Ég tilkynnti það hérna minnir mig í febrúar að ég ætlaði að safna augabrúnum ! crazy - ég hef hér með GEFIST UPP, þær bara vaxa ekki neitt og ég er búin að vera illbrýnd í 2 mánuði ! Mín er búin að panta tíma í vax í næstu viku ! Ekki nóg með það þá ætla ég líka í klippinu enda komnir margir margir mánuðir frá því ég fór síðast :O Beautymission ;)
Loksins í dag fékk ég svo fréttir sem ég er búin að vera að bíða eftir (mjög óþolinmóð :Þ) í 3 vikur. Það var haft samband við mig bæði frá Mývatni og Jökulsárgljúfurs þjóðgarðinum :D Í báðum tilvikum voru þetta bara svona atvinnuviðtöl en kannski mun ég þurfa að velja. Svo nú er ég komin með valkvíða :ÞSmá hröð sannindi um báða staðina
Jökulsárgljúfur:
Lengra í burtu (tekur þó nokkuð lengri tíma að keyra þetta)
Lengra að fara heim og lengra fyrir Orra að koma til mín
Fleira fólk að vinna á staðnum
Lengri vinnutími yfir sumarið (21. feb-31. ágúst)
Kemst ekki til VenezuelaStórkostlegt umhverfi
Meiri innivinna
Mývatn:
Mýflugur :Þ
Styttra að fara
Vinnutíminn er styttri (21. júní - 31. ágúst)
Ég get því farið til Venezuela t.d. 17. maí - 17. júní :Þ
4 að vinna á staðnum
Stórkostlegt umhverfi
Meiri útivinna

Ég veit ekkert hverjir af þessum punktum eru gallar, þetta virðist eiginlega vera frábært í báðum tilvikum. Það er nú samt mjög spennandi að hafa möguleikann á því að fara til Venezuela en ég væri þá að fara á tíma þar sem enginn er í fríi.
Hugsi hugs

3 comentarios:
úúúúúúú...spennó :o) Ég hef nú bara komið að Mývatni og vá hvað maður þarf mikla þolimæði fyrir mýflugurnar, þær eru ekki að gera sig. Bara ef þú ferð þangað, skildu þá alla hvítu bolina þína eftir heima...eitt af því sem ég lærði þarna í sumar ;o) En í staðinn þá geturðu eytt dögunum í Jarðböðunum þarna og þau eru geggjuð !
Hvort sem þú velur eða færð þá verður þetta geggjað :o) Bara til lukku með að fá viðtal sæta !
*knús* frá bekku prófstressprinsessu ;o)
Til hamingju Íris :)
Farðu fyrst í viðtölin áður en þú byrjar með valkvíða um að þú þurfir hugsanlega að velja á milli hahahha
Viðtölin voru í gær bara í gegnum síma - svo á ég bara eftir að heyra aftur frá þeim.
Publicar un comentario