lunes, 21 de mayo de 2007

Your mom circulates like a public key - Servicing more requests than HTTP.

Ohh haldiði að mér hafi ekki tekist að krækja mér í flensu í annað skiptið á 3 vikum ! Ég var búin að lofa mér í morgunmatinn á Sunnu og svo er náttúrulega búið að plana mikið með fjölskyldunni en svona er þetta : / Það sem verra er að ég get ekki einu sinni horft á Friends í flensunni - Orri var að skipta um diska í server tölvunni og nú finn ég ekki diskinn sem þættirnir eru á.

Maður getur samt ekki annað en orðið svolítið tölvunörd af því að búa með einu svona sjeníi hence fyrirsögnin sem kemur úr því yndislega lagi So Much Drama in the PhD. Maður er farinn að rífa upp tölvurnar, defragga, fika í kóða og guð veit hvað - nú þarf ég bara að læra að formatta tölvuna og þá hef ég náð hæstu hæðum nördaleika míns


Kennararnir mínir eru ekki alveg að gera sig því það eru komnar 4 vikur frá því ég skilaði fyrsta prófinu og 3 vikur frá því ég fór í annað prófið og ENN er EKKERT komið ! : / : | Þetta er alltaf sama ruglið önn eftir önn ! Ég er búin að vera MJÖG þolinmóð og hef ekkert misst mig á Uglunni en nú fer þetta að verða erfiðara - ég vil bara drífa í að klára þessa önn. Ekki bætir það ástandið að ég er ansi hrædd um að ég sé fallin þroskasálfræðinni en það kemur bara í ljós : S

18 dagar í Mývatn, ég er útskrifuð skyndihjálpari (ætli ég hafi fengið flensuna af því að blása í dúkkurnar :Þ) og það er búið að fata mig upp með landvarðagallanum. Nú vantar mig bara að vita hvernig ég fer rúta/bíll/flug en ætli það komi ekki bara allt í ljós með tímanum.

Jæja nú ætla ég að setja tærnar upp í loft og bíða eftir að Orri komi heim með pepperonihlöllann minn og mjúka snýtipappírinn því nefið á mér er nánast farið að glóa rautt : / Sem betur fer þá hefur fjölskyldumyndatökunni sem átti að vera á miðvikudaginn verið frestað um viku :Þ

Rúdolf kveður

2 comentarios:

Anónimo dijo...

Oh my, voðalega er kvefið hrifið að þér. Frekar fúlt. Líka með einkunnirnar, skil ekki hvernig þessir kennarar geta haft þetta yfir höfðinuu á sér svona lengi. Ég hefði haldið að öllum lægi á að komast í sumarfrí. Allavega mér ;o)

En ég vona að þetta fari nú að birtast hjá þér. Leiðinleg svona óvissubið :o° Annars þá er ég viss um að þetta hefur allt gengið vel hjá þér, þú ert svo mikill snillingur.

Farðu svo bara vel með þig sæta, og láttu þér nú batna fljótt !

knús*

Anónimo dijo...

jammsí, ég bíð líka eftir einkunum, reyndar bara einni. Annars mæli ég ekki með rútuferðum á Mývatn... tekur tvo daga, þarf að gista á Akureyri.
Láttu þér annars bara batna fljótt!