- Mér þykja fjallagrasaflatkökur ekki eins góðar og venjulegar
- Ég gleðst yfir því að það rigni í dag og vona að rigningin haldist til 14. maí
- Ég er í heimaprófi, með hundveikan kærasta og aðgerðarleysisveikina á háu stigi
- Það er allt í drasli
- Ég borðaði Minstrels í morgunmat
- Ég er að brjálast af ofnæmi og það er bara APRÍL !
Ofnæmisins vegna er annað augað á mér búið að vera eins og á áttræðri konu í 5 daga. Í dag er það skárra núna er það svona sextugt !
Annars fór ég í tvær göngur á sumardaginn fyrsta. Fyrst fór ég með Kristínu í Búrfellsgjána og upp á Búrfellið og svo seinna um daginn tókum við mamma göngu um svæðið í kringum Kaldárselið.
Best að reyna að gera EITTHVAÐ af viti : /

1 comentario:
Gangi þér vel með heimaprófið sæta :o) Vona að ofnæmið sé að lagast, leiðinlegt að vera með svona.
knús :o)
Publicar un comentario