Hvað get ég sagt - ég veit ekki alveg hvað er í gangi en ég get ómögulega fengið sjálfa mig til að vilja læra. Get svo sem neytt sjálfa mig til að læra en í hnotskurn þá er mér alveg sama (þó mér sé það samt ekki alveg). Flensan setti mig svona útaf sporinu og ég kemst ekki inn á það aftur.
Mig langar svo bara að vera að gera eitthvað allt annað - er komin með ógeð á að vera námsmaður en það er ekki eins og mig langi í 9-5 vinnu rútínuna heldur. Eirðarleysið hefur náð tökum á mér meir en nokkru sinni áður. Mig langar í sól, geta rölt um í sandölum og kjól og borðað kirsuber - af hverju er svo ómögulegt að gera þetta á Íslandi ! Kannski ég hendist bara í kjól og ullargammósíur undir, loðna sandala og borði kirsuber sem kosta 500 kall 10 stykki ! Sjarminn er bara ekki eins (enginn sól sko).
Rúmt ár í viðbót og þá get ég verið komin á einhvern nýjan stað - húsfrú í Bandaríkjunum, bakpokaferðalangur í Asíu, hver veit.
Ég er samt farin að halda að þetta eirðarleysi fari aldrei - ég muni alltaf verða leið á því sem ég er að gera og hreinlega verð að skipta um umhverfi. Hvernig á maður að mennta sig þegar manni finnst einna næst öruggt að manni á eftir að leiðast í því starfi eftir nokkur ár : / Á maður ekki að eyða þessu stutta lífi í að njóta þess - af hverju eru allir að drífa sig svona mikið að festa sig í skuldbindingum ?

3 comentarios:
Best að draga fram öll jákvæðu og yndislegu smáatriðin í kringum þig. Vertu dugleg að hreinsa hugann :o) Gróttugöngutúr er alveg vítamínssprauta, láttu mig bara vita ef þú villt fá partner.
Það er allt miklu skemmtilegra og auðveldara þegar maður er jákvæður og lætur hlutina ekki draga sig niður.
Vona að þetta komi allt hjá þér sæta. Svo er líka alltaf hvetjandi að horfa fram á veginn á eitthvað framandi og skemmtilegt :o)
Skólinn er alveg að vera búinn núna, bara nokkrir dagar og þá geturðu farið að njóta sumarsins :o)
Hafðu það sem allra best rúsínan mín :o) Ég sendi þér jákvæða strauma....
*knús*
Íris þú átt SVO stutt eftir - rífðu þig uppúr þessu og LÆRÐU kona og ekkert svona volæði ;)
jammsí, drífa þetta bara af og taktu svo kallinn með þér í hálfa heimsreisu (geymdu hinn helminginn fram að næsta eirðarleysi ;)) Leigið bara íbúðina á meðan og hafið af henni tekjur til að fjármagna heimsreisuna.
Publicar un comentario