Ég er ekkert búin að vera neitt sérstaklega virk í blogginu síðustu dagana enda er nóg að gera. Þrjú próf búin og bara 1 eftir : ) 4 dagar í frelsið : )
Ég er farin að hlakka svo mikið til sumarsins - ég fékk bréf í gær um að það verði haldið undirbúnings og skyndihjálparnámskeið í næstu viku svo þetta er bara alveg að bresta á. Á sama tíma styttist í að öll fjölskyldan mín hverfi af landi brott enda er seinni hluti maí þéttbókaður af fjölskyldugamani :Þ Í dag eru bara 20 dagar í að krúttkjötið mitt hún María flytji og ég er bara varla að fatta það. Það verður svo skrýtið að hafa þau ekki hérna ....
Nú tekur bara við 4 daga lestrarhark - ég skulda svo mikinn lestur í þroskasálfræðinni ! Þvílíkur lúðaskapur.
Þetta er nú ekki merkilegt blogg en ég vildi bara láta vita af mér : )

1 comentario:
Gangi þér alveg súper vel núna næstu fjóra daga :o) Sendi þér góða strauma sæta !
Sjáumst svo vonandi aðeins áður en þú ferð norður á Mývatn, svo veit maður aldrei hvað sumarið ber í skauti sér, hvort maður kíki á þig í heimsókn eða eitthvað :o)
Baráttukveðjur :o)
Publicar un comentario