lunes, 9 de abril de 2007

Það hefur tekið sér ból í mér enn stærri og sterkari ferðabaktería, hún er sko eiginlega risastór ...

Það er samt allt enn á umhugsunarstigi og eins og oft áður þá veltur þetta mikið á ferðafélaganum. Þessi ferð er þó ekki í bígerð fyrir þetta árið heldur verður 2008 fórnarlambið. Þessi ferðabaktería gæti fært mig í lönd þar sem pýramídar hafa verið byggðir, búddamunkar búa og kengúrur hoppa um ...

Nú er bara að sjá og bíða

og ég þarf víst að klára skólann fyrst svo það er eins gott að ég snúi höfðinu á mér í þá áttina svona næsta mánuðinn eða svo.

Öll þessi vinna í páskafríinu hefur skilað af sér ZERO lestri og MUCHO monní. Það breytir þó því ekki að það er próf á miðvikudaginn sem ég á eftir að lesa fyrir, niðurstöðukynning á fimmtudaginn sem á aðeins eftir að klára og ritgerðarskil í heilsunni á föstudaginn sem ég eftir að vinna.

sselB

1 comentario:

Anónimo dijo...

Ef þú vilt ekki að verðabakterían stækki ættiru ekki að lesa sunnudagsmoggann.... Það er svo mikið fjallað um Afríku í honum og núna langar mig mest að fara þangað, fara til Ghana eða Tansaníu eða Fílabeinsstrandarinnar eða e-ð svoleiðis. Ég skal alveg íhuga alvarlega að koma með þér að skoða einhverja vin í eyðimörkinni sumarið 2008. Þá verður íbúðarsöfnunin búin og hægt að byrja að safna fyrir ferðalögum!