Ég var nokkuð sátt við prófið í gær. Ég þurfti ekki að sleppa neinum spurningum og skrifaði svo bara allt sem ég vissi :Þ Þetta er engin 10 og engin 8 en ég næ þessu alveg pottþétt. Ég ákvað að vera bara ekkert að pirra mig á því að vera veik, ég lærði eins og ég gat, henti svo bara í mig tveimur verkjatöflum og stífluspreyi fyrir prófið. Liðið í stofunni hefur samt örugglega haldið að ég væri að missa mig kannski smá af því nokkrum sinnum yfir prófið þá var ég svo þreytt að ég lagðist fram á borðið til að safna smá kröftum :Þ
Jæja þarna kláraði ég orkuna - skrifa meira seinna
Jæja þarna kláraði ég orkuna - skrifa meira seinna

1 comentario:
Gott að það gekk vel hjá þér í gær. Vona að þú farir að hressast sæta, leiðinlegt að vera veikur á vorin og þá sérstaklega í miðri próftörn.
Bara góðan bata og baráttukveðjur í próflestrinum :o)
Publicar un comentario