Ég hef ekkert bloggað frá því á mánudaginn því ég hef bókstaflega ekki haft neitt að segja - nema ég hefði kannski getað vælt hérna yfir því hvað það er fúlt að vera veikur heima en ég vildi hlífa fólki við því.
Ég er núna loksins mætt í vinnuna en ég er smá hrædd um að ég hefði átt að hafa mig hæga ögn lengur því ég er búin að vera hrútslöpp hérna í vinnunni frá því ég mætti :/ Þetta er að verða ein lélegasta prófavertíð sem ég hef nokkurn tímann staðið í ... :| Næsta próf er á fimmtudaginn og ég er ekki byrjuð að læra fyrir það og síðasta prófið er 14. maí og ég á enn eftir að lesa hálfa bókina ... hmmm ég hef greinilega ekki meiri tíma til að liggja veik upp í rúmi.
Veit einhver hvernig maður ber sig að ef maður vill selja bíl til partasölu? Minn er bilaður og ég vil losna við hann N Ú N A Kvefpestin kveður
Veit einhver hvernig maður ber sig að ef maður vill selja bíl til partasölu? Minn er bilaður og ég vil losna við hann N Ú N A Kvefpestin kveður

2 comentarios:
hehe, Andri sá einmitt bílinn ykkar einn og yfigefinn einhversstaðar í vegarkanti um daginn ;) Annars vona ég að þú farir nú að hressast almennilega! Við þurfum að fara í fleiri göngur áður en þú hverfur úr bænum :)
Voðalegt er að heyra. Ég vona nú að þetta kvef fari að pilla sér burt. Leiðinlegt svona ! Vona samt að það gangi allt vel sæta og maður fari að sjá framan í þig :o) Gangi þér vel í lestrinum framundan. Knús og kossar :o)
Publicar un comentario