sábado, 19 de mayo de 2007

Here goes nothing ...

Í hvert sinn sem ég opna Blogger og ætla mér að setja inn færslu fer höfuðið á mér í baklás um leið og ég set fingurna á lyklaborðið.
Þetta er það sem er í gangi í höfðinu á mér þessa dagana:
  • Mig langar í bláber - risaöskju af þeim og helst tvær, svo vil ég skola þau og borða eintóm


    Ég er farin að efast um gróðurhúsaáhrifin séu AF MANNAVÖLDUM - Kíkið á heimildamyndina The Great Greenhouse Swindle. Hér er linkur á myndina á YouTube. Hún er í 9 pörtum :)



  • Skyndihjálp ! Höfuðið á mér er fullt af skammstöfunum til að muna hvað á að gera ef einhvern hnígur niður eða slasar sig í minni návist á Mývatni - BROS, OLSENA, BSH, VÁSE ... Þarftu að láta hjartahnoða þig?

  • Hljóðbókin A Short History of Nearly Everything - algjör snilldarbók um ALLT frá mikla hvelli til skýjanna og kjarna jarðarinnar ! Veit einhver um aðrar góðar hljóðbækur eða síður til að kaupa þær?

  • Arctic Monkeys !
  • Leti - alveg ótrúleg leti ! Eða kannski bara sjálfeyðingarhvöt og streita .. veit það ekki alveg

  • Hvernig verður að koma heim í haust og fjölskyldan öll flutt burt : /

  • Jibbí fín tækifæri til að fara til útlanda :D

  • Djö ég var búin að gleyma hvað það verður bjart SNEMMA á sumrin ! Ég er búin að vera að vesenast með þetta frá því ég man eftir mér - ég bara get ekki sofið í birtu Ég er búin að STÖKKVA á fætur á hverri einustu nóttu frá því ég þurfti að fara að vakna á morgnanna eftir prófin :Þ Ég opna augun, fæ algjört sjokk yfir birtunni og er handviss um að ég sé búin að sofa yfir mig, rétt áður en ég hendist í fötin lít ég á klukkuna og sé að hún er &$#%$/%&# 4 að nóttu til ! (Þetta er búið að gerast 5 sinnum síðustu vikuna !)


  • Get ég klónað Orra og tekið annan þeirra með mér á Mývatn?

Ég vil svo enn einu sinni hvetja fólk til að kíkja á KIVA. Lítill sem enginn aðgangur að fjármagni kemur í veg fyrir að fólk sem býr í þróunarlöndum geti lifað betra lífi ! Chao

3 comentarios:

Anónimo dijo...

hmmm, ég vissi um góða síðu með hljóðbókum, skal láta þig vita ef ég man eftir því hvað hún heitir. Annars höfum við mjög ólíkar skoðanir á ágæti sumarbirtunnar ;o) Hún léttir mér lífið mjög mjög mikið.

Íris dijo...

Ég kann vel að meta birtuna þegar ég er vakandi og líka á morgnanna þegar ég er að vakna. Það er birtan á nóttunni sem gerir mig brjálaða :Þ Annars snjóar nú bara núna þannig ég held að sumarið sé hætt við að koma ...

Anónimo dijo...

OG hver kynnti þér fyrir Artic Monkeys - Mí ;) Gaman að eiga heiðurinn af einur favorites :)

Ég er svo miklu glaðari í mér í þessari birtu - finnst hún æði...Enda get ég líka sofið við hvaða aðstæður sem er !