hmmm... ef þú skyldir ákveða að fara út í allt sumar þá máttu endilega segja mér hvaða ferðaskrifstofa þetta er ;) Annars skaltu sleppa því, vil ekki stela frá þér vinnunni.
Publicar un comentario