martes, 10 de abril de 2007

Neikvæðnisfærsla

Mikið rosalega á ég erfitt með sjálfa mig þessa dagana. Ég þarf að vinna svo mikinn lestur upp, vinna svo mörg verkefni og undirbúa mig fyrir próf en ég er bara algjörlega komin með upp í kok. Páskarnir hefðu verið fullkominn uppvinnslu tími en ég gat ekki neitað aukavöktunum. Tókst að tvöfalda mánaðarkaupið og það veitti ekki af því : / Ég er semsagt að pirra mig á því að ég hafi ekki náð að gera allt sem ég þurfti að gera yfir páskana af því ég var að vinna.

Mig langar svo ekki að lesa og þegar ég sest niður við bækurnar þá reikar hugurinn langt LANGT í burtu og fram í tímann. Þar sem ég er ENN að bíða eftir svari frá Umhverfisstofnun þá hef ég ekkert getað ákveðið varðandi sumarið sem er að koma og það er að gera mig brjálaða ! Hrikalegt að sækja um vinnu og bíða svo 3 vikur án þess að fá já, nei eða kannski ! Ég vil bara fá mitt (nei) svar svo ég geti ákveðið eitthvað. Þolinmæði er ekki mín sterka hlið : Þ

Bloggið mitt er svo algjörlega í rúst, ég þarf að html-a (nýtt orð) öll greinarskil og svona í textann því annars kemur textinn bara í einni runu þegar ég pósta. Ég ætlaði að þrífa og selja bílinn minn um páskana en það var enginn tími. Ég ætlaði að fara í IKEA og koma endurvinnslunni á heimilinu í gang, æfa, taka til og læra - Ég hefði þurft að klóna sjálfa mig : / : ( Djöfull hlakka ég til þegar maður verður hættur í námi og orðið FRÍ fer virkilega að merkja tími sem maður hefur fyrir sjálfann sig en ekki tími til að LÆRA eins og brjálæðingur eða tími til að VINNA eins mikið og maður getur ...

Mig vantar ærlega stóra sprautu af skólastressi til að moka út skólaleiðanum og kæruleysinu.

No hay comentarios.: