
Er ljótt að gleðjast yfir rigningunni þegar maður þarf sjálfur að vera í vinnunni allan daginn :Þ Ég er alla veganna mjög glöð :D
Ég var að spjalla áðan við Rebekku um íbúðir og íbúðaverð og fór í kjölfarið að kíkja á hvað íbúðir sem eru mjög svipaðar okkar (stærð, aldur, staðsetning, skipulag ...) myndu kosta. Sú ódýrasta sem ég fann var á 12,7 milljónir - það er +4 milljónir fyrir okkur ! Flestar voru á yfir 13 milljónum og þær voru líka flestar 10+ árum eldri en íbúðin okkar :O
Mikill bónus fyrir okkur og þvílík súperávöxtun á peningnum sem við lögðum í íbúðina í byrjun - en þetta er hrikalegt fyrir fólk sem er að kaupa sínu fyrstu íbúð núna : /
Ég fékk loks smá gæðakvöld með Orranum mínum í gærkvöldi. Við vorum bókstaflega varla búin að sjást frá því á þriðjudaginn þó við séum bæði búin að vera á svæðinu. Ég er bara búin að vera í verkefnavinnu og meira og minna í vinnunni svo það var mjög gott að fá að knúsa hann smá.
Þessa dagana er Sleep trackerinn hans Orra algjörlega að bjarga mér. Ég þarf að vera mætt í vinnuna kl. 7 og er ekki svo mikill morgunhani að ég stökkvi á fætur af gleði á þessum tíma. Ég man ekki hvort ég var búin að segja e-ð frá þessu undratæki hérna. Þetta er tölvuúr með vekjaraklukku sem vekur mann á þeim tíma sem maður er næstur því að vera vakandi. Það er svo miklu auðveldara að vakna svona - maður bara opnar augun og það er eins og maður sé búinn að vera vakandi heillengi.
Best að læra smá...

4 comentarios:
Æðislegar svona undaruppfinningar sem að koma að góðum notum !
En vona að dagurinn þinn á Sunnu hafi verið góður og njóttu svo kvöldsins sæta :o)
Vonandi gerirðu eitthvað skemmtilegt og eitthvað annað en að læra eða vinna, það er alveg möst stundum :o)
knús*
Ég er svo heppin að vera á leiðinni í mat til ömmu hans Orra í kvöld - fæ þar pottþétt eitthvað gómsætt og gott :)
Annars er ég að skemmta mér svo vel í vinnunni að það er bókstaflega bara bónus að fá borgað fyrir þetta :Þ
hmmm, mér lýst vel á þetta úr. Hvað kostar svona gripur? Veit nebbla um einn sem er að fara að klára stúdentinn og á ekkert úr...
Ég keypti þetta gæðastykki bara á Ebay en það er selt einhvers staðar hérna á Íslandi - kostar líklegast svona 12-15þús hérna heima : / en þetta tæki er algjör SNILLD. Ég bjóst ekki við að það myndi virka yfirhöfuð en það gerir allt sem er lofað á pakkningunni :Þ
Publicar un comentario