domingo, 22 de abril de 2007

Harðfiskur er bestur

Þetta er búin að vera hálfundarleg helgi þar sem ég hef setið límd við skrifborðstólinn í heimalokaprófið í heilsusálfræði. Það er bara mun flóknara að taka svona heimapróf en ég hafði gert ráð fyrir. Þegar maður hefur öll gögnin þá veit maður eiginlega aldrei hvenær svarið er orðið nógu gott : / Ég vona bara að ég sé að gera þetta rétt :)

Prófið er til kl. 18 á morgun og ég ætla að nýta tímann allan. Er að svara síðustu spurningunni núna og á morgun ætla ég að fara yfir öll svörin og gögnin við það og sjá hvort ég geti ekki gert enn betur. Ég vil fá HÁTT í þessum kúrsi (þó hann reiknist ekki einu sinni inn í meðaleinkunnina mína) - ég vil geta sýnt þegar ég sæki um framhaldsnám að ég hafi fengið mína hæstu einkunn í heilsusálfræði !

Ég var að horfa á þátt af House um daginn, þar var viðfangið kona sem játaði það skömmustuleg að hafa farið til Caracas og guð hjálpi mér hún fékk sér TATTÚ, drakk VATNIÐ þar og fékk sér MAT sem mögulega var ekki nógu vel eldaður ! Ég hefði greinilega ekki átt að komast lifandi heim miðað við svipinn sem þau settu upp þarna !
Ég svaf utandyra,
var bitin eða stungin af einhverju furðudýri sem olli því að ég fékk svo mikla beinverki í fótinn og bólgnaði svo svakalega að ég gat ekki stigið í hann í 3 daga,
það fannst sporðdreki í íbúðinni sem ég bjó í,
ég var bitinn þúsund skrilljón sinnum af moskítóflugum án þess að fá malaríu,
ég stökk í fossa við landamæri Brasilíu án þess að verða meint af,
lifði á sandskeri í 4 daga bólgin af sólbruna,
drakk óhemju mikið áfengi,
prúttaði við leigubílastjórna (sem rændu mig ALDREI),
notaði almenningssamgöngur (rútur sem voru teipaðar saman :Þ)
skipti á hverjum degi um strætó í einu stærsta fátækrahverfi Caracas,
keypti mat af götunni
og ég er enn á lífi og Svana (sem var með mér úti) lifði það svo sannarlega af að hafa fengið sér tattú og guð hjálpi henni gat í tunguna ! Já það er svo sannarlega ekki allt sem ekkert er vestrænt stórhættulegt ...

En aftur að þættinum þá játaði konan líka að hafa tekið kókaín í nefið af maganum á samkynhneigðum manni en ég veit ekki hvaða máli skiptir HVAR það gerðist né af hverju það skipti máli að hann var SAMKYNHNEIGÐUR !


Mig langaði heil ósköp í göngu með Útivist í dag en ég er víst í prófi og það gengur fyrir :Þ Mig langaði líka heil ósköp á köfunardaginn í sundlauginni minni í gær en hey prófið gengur fyrir ... Bara 3 vikur af þessu í viðbót YES.


Íris með auga sem er að nálgast þrítugt núna

1 comentario:

Anónimo dijo...

Harðfiskur er namminamm :P Og já, þó að House sé spennó er margt pínu ruglumbull.