Í dag tókst mér að stroka tvo hluti út af Skóla To Do listanum þannig að hann hefur styst (örlítið). Akkúrat núna ætlaði ég að vera að læra en ég er alveg dottin ofan í ferðaheimasíður :Þ Hvað segiði er Síberíuhraðlestinn ekki bara alveg geggjuð eða er Afríka málið? Bhutan er komið næstefst á lista hjá mér núna yfir lönd sem ég ætla mér að fara til yfir ævina (á eftir Japan :Þ)
Það eru ekki nema 9 dagar í fyrsta prófið og prófaandinn er mættur á heimilið. Nú þarf bara að þrífa allt og þvo, kaupa í matinn og þá er hægt að byrja að læra truflunarlaust. Verst að kallinn minn er líklegast fótbrotinn og því algjörlega engin not af honum í tiltektinni : /
Veit einhver hvar ég get keypt stórt heimskort til að setja upp á vegg? Mamma??
Íris í (próf)ferðahug
3 comentarios:
Gangi þér vel með próf- og ferðahugleiðingar ;o) Gott að hafa sittlítið af hvoru í gangi !
Heyrumst fljótlega sæta :o)
Kanski ég láni þér mitt meðan ég á heima í útlandinu :-) -mamma-
hmmm ég var einmitt að hugsa hvernig ég gæti skreytt vegginn í svefnherberginu á nýju íbúðinni minni. Nú veit ég, kort! En hvaða hvaða, það er engin smá harka sem hefur verið í þessum skvass leik hjá strákunum!
Publicar un comentario