miércoles, 7 de febrero de 2007

Eins og mér þykir gaman að vera í skóla og læra þá get ég ekki neitað því að það er komin í mig hrikaleg náms- og skólaþreyta. Mér líður eins og þegar ég var í framhaldsskóla og var svo ekki að nenna þessu en vildi jú klára stúdentinn ... þá tókst mér á undraverðan hátt að peppa mig upp í að drífa hann bara af á 3 árum í staðinn fyrir að vera að dóla þetta. Mér finnst eiginlega bara hálf sorglegt að ég sé að upplifa háskólann svona, ég er í skemmtilegum kúrsum, er að læra það sem ég vil vera að læra en eitthvað vantar upp á : / Ég krossa bara puttana, bið um meiri orku og hugsa til þess þegar ég verð komin með BA gráðuna mína :Þ Eftir ár verð ég komin í skólafrí :)
Ég ætla svo að taka mér pásu í einhvern tíma áður en ég fer í masterinn. Fæ líklegast í millitíðinni að búa e-s staðar úti, kannski í Bandaríkjunum á meðan Orri er að læra :) Svo þarf ég að finna mér eitthvað snilldarland til að læra heilsusálfræðina :Þ Annars virðist þessi skólaþreyta vera í öllum í kringum mig - alla veganna í sálfræðinni. Allir komnir algjörlega með nóg ! Jæja ætla að fá mér te og læra smá áður en ég skelli mér í sund lanegrita

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Þú verður full af orku eftir hittinginn í kvöld :)

Hlakka til að sjá þig :D

Anónimo dijo...

Ég er ekki með skólaleiða :D en ég var reyndar líka bara að byrja fyrir örfáum mánuðum síðan ;) Ég er hins vegar komin með mikinn leiða á verkefninu sem ég er að bögglast við að klára... en það verður allt búið kl 9 á föstudaginn. Og þá skal ég sko koma með þér í sund!!!