miércoles, 16 de mayo de 2007

Nada

Eitthvað hefur bloggviljinn minnkað síðustu vikurnar svo nú ætla ég að bretta upp ermarnar og fara að gera þetta almennilega :)

Síðasta prófið var á mánudaginn og ég þori ekkert að segja um það hvernig mér gekk í því. Nú er svo leiðinlega biðin eftir einkunnunum hafin - Það eru komnar 3 vikur og 2 dagar frá fyrsta prófinu svo þetta má nú alveg fara að rúlla inn ! Ég byrjaði svo í gær í morgunmatnum á Sunnu. Það er bara ekkert erfitt að vakna svona snemma á morgnanna þegar það er svona bjart úti. Ég er samt reyndar bæði í dag og í gær búin að taka mér nokkurra klst lúr eftir vinnu :Þ Á morgun höfum við systurnar planað að eyða deginum saman og gera eitthvað skemmtilegt. Mér heyrist að stefnan verði tekin á keilu - er ekki opið annars?

Æ kannski ég verði bara svolítið löt að blogga fram í júni - það er nefnilega bókstaflega algjörlega bara ekki frá neinu að segja :Þ

3 comentarios:

Anónimo dijo...

Já það er ansi mikið á döfinni á næstuni.. en allavega er prófunum lokið :)
Hlakka til að sjá þig snúlla!
Kveðja Óla

Anónimo dijo...

Alltaf leiðinlegt að bíða eftir einkunnum en ég vona nú að þær fari að láta sjá sig.

Hafðu það sem allra best með systu þinni og familiunni næstu daga :o)

Anónimo dijo...

Takk fyrir gærdaginn sæta mín:)

Hlakka til að eyða kvöldinu með þér í Catankveldi ;)