Í dag hef ég lýst yfir fegrunardegi þrátt fyrir að í dag sé síðasti dagurinn fyrir síðasta prófið. Prófaljótan er núna búin að ná yfir heilann mánuð enda er lífið búin að snúast um lítið annað en verkefnavinnu og prófalestur frá því um páskana !
Í dag er komið nóg svo nú sit ég alsæl með ólífuolíu í hárinu - maður verður víst að vökva hárið á sér rækilega svona annað slagið þegar maður fer svona oft í sund ! Ég komst að því þegar ég var með appelsínugula hárið :Þ að ólífuolía er betri en nokkur djúpnæring - maður verður bara að muna að setja sjampóið í hárið ÁÐUR en maður bleytir það :Þ
Önnur mikilvæg verkefni sem á að sinna í dag verða háreyðing, plokkun, naglasnyrting og augnháralitun :Þ Já og fyrir utan allt þetta þá ætla ég líka að sitja sveitt yfir skólabókunum :Þ
Þessi prófalota er búin að vera sú afslappaðasta sem ég hef upplifað og ég veit ekki af hverju - ég hef bara ekki orðið stressuð (ekki að ég hafi ekki ástæðu til þess :/). Fyrir prófið á morgun á ég enn EFTIR AÐ LESA næstum því helminginn af námsefninu - en það reddast :)
Verður maður ekki að segja eitthvað um Evróvisjón og kosningar líka. Fyrst Evró - ég vildi að Úkraína myndi vilja en jæja. Kosningarnar - ég er ekki algjörlega ósátt en ég hefði þó viljað sjá ríkisstjórnina falla. Nú er bara að sjá hvaða moð við fáum úr þessu.
Næstu vikurnar þangað til ég fer til Mývatns eru svo algjörlega pakkaðar.
Ég er enn í heimanámsaðstoðinni í RKÍ og ég byrja að vinna í morgunmatnum á Sunnu á þriðjudaginn og verð þar til mánaðarmóta.
Með fjölskyldunni er búið að plana spilakvöld, systradag, tónleika og myndatöku. Á föstudaginn fer ég á undirbúningsnámskeiði fyrir landverði.
Næstu helgi er ég að fara í útskrift og ég verð líka alla helgina á skyndihjálparnámskeiði fyrir landvarðastarfið.
Helgina eftir það er frábæra móðursystir mín og hennar fjölskylda að koma til landsins og þá verður fermingarveisla og ég hlakka svo til að sjá þau. Næst mun ég þurfa að kveðja Maríu :'( þar sem hún flytur út um mánaðarmótin.
Eftir allt þetta þá ætlum við Orri að vera í vikufríi frá vinnu áður en ég fer norður. Planið er bara að hafa það ósköp kósý og slappa af áður en vinnutörn sumarsins tekur við :)
Best að skella sér í lesturinn :Þ

3 comentarios:
Helduru að þú getir potað að smá stelpu kvöldi (eða degi) áður en þú ferð??? Annars þurfum við að koma sundferðunum aftur í gang, jafnvel finna okkur einhverja skemmtó útilaug ;) Ég held alltaf í vonina um smá brúnku hvert sumar þrátt fyrir að reynslan segi mér annað :P
Ekki segja þetta: "Mánaðarmótin" Það hljómar alveg hrikalega stutt !!!
Velkomin í sumarfrí sæta :o)
Vona að þú eigir eftir að hafa það sem allra best !
Publicar un comentario