Mig vantar eitt ofur spark ! Ég er svo ekki að nenna að lesa : S Mig langar út í fjallgöngur, fara til útlanda, sprikla í sundlauginni, fara á bókasafnið, fara með mömmu í búðir og jafnvel taka til og gera eitthvað skemmtilegt - allt annað en það að setjast niður með þroskasálfræðibókina : /
Núna er ég orðin ansi óþreyjufull eftir svarinu frá Umhverfisstofnun (þó ég viti að það kemur annað hvort ég næstu dögum eða strax eftir páskana). Ég er bara svo viss um að ég fái nei :( og ég vil helst bara ljúka því af svo ég geti farið að huga að sumrinu ...
Æ fjárinn hafi það - ég ætla að fara að lesa ...

4 comentarios:
Vertu dugleg að lesa, svo förum við saman í búðir - það er alltaf svo gaman. - mamma -
Þú ert hinn fullkomni verslunarfélagi :D
ússs ég er alveg í sama pakkanum og þú... er að bíða eftir svari frá vinnu sem ég sótti um og það er bara svo god damn erfitt:S
En ég er alveg viss um að þú fáir jákvætt svar frá umhverfisstofnun... vittu til :)
Eitt spark ;o)
Ég vona að þú fáir jákvætt svar frá þeim !
Knús Bekka
Publicar un comentario