Í morgun uppgötvaði ég árangursríka leið til að koma mér á fætur ! Ég semsagt missi bara gemsann undir mitt rúmið og þarf svo að hendast fram úr þegar hann byrjar að hringja til að finna hann og reyna að ná í hann. Hleyp svo inn í eldhús til að sækja sóp til að fá smá aukahandleggjalengd og svo þegar það gengur ekki þá þarf ég að draga stóra rúmið mitt fram á mitt gólf til að sækja símann - Eftir þetta er maður alveg pottþétt glaðvakandi !
Mér til mikillar "gleði" fékk ég svo þær fréttir þegar ég var að labba út úr dyrunum að fólkið sem var að flytja út fyrir nokkrum dögum síðan seldi Félagsbústöðunum íbúðina sína. Hmmm einstaklings/para íbúð á Hlemmi fyrir fólk á Féló : / Það væri annað ef þetta væri fólk með börn en ég er ekki alveg róleg yfir þessu... Vona bara að við fáum eitthvað gæðalið þarna inn : )
Í gær kom ég svo líka að einum nágrannanum mínum þar sem hann var að nota þurrkarann MINN. Sagði að hann hefði haldið að hann væri eign hússins. Þurrkarinn stendur samt sko ofan á þvottavélinni MINNI, kannski hann sé búinn að vera að nota hana líka. Mér er svo sem sama og væri alveg til í að leyfa honum að nota tækin en ég hef engann áhuga á að vera að borga rafmagnið undir hans þvotta - nei takk. Hehe ég gat samt ekki annað en hlegið það kom svo mikið fát á manninn !
Vinnuhelgi - og ég sit með skólabækurnar og er að reyna að koma mér af stað :Þ Hrikalegt hvað maður getur stundum verið góður við sjálfan sig :Þ Er að spá að stökkva kannski út í Krambúðina og fá mér smá góðgæti og múta mér til að byrja að læra :Þ
Og svona af því ég ætla að lesa í skynjunarsálfræði í dag þá er hérna smá sjón illusion handa ykkur : )

4 comentarios:
Púff ég vona að þú fáir eitthvað ágætisfólk í íbúðina. Skelfilegt að búa við hliðina á einhverjum skuggalegum. Ég veit um einn sem fékk Steigrím Njálsson í íbúðina við hliðina á sér ! Bara scary...en þú færð vonandi engann svona perra !!!!
En vó, varðandi þurkarann þinn, ég hefði sko orðið alveg brjáluð ef einhver væri að nota tækin mín, tala nú ekki um þurkara eða þvottavél...það er manns eigið finnst mér !
Gangi þér vel í vinnunni sæta og í læridóminum :o)
*knús*
hehe æ ætli ég hefði ekki orðið ögn óhressari ef að þetta væru ekki 25 ára gömul tæki sem ég fékk gefins :Þ
Ég er svo líka með alla putta krossaða að ég fái nú ekki eitthvað vitleysingsdópistaofbeldisperralið í húsið - Myndi helst bara vilja flytja úr húsinu núna en jii ég nenni ekki að standa í því að koma mér fyrir annars staðar til þess eins að búa þar í 1 ár : / fyrir utan hvað það er dýrt að flytja :S Svona er bara að búa á Hlemmi.
Heh skemmtilegt blogg hahah!!!
Geturu ekki notað þessa aðferð til að vekja Orra - hann yrði sko himinlifandi :)
hahaha María hann var sko á svæðinu og var ekkert sérstaklega hress með að þurfa að fara úr rúminu til að hjálpa mér að færa það :P ætli honum hafi samt ekki fundist það skárra en að hafa klukkuna hringjandi á mínútufresti :Þ
Publicar un comentario